Morgunblaðið - 15.10.2021, Page 4

Morgunblaðið - 15.10.2021, Page 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2021 Garðatorg 6 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is Copenhagen Shoes Embrace Quilted 17.990 kr. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Sólheimajökull í Mýrdal hefur hopað um alls ellefu metra síðasta árið. Þetta kom í ljós nú í vikunni þegar nemendur í 7. og 8. bekk Hvolsskóla á Hvolsvelli fóru á vettvang og mældu hop jökulsins, eins og hefð er fyrir í skólastarfinu að sé gert. „Þetta eru mjög lærdómsríkar ferðir og fyrir nemendur er áhugavert að sjá hvernig landið breytist stöðugt,“ segir Birna Sigurðardóttir skóla- stjóri í samtali við Morgunblaðið. Útkoman er misjöfn milli ára Síðastliðin ellefu ár hafa nem- endur í 7. bekk Hvolsskóla farið ár- lega að Sólheimajökli. Mæld er fjar- lægð jökulsporðs frá upplýsinga- skiltinu sem fyrsti hópurinn setti niður árið 2010. Á þeim tíma voru 318 metrar frá skilti að sporði. Nú er fjarlægðin orðin 726 metrar og hopið því orðið 408 metrar, eins og GPS- mælingar sýna. Þetta er býsna mik- ið, en útkoman er þó annars æði mis- jöfn milli ára. Var 110 metrar milli 2017-2018 – samanber að frá 1931- 2010 hopaði jökullinn um 1.255 metra. „Í fyrstu mælingaferð Hvolsskóla 2010 var jökulsporðurinn á þurru landi en nú er stórt lón þarna fram- an við. Því þarf að fara þetta á bát. Þar nutum við nú eins og undanfarin ár liðsinnis björgunarsveitarinnar Dagrenningar hér á Hvolsvelli,“ segir Birna skólastjóri. Á síðasta ári var, meðal annars vegna sóttvarna, ekki mögulegt að fara í formlega mælingaferð að Sól- heimajökli. Krakkar úr þáverandi 7. bekk, nú 8. bekk, fengu því að fara með 7. bekk líðandi skólaárs, enda er þetta leiðangur sem fæstir vilja missa af. Með í ferðinni nú var Jón Stefánsson, fyrrum kennari við Hvolsskóla. Hann var upphafsmaður þessa verkefnis, sem strax fékk mikla athygli. Nefna má að fyrir framtakið fékk Jón meðal annars Náttúruviðurkenningu Sigríðar í Brattholti frá umhverfisráðherra á Degi íslenskrar náttúru árið 2019. Einnig hefur tíðkast undanfarin ár að bjóða erlendum ráðamönnum sem koma í Íslandsheimsóknir að skoða aðstæður við Sólheimajökul, með tilliti til framvindu af völdum hlýnunar andrúmsloftsins. Umhverfismennt í samhengi „Mælingaferðin að Sólheimajökli var ævintýri krakkanna,“ segir Þór- unn Óskarsdóttir, kennari við Hvols- skóla og umsjónarkona jöklaverk- efnisins. „Með því að fara á vettvang eru mál sett í samhengi, til dæmis í umhverfismennt. Krakkarnir sem við fórum með voru mörg í unglinga- vinnunni í sumar og minntust rign- ingar og kulda. Gerðu sér því fyrir- fram grein fyrir því að hop jökulsins í sumar yrði ef til vill minna nú en stundum áður, eins og kom á dag- inn.“ Ljósmynd/Elísabeth Lind Ingólfsdóttir Sólheimajökull Breytingarnar eru stöðugar og hraðar og frá ári til árs sést mikill munur á umhverfinu hér. Sólheimajökull hopaði um 408 metra á ellefu árum - Hvolsskólanemar mæla í Mýrdal - Lón þar sem var land Fróðleiksferð Nemendur 7. bekkjar Hvolsskóla við upplýsingaskilti við Sól- heimajökul. Fjarlægðin frá því að sporðinum sýnir hop jökulsins ár hvert. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Málum sem komið hafa til kasta starfsfólks sem veitir þjónustu í Barnahúsi hefur fjölgað mikið á undanförnum mánuðum. Voru skýrslutökur fyrir dómi alls 213 á fyrstu níu mánuðum yfirstandandi árs eða 43% fleiri en á sama tímabili í fyrra. Þær voru 149 á sama tímabili í fyrra en til samanburðar voru þær 88 á fyrstu níu mánuðum ársins 2019. Tvöfalt fleiri í ár „Þá fjölgun sem má sjá á fyrstu níu mánuðum ársins 2021, miðað við sama tímabil áranna á undan, má helst rekja til fjölgunar skýrslutaka vegna kynferðislegs ofbeldis,“ segir í umfjöllun á vefsíðu Barnaverndar- stofu, sem birt hefur skýrslu um fjölda mála á vegum stofunnar frá áramótum til loka september í ár. Fram