Morgunblaðið - 18.11.2021, Síða 16
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2021
ALVÖRU
ERKFÆRIV
HEFSTÁMÁNUDAG
vfs.is
VERKFÆRASA RFIRÐI • TRYGGVABRAUT 24, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.isLAN • SÍÐUMÚLA LSHRAUNI 13, HAFNA
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Reitir fasteignafélag hf. hefur með
bréfi til Reykjavíkurborgar óskað
eftir samstarfi um gerð nýs skipu-
lags og uppbyggingu á lóð nr. 56
við Suðurlandsbraut. Á lóðinni er
nú 715 fermetra veitingahús sem
upphaflega var reist fyrir ham-
borgarastaðinn McDonalds en hýs-
ir nú veitingastaðinn Metro.
Erindinu var vísað til umsagnar
verkefnisstjóra skipulagsfulltrúa.
Suðurlandsbraut 56 er 4.039 fer-
metra lóð í Skeifunni, á horni Suð-
urlandsbrautar og Skeiðarvogs, að
því er fram kemur í bréfi Reita.
Nýtingarhlutfall lóðarinnar sé
mjög lágt eða 0,18. Lóðin er skil-
greind á miðsvæði M3a í aðal-
skipulagi þar sem fyrirhuguð sé
uppbygging og umbreyting iðn-
aðar- og verslunarhverfis í bland-
aða byggð.
Torg og borgargarður
Lóðarhafi, Reitir, hefur látið
vinna staðháttagreiningu og tillögu
að nýrri uppbyggingu á lóðinni í
samstarfi við Trípólí arkitekta. Um
er að ræða tillögu að samgöngu-
miðuðu skipulagi sem fléttar ný-
byggingu og almenningsrými sam-
an við fyrirhugaðar breytingar á
Suðurlandsbraut. Tillagan geri ráð
fyrir samspili og tengingu við bið-
stöð borgarlínu og að hringtorg við
gatnamót Suðurlandsbrautar og
Skeiðarvogs verði aflagt ásamt að-
rein frá hringtorgi inn í Skeifuna.
Gert sé ráð fyrir torgrými, borgar-
garði og 87 íbúðum í tveimur sam-
tengdum 5-7 hæða byggingum auk
1.300 fm af verslunar- og þjónustu-
rými. Stærð íbúðanna verður á
bilinu 45-135 fermetrar. Markmið
tillögunnar sé að búa til kennileiti,
aðdráttarafl og mikilvægan tengi-
punkt fyrir gangandi og hjólandi
vegfarendur sem eiga leið í Skeif-
una.
„Að mati Reita er hér um að
ræða heilsteypta tillögu sem sýnir
hvernig mætti skapa aðlaðandi
borgarumhverfi á mikilvægu horni
við nýjan samgönguás. Óskað er
eftir samstarfi við skipulags-
yfirvöld varðandi tillöguna eða eft-
ir atvikum aðrar útfærslur á
skipulagi lóðarinnar,“ segir m.a. í
bréfi Reita.
Í greinargerð Trípóli arkitekta
kemur fram að gert sé ráð fyrir að
stækka lóðina við Suðurlandsbraut
56 til austurs, þar sem hringtorgið
var, og til suðurs í átt að Faxafeni
9. Við þetta stækki lóðin um tæp-
lega 2.000 fermetra, eða úr 4.039
fm í 6.220 fm. Nýtingarhlutfall lóð-
arinnar samkvæmt rammaskipu-
lagi sé 1,7 og því verði leyfilegt
byggingarmagn 10.574 fm.
Vannýtt lóð á frábærum stað
Þá kemur fram í greinargerðinni
að lóðin við Suðurlandsbraut 56
endurspegli að vissu leyti ástand
Skeifunnar ágætlega. Um sé að
ræða vannýtta lóð á frábærum
stað með mikla þróunarmöguleika.
Nýtt rammaskipulag ásamt bætt-
um almenningssamgöngum á Suð-
urlandsbraut muni marka þáttaskil
í þróun Skeifunnar og nær-
umhverfis hennar.
Stór bílastæðaplön muni víkja
fyrir nýbyggingum, torgum og
görðum. Mikil aukning bygging-
armagns sé að stórum hluta ætluð
til að fjölga íbúðum ásamt því að
tryggja þá fjölbreyttu starfsemi
sem hverfið sé þekkt fyrir.
Borgarlínan mun stuðla að því
að Suðurlandsbraut breytist úr
tvístrandi hraðbraut í lifandi borg-
argötu, sem tengi saman aðliggj-
andi hverfi í stað þess að mynda
gjá þar á milli.
„Byggingin mun slá nýjan tón í
byggingarmynstri svæðisins, stór-
hýsi að evrópskri fyrirmynd sem
stendur þétt við götuna og á í
virku samtali við næstu nágranna
sína,“ segja Trípólí arkitektar
meðal annars í greinargerðinni.
Íbúðarhús rísi á Metró-reitnum
- Reitir hf. óska eftir samstarfi við borgina um uppbyggingu í Skeifunni - Hamborgarastaður
víki fyrir húsum með alls 87 íbúðum - Markmið tillögunnar er að búa til kennileiti fyrir Skeifuna
Myndir/Trípólí arkitektar
Fyrir Svona lítur reiturinn út í dag. Lágreistur hamborgarastaður er eina húsið þar og stór hluti hans bílastæði.
Eftir Hugmynd arkitektanna að útliti húsanna. Og hér er gert ráð fyrir borgarlínuvögnum á Suðurlandsbraut.
Vinna er hafin við endurnýjun á
lögnum fyrir heitt vatn og rafmagn á
stórum reit í Vesturbæ Reykjavíkur.
Um er að ræða svæði sem afmarkast
af Grandavegi, Framnesvegi, Hring-
braut, Sólvallagötu, Ánanaustum og
Mýrargötu.
Samkvæmt upplýsingum frá Veit-
um er áætlað að verkið taki um sex
mánuði og verður því skipt í nokkra
áfanga. Varað er við að töluverð
röskun verði á umferð meðan á fram-
kvæmdum stendur. Fyrsti áfangi
verksins nær frá Mýrargötu og Ána-
naustum frá hringtorgi að Vestur-
götu. Um þessar mundir er verið að
leggja lagnir yfir Ánanaust og því
hefur gatan verið þrengd í 1+1-veg
að undanförnu. Búast má við að svo
verði í um tvær vikur til viðbótar. Þá
gæti komið til þrenginga á Mýrar-
götu. Upphafi verksins seinkaði um
4-5 vikur og því er nú stefnt að verk-
lokum í apríl eða maí á næsta ári,
samkvæmt upplýsingum frá Veitum.
hdm@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Framkvæmdir Vegfarendur við Ánanaust í Vesturbænum mega búast við
þrengingum næstu tvær vikur. Verið er að leggja nýjar lagnir yfir götuna.
Lagnir endurnýj-
aðar í Vesturbæ
- Röskun á umferð - Verklok í vor