Morgunblaðið - 25.09.2021, Síða 45

Morgunblaðið - 25.09.2021, Síða 45
MINNINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2021 Takk fyrir leiðsögnina, kæri vinur. Fordæmi þitt verður mér leiðarljós í viðleitni við að ástunda ríka vináttu og gott, innihaldsríkt líf. Milli trjánna veður tunglið í dimmu laufi hausttungl haustnæturgestur á förum eins og við og allt eins og laufið sem hrynur. (Snorri Hjartarson, Hauströkkrið yfir mér) Kristín Atladóttir, Hólshjáleigu. Dýrmætur vinur og náttúru- verndari dó í faðmi náttúrunnar 30. ágúst í blómagarðinum í Grágæsadal. Hann fór til að vökva blómin og dó í aldingarði öræfanna meðal smávina fagra, foldarskarts. Völundur bar nafn með sanni, hann valdi undrið. Við Kreppulón í 640 m hæð ræktaði hann af alúð víði, birki, furu, rabarbara, kartöflur, blómplöntur fjölærar og einær- ar. Hann byggði af listfengi Einarsskála með vinum 1967 og síðan fleiri hús í dalnum sem risu látlaus en formfögur eins og blóm og móhellur sem prýddu garðinn. Síðasta húsið var reist í sumar; „hús fyrir konu og hund“ eins og hann orðaði það og brosti út í annað. Hugmyndin að húsinu var göngutjald og útfærslan hag- anleg og listræn. Völundur sáði fræjum og kom öllu til að blómstra. Dýr- mæt vinátta blómstraði í nátt- úruvernd og landgræðslu í faðmi öræfanna. Samveru- stundir vökvuðu fræ vonar og verndar, fræ vináttu og virð- ingar. Hann var sögumaður, einlægur, íhugull, með dirrandi húmor og skapandi óræða stefnufestu bæði í frásögn og öllum verkum. Hann var sér- lega góður kennari og kenndi með því að gera og vera. Það var heilnæmt og hressandi að taka til hendinni undir leiðsögn Völundar. Öll verk voru vel undirbúin en líka sjálfsprottin í stefnumóti við veður og vinda. Ég kynntist Völundi fyrst í náttúruverndarbaráttunni 2002, fyrstu Augnabliksferðirnar um undraveröld Jöklu og Kringils- árrana enduðu í Grágæsadal. Þar tók Völundur á móti okkur kyrrlátur en félagslyndur af miklu örlæti og gestrisni. Gekk með ferðafélögum í blómagarð- inn og fræddi og sagði sögur af jurtum og víðernum hálendis- ins, leiðöngrum um óbyggðirn- ar og byggingu skála til að auð- velda fólki að fara í skemmtiferðir og njóta víðern- anna. Húsið sem hýsir garðá- höldin í Grágæsadal er bænhús. Það segir meira en mörg orð. Í lok Augnabliksferða gengum við kyrrðargöngu frá flagg- stönginni að bænhúsi í vernd- arbæn fyrir hálendinu. Margir vökvuðu garðinn með tárum sínum eftir þessa bænastund. Lögðust í faðm jarðar og grétu. Það voru tár sorgar og gleði. Tár sem fögnuðu samtöðunni, að vera hluti af náttúrunni, vitni að fegurðinni og þátttak- andi í að hlúa að lífinu á jörð- inni. Þannig líður mér núna. Það er sorg í hjarta að missa góðan vin en um leið svo djúpt þakklæti fyrir vináttuna og samveruna í hjartnæmri há- lendisvin við Kreppulón. Síðasta samverustund okkar Völundar var í sumar, 19. júlí, í Grágæsadal. Það var flaggað í hálfa stöng fyrir hálendið. Völ- undur vaknaði snemma, dró fánann í hálfa stöng, athöfnin jarðtengd og fáguð, hljóðlát en öflug. Síðastliðin 19 ár hefur Völundur flaggað í hálfa stöng 19. júlí í samstöðu með hálend- inu til að mótmæla virkjana- framkvæmdum við Kárahnjúka. Það er einstakt að eiga vin í hálendisvin, gamlan vin í Grá- gæsadal, vin sem með verkum sínum brúar bil milli þess mögulega og þess ómögulega, þess sýnilega og þess ósýni- lega, þess endanlega og þess óendanlega. Takk fyrir allt elsku Völundur, þín er sárt saknað en við eigum stefnumót í fræjum inni á öræfum þar sem fegurstu blómin vaxa. Ásta Arnardóttir. Það var mikil