Morgunblaðið - 18.11.2021, Síða 42

Morgunblaðið - 18.11.2021, Síða 42
42 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2021 ✝ Sigurður Hjálmarsson, skipstjóri og veiði- eftirlitsmaður, bú- settur á Hraun- vangi 3 í Hafnar- firði, áður í Stekkjarkinn 7, fæddist 5. nóv- ember 1943 í Reykjavík. Hann lést 8. nóvember 2021 á krabba- meinsdeild Landspítalans við Hringbraut. Foreldrar Sigurðar voru Hjálmar Sigurðsson, vélstjóri og bílaviðgerðarmaður frá Görðum við Ægisíðu, f. 4. maí 1914, d. 22. júní 1999, og Ása Guðbrands- dóttir frá Spágilsstöðum í Lax- árdal í Dalasýslu, f. 28. október 1903, d. 30. október 1972. Systkini Sigurðar voru: Sig- urður Markússon, f. 16. sept- ember 1929, d. 22. ágúst 2011; Garðar Hjálmarsson, f. 15. ágúst 1937, d. 8. júlí 1963; Margrét Hjálmarsdóttir, f. 29. nóvember 1944; Guðmunda Hjálmarsdóttir, f. 18. mars 1947, d. 19. apríl 2011. Sigurður kvæntist eiginkonu sinni, Rannveigu Sigurðardóttur, 1973, maki Mette Skaarup Ped- ersen, f. 5. september 1976. Börn Hafþórs eru: Ásdís Lilja, f. 4. febr- úar 1994, sambýlismaður hennar er Örvar Már Jónsson, f. 19. júní 1990. Þórður Freyr, f. 16. sept- ember 2002. Rannveig Ása, f. 25. nóvember 2007. Óðinn Kári, f. 11. mars 2010. 4) Jóna Svava, f. 14. desember 1975, gift Kristni Helga Guðjóns- syni, f. 22. janúar 1974. Börn þeirra eru: Brynjar Árni, f. 10. ágúst 2000. Ásgerður Erla, f. 17. júní 2004. Baldur Már, f. 23. nóv- ember 2005. Ægir Örn, f. 8. mars 2012. Anna Svandís, f. 9. júlí 2014. Sigurður fæddist í Reykjavík og ólst upp á Skúlagötu 74. Hann gekk í Austurbæjarskóla en fór ungur á sjó, eða á fimmtánda ári. Hann lauk skipstjórnarprófi frá Stýrimannaskólanum árið 1964. Hann varð síðar stýrimaður og skipstjóri á ýmsum skipum og tog- urum, m.a. á Snorra Sturlusyni. Árið 1990 gerðist hann veiðieft- irlitsmaður fyrir Fiskistofu. Sigurður og Rannveig fluttu til Hafnarfjarðar 1969, bjuggu þau lengst af í Stekkjarkinn 7, eða í yf- ir 40 ár. Þau fluttu síðasta vor á Hraunvang 3 við Hrafnistu. Útför Sigurðar fer fram í Hafnarfjarðarkirkju í dag, 18. nóvember 2021, klukkan 15 og verður streymt af vefsíðunni streyma.is. Hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat f. 12. ágúst 1945, hinn 12. september 1964. Börn þeirra eru: 1) Ásgerður, f. 19. febrúar 1964, gift Manuel Bar- rueco, f. 16. desem- ber 1952. Börn þeirra eru: Anna Barrueco Wong, f. 23. febrúar 1981, gift Chistopher Wong, f. 17 ágúst 1981. Börn þeirra eru Colin Wong, f. 20 október 2009, Catherine Wong, f. 7. febrúar 2012, og Thomas Wong, f. 7. febrúar 2012. Emily Barrueco Wilson, f. 21 ágúst 1982, gift Matthew Wilson, f. 5. júlí 1980. Börn þeirra eru: Ro- bert Wilson, f. 23 september 2014, og Kelly Wilson, f. 8. apríl 2019. 2) Sigurður Andri, f. 10. júlí 1970. Börn hans eru: Daníel Þór, f. 22. október 1990, unnusta hans er Ragnheiður Ósk Jónasdóttir, f. 22. febrúar 1991. Þau eiga Ísak Elí, f. 30. júlí 2014. Sunna Rós, f. 15. maí 1994. Máney Katla, f. 13. júlí 2006. 