Morgunblaðið - 25.09.2021, Síða 35

Morgunblaðið - 25.09.2021, Síða 35
UMRÆÐAN 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2021 Guðmundur Ingi, þú ættir ekki að láta ákaf- ann hlaupa með þig í gönur! Ég held að þú ættir að hætta að monta þig af hvað þú ert búinn að friðlýsa marga staði á landinu og fara að skammast þín fyrir að traðka á fólki og brjóta lög og stjórnaskrá. Þú situr á ráðherrastóli, var troðið í hann af VG, ekki kosinn af þjóðinni, öfga- maður í ýmsum málum, þá sér- staklega friðlýsingum, náttúruvernd og rembingi við að gera allt landið og miðin að einum allsherjar þjóð- garði. Víst er það rétt sem þú skrifar í Fréttablaðið 14. september sl. að Ís- lendingar búa að þeim auði að hafa lítt snortna náttúru, víðerni, fossa og fjöll, þökk sé Guði fyrir okkar fallega og góða land. Það er ekki nóg að friðlýsa og hafa einhverja fallega tölu á blaði sem sýnir hvað þú hafir verið duglegur að ruddast áfram og þykjast vera vernda landsvæði með henni, það þarf að hafa fólk til að fylgjast með að farið sé að settum reglum. Og það er ekki nóg að segja að um- hverfisstofnun/ ráðuneyti muni sjá um þetta allt og gefa skít í landeigendur og gera svo sem minnst af því sem þið eruð að lofa. Þið/þú eruð að traðka á og brjóta á stjórn- arskrárvörðum rétt- indum manna. Hvar er eftirlitið? Eftirlitið sem þið segist í samningaviðræðum ætla að hafa með friðlýstu stöðunum er í al- gjörri mýflugumynd, fyrir nú utan eftirlitið sem þið eigið að hafa lögum samkvæmt með verksmiðjum og ýmsum fyrirtækjum sem eru að spilla náttúrunni með spúandi eitur- gufum upp í loftið og losandi ógeð í hafið, væri hægt að nefna mörg dæmi sem upp hafa komið um slíkt. Þið þykist vera að vernda náttúruna og fuglalífið en vegna eftirlitsleysis, sem þið náttúrulega ráðið ekki við vegna skorts á fólki og/eða fólkið sem á að vera að sjá um þessa hluti er í einhverjum leikaraskap. Eins og t.d. landvörður sem UMST hefur ráðið í eitt af nýjustu óleyfisfriðlýs- ingunni þinni, hann þykist vera í ein- hverjum lögguleik stoppandi bíla innan svæðisins og segja þeim að bíllinn séu eineygður eða vanti aftur- ljós. Fólk hefur kvartað undan þessu við mig. Ég, sem eigandi að stórum hluta í Hvallátrum/Látrabjargi, hef verið mikið á staðnum frá því í vor og þar til nú, og verið mikið úti við, hef mjög lítið séð til landvarðarins, sem reyndar áttu að vera tveir þegar ég var í viðræðum við umhverf- isstofnun á sínum tíma. Þú skellir á einhverri friðlýsingu á Látrabjarg með viljayfirlýsingu frá formanni Bjargtanga sem hefur ekkert umboð landeigenda til að taka slíkar ákvarðanir enda skýrt í lögum félagsins að svo sé ekki, það þarf leyfi eigenda allra jarðarinnar/ býlanna til að skuldbinda landeig- endur. Samkvæmt lögum um friðlýs- ingar þarf samþykki allra eigenda fyrir slíku og ekki má brjóta stjórn- arskrárvarinn rétt manna þó svo að Alþingi semji einhver lög sem fara í berhögg við stjórnaskrána. Þú ert líka að brjóta netalög með því að taka yfir eign manna. 