gæfa að fá að kynnast Völundi. Hann var sér- lega vandaður maður og reynd- ist mér ávallt afar hjálplegur við kortlagningu jarðlaga á Brúar- og Möðrudalsöræfum. Áður en ég fór fyrst inn á þetta svæði ráðlagði Sigurjón Rist mér eindregið að tala við Völ- und á Egilsstöðum, því enginn þekkti öræfin þar betur en hann. Á smíðaverkstæðinu á Egilsstöðum fann ég Völund og hann teiknaði slóðana fyrir mig inn á atlaskort. Þegar ég síðan ók um svæðið varð mér ljóst hve nákvæmlega hann þekkti hvern krók og kima, hann vissi deili á öllu sem vita þurfti. Þá var þekking hans örnefnum ekki síðri. Síðar varð mér ljóst að Völundur var einhvern veg- inn með yfirumsjón á þessum hluta hálendisins. Allir virtu hans skoðanir og í hjarta þessa svæðis, Grágæsadal, byggðu hann og fleiri skála sem telst með þeim bestu á hálendinu með tilliti til víðáttu, kyrrðar og útsýnis. Á ferð minni um Egilsstaði í síðasta mánuði hitti ég Völund heima hjá sér í Hjarðarhlíð 5, ásamt dóttur og tengdasyni. Hann vantaði tvo daga í að verða 91 árs og var á leiðinni að halda uppá afmælið í Grágæsa- dal. Hann lék á als oddi, spjall- aði um öræfin og þegar ég kvartaði um takmarkanir á akstri utan slóða núorðið sagð- ist hann hafa undanþágu. Einn af samgönguráðherrunum hefði einu sinni sagt við sig að hann mætti aka hvar sem honum sýndist. Það kom ekki á óvart því aksturslagið hans var þann- ig og gamli Willys-jeppinn hans hafði auk þess undraverða fjöðrun, var léttur og það sáust varla nokkur för þar sem hann fór yfir. Ég fór með Völundi í bílskúrinn að skoða jeppann og fékk í leiðinni frásagnir um eitt og annað sem þarna var, m.a. ísbrjót sem hann notaði fyrir margt löngu til að brjóta ís við vetrarveiðar á vötnum. Ég fékk að taka nokkrar eftirminnilegar myndir af honum í smiðjunni þar sem engu hafði verið hent í gegnum tíðina. Sem lítið dæmi um hve vel hann þekkti hálendið sagði hann mér einu sinni frá opinni sprungu við Arnardal sem gæti rúmað tvo menn. Mér fannst þetta frekar ótrúlegt, ég hafði ekki fundið þar neinar opnar sprungur þrátt fyrir mikla leit. Næst þegar við áttum leið í Arnardal gekk hann með mér spölkorn til suðurs og sagði: „Hérna er þetta,“ en ég sá ekk- ert. Fór hann þá að hellu sem hann dró til hliðar og kom þá í ljós lítið op ofan í nokkurt rými fyrir neðan, en Vilhjálmur Jónsson í Möðrudal hafði upp- haflega sagt honum frá þessu. Ég kvaddi Völund og undr- aðist hve ern hann var, léttur í lund og vel á sig kominn miðað við aldur. Mér eru í minni margar ánægjulegar ferðir með honum og ýmiss konar stúss sem hann var ávallt tilbúinn að sinna, hvort sem það var flutn- ingur á kofum með Degi Krist- mundssyni, viðgerð á jeppa eða bara samflot um óbyggðirnar. Völundur var einstakur, ávallt traustur og úrræðagóður ferða- félagi og það er mikil gæfa að hafa fengið að verða honum samferða úti í íslenskri náttúru. Jóhann Helgason. Sá kunnings- skapur er jafnan hlýjastur, sem bundinn er snemma á ævi, af því að hann byggist oft- ast á því, að menn fella skap sam- an. Það fór vel um tuttugu og fjögur stúdentsefni Verslunar- skólans uppi á hanabjálka húss- ins við Grundarstíg. Lærifeðurn- ir hver öðrum ágætari og gott að minnast þeirra. Skólastjórinn, dr. Jón Gísla- son, sá viðbrigðasnjalli kennari, gerði okkur nemendum sínum að læra utanbókar 20 endursagnir á þýsku. Þessar sprettilræður áttu eftir að koma mörgum mannin- um vel heldur en ekki, síðar á ævi. Ein var á þá leið, að auðmaður amrískur réð hinn góðfræga ítalska tenór Enrico Caruso sem þá var í söngferð um Bandaríkin, til þess að