Morgunblaðið - 15.10.2021, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 15.10.2021, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2021 Joe Biden klúðraði brottför úr Afganistan með ævintýra- legum hætti og kom Bandaríkj- unum í ógöngur og skildi svo eftir ógrynni nýlegra hergagna sem hvert Evrópuríki hefði mátt vera stolt af að ráða yfir. Nú reynir ESB að klúðra líka, þótt það hafi verið víðs fjarri: Jón Magn- ússon fv. alþingis- maður skrifar: - - - Ætla hefði mátt að vestræn ríki mundu bindast sam- tökum um að útiloka Afganistan frá samfélagi siðaðra þjóða meðan villimennska talibananna ræður þar ríkjum. Krafist þess, að lág- marksmannréttindi yrðu til staðar í landinu auk ýmiss annars annars yrði engin aðstoð í boði. En það er ekki gert. - - - Í gær ákvað Evrópusambandið að gefa talibanastjórninni 1000 milljónir evra eða 150 milljarða, sem heitir aðstoð. Skattgreiðendur í Evrópu hafa aldrei verið spurðir um þetta eða þeirra samþykkis leitað. - - - Þessir fjármunir hefðu getað nýst vel til uppbyggingar og aðstoðar í Evrópu, en sömu pen- ingunum verður aldrei eytt tvisv- ar. Óneitanlega skýtur það skökku við, að valdstjórn Evrópusam- bandsins í Brussel skuli fyrst krefj- ast þess að lönd Evrópu taki við ómældum fjölda flóttamanna (um 90% þeirra eru ungir karlmenn) vegna ógnarstjórnarinnar í Afgan- istan og styrkja ógnarstjórnina síð- an með gríðarlegum fjármunum. - - - Hvers eiga evrópskir skatt- greiðendur eiginlega að gjalda.“ Jón Magnússon Sjá ekki ógöngur nema taka þátt STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Mannanafnanefnd samþykkti mörg ný mannanöfn þann 12. október og ákvað að þau yrðu færð á manna- nafnaskrá. Nokkrum beiðnum um ný eiginnöfn og millinöfn var hafnað. Ný nöfn sem voru samþykkt voru kvenkynsnöfnin Skúa, Rosemarie, Dýrlaug, Kateri, Elika, Annarósa, Emi og Manley. Af karlkynsnöfnum var eiginnafn- ið Hunter samþykkt og einnig nöfnin Varði, Úrsúley, Ói, Kristan, Elliott, Kristóbert, Zíon, Arne og Kalli. Þá var beiðni um millinafnið Ár- múla var samþykkt. Beiðni um eiginnafnið Hel (kvk.) var hins vegar hafnað og sömuleiðis beiðni um millinöfnin Thunderbird og Street. Þá ákvað mannanafnanefnd að eiginnafnið Villiljós, sem er kynhlut- laust, skyldi tekið af mannanafna- skrá. Hins vegar var beiðni um milli- nafnið Villiljós samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá. Helstu verkefni mannanafna- nefndar eru að semja mannanafna- skrá um eiginnöfn og millinöfn sem teljast heimil samkvæmt lögum um mannanöfn. Nefndin veitir einnig ráðgjöf um nafngjafir og sker úr álita- og ágreiningsefnum um nöfn, nafnritun og fleira þess háttar. gudni@mbl.is Skúa, Dýrlaug, Zíon og Ármúla - Mannanafnanefnd hafnaði nöfnunum Hel, Street og Thunderbird Morgunblaðið/Ásdís Nöfn Ný nöfn bætast jafnt og þétt við á mannanafnaskrá. Úr safni. Björgvin Þorsteinsson, lögmaður og marg- faldur Íslandsmeistari í golfi, lést á líknardeild Landspítala aðfaranótt fimmtudags, 68 ára að aldri eftir langa bar- áttu við krabbamein. Björgvin fæddist á Akureyri 27. apríl 1953, sonur hjónanna Þorsteins Magnússonar vélstjóra og Önnu Rósamundu Jóhanns- dóttur húsfreyju. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Ak- ureyri 1973 og lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands 1980. Hann fékk réttindi sem héraðsdómslögmaður árið 1982 og sem hæstaréttar- lögmaður 1986. Björgvin starfaði sem fulltrúi sýslumannsins í Austur-Skafta- fellssýslu 1980-1981 og fulltrúi á lögmannsstofu Gylfa og Svölu Thoroddsen 1981-1983. Hann starf- aði sjálfstætt frá 1983, síðast hjá Draupni lögmannsþjónustu. Björgvin sat í stjórn Golfklúbbs Akureyrar 1967-1969 og í stjórn Bridgesambands Íslands 1987- 1992, í stjórn Lögmannafélags Ís- lands 1985-1987 og í stjórn Golf- sambands Íslands 1998-2002. Þá átti hann sæti í áfrýjunardómstól ÍSÍ undanfarna tvo áratugi. Björgvin varð sex sinnum Íslandsmeist- ari í golfi á árunum 1971 til 1977 en hann keppti 56 sinnum á Íslandsmótinu, síðast í sumar á Jaðarsvell- inum á Akureyri og var þá elsti keppand- inn. Þá varð hann Ís- landsmeistari í flokki kylfinga 65 ára og eldri í Vest- mannaeyjum í sum- ar. Auk Íslands- meistaratitlanna varð hann 9 sinnum meistari Golfklúbbs Ak- ureyrar, Golfklúbbs Reykjavíkur tvisvar og Golfklúbbs Hafnar í Hornafirði einu sinni. Hann fór 11 sinnum holu í höggi á ferlinum. Björgvin var sæmdur heiðurs- krossi ÍSÍ á ársþingi Íþrótta- og ólympíusambands Íslands nú í október. Fyrri eiginkona Björgvins var Herdís Snæbjörnsdóttir, flugfreyja og fulltrúi, þau skildu. Dóttir þeirra er Steina Rósa. Síðari eig- inkona Björgvins er Jóna Dóra Kristinsdóttir, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir. Stjúpsonur Björgvins og sonur Jónu Dóru er Kristinn Geir. Andlát Björgvin Þorsteinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.