Morgunblaðið - 18.11.2021, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 18.11.2021, Qupperneq 45
þar sem henni væri í blóð borið að vanda sig hefði hún með árunum lagt það af. Lillý átti ekki langt skólanám að baki, en hún var bæði fróð og bráðgreind. Mamma sagði að Lillý hefði eflaust farið í Menntaskólann á Akureyri með Fríðu frænku sinni ef hún hefði ekki á þeim tíma átt við augnsjúk- dóm að stríða. Þegar leið á ævina gaf líkaminn eftir en þótt hún bognaði var alltaf ákveðin reisn yfir henni. Hún missti heldur aldr- ei þann metnað að vera bæði vel tilhöfð og að hafa fallegt í kringum sig. Við Bínsa systir hennar heim- sóttum hana vikulega á Hrafnistu þar sem hún var nýlega búin að koma sér vel fyrir. Þar prýddu veggi myndir af afkomendum hennar en Lillý var mjög stolt af sínu fólki. Það voru dýrmætar og skemmtilegar stundir að hlusta á þær systur skrafa um liðna tíma og lyfta með þeim sérríglasi. Ég á eftir að sakna þessara stunda en er ákaflega þakklát fyrir að hafa átt frænku mína að alla tíð. Ég votta börnum, öðrum afkomend- um og Bínsu mína dýpstu samúð, missir þeirra er mestur. Elín Rögnvaldsdóttir. Við lindina í hrauninu óx lítið blóm átti draum um ástina og daginn meðan gleðin varaði tíminn fór höndum um söknuðinn sársaukinn múraður inni blómstrandi blómið vekur fögnuð og frið (Bergmál) Lillý frænka hefur kvatt okkur. Ég þakka henni frændsemi og vin- áttu, stundirnar þegar við vorum ungar og gleðin var við völd, ekk- ert raunaþungt. Lillý var yngst sex systra sem bjuggu á æskuár- unum ásamt foreldrum sínum á Harðbak á Melrakkasléttu. Lillý giftist Birni Guðmundssyni og þau eignuðust þrjú börn, Þóreyju, Margréti, sem er látin, og Guð- mund Ásgeir. Lillý og Björn bjuggu fjölskyldunni sérlega fal- legt heimili. Lillý var afar glæsileg kona, unni öllu sem fagurt var og fíngert. Hún var mild í orðum, hlé- dræg, átti gott með að sjá það skoplega í lífinu og sýndi það gjarnan í góðra vina hópi. Með hlýju í hjarta kveð ég mína kæru frænku. Börnum Lillýjar, Þóreyju og Guðmundi Ásgeiri, Birni Róbert og fjölskyldunni allri votta ég dýpstu samúð mína við fráfall hennar. Blessuð sé minning Þorbjargar Guðmundsdóttur. Hólmfríður Sigurðardóttir. Innan fjölskyldunnar var hún alltaf kölluð Lillý. Hún var yngst Harðbakssystranna, sem voru sex. Nú er bara Jakobína, fyrrver- andi skólastjóri Hússtjórnarskól- ans í Reykjavík, ein eftirlifandi en allar hafa systurnar látist á tíræð- isaldri. Harðbakur á Melrakka- sléttu er á frekar afskekktu svæði landsins enda vitjaði hvorki spænska veikin né berklarnir heimilisins. Til helstu kosta jarð- arinnar voru hin ýmsu hlunnindi til lands og sjávar. Fyrir utan hefðbundinn íslenskan heimilis- mat var alltaf unnt að ná í nýjan silung úr vötnunum og sækja fisk í soðið þegar vel viðraði. Móðir mín Ása hafði eftir móður sinni, ömmu Margréti, að frostaveturinn mikla 1918 hefði aldrei slokknað í ofn- inum því alltaf var nægur eldivið- ur af rekanum. Eitt sumarið bað amma móður mína að passa Lillý, en á milli þeirra voru 11 ár. Mamma gerði það með ánægju og ekki spillti að hún fékk ljóðabók Jónasar Hall- grímssonar að launum, en hann var uppáhaldsljóðskáld mömmu til hinstu stundar. Á meðal Harð- bakssystranna var ætíð mikil sam- heldni og samvinna um alla hluti, ekki síst í umhugsun um velferð afkomendanna. Á milli mömmu og Lillýjar var alveg sérstakt sam- band, sem þær ræktuðu frá barn- æsku. Lillý var glæsileg kona, mild í skapi, glaðvær og með mjög elskulega og fallega framkomu. Hún giftist Birni Guðmundssyni flugstjóra og eignuðust þau þrjú börn. Þegar foreldrar mínir bjuggu á Stórólfshvoli var það mikið tilhlökkunarefni að fá þá fjölskyldu í heimsókn um jólin og oft voru þar ein til tvær aðrar systrafjölskyldur