halda fyrir sig hús- konsert og hét honum himinhárri fjárhæð að launum. Söngvarinn stóðst ekki mátið, kom á vettvang á tilsettum tíma og tók með sér píanóleikara. En honum til mik- illar undrunar voru engir við- staddir í viðhafnarstofu auðkýf- ingsins, þar sem flygill var til reiðu, aðrir en húsbóndinn sjálf- ur og svolítill kjölturakki hans. Og ekki hafði upphafið að íðilfag- Einar Hjaltason ✝ Einar Hjalta- son fæddist 22. apríl 1945. Hann lést 6. september 2021. Útför Einars fór fram 20. september 2021. urri aríu fyrr farið að hljóma en héppi tók að spangóla ámátlega (jämmer- lich zu heulen beg- ann). „Látið þér þetta duga, góði,“ sagði þá milljónar- inn og rétti hinum rómaða söngmanni ávísun, „ég ætlaði bara að vita hvort hundurinn minn ýlfrar líka, þegar Caruso syng- ur!“ Í löngu frímínútunum kl. 10.40 til 11.00 var plagsiður nemenda að hlaupa út í húsið nr. 37 við Bergstaðastræti, þar sem var verslunin „Síld og fiskur“, stein- snar frá skólanum, og kaupa af Þorvaldi nýbakaða flatköku og salat. Kaupmaður hafði farið ofan um morguninn í rauðabítið að hnoða saman þetta dýrindis bakkelsi úr rúgmjöli, heilhveiti, sykri og mjólk, en auk þess hrært eggjarauður, grænar baunir, gul- rætur og safa úr sítrónu saman við olíusósu, svo að úr varð lost- æti, sem hét ítalskt salat. Þessu dengdi hann ótæpilega ofan á flatkökuna, sem við brutum sam- an, hvomuðum í okkur og kneyfð- um maltöl við. Skólabúðina, sem rekin var til þess að afla fjár fyrir útskriftar- ferð til Ítalíu, skiptust skóla- systkinin á að annast, tvö og tvö saman. Samviskusemi og ná- kvæmni Einars fór ekki fram hjá stallbróður, sem var svo heppinn að starfa með honum að þessu. Um vorið var svo haldið utan í skemmtiferð og komið til Róms og Pompeii, borgarinnar sem eld- fjallið Vesúvíus gróf undir hraun árið 79 e. Kr. Elstu íbúðarhúsin höfðu verið reist á 4. öldinni fyrir Krists burð. Ævintýralegur upp- gröftur hófst árið 1709 og leiddi í ljós svo jarðneskar leifar íbúanna sem húsakynni þeirra, eldhús- áhöld, mublur og baðhús. Eftir að læknar hættu að ganga sig með töskuna sína heim til fólks og urðu síðar nærri því óínáanlegir, var alveg ómetan- legt að eiga Einar að. Góð kveðja er flutt frá VÍ ’65. Með þökk og í bæn um blessun Guðs er kær skólabróðir og vin- ur, Einar Hjaltason, kvaddur. Guð varðveiti minningu hans og ástvinina alla. Gunnar Björnsson, pastor emeritus. Fallin er frá góðvinur okkar hjóna Einar Hjaltason læknir. Kynni okkar hófust fyrir um 12 árum þegar Einar hóf sambúð með sameiginlegri vinkonu okk- ar. Áhugasvið Einars var mest í að ferðast og fórum við margar ferðirnar saman bæði hér innan- lands og erlendis. Mývatnssveit- in var honum hjartkær enda ólst hann þar upp. Segja má að ekki væri komið að tómum kofunum þar sem Ein- ar var enda víðförull og vel lesinn maður, og hafði yndi af því að ferðast bæði hérlendis sem er- lendis. Hafði hann á sínum yngri árum unnið við brúargerð vítt og breitt um landið og var því þekk- ing hans mjög mikil um flesta staði á landinu. Utanlandsferðir voru farnar fyrir sameiginlegan vinahóp okk- ar og var Einar ávallt látinn skipuleggja þær. Var meðal ann- ars farið í hálendi Skotlands en þar má segja að Einar hafi verið á heimavelli því hann hafði ótal sinnum ferðast um Skotland bæði á ráðstefnur, á eigin vegum og í hópferðum. Gott dæmi um það er að Einar var í skoskum læknahópi, og funduðu þeir á hverju ári á mis- munandi stöðum í Skotlandi síð- an 1982. Enginn fundur mátti fram hjá honum fara og mætti hann þar öll árin. Færeyjaferð var síðan farin 