72. gr. Eignarrétturinn er frið- helgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almennings- þörf krefji. Þarf til þess lagafyr- irmæli og komi fullt verð fyrir. Eins og stjórnarskráin segir þá þarf í okkar tilfelli, eigenda Látra- bjargs og umhverfis, leyfi allra eig- enda til að friðlýsa, en þú Guð- mundur, hefur ekki leitast eftir því af fullum heiðarleika heldur gert eitthvert samkomulag við formann Bjargtangafélagsins og fengið hann til að skrifa undir einhverja vilja- yfirlýsingu sem heldur ekki vatni. Bara að nauðga þessu í gegn til þess að geta skreytt þig með þessum lé- legu fjöðrum. Kannski hefurðu feng- ið formanninn til að skrifa undir þessa viljayfirlýsingu með því að leyfa honum að stunda tófu/ refaveiðar í hinu svokallaða friðlandi sem hann er farinn að stunda. Ég get tínt margt og miklu fleira til um okkar samskipti og Umhverf- isstofnunar en sökum þess að ekki má hafa greinar mjög langar í blaðið er það ekki hægt að sinni en eitt vil ég þó segja að lokum: Það hefði mátt gera samkomulag um friðlýsingu ef græðgi ykkar í yfirráð yfir eignum annarra hefðu ekki verið í forgrunni hjá ykkur. Ég bauð ykkur að frið- lýsa 15-50 metra inn á bjargbrún sem er meira en nóg til að vernda fuglinn, því hann heldur sig við hafið og fer sáralítið inn á land, og einnig ferðamenn, þeir halda sig við bjarg- brúnina. En eins og þú sagðir við okkur sem mættum einu sinni á fund með þér þar sem þú máttir varla vera að því að tala við okkur eða hafðir kannski ekki áhuga á því, þá svaraðir þú þegar ég nefndi 15-50 m, að það væri alltof lítið til að stofna þjóðgarð. Svo er það nú að skemmta skrattanum að leyfa tveimur hópum að rányrkja bjargið með eggjatöku tugþúsunda eggja í gróðaskyni, hvar er friðunin þá? Fyrir utan það sem fullt af aðkomubátum hirða líka egg og svo allt fugladrápið sem fer fram frá sjó því það er ekkert eftirlit. Nú krefst ég þess að þú dragir þennan gjörning þinn til baka, að öðrum kosti verð ég að leita réttar míns fyrir dómstólum. Eftir Marías Sveinsson » Svo er það nú að skemmta skratt- anum að leyfa tveimur hópum að rányrkja bjargið með eggjatöku tugþúsunda eggja. Hvar er friðunin þá? Marías Sveinsson Höfundur er eigaandi Sæbóls Hvallátrum. saebol@simnet.is Opið bréf til umhverfisráðhera Nú þegar kosningar nálgast leyfi ég mér að minna á að í lýð- ræðisríki má segja að kosningarétturinn sé „heilagur“. Á fjögurra ára fresti getum við valið þann stjórn- málaflokk sem við helst viljum að stjórni landinu næstu fjögur árin. Þegar ég segi að kosningarétt- urinn sé heilagur þá vísa ég til þess að hann er eina tækifæri okkar til að hafa bein áhrif á hverjir stjórna landinu – og þar með okkur sjálf- um. Þeir, sem ekki eru fastir á klafa ákveðins flokks, hlusta á framboðs- ræður og fögur fyrirheit frambjóð- enda. Þá er frammistaða flokkanna á fyrri árum rifjuð upp og metin. Lítum á nokkra. Betra líf Samfylkingin. Lítum snöggvast um öxl. Ríkis- stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, formanns Samfylkingarinnar komst til valda snemma árs 2009, í hruninu mikla og hinnar illræmdu Icesave-kröfu. Flokkurinn hafði verið við stjórn ásamt Sjálfstæð- isflokknum undir stjórn Geirs Haarde. Því samstarfi rifti Sam- fylkingin en bauð Vinstri grænum til samstarfs og hélt þannig áfram um stjórnartaumana. Jóhanna Sig. hófst þegar handa við höfuðáhuga- mál sitt; að koma Íslandi í Evrópu- sambandið ESB – og um leið að hnýta Íslendingum Icesave- skuldabagga til margra ættliða. Formaður VG var Steingrímur Sig- fússon fjármálaráðherra. Hann lagðist þegar í tíð ferðalög til Brüs- sel, að semja við ESB og kröfuhafa Icesave. Þar sveik VG hugsjónir sínar og kjósenda sinna. Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra tjáði okkur Íslendingum að stjórn hennar myndi láta hjól atvinnulífsins snúast og slá skjald- borg um heimilin – ástæðulaust væri því að óttast hrun íslensku bankanna, fjárhagslega ringulreið og atvinnuleysi. Raunin varð því miður önnur: Gjaldþrot fyrirtækja og heimila, þúsundir fólks misstu heimili sín og mikill fjöldi fjölskyldna fluttist búferlum – mest til Kanada og Noregs. Eftir að hafa upp- lifað öll ósannindin, leynimakkið og svikin tel ég að Samfylkingin hafi hvorki vilja né heilindi til starfa í þágu heildarinnar – okkar allra. Þá hafa þeir nú lýst vilja sín- um til að koma Íslandi í Evrópusambandið – en það má aldrei verða. Ísland og ís- lensk þjóð er ekki til sölu. Framtíðin ræðst á miðjunni Framsóknarflokkurinn þrífst vel á miðjunni – þaðan er jú styst bæði til vinstri og hægri. Að öðru leyti segir þetta slagorð ekki margt. Sárt þykir mér að sjá hve lítið ligg- ur eftir ráðherra mennta- og menningarmála, útvarps og íþrótta. Oft var þörf en nú er brýn nauð- syn. Íslenskir nemendur eru marg- ir illa læsir og standa jafnöldrum sínum á Norðurlöndum hvergi nærri á sporði. Enskuslettur ná stöðugt meiri útbreiðslu m.a.s. í ríkisfjölmiðlum, ekki síst sjónvarpi allra landsmanna. Hér mætti Framsókn vera framsæknari – hér dugar ekkert miðjumoð. Í þessu eins og fleiru þarf skipu- lag, aga og kjark. Við gerum það sem… Miðflokkurinn hefur lagt fram metnaðarfullar áætlanir. Fast er að orði kveðið og framtíðin máluð sterkum litum; beingreiðslur til landsmanna, báknið minnkað, ný sýn og hugmyndir fyrir íslenskan landbúnað. Margir minnast baráttu Miðflokksins gegn samþykkt orku- pakka 3. Því miður var það „afsal íslenskrar raforku“ knúið gegnum Alþingi á hæpnum forsendum. Það á því miður eftir að koma okkur í koll og reynast okkur dýrkeypt. Framganga og barátta Miðflokks- manna segir mikið um skoðanir og metnað þeirra fyrir Íslands hönd. Þá er eftir því tekið að í röðum þeirra eru margir frambjóðendur á miðjum aldri með reynslu á mörg- um sviðum þjóðfélagsins. Miðflokk- urinn nýtur þess nú að koma fersk- ur til leiks, án hala af brostnum kosningaloforðum. Það verður frambjóðendum hans hvati til að „gera það sem þeir segjast ætla að gera“. Ef ekki, verður fallið of hátt. Land tækifæranna Formaður Sjálfstæðisflokksins talar um Ísland sem land tækifær- anna. Ekki skal um það deilt enda hefur hann næmt auga eins og t.d. hvenær skuli selja banka eða lækka veiðigjöld stórútgerðanna. Þá er rétt að fagna því að hann tel- ur nú rétt að lækka skatta. Leitt að hann skyldi ekki fá þessa góðu hugmynd í upphafi kjörtímabilsins frekar en núna við lok þess! Ýmsir vilja nýja stjórnarskrá ekki síst til að lögfesta eignarhald íslensku þjóðarinnar á öllum auðlindum lands og sjávar. Þetta stendur í sjálfstæðismönnum. Raunar er merkilegt hvað þeir hafa lengi komist upp með þetta, svo stórt mál sem þetta er. Margir sáu formanninn í sjón- varpi sýna handbragð sitt við kö- kuskreytingar. Nú er bara að vona að fimi hans með kökuhnífinn sé ekki síðri en með rjómasprautuna. Þá vefst vart fyrir honum að skipta kökunni – jafnt! Fólkið fyrst … Segir flokkur fólksins. Stofnaður til að berjast fyrir hagsmunum aldraðra og sjúkra. Það segir eig- inlega meira um stjórnarflokkana að það skuli þurfa sérstaka rödd á hinu háa Alþingi til að gæta hags- muna þeirra sem sjúkir eru og aldraðir – eins sjálfsagt og það er í þjóðfélagi eins og okkar Íslend- inga. Gefðu framtíðinni tækifæri Viðreisn á sér svipuð baráttumál og Samfylkingin, þ.e. að koma Ís- landi í Evrópusambandið og taka upp evru. Slík framtíð er ekki ís- lensk framtíð. Afkomendur okkar eiga betra skilið. Eftir Baldur Ágústsson »Með atkvæði okkar í vasanum setjast þau á þingstóla, ráða ráðum sínum og taka ákvarðanir sem snerta okkur öll. Vöndum val þeirra vel. Baldur Ágústsson Höfundur er fv. forstjóri, flugumferð- arstjóri og forsetaframbjóðandi 2004. bagustsson@mac.com baldur@landsmenn.is Á okkar ábyrgð Geðveiki er líkami í baráttu gegn um- hverfi sínu. Biðlistar bera ekki vott um gallaða einstaklinga, þeir eru vísbendingar um galla í kerfinu. Kvíði er aukaverkun aftengingar okkar við náttúruna. Streita er afleiðing þess að sofna á færibandinu. Fíkn er frí frá stað- reyndunum. Munurinn á anorexíu og öðrum hungurverkföllum er samvitund þátttakenda. Munurinn á persónuleikaröskun og skap- sveiflum er hentisemi söluaðilans. Siðblinda er ekki yfirnáttúruleg illska, hún er hluti sálarinnar sem virkjast í valdastöðu. Í heimi þar sem myndin er góð ef lækin eru mörg og fréttin er sönn ef smellirnir eru margir er sannleikurinn einfaldlega sá sem flestir segja honum að vera. Þess vegna verður maður stöðugt að spyrja sig hver maður er, því um leið og maður hættir að svara þessari spurningu er einhver ann- ar tilbúinn að svara fyrir mann. Það er alltaf einhver tilbúinn að útskýra hvað er að okkur, og það er freistandi að trúa þeim sem segir að lyfseðillinn sé uppskriftin að bestu útgáfunni af sjálfum okk- ur. Þegar við köllum eiginleika okk- ar einkenni og römmum okkur inn í greiningu fáum við ástæður til að líða eins og okkur líður, en ástæð- urnar eru ekki ókeypis. Fórn- arkostnaður þess að skipta sér út fyrir sjúkling er sjálfstæð hugsun. Andstæða frelsis er vantraust á eigin getu til að bera skynbragð á þann veruleika sem mænir á mann hverju sinni. Sjálfsefinn er fang- elsið sem við köllum þægindarammann. Feimni er afsökun þess sem þorir ekki að ábyrgjast eigin fram- komu, og eðlilega breikkar bilið milli þess sem við hugsum og segjum þegar við treystum ekki eigin sannfæringu. Það er engin lækn- ing við því að vera manneskja, og lífið er of stutt til að lyfja sig frá vand- ræðunum sem því fylgja. Mistök eru augnablikin sem sameina okk- ur í sömu tegundina. Sambönd eru eins og önnur náttúrufyrirbæri: nærandi og eitruð í senn. Suma daga finnum við frið í vænt- umþykju hvort annars; aðra daga finnum við öryggi í örvæntingu hvort annars. Persónuleikar eru síbreytileg fyrirbæri og til að þekkja fólkið í kringum okkur verðum við að kynnast því á hverj- um degi. Áhyggjur eru vasaþjófar augnablikanna. Reiði er varnarlás tilfinninganna. Ofbeldi er ekki annað en yfirgengileg þrá eftir nánd, og um leið og við missum tenginguna við fólkið í kringum okkur verður það ofbeldið sem skilgreinir okkur. Maður verður að brotna smá og bila því batnandi mönnum er best að lifa. Engar manneskjur eru eins og þess vegna getum við ekki lært neinn utanbókar, ekki einu sinni okkur sjálf. Eftir Ernu Mist Erna Mist » „Áhyggjur eru vasa- þjófar augnablik- anna.“ Höfundur er listmálari. ernamist@ernamist.net Deyfandi ástæður Þarftu að láta gera við? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.