Morgunblaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2021
SPORTÍS SKE I FAN 1 1
1 08 REYKJAV ÍK
S POR T I S . I S
520-1000
Síðasta vetur var lagður grunnur
að átakinu þegar Lilja Alfreðs-
dóttir menntamálaráðherra, Íris
Róbertsdóttir bæjarstjóri, Jón Atli
Benediktsson, rektor HÍ, og Helgi
Rúnar Óskarsson frá SA skrifuðu
undir viljayfirlýsingu. Markmiðið
er að efla læsi nemenda, auka
grunnfærni í stærðfræði og nátt-
úruvísindum, efla hreysti og hreyf-
ingu og breyta hugarfari. Er nem-
endum fylgt eftir frá upphafi
grunnskólagöngu í haust og til
loka, alls í tíu ár.
„Við lítum á þetta sem gríðarlegt
tækifæri fyrir okkur og vonandi
fyrir fleiri skóla ef vel gengur. Ekki
hafa verið gerðar margar mennta-
rannsóknir á Íslandi og ekki af
þessari stærðargráðu. Þróunar-
verkefni sem byggist á vísindum og
sterkum rökum fyrir því að bæta
læsi hjá íslenskum börnum,“ sagði
Anna Rós Hallgrímsdóttir, skóla-
stjóri GRV, þegar Morgunblaðið
ræddi við hana.
Hún segir reynda og góða kenn-
ara lykilþátt og lestrarfræðingar
hafi komið sterkir inn. Stofnuð
voru teymi í læsi, stærðfræði, nátt-
úrufræði, hreyfingu og hugarfari
sem unnið hafa
mikla og góða
vinnu. Helstu
áherslur eru
breytt stunda-
tafla, áhersla á
þjálfun, mun
meiri eftirfylgni
og á markvissa
hreyfingu alla
daga. „Rann-
sóknir sýna að
hreyfing snemma dags hefur áhrif
á einbeitingu og er jákvæð fyrir
hreyfifærni, hreysti, vellíðan og fé-
lagsfærni. Hver kennslustund er að
hámarki 40 mínútur og mikilvægt
að taka pásu á milli.“
Virkja heimilin
Anna Rós segir hugarfarið mikil-
vægan þátt og markvisst verði unn-
ið að því að innleiða gróskuhugar-
far hjá nemendum, starfsfólki og
foreldrum. „Mikilvægt er að fá
heimilin með í þá vinnu og verður
lagt upp með að hafa reglulega
fræðslu fyrir foreldra. Það er von
okkar að foreldrar og samfélagið í
Eyjum taki virkan þátt í verkefninu
með okkur.“
Gríðarlegt tæki-
færi fyrir okkur
- Reyndir kennarar eru lykilþáttur
Anna Rós
Hallgrímsdóttir
Ómar Garðarsson
Vestmannaeyjum
Grunnskólinn í Vestmannaeyjum
(GRV) er einn grunnskóla í landinu í
samstarfi um átak til að efla lestur
nemenda auk fleiri þátta í námi. Það
kallast Kveikjum neistann og er
langtíma þróunar- og rannsóknar-
verkefni í samvinnu menntamála-
ráðuneytis, Rannsóknarsetursins
menntun og hugarfar (RMH), Há-
skóla Íslands og Samtaka atvinnu-
lífsins (SA).
Eitt markmiðið er að virkja bóka-
söfnin á hverjum stað. Bókasafn
Vestmannaeyja (BV) hefur svarað
kallinu og lagst á sveifina með
myndarlegum hætti. Var það kynnt
með mikilli veislu í Safnahúsi Vest-
mannaeyja þar sem starfsfólkið
gerði safnið að miklum ævin-
týraheimi og tók á móti miklum
fjölda barna og foreldra.
Í upphafi tóku til máls forsvars-
maður átaksins, Hermundur Sig-
mundsson, prófessor við Norska
tækni- og vísindaháskólann í Þránd-
heimi og RMH, Svava Þ. Hjaltalín,
grunnskólakennari og verkefna-
stjóri við RMH, og Kári Bjarnason,
forstöðumaður BV. Þau lögðu
áherslu á að lestur er lykill að því að
efla menntun og gera ungt fólk hæf-
ara til að takast á við auknar kröfur
til menntunar í breyttum heimi.
Vitnaði Hermundur í reynslu Finna
sem skara fram úr öðrum Norður-
landaþjóðum í menntun barna og
unglinga.
Óviðunandi staða hér á landi
Í alþjóðlegum samanburði er stað-
an hér á landi alls óviðunandi að því
er kom fram hjá þeim. Hermundur,
Svava og Kári sögðu að nýta yrði öll
ráð til að vekja áhuga barna og ung-
linga á lestri bóka. Að þeirra mati
stendur BV óvenjulega vel að vígi
með yfir 15.000 barnabækur auk
fjölda annarra bóka sem geta kveikt
áhugann. Til að auðvelda leit að bók
við hæfi hefur starfsfólkið unnið að
því hörðum höndum að litamerkja
bækur eftir erfiðleikastigi og efnis-
flokkum. Er það nýjung hér á landi.
Með sín eigin skírteini
Allir nemendur í GRV eru með
sitt eigið bókasafnsskírteini og eru
fyrstubekkingar þegar farnir að
nýta sín skírteini. Starfsfólk BV
hefur löngum lagt sig fram um að
laða að börn og unglinga sem oft
mæta þekktum persónum bók-
menntanna í yfirstærð þegar þau
líta inn.
Á hátíðina var sérstaklega boðið
nemendum fyrsta til fjórða bekkjar
Grunnskólans og foreldrum þeirra
og var boðið upp á leiki og þrautir og
var fjörið mikið.
Hermundur, Svava og Kári eru
sannfærð um að með átakinu takist
að kveikja neistann og opna ungu
fólki leið að þeim fjársjóði sem bók-
menntirnar eru. Fátt sé mikilvæg-
ara þeim sem erfa landið.
„Þetta er einstakt verkefni og
tækifæri fyrir okkur sem samfélag
að stuðla að því að efla læsi og bæta
líðan nemenda okkar og gefa þeim
með þeim hætti gott veganesti út í
lífið. Allir þeir fjölmörgu aðilar sem
standa að verkefninu treysta á for-
eldra og allt samfélagið í Eyjum að
koma með í þessa vegferð, okkur öll-
um til góða,“ sagði Kári Bjarnason
sem á frumkvæði að aðkomu BV að
verkefninu.
Morgunblaðið/Ómar
Átak Þau Svava, Kári og Hermundur stilltu sér upp með Þorsteini Glúmi, íbúa í Bókasafni Vestmannaeyja.
Draugur Hrafntinna var ekki lengi
að búa til þennan flotta draug.
Neistinn
kveiktur
í Eyjum
- Fjölþætt átak til að efla grunnskóla-
nema í námi - Lestur lykill að árangri
Leikur og starf Fjörið var mikið þegar börn og foreldrar brugðu á leik og
leystu þrautir þegar lestrarátakið var kynnt í Bókasafni Vestmannaeyja.