Morgunblaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2021 SVIÐSLJÓS Hólmfríður María Ragnhildard. hmr@mbl.is COP26 er 26. aðildarríkjaþing lofts- lagssamnings Sameinuðu þjóðanna sem haldið var í Glasgow dagana 1. til 13. nóvember. Ráðstefnan hefur verið kölluð uppgjörstími Parísarsáttmálans, sem er lögbundinn alþjóðlegur sátt- máli um loftslagsbreytingar sem var samþykktur á COP21- loftslagsráðstefnunni í París árið 2015. Sáttmálinn kveður á um að þjóðir heims vinni saman að því að koma í veg fyrir að meðalhitastig jarðar hækki um 1,5-2 gráður miðað við meðalhitastigið sem var við upp- haf iðnvæðingar. Fyrir ráðstefnuna í Glasgow í ár voru aðildarríkin beðin um tvennt. Annars vegar að endurskoða og uppfæra framlög sín frá Parísar- sáttmálanum, og hins vegar að skila inn framtíðarsýn um hvernig tryggja skuli kolefnislaus ríki. Yfirlýsingar Ráðstefnan hófst formlega 1. nóvember með ávörpum þjóðar- leiðtoga þar sem þeir settu tóninn fyrir ráðstefnuna og sammælst var um mikilvægi þess að bregðast við þeim aðkallandi vanda er steðjar að jörðinni. Næst tóku við samninga- viðræður fulltrúa ríkjanna og að lokum komu ráðherrar til að leysa úr torleystum ágreiningsmálum. Áður en ráðstefnunni lauk voru mikilvægar sjálfstæðar yfirlýs- ingar samþykktar af fjölda landa, sem kveða meðal annars á um skógareyðingu, losun metans og kolanotkun. Yfir hundrað ríki hafa ritað undir yfirlýsingu þar sem þau heita því að stöðva og snúa við tapi á skógum og landeyðingu fyrir árið 2030. Svipaður fjöldi ríkja hafa einnig skrifað undir yfirlýsingu sem kveð- ur á um 30% samdrátt á losun met- ans til 2030 miðað við losun ársins 2020. Þá hafa yfir 40 ríki ritað undir yf- irlýsingu um að víkja frá kola- notkun, ýmist fyrir árið 2040 eða 2050. Þá voru þó nokkur ríki á borð við Bandaríkin, Kanada og Bret- land sem sáu sér ekki fært að skrifa undir yfirlýsinguna um að stöðva kolanotkun, en þau skrifuðu aftur á móti undir aðra yfirlýsingu þar sem þau hétu því að hætta að fjármagna framleiðslu jarðefna- eldsneytis utan heimalands síns fyrir árslok 2022. Verður fjár- munum frekar varið í að fjárfesta í hreinni orku. Yfirlýsingar Íslands Alls skrifuðu fulltrúar Íslands undir fimm yfirlýsingar sem voru utan ramma loftslagssamningsins. Meðal þeirra voru yfirlýsingarnar sem minnst var á hér að ofan er varða samdrátt í losun metans og stöðvun á skógareyðingu. Til við- bótar við þær var einnig skrifað undir yfirlýsingu um herta sókn í innleiðingu rafbíla og annarra hrein- orkubíla, í von um að þeir verði 100% af bílasölu fyrir árið 2035. Þá rituðu fulltrúar Íslands undir yf- irlýsingu sem styður við hrein orku- skipti á heimsvísu og að lokum var ritað undir yfirlýsingu sem kveður á um að draga úr losun frá siglingum og stöðva hana með öllu fyrir árið 2050. Kína og Bandaríkin Örfáum dögum fyrir lok ráðstefn- unnar bárust einnig þau tíðindi að Kína og Bandaríkin hefðu tekið höndum saman og gefið út sameig- inlega yfirlýsingu þar sem kveðið var á um að þjóðirnar ætluðu að vinna saman að metnaðarfyllri markmiðum til þess að takmarka hlýnun við 1,5 gráður. Yfirlýsingin er talin mikilvægt framfaraskref en á sama tíma er hún ansi gloppótt. Hafa gagnrýn- endur meðal annars bent á að skort- ur sé á aðgerðaáætlun um hvernig ríkin hyggist standa við samdrátt í losun auk þess sem lítið hafi verið minnst á fjármagn til að fylgja þessu eftir. Helstu niðurstöður Eftir langar og strangar viðræður fulltrúa sendinefnda og ráðherra komst loks mynd á nýjan loftslags- samning 13. nóvember sem aðildar- ríkin gátu öll staðfest. Meðal helstu niðurstaðna samn- ingsins eru að ríkin staðfestu mik- ilvægi þess að halda hækkun hita- stigs jarðar undir 1,5 gráðum. Þá eru ríki beðin um að skila inn metnaðarfyllri markmiðum í sam- ræmi við markmið Parísarsáttmál- ans fyrir árslok 2022, í stað 2025 eins og upprunalega var kveðið á um. Ákvæði um að dregið yrði úr kola- notkun og niðurgreiðslum á jarð- efnaeldsneyti kom einnig fram. Hvað varðar fjármagn, þá var far- ið fram á að þróuð ríki myndu tvö- falda framlög sín til þróunarríkja til aðlögunar að áhrifum loftslags- breytinga. Útærslur á reglugerðum og fyrirkomulagi ýmissa ákvæða sem höfðu staðið út af eftir loftslags- ráðstefnuna í Póllandi árið 2018, lauk formlega og þar með frágangi á Reglubók Parísarsáttmálans. Þá kveður lokaákvörðun loftslags- ráðstefnunnar einnig á um að lögð sé áhersla á málefni