Morgunblaðið - 25.09.2021, Síða 34

Morgunblaðið - 25.09.2021, Síða 34
34 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2021 Í júní spurði ég í Bændablaðinu: 1) Er kvótinn þjóðareign? Sé svarið já er spurt: 2) Hvernig ætlið þið að auka arð af kvótanum til þjóðarinnar? Stjórnarskráin svar- ar fyrri spurningunni: Kvótinn er þjóðareign. Ég átti ekki von á svari við þeirri seinni. Í kosningabaráttunni er lítið minnst á kvótann. Lofað er lækkun skatta og ýmsu öðru, sem kostar mikið fjármagn og sagt er frá hrikalegri skuldastöðu eftir Covid. Er stjórnin búin að semja um óbreyttan kvóta nái þau kjöri? Nær- tækara væri að fá eðlilegan arð af þjóðarauðlindinni, áður en meira er selt af sameign þjóðar, eins og t.d. Landsvirkjun. Benedikt Jóhannesson, stofnandi Frjálslynda flokksins, er sá eini sem þorir að tala um að ná kvótanum til baka. Gallinn við þann flokk er, að hann vill koma þjóðinni í ESB, eins og Samfylkingin. Með inngöngu í ESB verða lög ESB æðri íslenskum lögum og þar með ráð- um við ekki yfir sjáv- arauðlindinni. Ekki frekar en yfir rafork- unni eftir samþykki orkupakka 3. Seinni spurningin. Aukinn arður af auð- lindinni: Fyrsta skref er leið- rétting fiskverðs, sem er jafn vitlaust og geng- isskráningin var um miðja seinustu öld. Rétt fiskverð fæst með því að setja allan fisk á opinn markað. Markaðurinn leiðréttir og finnur rétt fiskverð út frá framboði og eftirspurn. Næsta skref er að að bjóða kvót- ann út. Lausnina á því sá ég í harð- fiskspoka. Mynd af Heimakletti var prentuð á pokann, vöruheitið var Eyjabiti og framleiðandi Darri á Grenivík. Forsaga þess að Eyjabiti var seldur frá Vestmannaeyjum var skortur á hráefni, því þar fékkst fisk- ur ekki flakaður. Sveitarfélag Grenivíkur hafði keypt kvóta til að styrkja stoðir at- vinnulífsins. Frystihúsið fékk afnot af kvótanum. Kvóta sem var kominn til að vera og Darri fékk að flaka fisk keyptan á markaði í flökunarvél frystihússins. Það var snemma morguns eða að kveldi eftir því hvernig stóð á hjá frystihúsinu. Við að kynna mér þetta komst ég að því, að sveitastjórnin á Grenivík stuðlaði líka að uppbyggingu lyfjafyrirtæk- isins Pharmartica, sem selur fram- leiðslu sína um land allt. Ég hefi hugsað til Grenivíkur með sína 300 íbúa í hvert skipti, sem sagt var frá sölu kvóta. Það eru þung högg, hvort sem kvótinn fer með sölu skipa úr byggðarlaginu eða beinni sölu. Mörg sveitar- og bæjarfélög stæðu betur hefðu þau borið gæfu til að eiga jafn framsýnan sveitarstjóra og Guðnýju Sverrisdóttur á Grenivík. Það stóð aldrei til að kvótinn safn- aðist á fáar hendur. Þjóðin hefur lengi verið ósátt við það og er enn, þótt stjórnmálamenn hafi gleymt hon- um. Ein leið til að ná þjóðarsátt um kvótann er að taka saman, hvað hvert byggðarlag aflaði mikils á árunum, áður en kvótanum var komið á og deila svo núverandi kvóta í sömu hlut- föllum til baka. Byggðarlögin eru best til þess fallin að ráðstafa kvótanum þannig að það sem fæst fyrir hann komi sem best út fjárhagslega og at- vinnulega. Þau geta boðið