Morgunblaðið - 05.11.2021, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 05.11.2021, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2021 VINNINGASKRÁ 44 7870 19027 30271 39517 48853 58166 66736 74 8174 19101 30413 40064 49197 58243 67154 323 8367 19154 30515 40172 49775 58284 67532 501 8915 19855 30713 40329 49946 58706 68555 705 9008 20115 31472 40369 50126 58968 68609 974 9336 20317 31591 40893 50151 58971 69376 980 9814 20877 32277 40946 50712 59069 69962 1241 10010 21040 32702 41474 51291 59407 70316 1408 10085 21050 32912 41508 51808 59437 70729 1429 10208 21439 32970 41615 52239 59650 71537 1508 10404 21704 33139 41901 52253 59698 72156 1696 10618 21746 33825 42253 52332 59868 72444 1754 11046 21823 34223 42347 52494 60573 73170 1894 11052 21883 34399 44033 52528 61448 73548 1927 11545 22970 34459 44601 53305 61716 74155 2036 11685 23564 35007 45002 53398 61719 74157 2327 11922 24369 35120 45455 53439 61733 74598 2557 12192 24757 35449 45973 53630 62181 74641 2642 12463 25036 35908 46170 53719 62998 75502 2714 12732 25371 36191 46241 53862 63120 75622 2866 12753 25733 36447 46255 54101 63644 75873 2934 13080 26034 36486 46312 54192 63796 76081 3046 13264 26053 36497 46804 54337 64226 76535 3155 13541 26149 36532 46920 54355 64348 76938 3486 13610 26175 36559 46954 54398 64787 77209 3819 13776 26229 36569 47205 54467 64837 77437 5240 14334 26558 36683 47319 54781 65082 77610 5698 14484 26666 37640 47541 54914 65168 77893 5784 14934 26703 37825 47612 55260 65379 79327 5940 15009 26881 37996 47822 55357 65383 79861 6721 15616 27602 38357 47897 55902 65468 79903 6814 15742 27644 38724 47948 55910 65637 7021 16067 27752 38867 48003 56098 65793 7138 16283 29624 38961 48166 56376 65841 7569 17054 29770 39144 48272 56864 66402 7684 17288 29774 39163 48821 57447 66415 7708 18485 29908 39287 48822 58078 66547 610 14275 25889 34824 50757 59710 65993 73953 1344 16943 27388 37938 50814 59805 69064 74918 2084 17455 27865 38324 51764 60063 69851 76296 2831 18255 28206 39190 52247 60118 70012 77193 3289 19369 28458 39371 53815 61106 70622 77367 4873 21870 29270 39394 55047 61292 70796 77593 7087 21899 30554 40333 56295 62097 70947 78797 9226 22075 30912 41064 56434 62296 71180 79557 10778 23342 31530 43160 57867 62638 71197 79947 11095 23599 32159 44626 57906 62858 71735 12450 23641 32340 48605 58715 62909 72262 13663 24648 34562 50038 58895 65190 72991 13872 25741 34712 50436 59546 65202 73612 Næsti útdráttur fer fram 11., 18., 25. nóv & 2. des 2021 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 15379 24179 40882 53507 64633 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 9133 29370 38965 47313 62458 75012 15065 30521 41032 49007 64722 75246 27943 31978 43770 49358 66746 78129 28057 35191 44111 53372 75011 79459 Aðalv inningur Kr. 4.000.000 Kr. 8.000.000 (tvöfaldur) 5 3 6 8 5 27. útdráttur 4. nóvember 2021 Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Þjóðarleiðtogar jafnt í Afríku sem á Vesturlöndum kröfðust í gær tafar- lauss vopnahlés í Eþíópíu í kjölfar yfirlýsinga úr herbúðum uppreisnar- manna í Tigray-héraði, sem kalla sig frelsisher alþýðu í Tigray, eða TPLF, fyrr í vikunni, um að ein- göngu væri tímaspursmál hvenær höfuðborg landsins, Addis Ababa, félli í hendur þeirra. Jeffrey Feltman, sendierindreki bandarískra stjórnvalda á Horni Afríku, er nú kominn til höfuðborg- arinnar með það fyrir augum að stilla til friðar og koma á vopnahlésvið- ræðum, en hann hefur enn fremur fundað með Moussa Faki Mahamat, formanni Afríkusambandsins, um leiðir til að lægja öldurnar milli stjórnarhers Abiy Ahmed og TPLF, en í gær var eitt ár síðan átökin hóf- ust 4. nóvember í fyrra og hafa þau þegar krafist þúsunda mannslífa auk þess að kalla hungursneyð yfir 400.000 Eþíópíubúa. „Átökunum verður að linna,“ sagði Uhuru Kenyatta, forseti