Morgunblaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2021
SVIÐSLJÓS
Hólmfríður María Ragnhildard.
hmr@mbl.is
COP26 er 26. aðildarríkjaþing lofts-
lagssamnings Sameinuðu þjóðanna
sem haldið var í Glasgow dagana 1.
til 13. nóvember.
Ráðstefnan hefur verið kölluð
uppgjörstími Parísarsáttmálans,
sem er lögbundinn alþjóðlegur sátt-
máli um loftslagsbreytingar sem
var samþykktur á COP21-
loftslagsráðstefnunni í París árið
2015. Sáttmálinn kveður á um að
þjóðir heims vinni saman að því að
koma í veg fyrir að meðalhitastig
jarðar hækki um 1,5-2 gráður miðað
við meðalhitastigið sem var við upp-
haf iðnvæðingar.
Fyrir ráðstefnuna í Glasgow í ár
voru aðildarríkin beðin um tvennt.
Annars vegar að endurskoða og
uppfæra framlög sín frá Parísar-
sáttmálanum, og hins vegar að skila
inn framtíðarsýn um hvernig
tryggja skuli kolefnislaus ríki.
Yfirlýsingar
Ráðstefnan hófst formlega 1.
nóvember með ávörpum þjóðar-
leiðtoga þar sem þeir settu tóninn
fyrir ráðstefnuna og sammælst var
um mikilvægi þess að bregðast við
þeim aðkallandi vanda er steðjar að
jörðinni. Næst tóku við samninga-
viðræður fulltrúa ríkjanna og að
lokum komu ráðherrar til að leysa
úr torleystum ágreiningsmálum.
Áður en ráðstefnunni lauk voru
mikilvægar sjálfstæðar yfirlýs-
ingar samþykktar af fjölda landa,
sem kveða meðal annars á um
skógareyðingu, losun metans og
kolanotkun.
Yfir hundrað ríki hafa ritað undir
yfirlýsingu þar sem þau heita því
að stöðva og snúa við tapi á skógum
og landeyðingu fyrir árið 2030.
Svipaður fjöldi ríkja hafa einnig
skrifað undir yfirlýsingu sem kveð-
ur á um 30% samdrátt á losun met-
ans til 2030 miðað við losun ársins
2020.
Þá hafa yfir 40 ríki ritað undir yf-
irlýsingu um að víkja frá kola-
notkun, ýmist fyrir árið 2040 eða
2050. Þá voru þó nokkur ríki á borð
við Bandaríkin, Kanada og Bret-
land sem sáu sér ekki fært að
skrifa undir yfirlýsinguna um að
stöðva kolanotkun, en þau skrifuðu
aftur á móti undir aðra yfirlýsingu
þar sem þau hétu því að hætta að
fjármagna framleiðslu jarðefna-
eldsneytis utan heimalands síns
fyrir árslok 2022. Verður fjár-
munum frekar varið í að fjárfesta í
hreinni orku.
Yfirlýsingar Íslands
Alls skrifuðu fulltrúar Íslands
undir fimm yfirlýsingar sem voru
utan ramma loftslagssamningsins.
Meðal þeirra voru yfirlýsingarnar
sem minnst var á hér að ofan er
varða samdrátt í losun metans og
stöðvun á skógareyðingu. Til við-
bótar við þær var einnig skrifað
undir yfirlýsingu um herta sókn í
innleiðingu rafbíla og annarra hrein-
orkubíla, í von um að þeir verði
100% af bílasölu fyrir árið 2035. Þá
rituðu fulltrúar Íslands undir yf-
irlýsingu sem styður við hrein orku-
skipti á heimsvísu og að lokum var
ritað undir yfirlýsingu sem kveður á
um að draga úr losun frá siglingum
og stöðva hana með öllu fyrir árið
2050.
Kína og Bandaríkin
Örfáum dögum fyrir lok ráðstefn-
unnar bárust einnig þau tíðindi að
Kína og Bandaríkin hefðu tekið
höndum saman og gefið út sameig-
inlega yfirlýsingu þar sem kveðið
var á um að þjóðirnar ætluðu að
vinna saman að metnaðarfyllri
markmiðum til þess að takmarka
hlýnun við 1,5 gráður.