hann út all- an eða leigt að hluta til fiskvinnslu og útgerðarfyrirtækja á staðnum eða í öðrum byggðarlögum. Markmiðið er að fá réttan arð af kvótanum og nota arðinn til uppbyggingar á staðnum. Það getur bæði verið til uppbyggingar innviða og sprotafyrirtækja. Þeir sem stjórna á hverjum stað munu reglu- lega verða að standa skil á verkum sínum í sveitarstjórnarkosningum. Á þennan hátt fær þjóðin meiri arð af auðlindinni, sem byggðarlögin geta ráðstafað. Tökum sem dæmi Vest- mannaeyjar. Þaðan fara konur til Reykjavíkur að fæða börn. Ein ástæða þess er að handhafar kvótans hafa farið með arðinn af auðlindinni úr byggðarlaginu í brask. Á sama tíma hefur skort fjármagn fyrir uppbygg- ingu og rekstur sjúkrahússins. Önnur ástæða gæti verið að sjúkrahús á landsbyggðinni hafa setið á hakanum eftir að ákveðið var að byggja há- tæknisjúkrahús í Reykjavík fyrir ca. 20 árum. Mannauður nýtist mikið betur með útdeilingu kvótans á þennan hátt. Víða um land leynast sprotar, sem geta sprottið upp og dafnað sé hlúð að þeim. Arna á Ísafirði er dæmi um fyrirtæki, sem „mannauður“ hefur byggt upp til framleiðslu á mjólk- urafurðum. Með þessu fyrirkomulagi er grundvelli ekki kippt undan stærstu fiskvinnslufyrirtækjum landsins. Þau hafa í áratugi byggt sig upp og eru nú með þeim fremstu í heiminum. Uppbyggingin byggist á því, að þau hafa fengið nýta kvótann nánast án endurgjalds í áratugi og standa nú mikið betur að vígi en aðrir, þegar kvótinn verður boðinn út. Fjármagnið í uppbygginguna kom úr sjónum. Samtímis uppbygging- unni hafa þau greitt út milljarða í arð og munu áfram greiða sér milljarða í arð miðað við óbreytt ástand. Þeir sem vinna aflann mest fá mest fyrir afurðirnar og geta boðið best í kvótann. Það er því ekki verið að taka neitt frá þeim. Einungis er opn- uð smá glufa komi frumkvöðlar, sem gætu fengið meira fyrir afurðirnar. Það er heldur ekki lagt til að skella þessu öllu á í einu. Það væri hægt að bjóða út 25% fyrsta árið og áfram þannig að þjóðin endurheimti kvót- ann á einu kjörtímabili. » Byggðarlögin eru best til þess fallin að ráðstafa kvótanum þannig að það sem fæst fyrir hann komi sem best út fjárhags- lega og atvinnulega. Sigurður Oddsson Höfundur er verkfræðingur og eldri borgari. Endurheimtum kvótann Eftir Sigurð Oddsson Hinn 21. apríl 1943 var Northrop N-3PB- flugvél norsku flug- sveitarinnar týnd eftir nauðlendingu á Þjórsá. „Þeir voru á leið frá Seyðisfirði til Reykja- víkur og höfðu góða veðurspá en svo versn- aði veðrið og þar sem þeir voru í sjónflugi þótti þeim vissara að finna sér lendingarstað og þar var Þjórsá fyrir augum. Í lendingunni rifnaði annað flotið af og þeir höfn- uðu á sandrifi í miðri ánni,“ segir Sevy Bulukin, ofursti í konunglega norska flughernum. Vatnið var ís- kalt en þeir björguðust á land og hófu göngu að næsta bæ. Þrjátíu og sjö árum síðar bankaði Bulukin aft- ur á dyrnar en ekki sem flugmaður úr brotlendingu að leita að skjóli heldur sem meðstjórnandi í leið- angri til björgunar flugvélarflakinu sem hann lenti þar á stríðsárunum. Íslend- ingar, Flugsögufélagið, Bandaríkjamenn, Bret- ar og Norðmenn voru í þessum björgunarleið- angri til að ná flakinu upp úr sandinum og leirnum í Þjórsá. Það tók marga daga og kaf- ara við mjög erfið skil- yrði að koma vélini upp úr ánni en með góðu verksviti og þekkingu á straumum árinnar tókst það. 330. flugsveit norska flughersins hafði á að skipa 18 vélum af þessari gerð en aðeins 24 voru smíðaðar í allt. Sú fyrsta fór í loftið 1940 og var þá hraðfleygasta sjóflugvél í heimi. Er hún sú eina sem til er í dag og er geymd á flugsafni á Gardermoen- flugvelli í Osló. Aðalhlutverk þess- arar flugsveitar var að verja skipa- lestir fyrir kafbátum þýska hersins og ráðast á þýskar njósnaflugvélar. Aðstaða þeirra var frekar erfið í Nauthólsvíkinni og enn í dag má sjá básana þar sem vélunum var lagt á landi til viðhalds og viðgerða úti undir berum himni í öllum veðrum. Björgun og endursmíði 1979-1981 Eftir átta daga vinnu við ána og hátt í tug tonna af sandi og leir var flakið híft upp, ef ég man rétt þá var höfð samvinna við Landsvirkjun um að stjórna vatnsmagninu þessa daga svo að sem minnst vatnshæð væri á vinnusvæðinu. Flakið var síðan sett í herflutningavél frá norska flug- hernum og flogið til Northrop- verksmiðjunnar í Kaliforníu í Bandaríkjunum í október. Strax var hafist handa við endursmíðina. Gerðu 88 starfsmenn Northrop það í sjálfboðavinnu á kvöldin og um helg- ar en níu af þeim höfðu komið að smíðinni upphaflega og þekktu því aðeins til flugvélarinnar. Marga hluti vantaði sem ekki náðust upp úr ánni og engar teikningar fundust til að vinna eftir og voru hlutir smíðaðir eftir minni eða ljósmyndum. Síðar komu í ljós um 1.800 teikningar sem fundust á míkrófilmum í skjala- geymslu og þá fóru hjólin að snúast. Mikil vinna var fólgin í hreinsun hluta og reynt var að nota sem mest af upphaflegum einingum flaksins en smíða þurfti samt allmikið af hlutum til að koma þessu öllu saman, talið er að 30-40% af frumvélinni hafi nýst í endursmíðina. Á þessum tæpu 40 árum hafði allri tækni og tækjum við smíðar á flugvélum farið gífur- lega fram og tölvuöldin handan við hornið, því var endursmíði hluta mun einfaldari og hraðvirkari en áð- ur var. Eitt er þó sem ekki hefur verið mikið sagt frá en í flugvélinni var rafgeymir af Exide-gerð og hafði hann legið þarna allan tímann. Í fyrstu handtökum við endursmíðina var hann settur í hleðslu og hélt orku, þá var tengd við hann pera og þrýstirofi og í hvert sinn sem ein- hver gekk fram hjá ýtti sá á rofann og fékk ljós! Þykir með ólíkindum hversu vel hann stóð sig eftir svona langan tíma í Þjórsá. Ragnar J. Ragnarsson, fyrrver- andi formaður Flugsögufélagsins, átti drýgstan þátt í að koma þessari björgun af stað og má einnig geta þeirra Baldurs Sveinssonar, Einars L. Gunnarssonar, Jóns Karls Snorrasonar, Georgs Ólafs Tryggva- sonar og Grétars F. Felixsonar, sem skipuðu stjórn Flugsögufélagsins á þessum tímum, auk fjölmargra fé- laga sem stóðu að baki þessari sögu- legu björgun. Þakkir