Morgunblaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2021
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Merk tímamót verða á næstunni í
Úlfarsárdal þegar menningarhús
og sundlaugar í dalnum verða tekin
í notkun. Stefnt er að opnun mann-
virkjanna fyrir næstu áramót.
Úlfarsárdalur er eitt af yngri
íbúðarhverfum höfuðborgarinnar.
Þar hefur á undanförnum árum
verið í byggingu mikið mannvirki
við Úlfarsbraut 122-124 sem kallað
hefur verið „miðstöð skóla, menn-
ingar og íþrótta“ í Úlfarsárdal.
Það mun hýsa grunnskóla, leik-
skóla, frístundaheimili, menningar-
miðstöð, almenningsbókasafn, inni-
sundlaug og íþróttahús ásamt
útisundlaug. Þá verður á svæðinu
knattspyrnuvöllur Fram með
áhorfendastúku. Um hönnun sáu
VA arkitektar, Landmótun og VSÓ
ráðgjöf. Heildarstærð mannvirkj-
anna verður í kringum 16.000 fer-
metrar. Heildarkostnaður mann-
virkja í Úlfarsárdal, þ.e. leik- og
grunnskóla, menningarmiðstöðvar
og sundlaugar og íþróttamann-
virkis Fram (án knatthúss), er
áætlaður um 14 milljarðar króna.
Meðfylgjandi drónamyndir sýna vel
skipulag byggingarinnar í dalnum.
Fremst á myndinni hér að ofan
eru skólabyggingarnar. Leikskóla-
byggingin var fyrst tekin í notkun,
árið 2016. Fyrsti hluti grunnskól-
ans var tekinn í notkun haustið
2018 en grunnskólinn allur haustið
2019.
Þar næst á myndinni koma
menningarhúsið og útisundlaugin
og efst má sjá íþróttahús Fram og
knattspyrnuvelli. Gert er ráð fyrir
að fjölnota mannvirki og knatt-
spyrnuvöllur Fram ásamt áhorf-
endastúku verði fullbúin á næsta
ári. Við þau tímamót mun félagið
yfirgefa Safamýri og flytja alla sína
starfsemi í Úlfarsárdal.
Úlfarsárbraut 122-124 Geysimikið mannvirki, þar sem sameinast kennsla, menningarstarfsemi og íþróttaiðkun. Útisundlaugin Verður án efa vel sótt af íbúum Úlfarsárdals á komandi árum.
Miðstöð skóla, menningar og íþrótta
Morgunblaðið/Eggert
Loftmynd Litadýrð setur óneitanlega svip á svæðið þegar íþróttamannvirkin í Úlfarsárdal eru skoðuð úr lofti.
„Þetta var frábær dagur þar sem
um 30 manns kepptu um þrjá titla.
Mikill spenningur og gleði ein-
kenndi viðburðinn,“ segir Brynja
Pétursdóttir danskennari, en skóli
hennar, Dans Brynju Péturs, efndi
nýverið til götudanseinvígis (e.
street dance) í Hinu húsinu í Elliða-
árdal.
„Það eru tvö ár síðan við gátum
haldið einvígið síðast og þetta var
mjög nærandi fyrir danssamfélagið,
að koma svona saman skiptir okkur
miklu máli. Þarna voru einhverjir
bestu street-dansarar landsins sam-
ankomnir,“ bætir Brynja við.
Skífuþeytirinn DJ Stew sá um
danstónlistina en hann kom hingað
til lands frá Noregi, einhver besti
DJ í Evrópu á sínu sviði.
Sigurvegarar í tvíliðaflokki,
blandaðri aðferð, voru Ola Nina
Getka og Vanessa Dalia Blaga Rún-
arsdóttir. Ola Nina sigraði einnig í
einliðaflokki framhaldsnemenda,
blandaðri aðferð. Í einliðaflokki
byrjenda sigraði Elena Bilic.
Dómarar voru Sandra Sano Er-
lingsdóttir, Anais Barthe og Anas-
tasiya Plugari.
Ljósmynd/Árni Rúnarsson
Einvígi Mikil stemning og stuð var í götudanseinvíginu í Hinu húsinu.
30 kepptu í götudansi
- Fyrsta einvígið í götudansi í tvö ár
- Mjög nærandi fyrir danssamfélagið