3) Hafþór Örn, f. 28. nóvember Þá er elsku pabbi farinn í sitt hinsta ferðalag. Fyrst af öllu var pabbi elskaður fjölskyldumaður, mjög barngóð- ur, og vildi allt fyrir fjölskyldu sína gera. Börn vildu vera hjá honum, ef ekki til að spjalla um daginn og veginn, þá til að kúra og hlusta á söguna um afa sem datt í sjóinn, sem öll börn í fjölskyldunni fengu að heyra í einhverri af fjöl- mörgum útgáfum. Pabbi var mjög mannelskur og réttsýnn, og alltaf fyrsti maður til að bjóða fram hjálp. Hjálpsamari mann þekkjum við systkin ekki. Aldrei stóð á honum að aðstoða, hvort sem var með góðum ráðum eða beinni aðstoð. Hann var mjög vinmargur og vel liðinn af öllum. Það var lítið sem pabbi tók sér ekki fyrir hendur og hafði hann mikið verkvit og var ekki latur til verka og mjög duglegur. Verkvit- ið notaði hann til að aðstoða vini og vandamenn við bíla- eða húsa- viðgerðir. Oft nýtti hann verk- lagnina í eitt af fjölmörgum verk- efnum í Stekkjarkinninni, heimili mömmu og pabba í 42 ár. Forvitni pabba og þekkingar- þorsti gerði það að verkum að hann var einstaklega víðfróður maður. Las hann og hlustaði á allt sem hann komst í, allt frá mann- úðarmálum til tækni og vísinda. Maður kom aldrei að tómum kof- unum hjá pabba, sama hvert um- ræðuefnið var. Það var fastur liður hjá honum að hlusta á hádegisfréttir, og þá sérstaklega veðurfréttirnar. Sím- töl byrjuðu oftar en ekki á orð- unum: „Sæll, hvernig er veðrið?“ Skein þar í gegn fagmennska Sig- urðar frá tíð hans sem skipstjórn- armanns og þörf til að deila og fá til sín upplýsingar. Á sjónum skipti veðrið öllu, það þekkti pabbi. Pabbi var mikill áhugamaður um sjómennsku, varla var til það skip sem hann ekki vissi nafnið á, sögu þess og áhafnar. Hann var alla tíð farsæll skipstjórnarmaður og endaði ferilinn sem skipstjóri á frystitogaranum Snorra Sturlu- syni. Eftir stutta viðveru sem ráð- gjafi hjá Hampiðjunni hóf pabbi störf hjá Veiðieftirlitinu og starf- aði þar allt til þess að hann fór á eftirlaun. Starfið hjá Veiðieftirlit- inu gaf honum tíma með fjölskyld- unni sem hann þráði og notaði hann nánast allan sinn frítíma með okkur börnunum og barna- börnum. Skipti þá ekki máli hvort börnin væri í Danmörku, Banda- ríkjunum eða Hafnarfirði. Pabbi var mikill áhugamaður um fjarskipti, fyrst sem skipstjóri og síðar sem áhugamaður, sem þróaðist í mikinn tölvuáhuga. Hann lærði að fljúga og var mikill áhugamaður um flug og flugvélar og fullur af fróðleik um sögu flugs á Íslandi. Svo var það fastur vor- boði víða í bænum að sjá pabba koma akandi á mótorhjólinu sem hann keypti örfáum árum áður en hann fór á eftirlaun, öllum að óvörum. Þegar mamma veiktist gekk pabbi í heimilisstörfin og leysti þau af sóma. Störf sem áður höfðu verið á herðum mömmu nánast alla þeirra 60 ára búskapartíð. Pönnukökubakstur varð eitt aðal- áhugamál hans í seinni tíð og minnumst við þeirra stunda með gleði í hjarta þegar hann bauð fjölskyldunni í sunnudagspönnu- kökur. Yfir pönnukökunum var svo rætt um lífið