Yfirlýsingin er talin mikilvægt
framfaraskref en á sama tíma er
hún ansi gloppótt. Hafa gagnrýn-
endur meðal annars bent á að skort-
ur sé á aðgerðaáætlun um hvernig
ríkin hyggist standa við samdrátt í
losun auk þess sem lítið hafi verið
minnst á fjármagn til að fylgja þessu
eftir.
Helstu niðurstöður
Eftir langar og strangar viðræður
fulltrúa sendinefnda og ráðherra
komst loks mynd á nýjan loftslags-
samning 13. nóvember sem aðildar-
ríkin gátu öll staðfest.
Meðal helstu niðurstaðna samn-
ingsins eru að ríkin staðfestu mik-
ilvægi þess að halda hækkun hita-
stigs jarðar undir 1,5 gráðum.
Þá eru ríki beðin um að skila inn
metnaðarfyllri markmiðum í sam-
ræmi við markmið Parísarsáttmál-
ans fyrir árslok 2022, í stað 2025
eins og upprunalega var kveðið á
um.
Ákvæði um að dregið yrði úr kola-
notkun og niðurgreiðslum á jarð-
efnaeldsneyti kom einnig fram.
Hvað varðar fjármagn, þá var far-
ið fram á að þróuð ríki myndu tvö-
falda framlög sín til þróunarríkja til
aðlögunar að áhrifum loftslags-
breytinga. Útærslur á reglugerðum
og fyrirkomulagi ýmissa ákvæða
sem höfðu staðið út af eftir loftslags-
ráðstefnuna í Póllandi árið 2018,
lauk formlega og þar með frágangi á
Reglubók Parísarsáttmálans.
Þá kveður lokaákvörðun loftslags-
ráðstefnunnar einnig á um að lögð
sé áhersla á málefni hafsins, jökla,
líffræðilegrar fjölbreytni og vernd
og endurheimt náttúru og vistkerfa.
Auk þess sem áhersla var lögð á að
gætt yrði að réttlæti, jafnrétti og
mannréttindum í þeim breytingum
sem við stöndum frammi fyrir.
Ákvæðin sem ollu vonbrigðum
Lokaútkoman var nokkuð um-
deild en fyrstu drög samkomulags-
ins þóttu mun metnaðarfyllri. Mót-
mæli stórþjóða höfðu þó dregið úr
ýmsum ákvæðum á lokasprettinum
sem varð til þess að þau urðu út-
vötnuð.
Sú breyting sem olli hvað mestum
vonbrigðum var án efa ákvæðið um
kolanotkun. Í fyrstu drögum lofts-
lagssamningsins voru aðildarríkin
hvött til að hætta notkun kola.
Þegar á hólminn var komið reynd-
ist ákvæðið of þungbært fyrir stór-
þjóðir á borð við Kína og Indland.
Eftir miklar samningaviðræður
fékkst breyting á orðalaginu sam-
þykkt.
Er nú einungis kveðið á um að
dregið verði úr kolanotkun (e.
phase-down) í stað þess að hún verði
stöðvuð (e. phase-out). Hefur þessi
lokabreyting verið gagnrýnd harð-
lega og þykir nú ákvæðið frekar
óljóst og bitlaust.
Þá þótti einnig mikil vonbrigði að
ákvæði um bótaábyrgð þróaðra
ríkja gagnvart þróunarlöndum hefði
ekki hlotið meiri hljómgrunn.
Beiðnir þróunarríkja féllu í grýtt-
an farveg hjá ríkjum á borð við
Bandaríkin sem sáu sér ekki hag í
því að hleypa ákvæðinu í gegn enda
gæti það leitt til þess að hægt væri
að heimta milljarða í skaðabætur frá
stórþjóðum sem bera hvað mesta
ábyrgð.
Í stað þess var komist að þeirri
niðurstöðu að árlegar viðræður
myndu eiga sér stað til að ræða
fyrirkomulag fjármögnunar. Þykja
þessi loforð óskýr og ónákvæm.
