Morgunblaðið - 25.09.2021, Side 52
52 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2021
50 ÁRA Leó er Selfyss-
ingur en býr núna í Reykja-
vík. „Ég stefni samt heim ein-
hvern daginn,“ segir Leó.
Hann er stjórnarformaður
og og einn af eigendum Sig-
túns þróunarfélags sem
stendur að uppbyggingu ám-
iðbæ á Selfossi. Húsin sem
verið er að byggja eiga sér öll
sögulega fyrirmynd svo það
má segja að sagan sé á hverju
strái þegar gengið er þarna
um. Þótt það sé bara búið að
byggja 5.000 fermetra en
16.000 fermetrar eru eftir þá
er þegar komin blómleg
starfsemi í miðbæinn, versl-
anir, veitingahús og ýmis þjónusta.
„Viðbrögð fólks hafa verið vonum framar og það skynjar ákveðna stemn-
ingu sem verður til þarna. Það munu mörg söguleg hús koma í næsta áfanga,
eins og Fell sem var á Ísafirði, Hótel Akureyri sem stóð í Aðalstræti, Horn-
grýti sem stóð við Strandgötu á Akureyri, Hótel Ísland við Ingólfstorg, sem
er líklega frægasta húsið og Glasgow-húsið.“ Stefnt er að því að hefja fram-
kvæmdir við þennan áfanga í kringum áramótin og munu þær standa yfir í
um þrjú ár.
Áhugamál Leós eru fjallahjól og skíðamennska. „Ég fer reglulega í Alpana
á skíði og undanfarin ár hef ég líka í hjólaferðir Alpana. En svo er ég mjög
hrifinn af Íslandi, að ferðast og hjóla um Ísland er geðveikt. Ég hjólaði t.d.
Laugaveginn í sumar með syni mínum og tengdadóttur. Það var stórkostleg
upplifun.“
FJÖLSKYLDA Eiginkona Leós er Þórunn Guðmundsdóttir, f. 1974, fram-
kvæmdastjóri Hlýju tannlæknastofu. Börn þeirra eru Árni Evert, f. 1995,
Bjarki, f. 1998, og Anna Kristín, f. 2000. Barnabarn er Leó Árnason, f. 2020.
Foreldrar Leós eru Árni Leósson, f. 1945, byggingameistari, og Halldóra
Gunnarsdóttir, f. 1946, fyrrverandi framkvæmdastjóri. Þau eru búsett á
Selfossi.
Leó Árnason
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Það er vinsæl hugmynd að ástin lifi
sjálfstæðu lífi og lúti ekki vilja manns. Góðar
sálir dragast að þér í von um að þú þarfnist
þeirra.
20. apríl - 20. maí +
Naut Sparaðu þér ekki ómakið í rann-
sóknum, því án niðurstaða þeirra verður allt
þitt erfiði unnið fyrir gýg. Stundum getur
maður verið góður í því sem maður hefur
aldrei áður prófað.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Áhyggjur af því að breyta rangt
eiga eftir að draga úr ráðvendni þinni í
vinnunni. Svaraðu rökstuddri gagnrýni af
hógværð og tillitssemi.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú hefur nóg að gera í félagslífinu og
nýtur þess að eiga góða vini. Mundu að hver
er sinnar gæfu smiður.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú ert viðkvæmur fyrir líðan annarra í
dag og tilbúinn til að leggja þitt af mörkum
til að hjálpa þeim sem minna mega sín.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú hefur trú á því að vinnuaðferðir
þínar séu betri en annarra og vilt að þeir
fylgi þínu fordæmi. Hlustaðu á ráðleggingar
annarra.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú þarft að beita öllum þínum hæfi-
leikum til þess að koma málstað þínum á
framfæri í dag. Varastu að senda öðrum
misvísandi skilaboð.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú þarft að gefa þér góðan
tíma til þess að velta ýmsum vandamálum
fyrir þér. Sæktu styrk til þeirra sem eru þér
nánastir.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Eldmóður skiptir öllu máli þegar
hvetja skal áfram liðið þitt. Treystu innsæi
þínu og því að hollur er heimafenginn baggi.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú færð góðar hugmyndir í dag.
