Morgunblaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2021 VÍKINGUR SPILAR MOZART 19., 20. & 21. NÓVEMBER · ELDBORG Miðasala á tix.is og harpa.is Sigurður Bogi Sævarson sbs@mbl.is „Jörundur var maður sem braust úr fáækt til góðra efna. Var ef til vill réttur maður á réttum stað og tíma. Slíkar sögur hafa alltaf höfðað sterkt til Íslendinga,“ segir Friðrik G. Olgeirsson. Út kom á dögunum bókin Hákarla-Jörundur, sem er ævisaga Jörundar Jónssonar há- karlaformanns og útvegsbónda í Hrísey. Á síðustu áratugum hefur Friðrik skrifað alls 25 sagnfræðirit, meðal annars um atvinnuhætti og byggðir landsins. „Frásagnir af Jörundi hafa fylgt mér síðan í æsku,“ segir Friðrik um sögupersónu sína. Jörundur Jóns- son fæddist á jóladag árið 1826 á Kleifum við Ólafsfjörð. „Ég er sjálf- ur frá Ólafsfirði og forvitinn strákur sem hafði áhuga á samfélagi sínu og umhverfi komst ekki hjá því að heyra Jörundar getið. Og vissulega skóp hann sér nafn en talsvert þarf til svo maður fæddur fyrir tæplega 200 árum sé ekki öllum gleymdur. Skýringin á því er kannski sú að Jörundur komst inn í hina viður- kenndu Íslandssögu, varð af 19. ald- ar mönnum sem stunduðu útgerð þar jafnoki Ásgeiranna á Ísafirði og Péturs Thorsteinssonar á Bíldudal svo einhverjir séu nefndir. Jörundur var þó ekki með verslunarrekstur eins og þeir Vestfirðingarnir,“ segir Friðrik. Slitrur til að skapa mynd Óvænt var, þegar Friðrik fór að kynna sér sögu Jörundar, hve fáar skráðar og öruggar heimildir um Jörund voru í rauninni tiltækar. „Ég varð því að byggja talsvert til dæmis á kirkjubókum og öðrum slíkum opinberum færslum, verslunar- skýrslum, manntali og svo fram- vegis. Finna síðan slitrur hér og þar og setja þannig saman heildstæða mynd af manni, sem sannarlega markaði þáttaskil.“ Jörundur Jónsson missti móður sína ungur. Fór frá Ólafsfirði strax á unglingsaldri til móðurfólks síns sem bjó í Dalsmynni og Höfðahverfi við austanverðan Eyjafjörð. Fékk þar tækifæri; fór að stunda sjóinn og var ungur gerður að formanni á bát. Vann sig áfram stig af stigi. Fluttist svo með fjölskyldu sinni í Hrísey árið 1862 og settist að í Syðstabæ. Um það leyti var blóma- tími hákarlaveiða við Ísland runninn upp, en þær voru einkum stundaðar við norðanvert landið, þá hvað mest á Eyjafjarðarsvæðinu. Fyrst voru stór áraskip, síðan 35-40 þilskip í út- gerð þessari sem átti sitt blóma- skeið frá miðri 19. öldinni fram til um 1880. Þarna blandaði Jörundur sér í leikinn og kom til Hríseyjar með eitt skip og tvo til þrjá árabáta. Honum óx ásmegin á alla lund og komst í álnir. Veiðarnar voru stundaðar frá útmánuðum fram í sumarbyrjun og inntekt sjómanna á skipum Jör- undar og annarra var býsna góð. Mikil verðmæti sköpuð „Hákarlaveiðin var drjúgur at- vinnuvegur á Norðurlandi á síðari hluta 19. aldarinnar,“ segir Friðrik. „Verðmætin lágu fyrst og fremst í lýsinu, en á árunum 1862-1875 voru á ári hverju fluttar út um 9.000 tunnur af lýsi, þá fyrst og fremst af því sem féll af hákarli. Varan var eftirsótt og verðið rauk upp, því á þessum tíma var farið að nýta afurð- ina sem ljósmeti fyrir götulýsingu í Kaupmannahöfn. Hákarlamenn bókstaflega mokuðu inn peningum – svo við Eyjafjörð varð raunveruleg fjármunamyndun. Tæplega er til- viljun að nokkrir af fyrstu sparisjóð- um landsins voru einmitt á Norður- landi.“ Friðrik undirstrikar að eðlilega hafi gengið á ýmsu í lífi Jörundar, sem var tvíkvæntur – en fyrri kona hans lést af barnsförum. Honum hafi þó gengið flest að sólu í lífi og starfi og barnalánið var mikið. Og auk sjósóknar var Jörundur sömu- leiðis stórbóndi; var með um 350 fjár í Hrísey sem var stórbú á mæli- kvarða síns tíma. Raunar hafi flest viðvíkjandi Jörundi verið stórt í sniðum, svo sem húsið í Syðstabæ sem hann lét reisa og stendur enn. Þar er í dag safn um sögu kappans. Lengra en nefið nær „Þegar bú Jörundar var gert upp að honum látnum voru eignir þess um 18 þúsund krónur. Til saman- burðar má nefna að algeng verð- mæti í búum á þessum tíma voru um 2.000 krónur. Þetta hefur sennilega verið nærri því sem stærstu og rík- ustu kaupmenn í Reykjavík á þess- um tíma höfðu,“ segir Friðrik – sem trúir í aðra röndina að verkefnið að skrifa ævisögu Hákarla-Jörundar hafi verið forlög sín. „Já, rétt í þann mund sem kór- ónuveiran var að leggjast yfir landið birtist mér maður í draumi og lagði að mér að skrifa sögu Jörundar. Ég veit ekki hver maðurinn var, en draumurinn var annars mjög skýr. Veit líka þess dæmi að sumir af afkomendum hákarlaskipstjórans gamla sáu lengra en nef þeirra náði og fylgdu draumum og öðrum slík- um skilaboðum. En til að gera langa sögu stutta þá fylgdi ég draumi næt- urinnar. Strax í dögun hóf ég leit að heimildum um Jörund, sem nú er endurfæddur í bók; sögulegum fróð- leik sem ég trúi að eigi erindi við samtímann,“ segir Friðrik G. Ol- geirsson sagnfræðingur að síðustu. Jörundur mokaði peningum - Hákarlaskipstjóri í Hrísey nú í bók - Komst inn í viðurkennda Íslandssögu - Veiðarnar skópu verðmæti á Norðurlandi - Lýsið var birta í Kaupmannahöfn - Sagnfræðingur fékk vitjun í draumi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Minning Minnismerki um Jörund, brjóstmynd sem Ríkarður Jónsson myndskeri útbjó, er á áberandi stað í Hrísey og fer ekki fram hjá neinum. Að baki er stór- hýsið Syðstibær sem reist var snemma á 20. öldinni en þar komu að verki Svanhildur, dóttir Hákarla-Jörundar, og Páll Bergsson, kaup- og útgerðarmaður. Sagnfræðingur Frásagnir af Jörundi hafa fylgt mér síðan í æsku, segir Friðrik G. Olgeirsson um sögupersónu sína og 25. bókina sem hann skrifar. Knörr Eitt af því sem minnir á stórútgerð síns tíma er hákarlaskipið Ófeigur af Ströndum sem varðveitt er á byggðasafninu á Reykjum í Hrútafirði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.