Morgunblaðið - 25.09.2021, Síða 54
54 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2021
Lengjudeild karla
Vestri – Kórdrengir ................................. 3:3
Lokastaðan:
Fram 22 18 4 0 58:17 58
ÍBV 22 15 2 5 43:22 47
Fjölnir 22 13 3 6 38:21 42
Kórdrengir 22 11 6 5 39:28 39
Vestri 22 11 3 8 38:39 36
Grótta 22 11 2 9 52:40 35
Grindavík 22 7 5 10 38:45 26
Selfoss 22 7 3 12 35:44 24
Þór 22 6 5 11 33:37 23
Afturelding 22 6 5 11 37:54 23
Þróttur R. 22 4 2 16 39:53 14
Víkingur Ó. 22 2 2 18 28:78 8
EM U17 kvenna
Undanriðill í Serbíu:
Serbía – Ísland ......................................... 1:4
Ísland er einnig í riðli með Spáni og Norð-
ur-Írlandi og mætir næst Spáni á mánudag.
Belgía
Club Brugge – OH Leuven ..................... 1:1
- Rúnar Alex Rúnarsson var allan tímann
á varamannabekk Leuven.
Bandaríkin
Chicago Fire – New England................. 2:3
- Arnór Ingvi Traustason lék fyrstu 60
mínúturnar með New England Revolution
og lagði upp mark.
Frakkland
B-deild:
Nimes – Le Havre .................................... 0:1
- Elías Már Ómarsson lék fyrstu 62 mín-
úturnar fyrir Nimes.
England
B-deild:
Coventry – Peterborough........................ 3:0
WBA – QPR.............................................. 2:1
Þýskaland
Greuther Fürth – Bayern München....... 1:3
4.$--3795.$
Olísdeild kvenna
ÍBV – Afturelding ................................ 35:20
Staðan:
KA/Þór 1 1 0 0 26:24 2
Valur 1 1 0 0 31:20 2
Haukar 1 1 0 0 21:15 2
Fram 1 1 0 0 24:22 2
ÍBV 2 1 0 1 59:46 2
Stjarnan 1 0 0 1 22:24 0
HK 1 0 0 1 15:21 0
Afturelding 2 0 0 2 40:66 0
Grill 66-deild kvenna
FH – Stjarnan U................................... 32:13
ÍBV U – Víkingur ................................. 33:18
Grótta – Valur U................................... 25:19
Olísdeild karla
Afturelding – Haukar .......................... 26:26
Staðan:
KA 2 2 0 0 51:43 4
Haukar 2 1 1 0 55:53 3
Fram 2 1 0 1 56:52 2
ÍBV 1 1 0 0 30:27 2
FH 1 1 0 0 25:22 2
Stjarnan 1 1 0 0 36:35 2
Valur 1 1 0 0 22:21 2
Afturelding 2 0 1 1 61:62 1
HK 1 0 0 1 25:28 0
Grótta 2 0 0 2 43:47 0
Selfoss 1 0 0 1 23:29 0
Víkingur 2 0 0 2 45:53 0
Grill 66-deild karla
Fjölnir – ÍR ........................................... 27:34
Selfoss U – Valur U.............................. 29:23
Þýskaland
Bensheim – Sachsen Zwickau ........... 25:18
- Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði 2
mörk fyrir Sachsen Zwickau.
B-deild:
Gummersbach – Dessauer ................. 35:27
- Hákon Daði Styrmisson skoraði 10 mörk
fyrir Gummersbach og Elliði Snær Viðars-
son skoraði 1 mark. Guðjón Valur Sigurðs-
son þjálfar liðið.
Bietigheim – Emsdetten..................... 31:31
- Anton Rúnarsson skoraði 3 mörk fyrir
Emsdetten.
Svíþjóð
IFK Ystad – Kristianstad ................... 24:24
- Teitur Örn Einarsson skoraði 3 mörk
fyrir Kristianstad.
Hallby – Guif ........................................ 25:28
- Aron Dagur Pálsson skoraði 1 mark fyr-
ir Guif og Daníel Freyr Ágústsson varði 9
skot í marki liðsins og skoraði 1 mark.
Skövde – Sävehof ................................ 27:30
- Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði 8
mörk fyrir Skövde.
Frakkland
B-deild:
Nice – Dijon.......................................... 35:29
- Grétar Ari Guðjónsson varði 9 skot í
marki Nice.
Austurríki
Alpla Hard – Barnbach....................... 28:21
- Hannes Jón Jónsson þjálfar Alpla Hard.
%$.62)0-#
að loknum fjórmenningi var því 3:1.
Eftir hádegi í gær var einnig
keppt í fjórbolta og voru Bandaríkin
sömuleiðis með tögl og hagldir þar.
Tony Finau og Harris English unnu
Rory McIlroy og Shane Lowry 5/3
og Dustin Johnson og Xander
Schauffele unnu Paul Casey og
Bernd Wiesberger 2/1. Staðan var
því orðin 5:1 samanlagt en enn var
tveimur viðureignum ólokið í fjór-
boltanum þegar Morgunblaðið fór í
prentun í gærkvöldi.
Bandaríkjamennirnir Bryson
DeChambeau og Scottie Scheffler
mættu þar Jon Rahm og Tyrrell
Hatton og Justin Thomas og Patrick
Cantlay mættu Viktor Hovland og
Tommy Fleetwood.
Bandaríkin leiða sem áður segir
mjög afgerandi eftir fyrsta dag en á
fyrsta degi er staðan venjulega jafn-
ari en raunin varð að þessu sinni. Í
dag fara aðrar átta viðureignir fram
og verður sama fyrirkomulag við
lýði, fjórar viðureignir í fjórmenn-
ingi fyrir hádegi og fjórar viður-
eignir eftir hádegi í fjórbolta.
