Morgunblaðið - 25.09.2021, Side 64

Morgunblaðið - 25.09.2021, Side 64
Tvennir tón- leikar eru á dag- skrá Sinfóníu- hljómsveitar Íslands um helgina. Fyrstu Tónsprota- tónleikar vetr- arins verða í Eldborg Hörpu í dag, laugardag, kl. 14. Þar kynnir Sævar Helgi Bragason, betur þekktur sem Stjörnu-Sævar, tónlist um undur jarðar. Hljómsveitin leikur verk eftir Strauss, Williams, Grofé, Mozart og Jón Leifs undir stjórn Noams Aviel. Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands kemur fram á tónleikum í Eldborg á morgun, sunnudag, kl. 17. Þar leikur sveitin Sinfóníu nr. 2 eftir Jean Sibelius undir stjórn Evu Ollikainen, aðalstjórnanda sveitarinnar. Ungsveitin og Stjörnu-Sævar á tón- leikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands Eva Ollikainen Sævar Helgi Bragason LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 268. DAGUR ÁRSINS 2021 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.268 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Lið Bandaríkjanna fer gífurlega vel af stað í Ryder- bikarnum í golfi, sem fer fram á Whistling Straits- vellinum þar í landi, og var komið með afgerandi for- ystu á fyrsta degi mótsins sem fram fór í gær. Eftir að lið Evrópu vann fyrstu viðureign dagsins í fjórmenningi sneru Bandaríkin taflinu við og unnu hverja viðureignina á fætur annarri. Þremur sigrum í röð í fjórmenningi var fylgt eftir með tveimur sigrum til viðbótar í fjórbolta. Í dag fara svo fram átta viðureignir líkt og í gær. »54 Heimamenn í Bandaríkjunum hefja leik í Ryder-bikarnum af krafti ÍÞRÓTTIR MENNING Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Afi er mjög hissa á að við séum að gera söngleik um hann og ömmu, en þau eru bæði mjög spennt að sjá þetta á sviði,“ segir hin 17 ára Tinna Margrét Hrafnkelsdóttir, nemandi á leiklistarbraut í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, en hún og Guðrún Ágústa Gunnarsdóttir, nemi á tónlistarbraut í Menntaskólanum við Hamrahlíð, hafa samið söngleik í fullri lengd sem frumsýndur verður í leikhúsinu í Fjölbraut í Garðabæ á morgun, sunnudag. „Söngleikurinn heitir einfaldlega Pálmar, eins og afi minn, og fjallar um ævintýri hans, tónlistarmannsins og arkitektsins Pálmars Ólasonar. Söngleikurinn er byggður á sann- sögulegum atburðum og segir frá afa þegar hann var ungur maður og tog- streitu hans að velja á milli listar- innar og þess hagkvæma. Þetta er líka ástarsaga ömmu Sigurveigar og afa. Í söngleiknum segir af Pálmari sem er góðhjartaður skemmtikraftur sem fer til Ítalíu í nám en þar verður hann heltekinn af ítalskri tónlist. Hann skrifar íslenska lagatexta við lögin og sendir þau heim til Íslands svo að Raggi Bjarna, Haukur Morthens og Elly Vilhjálms geti sungið þau og Íslendingar þannig fengið að njóta þeirra. Pálmar veikist alvarlega og kærastan kemur alla leið til Ítalíu til að sinna honum,“ seg- ir Tinna sem vill ekki láta meira uppi um framvindu mála í söngleiknum. „Þetta hefur verið draumur hjá okkur Guðrúnu mjög lengi að semja saman söngleik. Þetta byrjaði á því að ég þurfti að gera skólaverkefni um eldri borgara og ég ákvað að gera það um afa minn. Hann sagði mér alls konar sögur úr ævi sinni, sem ég hafði enga hugmynd um, til dæmis að hann var alltaf á kafi í leiklist og tónlist, en hann er menntaður arki- tekt. Við sáum alltaf fyrir okkur at- burðina á sviði þegar afi var að segja okkur frá. Þetta var svo gaman og okkur Guðrúnu fannst magnað hvað afi hafði haft mikil áhrif á íslenskt menningar- og tónlistarlíf. Þessi lög urðu mjög vinsæl hér heima, til dæmis Ciao, Ciao Bambina og Horfðu á mánann með Hauki Mort- hens, og Við hafið, sem flestir þekkja sem Kveðju sendir blærinn, sem Elly söng. Okkur langaði að draga þessa áhugaverðu þætti í ævi afa fram í söngleiknum,“ segir Tinna og bætir við að þær Guðrún hafi samið söng- leikinn í sumar á vegum skapandi sumarstarfa í Garðabæ. Hún segir að gríðarleg vinna liggi að baki því að koma heilum söngleik á svið. „Þetta er 11 manna leikhópur og við erum á bilinu 16 til 23 ára. Nokkur okkar eru í námi í Fjölbrautaskóla Garðabæjar, nokkur eru þegar útskrifuð og sum eru í öðrum skólum. Afi Pálmar teiknaði skólann okkar, Fjölbraut í Garðabæ, á sínum tíma þegar hann var byggður, sem er enn ein teng- ingin og vel við hæfi að sýna söng- leikinn þar.“ Miðar á söngleikinn fást á tix.is. Pálmar afi varð efni í söngleik í fullri lengd - Tvær vinkonur frumsýna frumsaminn söngleik á morgun Morgunblaðið/Eggert Guðrún og Tinna Þær hefur lengi dreymt um að setja saman upp söngleik. Líf og fjör Það er engin lognmolla í söngleiknum um Pálmar afa. Pálmar Ólason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.