Morgunblaðið - 25.09.2021, Side 59
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ég stóð framarlega á Rykkrokk-
tónleikunum í Fellahelli 1989 og sá
m.a. Ham og Sykurmolana. Og
Neskaupstaðarsveitina Hálfur und-
an sæng. Bróðir
minn var með
mér, þrettán ára
(ég fimmtán) og
ég passaði hann.
Við höfðum
aldrei verið
svona framar-
lega á tónleikum. Það var hálfgerð
pytts-stemning framan við okkur
(„mosh-pit“). Þegar tók að kvölda
komu Júpíters á svið. Í mínum eyr-
um spiluðu þeir fyrst og síðast
stórskemmtilega tónlist. Galsa-
fengna, með vísunum í alls kyns
heimstónlist eins og séðir markaðs-
mógúlar höfðu ákveðið að kalla alla
tónlist aðra en vestræna eftir góð-
an fund. Fullt af blásturshljóðfær-
um en líka slagverk og rafgítarar
og bara stuð og gleði. Þetta var
ekki beint tónlistin sem ég var að
drekka í mig á þessum tíma, pönk-
rottan sem ég var, en ég var samt
búinn að kynnast aðilum eins og
hálfgerður marseringartaktur,
nema hvað. Þvínæst er það „Acqua-
birrafanalacoca“ og vonandi ritaði
ég það rétt. Hér leyfir Eiríkur sín-
um innri grallaraspóa að hlaupa
frjálsum, söngur þessi hefst með
jarmi, leiðist út í klezmerbylgjur og
fer á gríðarlegt hlemmiskeið, allt
þar til liðsmenn sveitarinnar hefja
upp raust sína og hrópa titil lagsins
sýknt og heilagt. Rödd Halldóru
skerst í gegn og mér finnst eins og
ég sé staddur í ungversku brúð-
kaupi. Já, hugrenningatengslin eru
að sönnu margvísleg og ég er alveg
ábyggilega úti að aka með þau í
einhverjum tilfellum. Platan rúllar
áfram í þessum ham. Lag Sólveigar
heitir „Neyðarlínan“, svei mér þá,
blásturinn er feitur eins og bassa-
lína frá Primus og það er pínu
James Bond-kafli líka. Ég veit!
Við fáum svo að heyra „Ave
Eva“ eftir Megas sem var útsett af
Eiríki fyrir gestaflutning Látúns á
Megasar-tónleikum Möggu Stínu
fyrir tveimur árum. Magga Stína
syngur lagið á plötunni og gerir
það með bravúr að sjálfsögðu.
Einnig rúllar sveitin sér skemmti-
lega í gegnum „Vegir liggja til allra
átta“ eftir Sigfús Halldórsson og
var það Fjalar Sigurðarson sem
útsetti. Mikið fjör, mikil ærsl.
Ég ætla að nota þetta orð einu
sinni enn. Skemmtilegt. Því að
þetta er skemmtilegt! Látún lengi
lifi.
Fílíbomm-bomm-bomm
Glaðværð Úthugsað stuð er dagskipunin hjá Látúni.
Les Negresses Vertes og Mano
Negra, sveitum sem léku sér með
tónlist sem maður heyrði mest lítið
af og knúðu hana áfram með sönn-
um pönkanda. Það heyrði ég mjög
greinilega og það heyrði ég líka í
Júpíters sem ég skilgreindi á svip-
uðu rófi. Mér fannst hún kúl og
spennandi. Pönkarar og neðanjarð-
artöffarar að spila lög sem báru
nöfn eins og „Nótt í Trípólí“ og
„Kóngasamba“. Geggjað!
„Ertu búinn að frétta af nýju
plötunni með Látúni,“ spurði koll-
eggi minn í HÍ mig varfærnislega
fyrir stuttu. Ég hváði en sá svo að
þarna var kominn Eríkur Stephen-
sen, fyrrum liðsmaður Júpíters og
núverandi liðsmaður í Látúni. Þeg-
ar ég renndi svo yfir listann yfir
hljómsveitina fór ég allur að spenn-
ast upp enda nöfn þarna sem ég
kannaðist vel við og tengjast
dásamlegu neðanjarðarsenunni sem
við Íslendingar áttum á níunda ára-
tugnum. Ásamt Eiríki eru þetta
þau Hallur Ingólfsson, Halldóra
Geirharðsdóttir og Þorkell Harð-
arson. Aðra liðsmenn þekkti ég
minna, þau Fjalar Sigurðarson,
Sólveigu Morávek og Sævar Garð-
arsson en eitt var á hreinu. Þetta
þyrfti ég að heyra!
Platan hefst með laginu „Litla
Haítí“, suðræn stemma í millitakti
eftir nefndan Eirík sem á svo fimm
smíðar til viðbótar. Tvö tökulög
ásamt lagi eftir Sævar og öðru lagi
eftir Sólveigu fylla svo tíu laga
skammtinn. „Leið 15“, lag Sævars,
tekur við af opnunarlaginu og
stemningin þar giska knýjandi,
»
Já, hugrenninga-
tengslin eru að
sönnu margvísleg og ég
er alveg ábyggilega úti
að aka með þau í ein-
hverjum tilfellum.