Þú ert í laumi að hlakka til tíma þegar þú
þarft ekki að gera það sem þú ert núna að
gera.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Farðu varlega í dag og gættu
þess að kaupa engan óþarfa. Leggðu þig
fram um að vera sérstaklega skýr í öllum
samskiptum þínum við aðra.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Allt sem þú tekur þér fyrir hendur
aflar þér virðingar. Talaðu bæði hátt og skýrt
svo ekki fari á milli mála, hvað það er sem þú
vilt.
„Ég hef alla tíð haft brennandi
áhuga fyrir þeim verkefnum sem ég
hef tekið að mér. Það má segja að í
prestsstarfinu hafi ég kynnst hinni
kirkjulegu hlið kirkjugarðanna og í
starfinu hjá RR viðskiptahliðinni.
Þessi störf leiddu mig síðan til starf-
anna sem ég hef gegnt síðan hjá
KGRP. Á tímanum hjá RR dreif ég
mig í viðskipta- og rekstrarnám í Há-
skóla Íslands og hefur það komið sér
mjög vel í núverandi störfum. “
Árið 1995 hafði Þórsteinn frum-
kvæði að stofnun Kirkjugarðasam-
tug. Meðfram starfinu hjá RR var ég
einnig safnaðarprestur hjá Óháða
söfnuðinum í 50% starfi. Sr. Emil
Björnsson stofnaði söfnuðinn 1950.
Þar kynntumst við hjónin traustu og
góðu fólki.“
Síðla árs 1994 var Þórsteinn ráðinn
forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkur-
prófastsdæma (KGRP) og hóf þar
störf í ársbyrjun 1995. Meðfram því
starfi gegndi hann einnig stöðu fram-
kvæmdastjóra Útfararstofu Kirkju-
garðanna ehf., sem er dótturfyrirtæki
KGRP, á árunum 1996-97.
Þ
órsteinn Ragnarsson
fæddist 25. september
1951 á Akureyri. Hann
ólst upp á Siglufirði með-
an síld var þar söltuð eða
brædd og gekk þar í barnaskóla og
gagnfræðaskóla. Að loknu landsprófi
vorið 1967 settist hann á skólabekk í
MA um haustið og var þar í einn vetur
og hélt síðan áfram námi í MR eftir að
foreldrarnir fluttu frá Siglufirði til
Reykjavíkur. Þórsteinn innritaðist í
guðfræðideild HÍ að loknu stúdents-
prófi 1971 og lauk embættisprófi það-
an árið 1978. Með náminu vann hann
hjá lögreglunni í Reykjavík og sem
leigubílstjóri á frívöktum, hjá Lands-
virkjun sem línumælingamaður og
sem samningamaður við landeig-
endur.
Árið 1978 var Þórsteinn vígður til
Miklabæjar í Skagafirði og var þar
prestur, bóndi og kennari. Á Miklabæ
höfðu áður gegnt þjónustu langafi
hans Björn Jónsson, (1858-1924) og
föðurafi, Lárus Arnórsson (1895-
1962). Þess má geta að Þórsteinn er 5.
liður í beinan karllegg sem er prests-
vígður: Þórsteinn – Ragnar – Lárus á
Miklabæ – Arnór á Hesti í Borgarfirði
og Þorlákur á Undirfelli í Vatnsdal.
„Við Elsa, konan mín, hófum bú-
skap á Miklabæ og dvöldum þar í sex
ár. Þetta var viðburðaríkur tími. Við
stunduðum þar hefðbundinn búskap
og vorum með um 150 fjár og 30-40
hross og að auki 20 naut á hverju ári
til kjötframleiðslu. Það var að mörgu
að sinna við bústörfin en við endur-
ræktuðum hluta af túnum, girtum
slægjurnar af og byggðum 200 kinda
fjárhús með véltæku haughúsi og
1.130 rúmmetra súgþurrkunarhlöðu.