yfir jóladagana. Kom sér vel að læknisbústaðurinn hafði líka verið sjúkraskýli fyrr á tíð og því margar vistarverur og auðvelt að hýsa marga gesti. Þarna voru glæsileg veisluborð, mikið spilað og teflt en systurnar gættu þess að líka væri mikið sungið og dansað. Ég naut þess að Björn flugstjóri var hrifinn af þeim harmónikuleik sem var í boði, þótt hljóðfæraleikarinn væri ekki sérstaklega lærður. Hann bauð mér með sér í styttri flug- ferðir og síðar á sjöunda áratugn- um, þegar kreppa var á Íslandi, kom hann mér og raunar áður Guðmundi bróður í vinnu í Kaup- mannahöfn við flugstarfsemi þar. Sannkallaður velgjörðamaður okkar. Það var mikið áfall fyrir Lillý þegar Magga dóttir hennar lést af skæðum sjúkdómi langt fyrir ald- ur fram. Líka var það henni mjög þungbært að missa Björn þótt á háum aldri megi búast við slíku. Hún sýndi af sér mikið æðruleysi og sagðist hafa fengið aukinn styrk til að takast á við áföllin. Að leiðarlokum er mér efst í huga þakklæti til Lillýjar frænku fyrir velvild og vináttu í minn garð og minna alla tíð. Blessuð sé minn- ing hennar. Innilegar samúðarkveðjur frá okkur Sólveigu til Þóreyjar, Guð- mundar Ásgeirs, fjölskyldna þeirra og Möggu og annarra vandamanna. Gestur Þorgeirsson. Hún Þorbjörg, kær vinkona okkar hjóna og sona, er látin, en bjartar minningar um elskulega og glæsilega konu munu lifa áfram í hugum okkar. Margs er að minnast þegar litið er yfir farinn veg liðinna ára. Fjölmargar minningar eigum við um hjónin Þorbjörgu og Björn heitinn Guðmundsson flugstjóra, frá samvistunum við þau og við minnumst þeirra stunda með virð- ingu og gleði. Flestar þær stundir tengdust ræktun og fegrun lands- ins, landgræðslufluginu og hesta- mennsku. Okkur Oddnýju er afar minnisstætt hvernig Þorbjörg ræktaði syni okkar og virti. Þor- björg var alltaf höfðingleg í allri framgöngu og fasi, var gædd mikl- um mannkostum, góðum gáfum, velviljuð og vinaföst. Hún var ákaf- lega hógvær kona, trygg vinum sínum og var afar heilsteypt mann- eskja. Heimili þeirra hjóna, bæði í Reykjavík og í sumarhúsi þeirra á Glæsivöllum, voru afar smekkleg og glæsileg í senn enda hjónin ein- staklega gestrisin og höfðingjar heim að sækja. Þorbjörg var ein- stök húsmóðir, listagóð matreiðslu- kona og við borð hennar var alltaf pláss. Heimilishættir þeirra hjóna voru rómaðir, eins og mætur mað- ur skrifaði: „Allir, sem þau hjónin sóttu heim, hafa góðar minningar frá heimili þeirra.“ Líf og starf Þorbjargar tengdist störfum Björns við flugið, sem var hans aðalstarf og ásamt hesta- mennskunni helsta áhugamál í nærri hálfa öld. Hún var Birni stoð og stytta í hans fjölþættu og ómet- anlegu verkefnum, meðal annars til stuðnings landgræðslu á Íslandi. Að leiðarlokum er okkur efst í huga söknuður og þakklæti fyrir áralanga vináttu sem aldrei bar skugga á. Það var okkur mikill heiður að fá að kynnast Þorbjörgu. Öll voru þau samskipti á einn veg, hún var traust vinkona, hrein og bein og frá henni stafaði mikil innri hlýja. Það voru forréttindi að kynn- ast henni og minningin lifir um ein- stakan höfðingja. Fjölskyldur, ættingjar og vinir kveðja nú mikilhæfa konu með söknuði og þakklæti fyrir að hafa fengið að njóta samvistanna við hana svo lengi. Megi almættið, sem leiðir okkur og alla þá er hjarta þitt sló fyrir, leiða þig í sólina kæra Þorbjörg. Við hjónin og synirnir vottum fjölskyldum þeirra innilega samúð okkar. Oddný, Sveinn og synir frá Gunnarsholti. Þorbjörg Rósa Guðmundsdóttir (Lillý) sem í dag er kvödd hinstu kveðju var yngst sex samhentra systra sem fæddust og ólust upp á Harðbaki á Melrakkasléttu, nánast í beinni snertingu við norðurheim- skautsbaug. Hún átti sinn þátt í að festa í sessi það orðspor glæsileika og glaðværðar sem fór af Harð- bakssystrum. