Morgunblaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 33
FRÉTTIR 33Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2021 Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 Glæsileg náttföt og náttkjólar frá þýska merkinu Gjöfin hennar Frí heimsending um land allt Vefverslun selena.is Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Aðalhagfræðingur Íslandsbanka telur að nýjasta vaxtahækkun Seðlabankans ein og sér dugi ekki til að koma böndum á þær miklu hækkanir sem orðið hafa á fast- eignamarkaðnum á síðustu miss- erum. Meira þurfi að koma til. Hins vegar kunni vaxtahækkanir í bland við aðrar auknar kvaðir á lántakendur að kæla markaðinn nokkuð hratt. „Snarhækkandi greiðslubyrði og svo heltist úr lestinni ákveðinn hópur sem lendir vitlausum megin við þetta greiðslubyrðisþak,“ segir Jón Bjarki. Hann telur einnig að væntingar um kælingu á fast- eignamarkaðnum í bland við trú markaðarins á að framboð muni aukast, geti slegið á þensluna, jafn- vel áður en framboðsaukningin raungerist. Jón Bjarki og Konráð Guð- jónsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, eru gestir í Dag- málum í dag og þeir eru sammála um að allra augu verði á fasteigna- markaðnum næstu vikurnar en ekki er að vænta nýrrar vaxta- ákvörðunar frá peningastefnunefnd Seðlabankans fyrr en í febrúar. Jón Bjarki og Konráð eru ekki að fullu leyti sammála um hvað búi í kortunum á komandi ári, ekki síst þegar litið er til væntinga um auk- in umsvif í ferðaþjónustunni. Telur Jón Bjarki að mikil fjölgun ferða- manna muni sennilega ýta talsvert undir gengi krónunnar. Konráð tel- ur hins vegar að raungengi krón- unnar sé nú þegar orðið hátt í sögulegu samhengi og að lítil inni- stæða sé fyrir því að það styrkist enn frekar. Hann veltir einnig upp þeirri spurningu hvort Seðlabank- inn muni grípa inn í og halda aftur af styrkingu, verði hún of mikil. Það hafi bankinn ekki gert síðast þegar ferðaþjónustan olli ójafnvægi á þessu sviði. Þá hafi reyndar aðrir húsbændur verið í Svörtuloftum og aðgerðir og framganga núverandi seðlabankastjóra hafi fram til þessa fremur einkennst af inngripum en því að halda sér til hlés. Af orðum hagfræðinganna tveggja að dæma er spennandi ár í vændum í íslensku efnahagslífi en Seðlabankanum sé vandi á höndum. Hækka þurfi vexti þótt harkalega sé tekið í þær aðgerðir. Raunvextir séu enn neikvæðir sem ekki geti gengið til lengdar. „Okkar spá gerir ráð fyrir að bankinn verði í þessum vaxtahækk- anafasa allt næsta ár og eitthvað fram á árið 2023. Þetta verður ár áframhaldandi efnahagsbata og baráttu við verð- bólguna og það er ekkert annað í myndinni fyrir Seðlabankann en að halda sínu striki í að hækka vexti þar til raunvextir eru orðnir að minnsta kosti jákvæðir,“ segir Jón Bjarki og bætir því við að senni- lega hætti bankinn ekki fyrr en jafnvægisraunvextirnir séu komnir í 1%. Dagmál Konráð Guðjónsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, og Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, í settinu í Hádegismóum þar sem nýjasta ákvörðun peningastefnunefndar var tekin til umfjöllunar. Allra augu á fasteignamarkaðnum - Tveir mánuðir í næstu vaxtaákvörðun - Ró gæti færst yfir fasteignamarkaðinn áður en framboðs- hliðin réttir sig af - Gæta þarf að samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar til lengri tíma litið 18. nóvember 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 132.3 Sterlingspund 177.92 Kanadadalur 105.56 Dönsk króna 20.224 Norsk króna 15.213 Sænsk króna 14.996 Svissn. franki 142.86 Japanskt jen 1.1579 SDR 185.37 Evra 150.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 184.4977
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.