Trommur og sjö
blásturshljóðfæri.
Með slatta af ærslum,
græskuleysi, þjóðlaga-
stemmum og pönk-
anda. Látún er allt
þetta og meira til.
MENNING 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2021
S
ögufélag Skagfirðinga er
elsta héraðssögufélag
landsins. Það var stofnað
árið 1937. Félagið hefur gef-
ið út meira en 100 rit um sögu Skaga-
fjarðar. Nýjasta bók félagsins er
Eyþór Stefáns-
son, tónskáld –
Ævisaga eftir
Sölva Sveinsson,
fyrrverandi skóla-
meistara. Bókin
er gefin út í tilefni
150 ára byggðar-
afmælis Sauðár-
króks.
Eyþór Stefáns-
son (1901-1999) lét víða að sér kveða í
heimabæ sínum. Hann var kennari
og burðarás tónlistar-, kirkju- og
leiklistarstarfs á Sauðárkróki. Öðr-
um þræði er bókin því annáll blóm-
legs starfs á öllum þessum megin-
sviðum menningarlegs samfélags.
Fámennur en samhentur hópur
karla og kvenna fékk miklu áorkað
með listrænu framlagi. Þá tókst að
skapa starfinu umgjörð sem höfðaði
til margra.
Sæluvikan á Sauðárkróki kom til
sögunnar árið 1945 og leysti af hólmi
skemmtanir sem tengdust árlegum
sýslufundi Skagfirðinga, sýslufund-
arvikunni. Öll félög sem stóðu fyrir
skemmtanahaldi á Króknum sam-
mæltust þá um að færa Sæluviku inn
á dagatalið, hún skyldi hefjast 10.
mars ár hvert eða þar um bil.
Vikan varð þjóðkunnur menning-
arviðburður og er það enn. Í vor var
hún til dæmis vikuna 25. apríl til 1.
maí 2021 með örlítið breyttum hætti
vegna faraldursins.
Eyþór kom fyrst fram á leiksviðið
árið 1917, 16 ára gamall. Alls birtist
hann í 118 hlutverkum á ferli sínum,
stjórnaði tugum leiksýninga og hlaut
gullmerki Félags íslenskra leikara.
Af fræðilegri nákvæmni er þessi
þáttur í leiklistarsögu þjóðarinnar
rakinn.
Þá segir einnig frá hlut Eyþórs
sem organista og stjórnanda kirkju-
kórsins frá árinu 1929 til 1972. Þeir
sr. Helgi Konráðsson, prestur frá
1934, voru aldavinir og létu að sér
kveða út fyrir veggi kirkjunnar með
samstarfi sínu. Eyþór samdi lög við
ljóð sr. Helga.
Sr. Þórir Stephensen náði kjöri að
sr. Helga látnum árið 1959 og áttu
þeir Eyþór góða samvinnu: „Messum
fjölgaði á starfsárum hans og kirkju-
sókn jókst. Eyþór hafði nóg að
starfa,“ segir á s. 209. Eftir að sr.
Þórir hætti 1971 varð lægð í kirkju-
starfi á Sauðárkróki. Tíu árum síðar
rættist úr þegar sr. Hjálmar Jónsson
hlaut kosningu sem prestur á Sauð-
árkróki. Sjálfur sótti Eyþór síðast
messu árið 1994.
Frásögnin af leiklist og kirkju-
starfi er aðeins brot af texta bókar-
innar. Meginefnið snýr að Eyþóri
sjálfum, tónsmíðum hans og fjöl-
skyldu. Með einstöku áræði, dugnaði
og sköpunargáfu ávann Eyþór sér
virðingu sem tónskáld og menning-
arfrömuður. Alls ekki lá í hlutarins
eðli að svo langt mætti ná á þeim
brautum á fyrri hluta 20. aldar á
Sauðárkróki.
Stefán Íslandi kemur víða við sögu
í bókinni og er helgaður séstakur
kafli. Þeir Eyþór voru frændur og
Stefán lauk árlegum söngferðum sín-
um um landið á Sauðárkróki. Jók það
áhuga á flutningi tónlistar í bænum.
Stebbi söngur, eins og tenórinn frægi
er kallaður í bókinni, tók ástfóstri við
lög Eyþórs og kom þeim á meira flug
en ella hefði orðið.
Vitnað er í bréfaskipti þeirra
frænda en Eyþór hélt auk þess dag-
bækur mjög skipulega frá 1959 til
1994 og um fyrri utanferð sína, til
Hamborgar árið 1934. Hann naut þar
vinsemdar og leiðsagnar Björns
Kristjánssonar, sem ættaður var frá
Sauðárkróki, og konu hans Hermínu
Sigurgeirsdóttur píanóleikara. Opn-
aði dvölin í Þýskalandi honum nýjar
listrænar víddir enda nýtti hann
hverja stund til að njóta tónleika,
sviðslista og kirkjutónlistar.
