Morgunblaðið - 15.10.2021, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2021
fyrir heimilið
Sendum
um
land
allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
50 cm langur - Verð 13.500 kr.
95 cm langur - Verð 15.900 kr.
140 cm langur - Verð 19.400 kr.
Glory bekkur
í mörgum litum
Pantaðu
þér bekk
í vefverslun
Bústoð
Fyrsta úthlutun Styrktarsjóðs geð-
heilbrigðis fór fram í gær. Alls bár-
ust 54 umsóknir til sjóðsins að upp-
hæð 137.275.000 kr. en sjóðurinn
hafði yfir að ráða 10 m. kr. til þess-
arar fyrstu úthlutunar.
Sextán verkefni hlutu styrk að
þessu sinni og eru fulltrúar þeirra á
myndinni hér til hliðar. Fram kem-
ur í tilkynningu að horft hafi verið
sérstaklega til fjögurra yfirþátta
þegar umsóknir voru metnar: Vald-
eflingu notenda, valdeflingu að-
standenda, mannréttinda og jafn-
réttis og nýsköpunar. Sjá má
listann yfir styrkþega á mbl.is.
Tilgangur sjóðsins er að stuðla
að framförum í geðheilbrigðis-
málum með því að veita styrki til
verkefna sem geta bætt geðheil-
brigði íbúa Íslands og/eða skilning
þar á. Stofnframlag Geðhjálpar var
100 milljónir króna en framtíðar-
sýnin er að bjóða hinu opinbera og
atvinnulífinu að gerast einnig
stofnaðilar.
Úthlutað úr Styrktar-
sjóði geðheilbrigðis
Ljósmynd/Nanna Guðrún Bjarnad.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Við vorum ærleg við borgarstjóra
og ég trúi að hann hafi verið ærlegur
við okkur,“ sagði Karl Óskar Þráins-
son, formaður foreldrafélags Foss-
vogsskóla. Fulltrúar foreldra hittu
Dag B. Eggertsson borgarstjóra 12.
október. Fundur-
inn var rúmlega
tveggja tíma
langur og gátu-
foreldrarnir lýst
áhyggjum sínum
og kröfum, að
sögn Karls. For-
eldrafélagið sendi
frá sér kröfur í
níu liðum í gær.
En hvaða atriði
vega þyngst?
„Okkur skiptir mestu til skemmri
tíma að tryggja að börnin komist aft-
ur á Fossvogstorfuna sem allra fyrst
og ekki síðar en næsta haust,“ sagði
Karl. Miðað við upplýsingar sem þau
hafa fengið um ástand miðjuhúss
skólans og hve úrelt það er finnist
þeim það vera að kasta peningum á
glæ að reyna að bjarga því og kom-
ast mögulega ekki fyrir vandann.
Ástand miðjuhússins fengu foreldr-
arnir staðfest á fundi með skóla- og
frístundasviði og fleirum í Bústaða-
kirkju á mánudaginn var. Þar kom
einnig fram að húsið henti mjög illa
til kennslu.
Miðjuhúsið verði rifið
„Við viljum að miðjuhúsið verði
rifið. Það er ábyrgara að láta það
fara en að reyna að halda því. Þetta
er þriggja hæða hús á fimm pöllum.
Íþróttasalurinn er svo lítill að hann
dugar ekki fyrir einn bekk í einu. Að-
gengi er alls ekki fyrir alla, heldur
fáa. Matsalurinn er í aukarými í
kjallara sem aldrei var hugsað til
notkunar fyrir börnin. Þar inn af eru
skolpbrunnar sem er ekki boðlegt.
Börnin eiga betra skilið,“ sagði Karl.
Foreldrafélagið fer fram á að um-
hverfis- og skipulagssvið borgarinn-
ar svari erindi frá 6. september um
hvers vegna hróflað var við asbesti í
skólanum sumarið 2019 án forathug-
unar. Það var sett á sinn stað eftir
viðgerðir en fjarlægt síðasta sumar.
Þá er þess krafist að skipt verði út
starfsmönnum umhverfis- og skipu-
lagssviðs og ráðgjafa frá Verkís
„sem hafa ítrekað brugðist börnun-
um okkar undanfarin þrjú ár“. Full-
komið vantraust er sagt ríkja hjá
foreldrum til þessara manna.
Þess er krafist að umhverfis- og
skipulagssvið gangi ekki skemur í
endurbótum en ráðleggingar EFLU
segja til um. Einnig verði byggingar
endurhannaðar. „Foreldrar hafa
verulegar, rökstuddar áhyggjur af
færni, samstarfsvilja og afkastagetu
núverandi arkitekts.“
Þá vilja foreldrarnir eiga fulltrúa í
skipulags- og framkvæmdarhópum
verkefnisins. Einnig veiti Reykjavík-
urborg skólastarfinu meiri stuðning
í formi aukinna fjárframlaga og
mönnunar. Auk þess þurfi að efla
verulega upplýsingagjöf til foreldra
og starfsmanna.
Kennsla hefjist aftur 2022
„Áætlanir sem hafa verið kynntar
foreldrum gera ráð fyrir að kennsla
hefjist í Fossvogsskóla í byrjun
skólaárs 2022. Þær eru gerðar með
eðlilegum fyrirvörum um að áætlan-
ir gangi eftir,“ sagði Helgi Grímsson,
sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs.
Hann minnti á að ástand sé erfitt á
verktakamarkaði og erlendis séu
erfiðleikar á mörkuðum með bygg-
ingarefni. Þetta geti haft áhrif á
framkvæmdirnar.
Morgunblaðið/Eggert
Fossvogur Margir foreldrar mættu til fundar sem var haldinn í Bústaða-
kirkju á mánudaginn var vegna húsnæðismála Fossvogsskóla.
Börnin fái að
sækja skólann
sinn sem fyrst
- Foreldrar nemenda í Fossvogsskóla
gera kröfur um ýmsar úrbætur
Karl Óskar
Þráinsson