Morgunblaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2021
Hlýtt og
notalegt
Þinn dagur, þín áskorun
100% Merino
ullarnærföt
fyrir dömur og herra
Stærðir: S–XXL
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | run@run.is | www.runehf.is
OLYMPIA
Sölustaðir:
Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar • Verslunin Bjarg, Akranesi
Herrahúsið, Ármúla 27 • JMJ, Akureyri • Lífland, Hvolsvelli og Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði • Efnalaug Vopnafjarðar
Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki • Verslun Grétars Þórarinssonar, Vestmannaeyjum • Borgarsport, Borgarnesi
Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga • Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Þernan, Dalvík • Siglósport, Siglufirði
Bókaverslun Breiðarfjarðar, Stykkishólmi • Vaskur, Egilsstöðum • Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi • run.is
Dagskrá:
Staða og starfsemi Gildis á árinu 2021
Hækkandi lífaldur, hvernig bregðast lífeyrissjóðirnir við?
Vegna samkomutakmarkana verðurfundurinn aðfullu rafrænn.
Honum verður streymt á íslensku og ensku en nánari upplýsingar
má finna á www.gildi.is. Sjóðfélagar eru hvattir til að taka þátt
ífundinum og kynna sér stöðu og rekstur sjóðsins.
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs
25. nóvember klukkan 17:00
Gildi–lífeyrissjóður
Rafrænn sjóðfélaga-
og fulltrúaráðsfundur
▪
▪
Lífeyrissjóður www.gildi.is
SVIÐSLJÓS
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Næsta kynslóð er komin inn og hún kemur
virkilega sterk inn,“ segir Vilhjálmur Svan
Vilhjálmsson, verslunarstjóri í Herragarð-
inum í Kringlunni.
Fastir viðskiptavinir verslunarinnar hafa
tekið eftir breyttri samsetningu kúnnahóps-
ins að undanförnu. Nú eru ekki lengur bara
fullorðnir karlmenn sem sækja þangað
vandaðar vörur og góða þjónustu heldur allt
niður í börn á fermingaraldri.
„Við höfum alltaf verið sterkir í ungu
fólki, til að mynda í kringum útskriftir, en
nýi hópurinn er að meðaltali 13-17 ára.
Þetta byrjaði fyrir nokkrum árum en hefur
aukist mikið að undanförnu. Við starfs-
mennirnir þurfum að vera búnir í mat
klukkan þrjú á daginn til að geta tekið á
móti krökkunum eftir skóla,“ segir Vil-
hjálmur Svan.
Unga fólkið sækir í merkjavöru sem fæst
í Herragarðinum. Stóru merkin Polo, Boss
og Armani hafa á síðustu árum farið að
bjóða upp á fjölbreyttara vöruúrval og jogg-
inggallar, pólóbolir, hettupeysur, vesti og
úlpur njóta til að mynda mikilla vinsælda.
„Nú er þetta orðið meira sportí. Þessi
fatnaður er orðinn mjög stór hluti af línum
stóru tískumerkjanna. Verðið hér er mjög
samkeppnishæft við verðið úti og krakk-
arnir vita það,“ segir verslunarstjórinn.
Vilhjálmur segir að stór merki eins og
Armani hafi lengi framleitt jogginggalla.
Hann hafi áður fyrr keypt lítið inn af slíkum
vörum en nú kaupi hann meira. Stór breyt-
ing hafi orðið með kórónuveirunni þegar
fólk fór að verja meiri tíma heima hjá sér en
áður. Þá hafi margir kosið frjálslegri klæða-
burð en áður, enda þurfi fólk ekki að vera í
jakkafötum fyrir framan tölvuna heima hjá
sér. „Við höfum svarað eftirspurninni, við
fundum vel fyrir henni. Mér finnst þetta
mjög skemmtilegt allt saman. Þetta er eig-
inlega með skemmtilegri tímabilum sem ég
hef upplifað síðan ég byrjaði í þessum
bransa 1998. Fjölbreytnin er svo mikil,“
segir Vilhjálmur.
Hann játar því fúslega að ólíkt sé að af-
greiða ungmenni í búðinni og stálpaða karl-
menn. „Það má segja að þessi unga kynslóð
sé betur upplýst en við hin eldri. Þegar ég
byrjaði að selja herraföt og útskriftarnemi
labbaði inn í búðina þá réð ég ferðinni. Nú
ráða þau ferðinni. Þessi kynslóð veit betur
en við hvað þau vilja, hvort sem það á við
um fatnað, síma, tækni eða hvaðeina. Þau
vita hvað er í tísku og hvað er á boðstólum,
eru búin að skoða vöruna áður en þau labba
inn í verslun og vita hvað þau vilja.“
Hann segir áberandi hversu sjálfstætt í
hugsun unga fólkið sé. „Það er ekki lengur
þannig að mamma og pabbi eigi bara að
velja. Við eigum helst ekkert að skipta okk-
ur af þessu.“
Vilhjálmur segir að endingu að unga fólk-
ið sé ánægjuleg viðbót við kúnnahópinn og
þeir hinir eldri hafi tekið þessari þróun vel.
„Vissulega er einn og einn sem spyr forviða
við kassann hvað sá 14 ára við hliðina á hon-
um hafi verið að kaupa. En það er nóg af
fermetrum og starfsmönnum fyrir alla.“
Unga fólkið sækir í merkjavöruna
- Kúnnahópur Herragarðsins hefur breyst að undanförnu - Nú versla 13-17 ára krakkar þar í
bland við stálpaða karlmenn - Unga fólkið sækir í merkjavöruna - Betur upplýst en hinir eldri
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Annir Vilhjálmur Svan fagnar þeirri breytingu sem orðið hefur á kúnnahópnum í Herragarð-
inum að undanförnu. Nú kaupa 13-17 ára gamlir krakkar þar föt frá Polo, Armani og Boss.
Vinsælt Jogginggallar frá Polo njóta mikilla
vinsælda í dag, ekki síst hjá ungmennum.
Vetur Úlpurnar eru klárar í Herragarðinum fyrir köldustu mánuði ársins.