Kenía, í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í vikunni og er langt í frá einn um að lýsa áhyggjum sínum því Antonio Guterres, aðalritari Sameinuðu þjóð- anna, ræddi við Ahmed forsætisráð- herra í fyrradag og bauð fram aðstoð sína við að koma á viðræðum milli stjórnvalda og uppreisnarmanna TPLF-hreyfingarinnar, er átti sæti í samsteypustjórn Eþíópíu sem for- sætisráðherra leysti upp árið 2019. Kváðu landvinninga ýkta Eþíópísk stjórnvöld slógu hins vegar á útrétta hjálparhönd alþjóða- samfélagsins og kváðu mikinn liðs- auka væntanlegan í raðir stjórnar- hersins til að berja uppreisnar- mennina niður, sem auk þess segðu miklum ofsögum af landvinningum sínum. Engu að síður lýsti forsætis- ráðherra yfir neyðarástandi í land- inu á þriðjudaginn í skugga hótana TPLF-liða um að leggja höfuðborg- ina undir sig. Getachew Reda, talsmaður TPLF, greindi fjölmiðlum frá því í fyrradag, að vígamenn hreyfingarinnar væru nú komnir til bæjarins Kemise í Am- hara-héraðinu, sem er í 325 kíló- metra fjarlægð frá Addis Ababa, en talsmenn eþíópískra stjórnvalda og stjórnarhersins neituðu hvorir tveggju að tjá sig nokkuð um þessa meintu staðsetningu uppreisnar- hersins. Washington verulega uggandi Einhverjir starfsmenn bandaríska sendiráðsins í Addis Ababa og fjöl- skyldur þeirra hafa fengið leyfi til að halda til Bandaríkjanna kjósi þeir svo og barst orð frá Washington í fyrradag um að ráðamenn þar væru „verulega uggandi“ yfir ástandinu og fylgdi hvatning um að stríðandi fylk- ingar bæru þegar í stað klæði á vopn- in og kæmu á viðræðum sín á milli. AFP Minningarathöfn Fjöldi fólks safnaðist saman í Addis Ababa á miðvikudag og minntist fallinna landa sinna. Krefjast vopnahlés og viðræðna án tafar - Þjóðarleiðtogar Afríku og Vesturlanda með böggum hildar Fulltrúar rúmlega 40 ríkja á lofts- lagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow samþykktu í gær áskorun um að hverfa frá kolanotkun, þótt ekki væri slíkt samþykki öllum auð- veldur biti að kyngja, voru Banda- ríkin og Kína meðal ríkja, sem ekki treystu sér til að taka skrefið yfir í kolalaust líf, og heyrðust þær raddir að áskorunin félli nánast dauð og ómerk hygðust slíkir stórnotendur sniðganga hana. Alþjóðaorkustofnunin, IEA, lýsti því yfir í gær, að þau loforð, sem gef- in hafa verið á ráðstefnunni fyrstu fimm daga hennar, kunni að hrökkva til að halda hlýnun jarðar við 1,8 gráður, forsenda þess væri þó að all- ir loforðsgjafar stæðu við orð sín, en það telja ónefndir sérfræðingar, sem breska ríkisútvarpið BBC vitnar til, í besta falli óvíst. Chris Packham, umhverfisvernd- arsinni og kynnir náttúrulífsþátt- anna Springwatch á BBC, heimsótti ráðstefnuna og úthúðaði þar laxeldi Skota, hvatti þá til að „losa sig við stórmengandi andstyggilega laxa- rækt,“ eins og hann orðaði það, en laxeldi í kvíum við vesturströnd Skotlands veltir um milljarði punda á ári, jafnvirði 176 milljarða ís- lenskra króna. Lyklar á Bleika páfagauknum Meðan leiðtogar heimsins ræða mis-græna framtíð jarðarinnar inn- andyra mótmæla hundruð aðgerða- sinna úti fyrir, þar á meðal Dylan Hamilton, 17 ára stúlka sem hefur undirbúið mótmæli sín síðan hún var 15 ára með þrotlausri gerð skilta og borða með ýmsum áletrunum. Miles Grant, sem rekur kaffihúsið Bleika páfagaukinn, þar sem gestum er frjálst að greiða bara eins og þeir hafa efni á, leggur hins vegar sitt lóð á vogarskálina með því að selja lykla, sem opnað geta flestar gerðir handjárna, þar sem hann býst við fjöldahandtökum mótmælenda. atlisteinn@mbl.is Selur lykla að handjárnum á kaffihúsi sínu í Glasgow - Bandaríkin og Kína daufheyrðust við kolaáskorun í gær AFP Áskorun „Hættið að drepa okkur,“ biðja mótmælendur í Glasgow sem sum- ir hafa undirbúið sig frá 15 ára aldri, en aðrir selja lykla að handjárnum. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.