2019 og eins og áður sá Einar um skipulagningu hennar sem hann og gerði með sóma enda þekkir hann marga Færeyinga eftir að hann kom þangað fyrst sem far- arstjóri með hóp handboltast- úlkna fyrir um 40 árum. Allur þessi ferðaáhugi varð til þess að hann fór í leiðsögunám í Ferðamálaskóla Íslands til að fræðast meira um land og þjóð. Útskrifaðist hann þaðan vorið 2019. Sumarbústaðurinn við Búrfell var hans uppáhaldsdvalarstaður og þegar við komum þangað var þar oft glatt á hjalla, mikið spjall- að og hlegið. Búið var að skipuleggja nú í sumar hringferð um Snæfellsnes og átti einnig að fara út í Flatey og dvelja þar í tvær nætur en vegna veikinda Einars varð ekk- ert úr þeirri ferð. Hins vegar átt- um við ljómandi samverustund tveimur dögum fyrir andlátið á veitingastað þar sem við vorum að skipuleggja næstu ferð á kom- andi sumri. Því miður auðnast okkur ekki að fara þá ferð saman en munum ávallt bera minningu Einars sem góðs og skemmtilegs ferðafélaga. Kristín og Friðjón. Kveðja vil ég minn kæra skákvin Harald Ólafsson, einn af bestu skák- meisturum Akureyrar um langt árabil. Marga hildina háðum við á skákborðinu þegar við vorum ungir upp úr miðri síðustu öld. Síðustu skákina tefldum við á hraðskákmóti árið 1988. Við urð- um jafnir og efstir. Haraldur byrjaði ungur að tefla hjá Skákfélagi Akureyrar. Árið 1948, þá 17 ára, varð hann efstur í 2. flokki á Skákþingi Ak- ureyrar. Árið eftir sigraði hann í 1. flokki og í sama flokki á á Skákþingi Norðlendinga árið 1953. Blaðið Verkamaðurinn sagði þá að hann væri mjög efni- legur skákmaður og ætti án efa eftir að láta mikið að sér kveða á skákþingum. Hann varð Hrað- skákmeistari Akureyrar tvívegis, árin 1959 og 1970, Haraldur var jafnframt virkur í starfsemi félagsins. Hann var kjörinn í stjórn þess árið 1952 og sat í henni með hléum til ársins 1965. Hann stjórnaði mörgum skákmótum. Aldrei lét hann sig vanta í ferðalögin sem farin voru á vegum félagsins til að etja kapp við skákmenn vítt um landið eða erlendis. Við Haraldur tefldum mikið saman á árunum 1953-1959. Sér- staklega minnisstæðir eru mér skákfundirnir sem við héldum nokkrir félagarnir á laugardags- kvöldum heima hjá Júlíusi Boga- syni. Þá var teflt fram undir morgun næsta dags. Um mið- nættið nutum við vellystinga konu Júlíusar. Slík hraðskákmót hélt Haraldur heima hjá sér um langt árabil eftir að ég fór til náms erlendis. Þar nutu kunnir Haraldur Ólafsson ✝ Haraldur Ólafsson fædd- ist 5. október 1929. Hann lést 12. sept- ember 2021. Útför Haraldar fór fram 20. sept- ember 2021. skákmeistarar gest- risni hjónanna. Kynni mín af Haraldi hófust ekki hjá Skákfélaginu heldur á gamla Þórsvellinum. Ég var þá stráklingur og fylgdist með ung- um mönnum sem æfðu frjálsíþróttir af miklu kappi. Har- aldur var einn þeirra og meira að segja Þórsari. Sumarið 1946, þá 16 ára gamall, keppti hann á drengjamóti (16-19 ára) á Þórsvellinum og sigraði í langstökki og þrístökki og varð annar bæði í 80 m hlaupi og há- stökki. Næstu árin keppti hann á mörgum mótum og stóð sig best í stökkum, langstökki og þrí- stökki. Árið 1948 var hann send- ur suður til Reykjavíkur til að keppa á Drengjameistaramóti Ís- lands. Þótti það ekki lítil upphefð. Keppnisferill Haraldar í frjáls- íþróttum var stuttur eins og hjá mörgum öðrum á þessum árum. Námi og störfum þurfti að sinna. Eftir að ég fluttist til Árskógsstrandar fyrir tæpum áratug leit ég öðru hvoru við hjá Haraldi. Höfðum við báðir gam- an af því að rifja upp liðna at- burði og ræða um frjálsíþrótta- menn og afrek þeirra en ekki