Morgunblaðið - 18.11.2021, Síða 26
26 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2021
VÍKINGUR SPILAR MOZART
19., 20. & 21. NÓVEMBER · ELDBORG
Miðasala á tix.is og harpa.is
Sigurður Bogi Sævarson
sbs@mbl.is
„Jörundur var maður sem braust úr
fáækt til góðra efna. Var ef til vill
réttur maður á réttum stað og tíma.
Slíkar sögur hafa alltaf höfðað
sterkt til Íslendinga,“ segir Friðrik
G. Olgeirsson. Út kom á dögunum
bókin Hákarla-Jörundur, sem er
ævisaga Jörundar Jónssonar há-
karlaformanns og útvegsbónda í
Hrísey. Á síðustu áratugum hefur
Friðrik skrifað alls 25 sagnfræðirit,
meðal annars um atvinnuhætti og
byggðir landsins.
„Frásagnir af Jörundi hafa fylgt
mér síðan í æsku,“ segir Friðrik um
sögupersónu sína. Jörundur Jóns-
son fæddist á jóladag árið 1826 á
Kleifum við Ólafsfjörð. „Ég er sjálf-
ur frá Ólafsfirði og forvitinn strákur
sem hafði áhuga á samfélagi sínu og
umhverfi komst ekki hjá því að
heyra Jörundar getið. Og vissulega
skóp hann sér nafn en talsvert þarf
til svo maður fæddur fyrir tæplega
200 árum sé ekki öllum gleymdur.
Skýringin á því er kannski sú að
Jörundur komst inn í hina viður-
kenndu Íslandssögu, varð af 19. ald-
ar mönnum sem stunduðu útgerð
þar jafnoki Ásgeiranna á Ísafirði og
Péturs Thorsteinssonar á Bíldudal
svo einhverjir séu nefndir. Jörundur
var þó ekki með verslunarrekstur
eins og þeir Vestfirðingarnir,“ segir
Friðrik.
Slitrur til að skapa mynd
Óvænt var, þegar Friðrik fór að
kynna sér sögu Jörundar, hve fáar
skráðar og öruggar heimildir um
Jörund voru í rauninni tiltækar. „Ég
varð því að byggja talsvert til dæmis
á kirkjubókum og öðrum slíkum
opinberum færslum, verslunar-
skýrslum, manntali og svo fram-
vegis. Finna síðan slitrur hér og þar
og setja þannig saman heildstæða
mynd af manni, sem sannarlega
markaði þáttaskil.“
Jörundur Jónsson missti móður
sína ungur. Fór frá Ólafsfirði strax á
unglingsaldri til móðurfólks síns
sem bjó í Dalsmynni og Höfðahverfi
við austanverðan Eyjafjörð. Fékk
þar tækifæri; fór að stunda sjóinn
og var ungur gerður að formanni á
bát. Vann sig áfram stig af stigi.
Fluttist svo með fjölskyldu sinni í
Hrísey árið 1862 og settist að í
Syðstabæ. Um það leyti var blóma-
tími hákarlaveiða við Ísland runninn
upp, en þær voru einkum stundaðar
við norðanvert landið, þá hvað mest
á Eyjafjarðarsvæðinu. Fyrst voru
stór áraskip, síðan 35-40 þilskip í út-
gerð þessari sem átti sitt blóma-
skeið frá miðri 19. öldinni fram til
um 1880.
Þarna blandaði Jörundur sér í
leikinn og kom til Hríseyjar með eitt
skip og tvo til þrjá árabáta. Honum
óx ásmegin á alla lund og komst í
álnir. Veiðarnar voru stundaðar frá
útmánuðum fram í sumarbyrjun og
inntekt sjómanna á skipum Jör-
undar og annarra var býsna góð.
Mikil verðmæti sköpuð
„Hákarlaveiðin var drjúgur at-
vinnuvegur á Norðurlandi á síðari
hluta 19. aldarinnar,“ segir Friðrik.