eiga einnig skildar fjölmargir sem lögðu hönd á plóginn beint og óbeint. Flugvélin var síðan afhjúpuð við viðhöfn í nóvember 1980 í Northrop- verksmiðjunni og önnur afhjúpunar- athöfn var í Reykjavík, á Vatnsmýr- arflugvelli, skýli 1, vorið eftir er Northrop N-3PB endursmíðuð var á leið til Noregs til varðveislu. Eftir Jón Svavarsson » 330. flugsveit norska flughersins hafði á að skipa 18 vélum af þessari gerð en aðeins 24 voru smíðaðar. Er hún á flugsafni í Osló. Jón Svavarsson Höfundur er flugmaður/flug- sögumaður. motiv@simnet.is Northrop N-3PB – endurminning Með þátttöku í sam- félaginu á vinnumark- aðsaldri ávinnur fólk sér rétt til ellilífeyris frá TR þegar kemur að því að ákveðnum líf- aldri er náð. Þegar líf- eyrissjóðakerfinu var komið á fót var það gert í því augnamiði að auka ráðstöfunar- tekjur í ellinni umfram áunnin réttindi frá TR. Þess mis- skilnings virðist gæta meðal margra að eðli ellilífeyris megi jafna við ör- orkubætur sem átti að vera örygg- isnet fyrir þá sem vegna skertrar starfsgetu geta ekki aflað sér tekna með vinnu. Örorkubótakerfið er gróflega misnotað en greiðslur úr því eiga að taka mið af getunni til að stunda launaða vinnu. Eðli ör- orkubóta og ellilífeyris er hins vegar gjörólíkt þar sem ellilífeyrir er í raun ekki skilyrtur við starfsgetu á nokkurn hátt og tekur eingöngu mið af lífaldri. Þótt báðir þessir málaflokkar heyri undir almannatryggingakerfið þá var það aldrei hugmyndin þegar lífeyrissjóðakerfinu var komið á fót að það yrði til þess að ræna fólk réttinum til áunnins ellilífeyris. Sjálfur fór ég að vinna á barns- aldri og hóf greiðslu í lífeyrissjóði 16 ára. Fram til tæplega þrí- tugs greiddi ég í Líf- eyrissjóð sjómanna og var ég með rífandi tekjur á þessum árum. Á námsárum mínum tók ég alla þá vinnu sem mér bauðst og ég hafði tíma til að stunda og hafði því ágætis tekjur einnig af því og alla tíð var greitt í líf- eyrissjóð. Eftir að ég hvarf til starfa í landi var ég með talsvert góðar tekjur og var þá greitt í Frjálsa líf- eyrissjóðinn af þeim tekjum þar til ég hætti nýlega að vinna en ég stend á sextugu á næsta ári. Þar sem við hjónin erum á sama máli um að þegar þessari jarðvist lýkur þá muni þörf fyrir sparifé ekki vera mjög rík þá ákváðum við í sam- einingu að njóta þess sem við höfum náð að nurla saman á lífsleiðinni meðan lífsgæðin leyfa slíkt. Við þessa ákvörðun litum við einnig til þess að vinnuskyldu okkar beggja var löngu lokið með tilliti til skilaðra vinnustunda á lífsleiðinni. Við höfum einnig safnað í annars konar lífeyr- issjóð en bara hina hefðbundnu sem fólk er skikkað til að greiða í. Eigið húsnæði og fasteignir er nefnilega fyrirtaks lífeyrissjóður og þótt stjórnvöld reyni sýknt og heilagt að rýra verðmæti sparifjáreigenda með því að skattleggja verðrýrnun vegna hárrar verðbólgu og lágra innláns- vaxta þá er slíkt einnig lífeyrissjóður fyrir viðkomandi og alls ekki síðri en hinir hefðbundnu. Samkvæmt þeim forsendum sem gefnar eru upp á vefsvæði mínu hjá Frjálsa lífeyrissjóðnum ef