Morgunblaðið - 05.11.2021, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2021
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Verð kr. 6.500
Verð kr. 4.900
netverslun www.gina.is
Sími 588 8050.
- vertu vinur
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Stærð 8-24
Verð kr. 6.500
netverslun www.gina.is
Sími 588 8050.
- vertu vinur
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Tilkynningar
Kjósarhreppur auglýsir verkefnislýsingu
vegna fyrirhugaðrabreytinga á aðal-
skipulagi í samræmi við 30. gr. Skipulags-
laga nr. 123/2010 og deiliskipulags fyrir
svæði 18a í landi Valdastaða í samræmi við
40. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010
Kjósarhreppur auglýsir hér með til kynningar verkefnislýsingu
vegna fyrirhugaðra breytinga á aðalskipulagi samkvæmt 1
mgr. 30. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 og deiliskipulags fyrir
svæði 18a í landi Valdastaða í Kjósarhreppi samkvæmt 1. mgr.
40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagssvæðið er í landi Valdastaða, auðkennt F18a í
Aðalskipulagi Kjósarhrepps 2017-2029. Það afmarkast af
Kjósarskarðsvegi til suðurs, landi Stekkjarflatar í vestri og
Myllulæk vestan Grímsstaða / Traðarholts í austri. Norðurmörk
svæðisins liggja að óbyggðu svæði og vatnsverndarsvæði
í suðurhlíðum Reynivallaháls. Að undanskilinni landspildu
sem auðkennd er Bollastaðir 1 er deiliskipulagssvæðið í
gildandi aðalskipulagi skilgreint sem Frístundabyggð. Ekkert
deiliskipulag er í gildi. Stærð svæðis skv. yfirlitsuppdrætti fyrir
Grímsstaði/Valdastaði (dags. 29.05.2021) er 76,41 ha. en í
Aðalskipulagi er stærð reitsins talin 65 ha. Á deiliskipulags-
svæðinu eru 4 hús.
Markmið breytinga á aðalskipulagi er að svara aukinni eftir-
spurn fyrir lóðir í dreifbýli nálægt höfuðborginni í samræmi við
áherslur sveitarstjórnar um eflingu byggðar í Kjós. Sveitar-
félagið hefur þessu tengt fest kaup á 76,41 ha. skilgreindu
svæði í landi Valdstaða og áformar að deiliskipuleggja það
fyrir íbúðarbyggð, með um 150-200 lóðum og byggja upp í
áföngum á næstu árum.
Sveitarstjórn leggur eftir sem áður áherslu á að viðhalda
dreifbýlisyfirbragði í sveitarfélaginu, en stuðla samtímis að
betri landnýtingu og hagkvæmari uppbyggingu íbúðarsvæðis
með bættri nýtingu innviða.
Í verkefnislýsingu kemur lögum samkvæmt fram hvaða
áherslur sveitastjórn hefur við skipulagsgerðina, upplýsingar
um forsendur og fyrirliggjandi stefnu og fyrirhugað skipulags-
ferli s.s. um kynningu og samráð gagnvart íbúum og öðrum
hagsmunaaðilum.
Verkefnislýsingin liggur frammi í anddyri hreppsskrifstofu
Kjósarhrepps í Ásgarði frá og með 4. nóvember 2021 til 19.
nóvember 2021 og er jafnframt birt á heimasíðu Kjósarhrepps
www.kjos.is undir:
Fréttir af byggingar- og skipulagsmálum | Kjósarhreppur (kjos.is)
• 2124-Kjós, Skipulagslýsing-útg. 02
• 2124-Kjósarhreppur-Auglýsing
Þeir sem vilja kynna sér málið nánar eru vinsamlegast beðnir
að hafa samband við skipulagsfulltrúa. Athugasemdir eða
ábendingar vegna verkefnislýsingarinnar skulu vera skriflegar
og berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 19. nóvember 2021.
Póstlagðar athugasemdir berist á skrifstofu Kjósarhrepps að
Ásgarði Kjós, 276 Mosfellsbæ, eða með tölvupósti á netfangið
skipulag@kjos.is
Kjósarhreppur 4. nóvember 2021
Skipulags- og byggingarfulltrúi Kjósarhrepps.
Kjósarhreppur auglýsir
skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Auglýsing um skipulagslýsingu
vegna deiliskipulags á landi Hvítaness í
Kjósarhreppi
Gerð hefur verið svokölluð skipulagslýsing vegna fyrirhugaðrar
deiliskipulagsvinnu á landi Hvítaness í Kjósarhreppi. Á fundi
sveitarstjórnar Kjósarhrepps þann 3. nóvember 2021 var
samþykkt að kynna skipulagslýsinguna í samræmi við 3. mgr.
40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tilefni deiliskipulagsbreytinganna eru áform eigenda eyðibýlis-
ins Hvítaness hafa hug á að byggja jörðina að nýju sem
lögbýli og hefja á henni skógrækt. Skilgreindar verða lóðir fyrir
nýbyggingar á jörðinni.
Í gildi er aðalskipulag Kjósarhrepps 2017-2029. Ekki er til
deiliskipulag fyrir skipulagssvæðið.
Samkvæmt aðalskipulagi er jörðin Hvítanes landbúnaðarland í
flokki III, blandað ræktunarland.
Ekki verður gerð breyting á landnotkun Hvítaness.