og veginn - og auðvitað veðrið. Takk fyrir allt elsku pabbi, þín verður sárt saknað. Ásgerður, Andri og Hafþór. Pabbi minn er dáinn, það er ótrúlega erfitt að skrifa þessi orð. Pabbi, sem var allra manna hjálp- samastur og vildi allt fyrir alla gera. Ég minnist þess sem barn hve það hlakkaði í manni þegar mamma sagði okkur systkinunum að pabbi væri á leiðinni í land af sjónum. Mamma brunaði á Che- villunni niður á bryggju með mig og bræður mína með í aftursætinu að sækja þig. Við sátum aftur í og biðum eftir að pabbi kæmi niður landganginn. Oft fengum við súkkulaði eða kex úr eldhúsi skipsins, en best var þegar pabbi var að koma úr siglingunum. Þá beið manns oft ýmislegt eins og útlenskt gos, nammi, hjól eða jóla- gjafir. Ég átti það til að safna mínu nammi fyrir í skrifborðs- skúffunni minni, bræðrum mínum til mikillar gremju, því þeir áttu það til að klára sitt strax á meðan ég borðaði mitt ekki einu sinni. Þegar pabbi hætti á sjónum var hann samt áfram beintengdur við sjóinn og sjómannslífið, því sem veiðieftirlitsmaður hjá Fiskistofu náði hann að halda sambandi við marga gamla félaga af sjónum. Hann ferðaðist líka mikið í tengslum við vinnuna, en fékk góð frí þess á milli. Þá naut hann sín í faðmi fjölskyldunnar. Þegar bræður mínir og ég fórum að eignast okkar börn þá blómstraði pabbi í hlutverki afa. Hann hafði yndi af því að vera í kringum afa- börnin sín og vildi allt fyrir þau gera, hvort sem það var að passa, skutla eitthvað eða leyfa þeim að fá að gista, það var alltaf velkomið í hans huga. Á efri árum ákvað pabbi að kaupa sér gamalt Yamaha-mótor- hjól. Hann elskaði að keyra um á mótorhjólinu um Hafnarfjörð, fara bryggjurúntinn, kíkja á verk- stæðið til Andra bróður eða kíkja í kaffi til mín og Kidda. Hann keyrði aldrei langt eða hratt á því, það var aukaatriði, bara að rúnta um var nóg fyrir hann. Pabbi var mjög félagslyndur maður, hann hafði alltaf gaman af því að setjast einhvers staðar og fá sér kaffisopa. Ég man hvað ég var fegin þegar þú tókst mig á orðinu og fórst að stunda „Karlar í skúrum“ uppi á Helluhrauni og varst orðinn félagsmaður mjög fljótlega. Reglulegt kaffi þar tvisvar í viku gaf þér mjög mikið, eins og að fara á námskeið og vett- vangsferðir með vinum þaðan. Þetta hentaði þér svo vel, enda kominn á eftirlaun. Þú varst svo stoltur af handverkinu þínu sem þú vannst þarna, seglamyndum á ísskápa, skálunum, pennunum og fleiru. Það verður erfitt að geta ekki hringt í þig og spjallað um allt og ekkert. Ef maður var í einhverj- um vandræðum, þá var það fyrsta sem þú sagðir: „Get ég eitthvað hjálpað þér?