Hjónin Eyþór og Sigríður Anna
Stefánsdóttir, Sissa, (1905-1992),
voru einstaklega samhent. „Lífið var
í föstum skorðum. Hann fer í skól-
ann, hún í búðina. Hann æfði sig í
kirkjunni, hún iðjaði eitthvað heima.
Svo hægðist um þegar þau drógu sig
út úr skarkala atvinnulífsins. En lífið
var áfram bundið föstum venjum.
Þau gengu mikið, skruppu í bankann,
litu inn á pósthúsið þar sem þau áttu
pósthólf nr. 51 og fyrsta símanúm-
erið þeirra var líka 51.“ (s. 142.)
Sölvi bregður upp ljóslifandi
myndum af þeim hjónum, virðuleika
þeirra og háttvísi. Vegna sjóndepru
gekk Eyþór jafnan fast við hlið Sissu
og þegar heilabilun sótti að henni
veitti hann henni aðstoð og leiðsögn
eins lengi og hann megnaði.
Virðing og vinsældir Eyþórs sem
tónskálds vörpuðu menningarlegri
birtu á Sauðárkrók. Sérstakur kafli í
bókinni er helgaður stórafmælum
Eyþórs. Sölvi minnist sem drengur
blysfarar á sextugsafmælinu. „Eyþór
og Sissa komu út á stéttina, prúðbúin
að vanda.“ Síðar segir: „Það fór ekki
fram hjá Króksurum að Eyþór yrði
sjötugur í janúar 1971, hvað þá fjöl-
skyldunni.“ Raunar fóru stórafmælin
ekki fram hjá neinum sem hlustuðu á
einu útvarpsstöð landsmanna á þess-
um tíma. Ríkisútvarpið sendi út sér-
stakar dagskrár í tilefni þeirra. Heið-
ursskjölum og nafnbótum rignir yfir
afmælisbarnið auk fálkaorðunnar.
Við dagbókina segir Eyþór að hann
sé „hálf smeykur við allt þetta lof“
þegar honum er tilkynnt um orðuna
og einnig: „Þetta breytir í engu neinu
fyrir mér, ég er og verð hinn sami
Eyþór.“
Sölvi segir dagbókina sýna að
Eyþór hafi alla tíð verið „orðvar mað-
ur og agaður“. Stíll Sölva tekur mið
af þessu og hann er skýr og auðles-
inn. Röðun á efni bókarinnar hefur
kostað heilabrot við miðlun á fróðleik
vegna byggðarafmælis með ævi og
störf Eyþórs sem leiðarstef. Vegna
þess hve þeir Eyþór og Sölvi eru orð-
varir er aðeins ýjað að því sem kann
að vera óvild milli manna. Til að
raska ekki því yfirbragði hefði mátt
sleppa texta eftir Harald Björnsson
leikara sem segir raunar meira um
hann sjálfan en leiksýningu sem
hann ræðir.
Með myndum er lýst þróun byggð-
ar á Sauðárkróki. Þar má einnig sjá
fjölmarga Króksara og gesti þeirra.
Fyrir mig sem var í sveit í Skagafirði
á sjötta áratugnum vakti margt, ekki
síst myndir af einstaklingum, góðar
minningar. Ég minnist Guðrúnar,
dóttur þeirra hjóna, sr. Helga, Guð-
jóns bakara, Kára Jónssonar o.fl.,
o.fl. Mér var auðvitað bent á Fögru-
hlíð, hús þeirra Eyþórs og Sissu.
Sérstaklega þótti mér skemmti-
legt að sjá myndina á s. 260 af Stein-
dóri í Birkihlíð og Elinóru, konu
hans, með þeim Sissu og Eyþóri.
Þegar farið var í göngur frá Reyni-
stað var alltaf áð og safnast saman
árla morguns í Birkihlíð og þaðan
haldið út á Krók undir forystu fjall-
kóngsins, Steindórs. Í Gönguskörð-
um skipulagði hann smölun í Staðar-
fjöllum og sendi hvern mann á sinn
stað.
Menningarfrömuður á Sauðárkróki
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heiðursborgari „Eyþór Stefánsson (1901-1999) lét víða að sér kveða í
heimabæ sínum. Hann var kennari og burðarás tónlistar-, kirkju- og
leiklistarstarfs á Sauðárkróki,“ segir í rýni um nýja ævisögu Eyþórs.
Ævisaga
Eyþór Stefánsson tónskáld
bbbbn
Eftir Sölva Sveinsson.
Innb. 327 bls., ljósmyndir, heimildaskrá,
nafnaskrá.
Útgefandi: Sögufélag Skagfirðinga,
Sauðárkróki, 2021.
BJÖRN
BJARNASON
BÆKUR