Skipulagslýsingin verður til sýnis í anddyri hreppsskrifstofu
Kjósarhrepps í Ásgarði frá og með fimmtudeginum 4. nóvem-
ber 2021 til og með 19. nóvember 2021. Tillögurnar verða
jafnframt birtar á heimasíðu Kjósarhrepps, kjos.is.
Athugasemdir eða ábendingar vegna skipulagslýsingarinnar
skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa í síðasta
lagi 19. nóvember 2021. Póstlagðar athugasemdir berist á
skrifstofu Kjósarhrepps að Ásgarði Kjós, 276 Mosfellsbæ, eða
með tölvupósti á netfangið skipulag@kjos.is
Eftir kynningu á skipulagslýsingunni verður fjallað um deili-
skipulagið og það kynnt samkvæmt skipulagslögum nr.
123/2010.
Kjósarhreppur 4.11. 2021
Skipulagsfulltrúi Kjósarhrepps
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30, nóg pláss. Zumba gold
60+ kl. 10.30. Kraftur í KR kl. 10.30, rútan fer frá Vesturgötu 7 kl. 10.10,
Grandavegi 47 kl. 10.15 og Aflagranda 40 kl. 10.20, hressandi hreyfing
í frábærum félagsskap. Bingó kl. 13.30, spjaldið kostar 250 kr. Kaffi kl.
14.30-15.20. Nánari upplýsingar í síma 411-2702. Allir velkomnir.
Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin vinnustofa
kl. 9-12. Leikfimi og jóga með Milan. Hádegismatur kl. 11.30-12.30.
Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 411-2600.
Áskirkja Jóla- og kökubasar Safnaðarfélags Áskirkju verður haldinn
sunnudaginn 7. nóvember kl. 14. Mikið af fallegum munum, fatnaði,
bókum og hannyrðum.Tertur, smákökur, kruðerí og sultur. Vöfflukaffi
á 1000 kr. Ef þið viljið gefa muni á basarinn tekur kirkjuvörður á móti
á opnunartíma kirkjunnar. Ef þið viljið gefa á kökuhlaðborð tökum við
á móti sunnudaginn 7. nóvember milli kl. 10-13. Hlökkum til að sjá
sem flesta.
Boðinn Pílukast kl. 10. í matsal. Línudans fyrir byrjendur kl. 14.15.
Línudans fyrir lengra komna kl. 15.
Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl. 10.15.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11.
Opin Listasmiðja kl. 9-12. Botsía kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30-
12.30. Opin Listasmiðja kl. 13-15.45. Ljóðahópur Soffíu „Vilborg Dag-
bjartsdóttir“.Tryggvi Rafnsson leikari verður með eitthvað skemmti-
legt kl. 13.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30.
Garðabær Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur frá Jónshúsi kl.
10. Dansleikfimi í Sjálandi kl. 9.30. Söngstund kl. 11.10 í Jónshúsi.
Félagsvist kl. 13 í Jónshúsi. Smiðja í Kirkjuhvoil opin kl. 13–16.
Gjábakki Kl. 8.30-11.30 opin handavinnustofa. Kl. 9-11.15 botsía í
hreyfisal. Kl. 9-11.30 postulínsmálun á verkstæði. Kl. 13-15.30 tré-
skurður á verkstæði. Kl. 14-15 sögur og fræði, upplestur í handa-
vinnu-stofu. Kl. 20-22 félagsvist á vegum FEBK í aðalsal. Við minnum
á laufabrauðsdaginn laugardaginn 27. kl. 13 til 17. Allir velkomnir.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi milli
kl. 9-11. Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-12. Útskurður kl. 9-12. Bíó
kl. 13.
Hraunsel Billjard kl. 8-16. Línudans kl.10. Brids kl. 13. Botsía kl. 13.30.
Hvassaleiti56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps-
leikfimi kl. 9.45. Handavinna, opin vinnustofa frá kl. 10.30. Brids í
handavinnustofu kl. 13. Hádegismatur kl. 11.30–12.30, panta þarf fyrir
hádegi deginum áður.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 8.30 í Borgum. Pílukast í Borg-
um kl. 9.30. Útvarpsleikfimi í Borgum kl. 9.45. Gönguhópur Korpúlfa
kl. 10 gengið frá Borgum og inni í Egilshöll, þrír styrkleikahópar.
Bridshópur Korpúlfa í Borgum kl. 12.30 og hannyrðahópur Korpúlfa í
Borgum kl. 12.30.Tréútskurður kl. 13 á Korpúlfsstöðum. Kaffiveitingar
kl. 14.30 til 15.30 allir hjartanlega velkomnir.
Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag hittist föstudagshópur í handa-
vinnustofu 2. hæðar kl. 10.30-11.30. Eftir hádegi, kl. 12.50, kemur
Auður Harpa og dansar með okkur inn í helgina í setustofu 2. hæðar.
Þá er opin handavinnustofa milli kl. 13-16. Bbingó kl. 13.30-14.30 í
matsal 2. hæð. Milli kl. 14-15 er inflúensubólusetning í setustofu 2.
hæðar. Eftir það er vöfflukaffi, kl. 14.30. Hlökkum til að sjá ykkur!
Félagsstarf eldri borgara
Færir þér
fréttirnar
mbl.is
Vantar þig
hjólbarða?
FINNA.is
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Árangur fyrirtækja ræðst af þekkingu, getu og reynslu
starfsmanna. Hver einstök ráðning er mikilvæg fjárfesting
og er hagur bæði fyrirtækis og viðkomandi einstaklings
að vel takist til.