“ Það voru mikil tímamót þegar þið mamma fluttuð á Hraunvang 3 í vor. Þið fenguð íbúð á besta stað í Hafnarfirði. Þú varst svo ánægður að vera kominn í svona flotta aðstöðu, engir stigar eða tröppur, bara beint inn. Þú gast horft á bátana og skipin sigla inn og út úr höfninni og mamma líka komin á æskuslóðir Brúsastaða- ættarinnar. Það var því erfitt að fá þær fréttir í sumar að þú værir kominn með krabbamein. Þú, sem varst alltaf svo hress og hraustur. Það er mikið skarð sem þú skilur eftir þig. Ég er viss um að þú ert samt ánægður með að hafa náð að flytja í húsnæði sem hentaði ykkur betur en Stekkjar- kinnin, þó svo þú hafir ekki fengið að njóta þess nema í örfáa mán- uði. Takk fyrir samfylgdina, elsku pabbi minn. Þín dóttir, Jóna Svava. Það er með sorg í hjarta sem ég skrifa kveðjuorð um elskuleg- an bróður minn, Sigurð Hjálm- arsson skipstjóra og síðar veiði- eftirlitsmann, sem lést 8. nóvember síðastliðinn. Enn er fráfall þitt svo óraun- verulegt, mér finnst sem þú gætir birst hérna hjá mér hressilegur og brosandi. Oft sagðir þú „hvernig hefur þú það litla systir mín?“, grín á milli okkar því við vorum bæði fædd í nóvember með árs millibili. Alltaf var gaman að fá þig í heimsókn, stundum jafn- vel brunandi á flotta mótorhjólinu þínu í fullum skrúða. Ég vil þakka þér hvað þú varst mér kærleiks- ríkur og góður bróðir, ég gat treyst á þig og það eru mörg handtökin sem þú hefur unnið á mínu heimili af alúð og vand- virkni. Minningar æskuáranna hrann- ast upp. Ég man laugardags- kvöldin þegar pabbi baðaði okkur yngri systkinin í bala á eldhús- gólfinu á Skúlagötunni meðan mamma tók til fötin okkar og pússaði skóna. Fyrir hádegi á sunnudögum brunaði síðan pabbi með okkur í sínum fína bíl vestur í Garða við Ægisíðu að heimsækja afa og ömmu og oftast var komið við í Reykjavíkurhöfn og bátarnir skoðaðir. Á meðan útbjó mamma sunnudagssteikina í ró og næði. Einnig þegar við vorum heilt sumar í bústað við Nesjavelli í Grafningi. Þá var glatt á hjalla, glaðir bernskudagar og alvara lífsins víðs fjarri. Árin liðu, þú fórst í Stýri- mannaskólann og ég í Hjúkrunar- skóla Íslands. Þú fórst á sjóinn og ég að hjúkra. Það var mikið áfall fyrir fjölskylduna að missa Garð- ar bróður okkar aðeins 26 ára gamlan frá eiginkonu og tveimur ungum drengjum. Guðmunda systir okkar lést síðan árið 2010 og Sigurður Markússon hálfbróð- ir okkar ári seinna. Blessuð sé minning þeirra, góðu stundirnar okkar saman lifa áfram. Ungur kynntist þú Ransý eft- irlifandi eiginkonu þinni, árin liðu og þið fluttust í Hafnarfjörðinn og áttuð þar farsæla daga, eignuðust fjögur myndarleg börn og barna- börnin orðin mörg. Þú barst vel- ferð þeirra mjög fyrir brjósti og varst duglegur að sinna þeim, frá- bær afi. Þeirra missir er mikill. Þú reyndist Ásu dóttur minni kærleiksríkur frændi. Hjá þér fann hún traust og hlýju og fannst svo vænt um hvernig þú sýndir henni og fjölskyldu hennar ein- lægan áhuga. Hún saknar sam- verustundanna góðu og faðmlags þíns við kveðjustund. Kæri bróðir minn, takk fyrir árin okkar saman. Þín verður sárt saknað. „Einstakur“ er orð sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orð sem best lýsir þér. (Terri Fernandez) Þetta ljóð finnst mér lýsa svo vel hvað þú varst mér kær og mik- ilvægur hlekkur í lífi mínu. Elsku Ransý, Ásgerður, Andri, Hafþór, Jóna Svava og fjölskyldur ykkar. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra. Góðar minningar lifa og eru ljós í lífi okkar. Margrét (Gréta) systir. Kveðja frá Körlum í skúrum Sigurður var félagi í Körlum í skúrum í Hafnarfirði. Hann gekk til liðs við félagið skömmu eftir stofnun þess 2018. Kaffistofa fé- lagsins varð fljótlega vettvangur líflegrar umræðu um flest þau mál sem efst voru á baugi hverju sinni. Þar átti Sigurður ríkan þátt í að skapa notalegt andrúmsloft skoð- anaskipta þar sem rök og mótrök voru vegin af hógværð og sann- girni. Hann stóð fyrir því að Íslands- korti og alheimskorti var komið fyrir á veggjum kaffistofunnar til þess að auðvelda mönnum um- ræðu um helstu stórviðburði í nú- tíð og fortíð. Sigurður varði mörgum stund- um með okkur í félagsheimilinu Helluhrauni 8. Á síðastliðnu sumri veiktist hann og þurfti að ganga í gegnum erfiða lyfja- og geisla- meðferð. Fækkaði þá komum hans um sinn. Hann tók þó upp þráðinn að nýju í haust en engum duldist að hann gekk ekki heill til skógar. Það truflaði hann þó ekki í því að leggja sitt af mörkum til þess að samverustundir okkar yrðu sem ánægjulegastar. Sigurður var traustur félagi og er sárt saknað. Fjölskyldu hans sendum við samúðarkveðjur. F.h. Karla í skúrum, Hafnar- firði, Jón Bjarni Bjarnason formaður. Góður vinur er fallinn frá alltof fljótt og óvænt. Með vinsemd og virðingu langar okkur að minnast hans í fáum orðum. Margs er að minnast þegar litið er yfir farinn veg. Ferðirnar til Baltimore í Bandaríkjunum standa eflaust upp úr en þangað fórum við nokkrum sinnum með þeim hjónum Ransý og Sigga að heimsækja dóttur þeirra Ásgerði sem þar býr með manni sínum Manuel. Þau voru höfðingjar heim að sækja og annarri eins gestrisni höfum við ekki kynnst áður. Margar skemmtilegar ferðir fór- um við með þeim um þær slóðir Marylandríkis og nágrennis, allt frá Ocean City við ströndina og upp til Pennsylvaníu að skoða þær slóðir þar sem Amish-fólkið býr. Við nutum þeirra forréttinda að Siggi og Ransý voru áður búin að fara um þessar slóðir og gjör- þekktu, voru eins og menntaðir fararstjórar, vissu alla hluti. Sigurður var nær alla tíð sjó- maður, háseti, stýrimaður og skipstjóri á síðutogurum og síðar skuttogurum og í enda starfsferils síns vann hann sem veiðieftirlits- maður á Fiskistofu. Réttur maður þar á réttum stað, vissi allt um fiskveiðar þegar að slíku eftirliti kom. Ég heyrði haft eftir sjómönn- um sem hann átti viðskipti við að hann hefði verið vel liðinn og þægilegur í allri umgengni þegar hann sinnti starfi sínu meðal sjó- manna. Að leiðarlokum er okkur efst í huga söknuður og þakklæti. Ransý, börnum og öðrum að- standendum sendum við innilegar samúðarkveðjur. Hvíl í friði. Halldór og Hafdís. Sigurður Hjálmarsson Harpa Heimisdóttir s. 842 0204 Brynja Gunnarsdóttir s. 821 2045 Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær s. 842 0204 | www.harpautfor.is Sími · 567 9110 · utfarir@utfarir.is · www.utfarir.is Stofnað 1990 Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.