síður um skák og skákmenn. Hann hafði frá mörgu að segja af mönnum og málefnum. Hann var afar minnugur. Það brást ekki að hann vissi jafnan hvenær þessi eða hinn íþróttakappinn var fæddur og hvenær hann vann sín helstu afrek. Sama gilti um helstu íþróttaviðburði. Undrandi varð ég þegar ég tók eftir því að þegar fæðingarár og -dag ein- hvers íþróttamanns bar á góma í samræðum okkar gat Haraldur í snarheitum fundið út hvaða viku- dag sá hinn sami hefði komið í heiminn. Haraldur var hið mesta ljúf- menni og drengur góður. Hans verður saknað. Ingimar Jónsson. Mig langar til að minnast Lillýjar frænku minnar með nokkrum fátæklegum orðum. Það er svo skrítið að hún sé farin þótt við vitum auðvitað öll að kallið fer að nálgast þegar ald- urinn færist yfir okkur. Lillý og Kalla (Karl Jónatans- son) eiginmann hennar sem lést fyrir nokkrum árum hef ég þekkt frá blautu barnsbeini og átt með þeim ómældar gleðistundir. Lillý var stolt, stórglæsileg og hæfileikarík kona. Tungumál lágu vel fyrir henni og hún söng eins og engill þótt hún væri ekk- ert að flíka því en raulaði oft framandi rómatísk lög hvaðan- æva. Hún var mikill mannþekkj- ari og góður sögumaður með næmt auga fyrir því kómíska í hversdagslífinu. Húsmóðir var hún með stóru „H“ og reiddi fram gómsæta rétti og bakaði af hjartans lyst hvort sem eldhúsið var lítið eða stórt en þau hjónin voru víðförul og eldhúsin misr- úmgóð. Það var mjög gestkvæmt á heimili þeirra hjóna enda Kalli óspar á að bjóða fólki heim hvar og hvenær sem var. Þau hjónin voru höfðingjar heim að sækja og ég heyrði móður mína eitt sinn segja um Lillý „Hún hefði átt að vera sendiherrafrú“ sem endurspeglar viðhorfið í þá daga en auðvitað hefði hún orðið frá- bær sendiherra. Þau hjónin bjuggu í Dan- mörku, Noregi, í Dýrafirði, á Flúðum, í Hveragerði og víðar og alltaf var tekið á móti manni með opinn faðminn á heimili þeirra. Sólveig Björgvinsdóttir ✝ Sólveig Björg- vinsdóttir fæddist 28. nóv- ember 1928. Hún lést 3. september 2021. Útför hennar fór fram 17. september 2021. Það sem var svo einstakt við þau var hversu barngóð þau voru og sú virðing sem þau sýndu öll- um börnum. Börn- um var hampað á því heimili en það var ekki svo algengt í þá daga. Alltaf spurði Lillý „ Hvað langar þig mest í?“ og svo voru óskirn- ar uppfylltar eftir bestu getu. Hún gaf sé tíma til að hlusta á börn og fyrir vikið voru óróleg- ustu börn eins og englar nálægt henni. Ég man hvað ég var stolt þegar við gengum saman og hún var spurð hvort ég væri dóttir hennar og hún svaraði „Nei því miður,“ vildi þessi glæsilega góða kona að ég væri dóttir hennar, þvílíkur heiður. Á æsku- árunum varð mér á að brjóta ýmsa verðmæta hluti á heimili hennar m.a. rúðu, forláta karöflu og kristalsfat en hún kippti sér ekki upp við slíka smámuni en þótti verst hvað mér þótti þetta leiðinlegt. Þessi brotasaga mín gefur til kynna hversu oft ég dvaldi hjá þeim annars hefði ég náttúrulega ekki verið svona af- kastamikil. Sem betur hafði ég vit á, nokkrum árum áður en hún lést, að þakka henni vinsemdina, virð- inguna og örlætið sem hún hefur ávallt sýnt mér og mínum. Það er svo mikilvægt að við segjum hug okkar meðan enn er tími til eða eins og móðir mín sagði stund- um: „Giv mig blomster mens jeg lever.“ Ég kveð Lillý með söknuði og þakklæti fyrir hlýjar minningar sem sem ég mun eiga til æviloka. Starfsfólkinu í Ási í Hvergerði þakka ég fyrir að hafa sýnt frænku minni þá umhyggju og virðingu sem hún átti svo sann- arlega skilið. María Sveinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.