hafsins, jökla, líffræðilegrar fjölbreytni og vernd og endurheimt náttúru og vistkerfa. Auk þess sem áhersla var lögð á að gætt yrði að réttlæti, jafnrétti og mannréttindum í þeim breytingum sem við stöndum frammi fyrir. Ákvæðin sem ollu vonbrigðum Lokaútkoman var nokkuð um- deild en fyrstu drög samkomulags- ins þóttu mun metnaðarfyllri. Mót- mæli stórþjóða höfðu þó dregið úr ýmsum ákvæðum á lokasprettinum sem varð til þess að þau urðu út- vötnuð. Sú breyting sem olli hvað mestum vonbrigðum var án efa ákvæðið um kolanotkun. Í fyrstu drögum lofts- lagssamningsins voru aðildarríkin hvött til að hætta notkun kola. Þegar á hólminn var komið reynd- ist ákvæðið of þungbært fyrir stór- þjóðir á borð við Kína og Indland. Eftir miklar samningaviðræður fékkst breyting á orðalaginu sam- þykkt. Er nú einungis kveðið á um að dregið verði úr kolanotkun (e. phase-down) í stað þess að hún verði stöðvuð (e. phase-out). Hefur þessi lokabreyting verið gagnrýnd harð- lega og þykir nú ákvæðið frekar óljóst og bitlaust. Þá þótti einnig mikil vonbrigði að ákvæði um bótaábyrgð þróaðra ríkja gagnvart þróunarlöndum hefði ekki hlotið meiri hljómgrunn. Beiðnir þróunarríkja féllu í grýtt- an farveg hjá ríkjum á borð við Bandaríkin sem sáu sér ekki hag í því að hleypa ákvæðinu í gegn enda gæti það leitt til þess að hægt væri að heimta milljarða í skaðabætur frá stórþjóðum sem bera hvað mesta ábyrgð. Í stað þess var komist að þeirri niðurstöðu að árlegar viðræður myndu eiga sér stað til að ræða fyrirkomulag fjármögnunar. Þykja þessi loforð óskýr og ónákvæm. Þá tókst heldur ekki að efna lof- orð um loftslagssjóðinn sem hefur verið í deiglunni undanfarin ár. Í hann áttu ríkari þjóðir heims og fjármálastofnanir að safna 100 millj- örðum bandaríkjadala á hverju ári til þróunarríkja og átti sjóðurinn að komast á koppinn árið 2020, sem gerðist þó ekki. Lokaniðurstaða Lokaniðurstaða og markmið sam- komulagsins sem aðildarríkin skrif- uðu undir duga því ekki til að tak- marka hlýnun við 1,5 gráður. Samkvæmt útreikningum Umhverf- isstofnunnar Sameinuðu þjóðanna stefnir nú í að meðalhitastig hækki um 2,4 gráður miðað við þau upp- færðu markmið er komu fram á COP-ráðstefnunni í ár. Það sem helst stendur upp úr er gagnrýni á ríkari þjóðir heims sem ekki eru talin hafa staðið skil á sínu gagnvart þróunarlöndum, sem eru hvað berskjölduðust fyrir áhrifum loftslagsbreytinga. Þrátt fyrir það eru margir á því að ráðstefnan hafi ekki verið misheppnuð, öllu heldur hafi mikilvæg skref verið stigin. Niðurstaðan áfangasigur Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, segir lokaniðurstöðuna vera ákveð- inn áfangasigur. Mestu vonbrigðin hafi þó verið þau að ríki heims hafi ekki sett fram nægjanlega metnaðarfull markmið til þess að hægt sé að halda hlýnun innan við eins og hálfs gráðu markið. „Núna er mjög skýrt í ákvörðun þingsins að ætlast er til að ríki heims komi með hertari markmið fyrir fundinn á næsta ári.“ Sigrar og ósigrar á COP26 - Uppgjörstími Parísarsáttmálans - Markmiðin ekki nóg til að takmarka hlýnun við 1,5 gráður - Ísland skrifar undir fimm yfirlýsingar - Vendingar á lokasprettinum ollu vonbrigðum Magn koldíoxíðs í andrúmsloftinu 1970-2021 ppm CO2 450 430 410 390 370 350 330 310 1970 1980 1990 2000 2010 2020 7. júní 2021: 419 ppm Markmið 2°C 1,5°C Ef magn CO2 í andrúmsloftinu fer yfir 450 ppm þá er talið að það séu um 50% líkur á því að við náum að halda hlýnun jarðar innan við 2°C Heimild: Klappir/NOAA Staða Íslands í samanburði við lönd innanESB Losun gróðurhúsalofttegunda, tonn CO2-ígilda á íbúa Heimild: Klappir/Eurostat Lúxemborg Ísland Írland Tékkland Eistland Kýpur Holland Belgía Pólland -55%Markmið ESB (+Ísland og Noregur) Núverandi meðaltalslosun ESB 0 2 4 6 8 10 12 14 16 18 20 Samkvæmt Eurostat er losun frá Íslandi 15,8 t CO2-ígilda/íbúa (án landnotkunar, skógræktar, alþjóðaflugs og siglinga) Árleg losun CO2 á heimsvísu 1959 til 2021 Gígatonn CO2 16 12 8 4 0 Kína Bandaríkin ESB-löndin Indland Restin af heiminum 1960 1970 1980 1990 2000 2010 2020 Heimild: Global Carbon Project 2021/AFP 14.8 11.1 5,1 2,8 2,7 Áætlun fyrir 2021 25.995 kr. / St. 40-46 Vnr.: E-460484 25.995 kr. / St. 41-47 Vnr.: E-510244 ECCO KULDASKÓR 24.995 kr. / St. 40-47 Vnr.: E-50183451052 24.995 kr. / St. 41-47 Vnr.: E-50183452201 KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS STEINAR WAAGE
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.