Morgunblaðið - 18.11.2021, Síða 57
ÍÞRÓTTIR 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2021
Á dimmum vetrardegi er fátt
sem jafnast á við það að setjast
niður í sófann, fá sér snakk og
jafnvel drykk með og horfa á
enska boltann. Ég tala nú ekki
um þegar liðið sem maður elskar
og dáir er að spila.
Því miður er það svo að u.þ.b.
eina helgi í mánuði frá sept-
ember og fram í nóvember er
maður svikinn um þá gleði. Eng-
inn enskur fótbolti – bara svart-
nætti, kuldi og … landsleikir.
Landsleikjahléin voru
skemmtileg þegar Ísland var í
baráttunni um að komast á stór-
mót. Maður meira að segja beið
hreinlega spenntur eftir þeim.
Það var alveg sama hvaða stór-
þjóð kom í heimsókn á Laugar-
dalsvöll, við töldum okkur alltaf
eiga séns.
Nú er öldin önnur. Lægð er yfir
íslenska karlalandsliðinu og lítil
stemning í þjóðfélaginu. Meira
að segja gengur erfiðlega að fá
fólk til að mæta á völlinn. Allt er
þetta háð góðum úrslitum og
hefur gengið erfiðlega að ná í
þau undanfarið. Rétt er þó að
taka fram að sem stuðnings-
maður landsliðsins gefur maður
sér alltaf tíma til að horfa – jafn-
vel þótt illa gangi. Það fylgir því
bara ekki sami spenningur og trú
eins og fyrir nokkrum árum þeg-
ar liðinu gekk sem best.
Margir eru jákvæðari en ég
þegar kemur að þessum lands-
leikjahelgum. „Frakkar og Þjóð-
verjar eru að mætast – það gæti
orðið frábær leikur,“ myndi
kannski einhver segja. Nei takk,
það er bara ekki sama stemning
að horfa á þessa frábæru knatt-
spyrnumenn spila fyrir lands-
liðin.
Það er fátt meira pirrandi en
að hafa lítið sem ekkert fyrir
stafni og ætla að gera sér glaðan
dag með einum fótboltaleik, en
það sem er í boði er leikur Arme-
níu og Finnlands eða Slóveníu og
Ungverjalands. Frekar myndi ég
horfa á málningu þorna – þetta
er það óspennandi.
Góðu fréttirnar eru þó þær
að síðasta landsleikjahelgi ársins
er yfirstaðin. Nú getum við and-
stæðingar landsleikjahléa tekið
gleði okkar á ný. Enski boltinn
verður allar helgar fram í janúar.
Tíu helgar í röð án landsleikja
ásamt jólavertíðinni svo það er
eins gott að eiga nóg af snakki.
BAKVÖRÐUR
Aron Elvar Finnsson
aron.elvar@mbl.is
Körfuknattleiksdeild ÍR hefur sam-
ið við króatíska bakvörðinn Igor
Maric um að leika með liðinu út
keppnistímabilið. Hinn 36 ára gamli
Maric kemur með mikla reynslu inn
í ÍR-liðið en hann lék síðast í heima-
landinu. Á síðasta tímabili endaði
lið hans, Cibona, í 2. sæti efstu
deildar Króatíu þar sem Igor skor-
aði 6,1 stig að meðaltali í leik.
Maric gaf kost á sér í nýliðaval
NBA-deildinni árið 2004 en var
ekki valinn. ÍR-ingar hafa byrjað
tímabilið illa og eru með 2 stig í tí-
unda sæti úrvalsdeildarinnar.
Liðstyrkur í
Breiðholtið
Morgunblaðið/Unnur Karen
Þjálfari Friðrik Ingi Rúnarsson tók
við þjálfun ÍR-inga á dögunum.
Bjarni Ófeigur Valdimarsson fór á
kostum fyrir Skövde þegar liðið
tapaði með minnsta mun gegn Amo
í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum
sænsku bikarkeppninnar í hand-
knattleik í Skövde í gær. Leiknum
lauk með 40:39-sigri Amo sem vann
einvígið samanlagt 76:71 en Bjarni
Ófeigur skoraði tíu mörk og var
markahæstur í liði Skövde. Skyttan
hefur spilað mjög vel með Skövde í
Svíþjóð á tímabilinu og er í 19.-21.
sæti yfir markahæstu leikmenn
deildarinnar með 44 mörk í níu
leikjum.