Þá tókst heldur ekki að efna lof-
orð um loftslagssjóðinn sem hefur
verið í deiglunni undanfarin ár. Í
hann áttu ríkari þjóðir heims og
fjármálastofnanir að safna 100 millj-
örðum bandaríkjadala á hverju ári
til þróunarríkja og átti sjóðurinn að
komast á koppinn árið 2020, sem
gerðist þó ekki.
Lokaniðurstaða
Lokaniðurstaða og markmið sam-
komulagsins sem aðildarríkin skrif-
uðu undir duga því ekki til að tak-
marka hlýnun við 1,5 gráður.
Samkvæmt útreikningum Umhverf-
isstofnunnar Sameinuðu þjóðanna
stefnir nú í að meðalhitastig hækki
um 2,4 gráður miðað við þau upp-
færðu markmið er komu fram á
COP-ráðstefnunni í ár.
Það sem helst stendur upp úr er
gagnrýni á ríkari þjóðir heims sem
ekki eru talin hafa staðið skil á sínu
gagnvart þróunarlöndum, sem eru
hvað berskjölduðust fyrir áhrifum
loftslagsbreytinga. Þrátt fyrir það
eru margir á því að ráðstefnan hafi
ekki verið misheppnuð, öllu heldur
hafi mikilvæg skref verið stigin.
Niðurstaðan áfangasigur
Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
umhverfis- og auðlindaráðherra,
segir lokaniðurstöðuna vera ákveð-
inn áfangasigur.
Mestu vonbrigðin hafi þó verið
þau að ríki heims hafi ekki sett fram
nægjanlega metnaðarfull markmið
til þess að hægt sé að halda hlýnun
innan við eins og hálfs gráðu markið.
„Núna er mjög skýrt í ákvörðun
þingsins að ætlast er til að ríki
heims komi með hertari markmið
fyrir fundinn á næsta ári.“
Sigrar og ósigrar á COP26
- Uppgjörstími Parísarsáttmálans - Markmiðin ekki nóg til að takmarka hlýnun við 1,5 gráður
- Ísland skrifar undir fimm yfirlýsingar - Vendingar á lokasprettinum ollu vonbrigðum
Magn koldíoxíðs í andrúmsloftinu 1970-2021
ppm CO2
450
430
410
390
370
350
330
310
1970 1980 1990 2000 2010 2020
7. júní 2021: 419 ppm
Markmið
2°C
1,5°C
Ef magn CO2 í andrúmsloftinu fer yfir 450 ppm þá er talið að það séu
um 50% líkur á því að við náum að halda hlýnun jarðar innan við 2°C
Heimild: Klappir/NOAA
Staða Íslands í samanburði við lönd innanESB
Losun gróðurhúsalofttegunda, tonn CO2-ígilda á íbúa
Heimild: Klappir/Eurostat
Lúxemborg
Ísland
Írland
Tékkland
Eistland
Kýpur
Holland
Belgía
Pólland
-55%Markmið ESB
(+Ísland og Noregur)
Núverandi
meðaltalslosun ESB
0 2 4 6 8 10 12 14 16 18 20
Samkvæmt Eurostat
er losun frá Íslandi
15,8 t CO2-ígilda/íbúa
(án landnotkunar, skógræktar,
alþjóðaflugs og siglinga)
Árleg losun CO2 á heimsvísu 1959 til 2021
Gígatonn CO2
16
12
8
4
0
Kína Bandaríkin
ESB-löndin Indland
Restin af heiminum
1960 1970 1980 1990 2000 2010 2020
Heimild: Global Carbon
Project 2021/AFP
14.8
11.1
5,1
2,8
2,7
Áætlun fyrir 2021
25.995 kr. / St. 40-46
Vnr.: E-460484
25.995 kr. / St. 41-47
Vnr.: E-510244
ECCO KULDASKÓR
24.995 kr. / St. 40-47
Vnr.: E-50183451052
24.995 kr. / St. 41-47
Vnr.: E-50183452201
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
STEINAR WAAGE