Morgunblaðið - 15.10.2021, Síða 9

Morgunblaðið - 15.10.2021, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2021 fyrir heimilið Sendum um land allt Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Fallegar vörur 50 cm langur - Verð 13.500 kr. 95 cm langur - Verð 15.900 kr. 140 cm langur - Verð 19.400 kr. Glory bekkur í mörgum litum Pantaðu þér bekk í vefverslun Bústoð Fyrsta úthlutun Styrktarsjóðs geð- heilbrigðis fór fram í gær. Alls bár- ust 54 umsóknir til sjóðsins að upp- hæð 137.275.000 kr. en sjóðurinn hafði yfir að ráða 10 m. kr. til þess- arar fyrstu úthlutunar. Sextán verkefni hlutu styrk að þessu sinni og eru fulltrúar þeirra á myndinni hér til hliðar. Fram kem- ur í tilkynningu að horft hafi verið sérstaklega til fjögurra yfirþátta þegar umsóknir voru metnar: Vald- eflingu notenda, valdeflingu að- standenda, mannréttinda og jafn- réttis og nýsköpunar. Sjá má listann yfir styrkþega á mbl.is. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að framförum í geðheilbrigðis- málum með því að veita styrki til verkefna sem geta bætt geðheil- brigði íbúa Íslands og/eða skilning þar á. Stofnframlag Geðhjálpar var 100 milljónir króna en framtíðar- sýnin er að bjóða hinu opinbera og atvinnulífinu að gerast einnig stofnaðilar. Úthlutað úr Styrktar- sjóði geðheilbrigðis Ljósmynd/Nanna Guðrún Bjarnad. Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Við vorum ærleg við borgarstjóra og ég trúi að hann hafi verið ærlegur við okkur,“ sagði Karl Óskar Þráins- son, formaður foreldrafélags Foss- vogsskóla. Fulltrúar foreldra hittu Dag B. Eggertsson borgarstjóra 12. október. Fundur- inn var rúmlega tveggja tíma langur og gátu- foreldrarnir lýst áhyggjum sínum og kröfum, að sögn Karls. For- eldrafélagið sendi frá sér kröfur í níu liðum í gær. En hvaða atriði vega þyngst? „Okkur skiptir mestu til skemmri tíma að tryggja að börnin komist aft- ur á Fossvogstorfuna sem allra fyrst og ekki síðar en næsta haust,“ sagði Karl. Miðað við upplýsingar sem þau hafa fengið um ástand miðjuhúss skólans og hve úrelt það er finnist þeim það vera að kasta peningum á glæ að reyna að bjarga því og kom- ast mögulega ekki fyrir vandann. Ástand miðjuhússins fengu foreldr- arnir staðfest á fundi með skóla- og frístundasviði og fleirum í Bústaða- kirkju á mánudaginn var. Þar kom einnig fram að húsið henti mjög illa til kennslu. Miðjuhúsið verði rifið „Við viljum að miðjuhúsið verði rifið. Það er ábyrgara að láta það fara en að reyna að halda því. Þetta er þriggja hæða hús á fimm pöllum. Íþróttasalurinn er svo lítill að hann dugar ekki fyrir einn bekk í einu. Að- gengi er alls ekki fyrir alla, heldur fáa. Matsalurinn er í aukarými í kjallara sem aldrei var hugsað til notkunar fyrir börnin. Þar inn af eru skolpbrunnar sem er ekki boðlegt. Börnin eiga betra skilið,“ sagði Karl. Foreldrafélagið fer fram á að um- hverfis- og skipulagssvið borgarinn- ar svari erindi frá 6. september um hvers vegna hróflað var við asbesti í skólanum sumarið 2019 án forathug- unar. Það var sett á sinn stað eftir viðgerðir en fjarlægt síðasta sumar. Þá er þess krafist að skipt verði út starfsmönnum umhverfis- og skipu- lagssviðs og ráðgjafa frá Verkís „sem hafa ítrekað brugðist börnun- um okkar undanfarin þrjú ár“. Full- komið vantraust er sagt ríkja hjá foreldrum til þessara manna. Þess er krafist að umhverfis- og skipulagssvið gangi ekki skemur í endurbótum en ráðleggingar EFLU segja til um. Einnig verði byggingar endurhannaðar. „Foreldrar hafa verulegar, rökstuddar áhyggjur af færni, samstarfsvilja og afkastagetu núverandi arkitekts.“ Þá vilja foreldrarnir eiga fulltrúa í skipulags- og framkvæmdarhópum verkefnisins. Einnig veiti Reykjavík- urborg skólastarfinu meiri stuðning í formi aukinna fjárframlaga og mönnunar. Auk þess þurfi að efla verulega upplýsingagjöf til foreldra og starfsmanna. Kennsla hefjist aftur 2022 „Áætlanir sem hafa verið kynntar foreldrum gera ráð fyrir að kennsla hefjist í Fossvogsskóla í byrjun skólaárs 2022. Þær eru gerðar með eðlilegum fyrirvörum um að áætlan- ir gangi eftir,“ sagði Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs. Hann minnti á að ástand sé erfitt á verktakamarkaði og erlendis séu erfiðleikar á mörkuðum með bygg- ingarefni. Þetta geti haft áhrif á framkvæmdirnar. Morgunblaðið/Eggert Fossvogur Margir foreldrar mættu til fundar sem var haldinn í Bústaða- kirkju á mánudaginn var vegna húsnæðismála Fossvogsskóla. Börnin fái að sækja skólann sinn sem fyrst - Foreldrar nemenda í Fossvogsskóla gera kröfur um ýmsar úrbætur Karl Óskar Þráinsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.