Ljósmynd/Skövde
44 Bjarni er í 19.-22. sæti yfir
markahæstu leikmenn deildarinnar.
Fór á kostum
í Svíþjóð
Evrópubikar karla
B-RIÐILL:
Valencia – JL Bourg ........................... 98:95
- Martin Hermannsson skoraði tvö stig
fyrir Valencia, tók þrjú fráköst og gaf fjór-
ar stoðsendingar á 16 mínútum.
_ Gran Canaria 4, Buducnost 4, Virtus Bo-
logna 3, Valencia 3, Venezia 2, Bursapor 2,
Ulm 2, Cedevita Olimpija 2, Promitheas 1,
JL Bourg 1.
Evrópubikar FIBA
D-RIÐILL:
Zaragoza – Reggiana.......................... 82:77
- Tryggvi Snær Hlinason skoraði 9 stig
fyrir Zaragoza, tók sex fráköst og gaf eina
stoðsendingu á fimmtán mínútum.
_ Zaragoza hafnaði í þriðja sæti riðilsins og
kemst ekki áfram í aðra umferð.
F-RIÐILL
Belfius Mons – Antwerp Giants......... 86:82
- Elvar Már Friðriksson skoraði 10 stig
fyrir Antwert Giants og gaf tvær stoðsend-
ingar á 24 mínútum.
_ Antwerp Giants hafnaði í öðru sæti riðils-
ins og er komið áfram í aðra umferð.
NBA-deildin
Brooklyn – Golden State.................... 99:117
Utah – Philadelphia............................ 120:85
LA Clippers – San Antonio................ 106:92
4"5'*2)0-#
Knattspyrnumaðurinn Ari Freyr
Skúlason hefur ákveðið að leggja
landsliðsskóna á hilluna. Þetta til-
kynnti hann á samfélagsmiðlinum
Twitter í gær.
Ari Freyr, sem er 34 ára gamall,
er samningsbundinn Norrköping í
Svíþjóð en hann lék sinn fyrsta A-
landsleik árið 2009.
Alls lék hann 83 A-landsleiki fyr-
ir Ísland en hann var í lykilhlut-
verki með liðinu á EM 2016 í Frakk-
landi sem og á HM 2018 í Rússlandi.
„Eftir 10 ár af ómetanlegum
minningum er kominn tími á að
gefa framtíðinni pláss,“ sagði Ari
meðal annars á Twitter en hann er
fjórði leikmaður karlalandsliðsins
sem leggur skóna á hilluna á stutt-
um tíma á eftir þeim Kára Árna-
syni, Hannesi Þór Halldórssyni og
Birki Má Sævarssyni.
Landsliðsskórnir á hilluna
Morgunblaðið/Eggert
Hættur Ari Freyr Skúlason er hættur að leika með íslenska karlalandsliðinu
en alls lék hann 83 A-landsleiki fyrir Ísland á árunum 2009 til ársins 2021.
Dregið var í 32-liða úrslit bikar-
keppni karla í handknattleik,
Coca Cola-bikarsins, í höf-
uðstöðvum Handknattleiks-
sambands Íslands, HSÍ, í Laug-
ardal í gærmorgun.
Aðeins verða leiknar þrjár
viðureignir í 32-liða úrslitunum.
Tveir úrvalsdeildarslagir og
einn fyrstudeildarslagur munu
fara fram en í Safamýri tekur
Fram á móti ÍBV. Þá heimsækir
Afturelding lið Stjörnunnar í
Garðabæ og þá mætast Hörður
og Fjölnir á Ísafirði.
32-liða úrslitin verða leikin 12.
og 13. desember.
Liðin sem sitja hjá í þessari
umferð eru Valur, Haukar, FH og
Selfoss ásamt níu síðustu liðunum
sem voru dregin upp úr pottinum
í gærmorgun en það eru Þór frá
Akureyri, HK, ÍR, Víkingur úr
Reykjavík, ÍBV 2, Grótta, Vængir
Júpiters, KA og Kórdrengir.
Valsmenn eru ríkjandi bikar-
meistarar og hafa oftast unnið
keppnina eða ellefu sinnum.