„Verðmætin lágu fyrst og fremst í
lýsinu, en á árunum 1862-1875 voru
á ári hverju fluttar út um 9.000
tunnur af lýsi, þá fyrst og fremst af
því sem féll af hákarli. Varan var
eftirsótt og verðið rauk upp, því á
þessum tíma var farið að nýta afurð-
ina sem ljósmeti fyrir götulýsingu í
Kaupmannahöfn. Hákarlamenn
bókstaflega mokuðu inn peningum –
svo við Eyjafjörð varð raunveruleg
fjármunamyndun. Tæplega er til-
viljun að nokkrir af fyrstu sparisjóð-
um landsins voru einmitt á Norður-
landi.“
Friðrik undirstrikar að eðlilega
hafi gengið á ýmsu í lífi Jörundar,
sem var tvíkvæntur – en fyrri kona
hans lést af barnsförum. Honum
hafi þó gengið flest að sólu í lífi og
starfi og barnalánið var mikið. Og
auk sjósóknar var Jörundur sömu-
leiðis stórbóndi; var með um 350 fjár
í Hrísey sem var stórbú á mæli-
kvarða síns tíma. Raunar hafi flest
viðvíkjandi Jörundi verið stórt í
sniðum, svo sem húsið í Syðstabæ
sem hann lét reisa og stendur enn.
Þar er í dag safn um sögu kappans.
Lengra en nefið nær
„Þegar bú Jörundar var gert upp
að honum látnum voru eignir þess
um 18 þúsund krónur. Til saman-
burðar má nefna að algeng verð-
mæti í búum á þessum tíma voru um
2.000 krónur. Þetta hefur sennilega
verið nærri því sem stærstu og rík-
ustu kaupmenn í Reykjavík á þess-
um tíma höfðu,“ segir Friðrik – sem
trúir í aðra röndina að verkefnið að
skrifa ævisögu Hákarla-Jörundar
hafi verið forlög sín.
„Já, rétt í þann mund sem kór-
ónuveiran var að leggjast yfir landið
birtist mér maður í draumi og lagði
að mér að skrifa sögu Jörundar. Ég
veit ekki hver maðurinn var, en
draumurinn var annars mjög skýr.
Veit líka þess dæmi að sumir af
afkomendum hákarlaskipstjórans
gamla sáu lengra en nef þeirra náði
og fylgdu draumum og öðrum slík-
um skilaboðum. En til að gera langa
sögu stutta þá fylgdi ég draumi næt-
urinnar. Strax í dögun hóf ég leit að
heimildum um Jörund, sem nú er
endurfæddur í bók; sögulegum fróð-
leik sem ég trúi að eigi erindi við
samtímann,“ segir Friðrik G. Ol-
geirsson sagnfræðingur að síðustu.
Jörundur mokaði peningum
- Hákarlaskipstjóri í Hrísey nú í bók - Komst inn í viðurkennda Íslandssögu - Veiðarnar skópu
verðmæti á Norðurlandi - Lýsið var birta í Kaupmannahöfn - Sagnfræðingur fékk vitjun í draumi
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Minning Minnismerki um Jörund, brjóstmynd sem Ríkarður Jónsson myndskeri útbjó, er á áberandi stað í Hrísey og fer ekki fram hjá neinum. Að baki er stór-
hýsið Syðstibær sem reist var snemma á 20. öldinni en þar komu að verki Svanhildur, dóttir Hákarla-Jörundar, og Páll Bergsson, kaup- og útgerðarmaður.
Sagnfræðingur Frásagnir af Jörundi hafa fylgt mér síðan í æsku, segir
Friðrik G. Olgeirsson um sögupersónu sína og 25. bókina sem hann skrifar.
Knörr Eitt af því sem minnir á stórútgerð síns tíma er hákarlaskipið Ófeigur
af Ströndum sem varðveitt er á byggðasafninu á Reykjum í Hrútafirði.