kemur að skýrslutökur í Barnahúsi vegna kynferðislegs of- beldis eru tvöfalt fleiri í ár en á sama tímabili á seinasta ári. Er staðan sögð vera sú að nú, þegar tölur fyrir fyrstu níu mánuði ársins eru teknar saman, komi í ljós að skýrslutökur vegna kynferðislegs ofbeldis voru samtals 133 á fyrstu níu mánuðum yfirstandandi árs og þegar orðnar 15,6% fleiri en allt árið 2020. Heildarfjöldi skýrslutaka frá ára- mótum til loka september vegna lík- amlegs ofbeldis og heimilisofbeldis er orðinn svipaður og samanlagður fjöldi slíkra mála á árunum 2018 og 2019. Á seinasta ári voru líka óvenju margar skýrslutökur vegna líkam- legs og heimilisofbeldis. Voru skýrslutökur í Barnahúsi 27 á fyrstu níu mánuðum ársins 2019, 76 á sama tímabili í fyrra og hefur svo fjölgað í 80 frá janúar til september í ár. Flestar skýrslutökurnar í Barna- húsi á þessu ári vörðuðu kynferðis- legt ofbeldi, eða 62,4% allra skýrslna sem teknar voru. „Þá voru skýrslu- tökur vegna kynferðisofbeldis 82,2% fleiri á fyrstu níu mánuðum ársins 2021 samanborið við sama tímabili árið 2020. Skýrslutökur fyrstu níu mánuði ársins 2021 er vörðuðu lík- amlegt og heimilisofbeldi voru 80, sem er svipaður fjöldi skýrslutaka og á sama tímabili 2020 en vert er að taka fram að árið 2020 voru óvenju margar skýrslutökur vegna líkam- legs ofbeldis, miðað við árin á und- an,“ segir í skýrslunni. Eru þegar orðnar 56,4% fleiri en yfir allt árið 2018 Þróunin hefur verið sú á undan- förnum mánuðum að strax á fyrri helmingi þessa árs voru skýrslutök- ur vegna kynferðislegs ofbeldis orðnar fleiri en allt árið 2018, allt ár- ið 2019 og nálgast það að vera jafn margar og allt árið 2020. „Nú, þegar tölur fyrir fyrstu 9 mánuði ársins eru teknar saman, má sjá að skýrslutökur vegna kynferð- islegs ofbeldis á fyrstu níu mánuðum ársins 2021 eru 56,4% fleiri en allt árið 2018, 26,7% fleiri en allt árið 2019 og 15,6% fleiri en allt árið 2020,“ segir þar. Stórfjölgun í Barnahúsi vegna ofbeldis - Skýrslutökur í Barnahúsi vegna kynferðislegs ofbeldis voru tvöfalt fleiri frá janúar til september en á sama tímabili í fyrra - Skýrslutökum vegna líkamlegs og heimilisofbeldis hefur einnig fjölgað mikið Fjöldi skýrslutaka í Barnahúsi Fyrstu níu mánuði áranna 2018-2021 Kyn barna sem sóttu þjónustu í Barnahúsi fyrstu níu mán. 2021 200 150 100 50 0 Heimild: Barnaverndarstofa 2018 2019 2020 2021 91 88 149 213 32 59 27 61 76 73 80 133 Drengir 30% Stúlkur 70% Vegna kynferðislegs ofbeldis Vegna líkamlegs- og heimilisofbeldis Ný viðbygging Gamla Garðs, elsta stúdentagarðs Félagsstofnunar stúdenta, var vígð í gær. Vígslu- athöfnin fór fram í nýjum sam- komusal Gamla Garðs, sem hefur fengið heitið Stúdentabúð. Þar afhjúpuðu Isabel Alejandra Díaz, forseti Stúdentaráðs HÍ, og Björn Bjarnason, forseti SHÍ þegar Félagsstofnun stúdenta var stofnuð árið 1968, listaverkið „Góða nótt ferðalangur“ eftir Helga Þórsson myndlistarmann, útfært af Rúnu Kristinsdóttur, sem tileinkað er hagsmunabaráttu stúdenta í 100 ár. Auk þeirra Isabel og Björns fluttu Guðrún Björnsdóttir, framkvæmda- stjóri FS, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Jón Atli Benedikts- son háskólarektor ávörp. Nýja húsið er samsett úr tveimur álmum með tengigangi en þar eru 69 einstaklingsherbergi með sér bað- herbergi og deila íbúar með sér sam- eiginlegri aðstöðu, eldhúsum, setu- stofum, samkomusal o.fl. Ístak sá um framkvæmd verksins. Gamli Garður reis upphaflega árið 1934, en hann var teiknaður af Sig- urði Guðmundssyni húsameistara ríkisins. Viðbyggingin nú var hönn- uð af Andrúm arkitektum, og var lögð áhersla á að byggingin félli vel að eldra húsinu, öðrum nærliggjandi byggingum við Hringbraut og Aðal- byggingu Háskóla Íslands. Ný viðbygging Gamla Garðs vígð Morgunblaðið/Árni Sæberg Gamli Garður Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ, flutti ávarp.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.