Haukar koma þar á eftir með sjö
sigra og Víkingur og FH hafa sex
sinnum fagnað sigri í bik-
arkeppninni.
Tveir úrvalsdeildarslagir í
32-liða úrslitum bikarsins
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Safamýri Arnór Viðarsson og liðs-
félagar hans heimsækja Framara.
GOLF
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Hulda Bjarnadóttir verður sjálf-
körin nýr forseti Golfsambands Ís-
lands á Golfþingi 2021 sem fer
fram á Fosshóteli í Reykjavík dag-
ana 19. og 20. nóvember. Hulda
hefur setið í stjórn GSÍ undanfarin
fjögur ár og er því flestum hnútum
kunnug innan sambandsins.
„Þetta er fyrst og fremst rosa-
lega mikill heiður að fá að leiða
sambandið. Svo er ég auðvitað full
tilhlökkunar enda búin að sitja í
stjórninni og þekki því verkefnin.
Mig klæjar aðeins í fingurna að fá
að halda áfram að vinna að því sem
við höfum verið að gera og höfum
verið að setja í gang. Ég er bara
spennt og til í slaginn og líka auð-
mjúk að fá að taka við svona emb-
ætti fyrir hönd sambandsins og
hreyfingarinnar. Það hljómar eins
og klisja en maður er í alvöru svo-
lítið auðmjúkur,“ sagði Hulda í
samtali við Morgunblaðið.
Hún sagði stöðu íþróttarinnar
gífurlega sterka um þessar mundir.
„Við höfum aldrei verið sterkari
sem hreyfing, golfið hefur aldrei
verið vinsælla þannig að staðan er
gríðarlega sterk. Það er allt saman
mjög jákvætt. Þótt það sé verið að
tala um að það skorti aðstöðu þá
kemur það til af góðu. Klúbbarnir
hafa verið að vinna gríðarlega
markvisst og gott starf þegar kem-
ur að því að byggja upp barna- og
unglingastarf til dæmis. Auðvitað
verður því mikil aukning inn í
hreyfinguna.
Það er svo margt jákvætt hægt
að segja um hvernig staðan er í
dag þar sem við höfum aldrei verið
sterkari og aldrei stærri. Það er
búin að vera allt að 80 prósent
fjölgun iðkenda hjá sumum klúbb-
um núna í Covid-árferðinu. Það
hefur svo verið jöfn og þétt 11-12
prósenta fjölgun heilt yfir síðustu
ár og við erum að stefna á eins
prósents fjölgun líka næstu árin,
sem er samkvæmt stefnu sam-
bandsins til 2027. Við viljum ekkert
gefa eftir. Flestir klúbbar standa
frammi fyrir því að það sé gott ár-
ferði, það er staðan.“
Áskorun að halda dampi
Úr því að árferðið er þetta gott
er farvegurinn þá ekki sérstaklega
frjósamur þegar kemur að því að
leggja grunn að því að Ísland eign-
ist fleiri og betri kylfinga? „Jú og
það náttúrulega verður til þess að
maður vill líka vekja stjórnir klúbb-
anna til meðvitundar um að nú er
góðæri, nú er gott árferði og þá
þurfum við líka að huga að nýliðun,
að styðja við afrekskylfingana okk-
ar sem munu halda nýliðuninni við
og munu halda ímynd íþróttarinnar
á lofti.
Það er það sem við höfum verið
heppin með líka. Það hefur verið
gott árferði en það er líka af því að
kylfingarnir okkar hafa staðið sig
frábærlega á erlendri grundu. Þau
eru í raun og veru okkar besta
ímynd og vara. Umfjöllunin hefur
aldrei verið meiri. Við erum eig-
inlega svolítið í toppi með mjög
margt, ef ekki allt. Nú verður
áskorunin í raun að halda áfram-
haldandi dampi,“ sagði Hulda við
Morgunblaðið. Nánar er rætt við
Huldu á mbl.is/sport/golf í dag.
Afrekskylfingarnir okkar
besta ímynd og vara
- Hulda nýr forseti GSÍ - Staðan aldrei verið betri - Mikil fjölgun iðkenda
Ljósmynd/Styrmir Kári
Forseti Hulda Bjarnadóttir tekur við forsetaembættinu um næstu helgi.