haldið hefði verið áfram að greiða í sjóðinn til 67 ára aldurs yrðu mánaðarlegar útgreiðslur til mín úr öllum sjóðum sem ég hef greitt til tæpar 185.000 krónur þar til samtrygging tekur við 85 ára. Þá yrðu mánaðarlegar út- greiðslur til dauðadags samtals upp á tæp 210.000. Rétt er að hafa í huga að flestir komnir á níræðisaldur eru orðnir ósjálfbjarga grænmeti sem bíður þess aðeins að kveðja þetta jarðlíf ef þeir eru þá ekki löngu farn- ir. Finnst mér nú til mikils hafa verið stofnað með söfnun í hefðbundna líf- eyrissjóði fyrir heldur rýra útkomu. Samkvæmt reiknivél TR fengi ég 266.000 mánaðarlega í ellilífeyri það- an frá 67 ára aldri ef engar út- greiðslur kæmu úr hefðbundnum sjóðum með ráðstöfun eftir skatt upp á 233.000 en 194.000 fái ég út- greiðslur eins og vísað er í að framan með heildarráðstöfun upp á 309.000 eftir skatt. Að greiða í lífeyrissjóði 12% af launum mínum allan starfsaldur minn hefur því skilað mér meiri ráð- stöfunartekjum í ellinni upp á 76.000 á mánuði þar sem stjórnvöld ræna mig þeim réttindum upp á 109.000 á mánuði sem ég hafði áunnið mér. Ekki skilur á milli feigs og ófeigs með þessum auknu ráðstöfunar- tekjum en hæpið er að stigbreyta orðið dauður, það væri þá kannski hálfdauður, dauður, steindauður og áhöld um hvað af því er verst. Þetta er algjörlega án tillits til þess hvort ég held áfram launaðri vinnu eftir 67 ára aldur en þá er slíkt hirt af mér til viðbótar. Telji embættismennirnir sem stjórna svona fáránleika einhverja sanngirni í þessu ætti með réttu að skerða föst laun þeirra sem nemur öllum greiðslum til þeirra umfram föst laun. Lífeyrissjóðirnir eru þar fyrir utan allt of margir og dýrir og þar valsar um sjálftökufólk sem ekki er með nokkru móti tengt þeim raunveruleika sem hinn almenni líf- eyrisþegi býr í. Samkvæmt árs- reikningi Frjálsa lífeyrissjóðsins nam rekstrarkostnaður 2020 að meðtöldum fjárfestingagjöldum 824 milljónum, framkvæmdastjórinn er með 31,5 milljónir í árslaun og stjórnarformaður 5,2 milljónir fyrir að sitja nokkra fundi árlega. Inn- greiðslusjóðsfélagar voru í fyrra 21.374 og heildariðgjöld námu 21,2 milljörðum. Lauslega reiknað eru því meðalárslaun hvers inngreiðslu- félaga 7,2 milljónir. Hvers vegna ætti framkvæmdastjóri sjóðsins að hirða fjórfaldar tekjur og stjórnar- formaður nánast árslaun meðal- mannsins í sjóðnum? Þetta fólk hefur virkilega þörf fyr- ir göngutúr í kirkjugörðunum en þar hvílir ómissandi fólk í stórum stíl og það án þess að almennt hafi verið tekið eftir því að það hafi horfið til annars tilverustigs. Þótt ég sé mikill frjálshyggjumaður þá býr í mér sá laumukommi að ég tel rétt að þjóð- nýta alla lífeyrissjóðina og ellilíf- eyrir TR taki bara við þessu eins og var. Eftir Örn Gunnlaugsson »… en hæpið er að stig- breyta orðið dauður, það væri þá kannski hálfdauður, dauður, steindauður og áhöld um hvað af því er verst. Örn Gunnlaugsson Höfundur er fv. atvinnurekandi. orng05@simnet.is Lífeyrissjóðir fyrir hverja?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.