Ég sat í sveitarstjórn þessi ár og
kenndi við grunnskólana í framan-
verðum Skagafirði. Í safnaðarstörfum
var einnig nóg að gera en í prestakall-
inu voru fjórar sóknir: Hofsstaðir,
Flugumýri, Miklibær og Silfrastaðir.
Við hjónin eignuðumst marga vini í
Skagafirði til lífstíðar en á þeim tíma
voru um 60 bæir í prestakallinu.“
Árið 1984 ventu þau hjón kvæði
sínu í kross og fluttust til Reykjavík-
ur. „Þar réð ég mig sem deildarstjóra
viðskipta hjá Rafmagnsveitu Reykja-
víkur (RR) og gegndi því starfi í ára-
bands Íslands (KGSÍ) sem eru lands-
samtök sem allir kirkjugarðar lands-
ins eiga aðild að. Þórsteinn hefur frá
því að KGSÍ var stofnað verið formað-
ur sambandsins og fulltrúi þess í
stjórn norræna félagsins NFKK
(Nordiska Förbundet för Kyrkogård-
ar och Krematorier) en tilgangur
NFKK er að bera saman reynslu nor-
rænu þjóðanna í sambandi við rekstur
kirkjugarða og bálstofa og efna til
funda, ráðstefna og námskeiða um
þau málefni. Þá hefur hann reglulega
sótt fundi innan evrópska bálfarar-
sambandsins, ECN (European Crem-
ation Network), sem fundar a.m.k.
annað hvert ár miðsvæðis í Evrópu.
Þórsteinn er ritstjóri Bautasteins sem
er fagrit KGSÍ um málefni kirkju-
garða- og bálstofumál og kemur út ár-
lega og er dreift í 1.400 eintökum um
allt land.
Þórsteinn segir að nú styttist í
starfslok hjá KGRP en það séu eink-
um tvö verkefni sem hann vilji vinna
að fram að þeim tíma. „Annars vegar
vil ég stuðla að og reyna að tryggja að
ný bálstofa og líkhús verði reist á
Hallsholti við Gufuneskirkjugarð á
næstu 5-8 árum og samstæðan verði
byggð og rekin af ríki, sveitarfélögum
og kirkjugörðum landsins í formi
sjálfseignarstofnunar. Framkvæmda-
stjórn og forstjóri KGRP hafa óskað
eftir því að kirkjugarðaráð hafi for-
göngu um að koma þessu verkefni á
laggirnar með samkomulagi við ríki
og sveitarfélög og er þegar hafinn
undirbúningur þess. Hins vegar vil ég
fylgja eftir byggingu þjónustuhúss í
Kópavogskirkjugarði en bygginga-
framkvæmdir eru þar hafnar og
stefnt er að því að vígja húsið um
miðjan maí 2022.“
Helsta áhugamál Þórsteins er að
dvelja með eiginkonu og afkomendum
í sumarbústað fjölskyldunnar (Mikla-
bæ) í Grímsnesi og huga að gróðri og
fuglalífi og fara í göngutúra um ná-
grennið. „Til að mæta hreyfingarleysi
skrifstofustarfsins spila ég badminton
tvisvar í viku yfir vetrartímann og frá
Siglufjarðarárunum hef ég áhuga fyr-
ir skíðaíþróttinni þó að hún hafi ekki
verið iðkuð mikið á seinni árum hér
syðra. Til að rækta andann er ég í
bænahópi sem hittist á föstudags-
Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma – 70 ára
Hjónin Elsa og Þórsteinn áttu gullbrúðkaup í ágúst síðastliðnum.
Fimm ættliðir í röð prestvígðir
Dæturnar Frá vinstri: Guðný, Herdís, Valý Ágústa og Svanhildur.
Til hamingju með daginn
Veiðivefur
í samstarfi við