Bandaríkin
mun sterkari
- Fyrsti dagurinn eign heimamanna
AFP
Golf Hinir bandarísku Xander Schauffele og Dustin Johnson léku vel í gær.
RYDER
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Ryder-bikarinn í golfi hófst í gær-
morgun með keppni í fjórmenningi
þar sem tveir úr hvoru liði, Evrópu
og Bandaríkjanna, etja kappi. Lið
Evrópu byrjaði betur, en heima-
menn í Bandaríkjunum létu það ekki
á sig fá og sneru blaðinu við svo um
munaði og eru með sannfærandi for-
ystu að loknum fyrsta keppnisdegi.
Dagurinn hófst á því að Spánverj-
arnir Jon Rahm og Sergio García
unnu Bandaríkjamennina Justin
Thomas og Jordan Spieth 3/1. Dust-
in Johnson og Collin Morikawa svör-
uðu fyrir Bandaríkin með því að
vinna Viktor Hovland og Paul Casey
3/2. Daniel Berger og Brooks
Koepka fylgdu því eftir með því að
vinna Matt Fitzpatrick og Lee
Westwood 2/1 og þeir Xander
Schauffele og Patrick Cantlay
klykktu út með því að vinna Rory
McIlroy og Ian Poulter 5/3. Staðan
Íslenska U17-ára landslið kvenna í
knattspyrnu hóf undankeppni fyrir
Evrópumótið í aldursflokknum af
miklum krafti þegar liðið vann
frækinn 4:1-sigur gegn heimakon-
um í Serbíu, en undanriðilinn er all-
ur spilaður þar í landi.
Vigdís Lilja Kristjánsdóttir skor-
aði á 14. og 19. mínútu og kom Ís-
landi í 2:0 áður en Serbar minnk-
uðu muninn. Katla Tryggvadóttir
skoraði þriðja markið á 40. mínútu
og staðan 3:1 í hálfleik. Margrét
Lea Gísladóttir rak smiðshöggið
með fjórða markinu undir lok leiks.
Frábær sigur
gegn Serbum
Ljósmynd/KSÍ
Undirbúningur U17-ára landslið
kvenna á æfingu í Serbíu í vikunni.
Arnar Grétarsson verður áfram
þjálfari karlaliðs KA í knattspyrnu
en Akureyrarfélagið tilkynnti í gær
að samningar hefðu tekist þar að
lútandi. Arnar tók við liðinu um
miðjan júlímánuð á síðasta ári þar
sem hann kom því af botninum og
upp í miðja deild. Undir stjórn Arn-
ars hefur KA síðan blandað sér í
baráttuna um efstu sætin í úrvals-
deildinni i ár og á fyrir lokaumferð-
ina í dag möguleika á að ná í Evr-
ópusæti en liðið hefur fengið á sig
fæst mörk af öllum í deildinni, að-
eins átján í 21 leik.
Arnar verður
áfram með KA
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
KA Arnar Grétarsson hefur stýrt
liðinu frá 15. júlí á síðasta ári.
Afturelding og Haukar skildu jöfn,
26:26, í æsispennandi leik í úrvals-
deild karla í handknattleik í Mosfells-
bænum í gærkvöldi.
Heimamenn í Aftureldingu virtust
vera að sigla fræknum sigri í höfn
þegar staðan var 26:24 er skammt var
eftir. Allt kom þó fyrir ekki og jafnaði
Adam Haukur Baumruk metin fyrir
Hauka þegar 14 sekúndur lifðu leiks.
Afturelding tók umsvifalaust
leikhlé og hafði nægan tíma fyrir eina
lokasókn. Hún fjaraði þó út án skottil-
raunar og sanngjarnt jafntefli niður-
staðan.
Birkir Benediktsson var marka-
hæstur heimamanna með 5 mörk en
Stefán Rafn Sigurmannsson var
markahæstur Hauka með 8 mörk úr
jafnmörgum skotum. Aron Rafn Eð-
varðsson varði 11 skot í marki Hauka
og Andri Sigmarsson Scheving, láns-
maður frá Haukum, varði 7 skot í
marki Aftureldingar.
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Drjúgur Adam Haukur Baumruk jafnaði metin fyrir Hauka á ögurstundu.
Allt í járnum hjá
Aftureldingu og Haukum
ÍBV gerði sér lítið fyrir og vann
fimmtán marka stórsigur, 35:20,
gegn nýliðum Aftureldingar þegar
liðin mættust í úrvalsdeild kvenna í
handknattleik í Vestmannaeyjum í
gær. Gestirnir sáu aldrei til sólar
og leiddu Eyjakonur með tíu mörk-
um, 21:11, í hálfleik.
Hornakonur Eyjakvenna fóru
báðar mikinn en vinstra megin
skoraði Harpa Valey Gylfadóttir 11
mörk og hægra megin skoraði hin
sænska Lina Cardell tíu mörk. At-
kvæðamest gestanna var Ólöf Mar-
ín Hlynsdóttir með sjö mörk.
Á meðan hér um bil allt gekk upp
hjá Eyjakonum gekk lítið sem ekk-
ert hjá Mosfellingum, hvort sem um
sóknarleik, varnarleik eða mark-
vörslu, eða skort þar á, var að
ræða. Því er ljóst að nýliðarnir úr
Mosfellsbænum þurfa að taka sig
saman í andlitinu ef ekki á illa að
fara í deildinni á tímabilinu.
Eyjakonur unnu nýliðana
með fimmtán mörkum
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Einbeitt Elísa Elíasdóttir skorar eitt af fimm mörkum sínum í gær.