Morgunblaðið - 15.10.2021, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 15.10.2021, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 1 5. O K T Ó B E R 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 242. tölublað . 109. árgangur . Í DAG RENNA 3KR. TIL BLEIKU SLAUFUNNAR *3 kr. af öllum seldum eldsneytislítrum hjá Orkunni 15. okt. renna til Bleiku slaufunnar, óháð greiðslumáta. kr. ELÍSABET SMÝGUR INN Í SAMFÉLAGIÐ SÓLHEIMAJÖKULL HOPAR HVAÐ DREGUR FÓLK AÐ HRYLLINGI? MÆLINGAR HVOLSSKÓLANEMA 4 VINSÆLIR SMOKKFISKSLEIKAR 29HEIÐURSLISTAMAÐUR 28 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Skýrslutökur fyrir dómi vegna kyn- ferðislegs ofbeldis gagnvart börnum sem fram fara í Barnahúsi voru nær tvöfalt fleiri á fyrstu níu mánuðum þessa árs en á sama tímabili í fyrra. Þær voru 133 frá janúar til sept- ember í ár en voru 73 á sama tíma- bili í fyrra og 61 á árinu 2019. Þetta kemur fram í tölum Barna- verndarstofu um þjónustu í Barna- húsi. Skýrslutökum vegna líkamlegs og heimilisofbeldis hefur einnig fjölgað mikið að undanförnu. Á fyrstu sex mánuðum ársins 2021 voru skýrslutökur vegna kyn- ferðislegs ofbeldis fleiri en allt árið 2018 og allt árið 2019 og nánast jafnmargar og í fyrra. Þá segir í skýrslu Barnaverndarstofu að fjöldi skýrslutaka vegna kynferðislegs of- beldis á fyrstu níu mánuðum ársins 2021 hafi verið 56,4% fleiri en allt árið 2018, 26,7% fleiri en allt árið 2019 og 15,6% fleiri en allt árið 2020. »4 Tvöfalt fleiri ofbeldismál - Skýrslutökur í Barnahúsi vegna kynferðislegs ofbeldis það sem af er árinu eru orðnar 15,6% fleiri en á öllu seinasta ári Fjöldi skýrslutaka í Barnahúsi Fyrstu níu mánuði áranna 2018-2021 Heimild: Barna- verndarstofa 91 88 149 213 2018 2019 2020 2021 Andrés Magnússon andres@mbl.is Logi Einarsson, formaður Samfylk- ingarinnar, segir að hann sé formað- ur í augnablikinu, en að landsfundur flokksins verði haldinn á næsta ári. Nokkuð hefur verið rætt um for- ystumál Samfylkingarinnar í ljósi dræms árangurs flokksins í nýliðn- um þingkosningum, en þingmenn flokksins, sem Morgunblaðið ræddi við, telja ekkert liggja á í þeim efn- um. Brýnna sé að leggja drög að sveitarstjórnarkosningum næsta vor og ná vopnum í stjórnarandstöðu, sem þeir telja blasa við. Hins vegar var nefnt að kosninga- úrslitin kölluðu á naflaskoðun hjá flokknum. Hún gæti hvorki ein- skorðast við forystumálin, innra skipulag né hvað úrskeiðis hefði far- ið í kosningabaráttunni. Vandinn væri djúpstæðari en svo og athyglin þyrfti að beinast að inntaki flokksins og erindi hans við kjósendur. Logi Einarsson situr áfram í bili MSamfylking í sárum »14 Ríflega hundrað fundir og 400 ræður eru á dag- skrá á Arctic Circle-ráðstefnunni sem var sett í Hörpu í gær. Ráðstefnan mun standa fram á laugardagskvöld. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr- verandi forseti Íslands og formaður stjórnar Arctic Circle, bauð gesti velkomna í Silfurbergi í gær en Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpaði ráðstefnuna. Öllum gestum var gert að vísa fram nýlegu neikvæðu Covid-prófi. »6 Morgunblaðið/Eggert 1.300 gestir á Arctic Circle-ráðstefnunni _ Þúsundir heimila í landinu, eða 10,5% allra leigjenda, greiða meira en 70% af ráðstöfunartekjum sínum í leigu af íbúðarhúsnæði. Þetta kemur fram í mánaðar- skýrslu hagdeildar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, HMS, fyrir október sem birt var í gær á vef stofnunarinnar. Þar segir einnig að 27% leigjenda greiði meira en 50% af ráðstöfunar- tekjum sínum í leigu. Ólafur Sindri Helgason, yfirhag- fræðingur HMS, segir í samtali við Morgunblaðið að um það bil 32 þús- und heimili á landinu séu á leigu- markaði. Í skýrslunni segir að merki séu um að framboð á hentugu leigu- húsnæði sé að minnka, sem að sögn Ólafs hefur áhrif á húsnæðisöryggi og samningsstöðu leigjenda. »12 Þúsundir greiða meira en 70% Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hús Framboð á leiguhúsnæði að minnka.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.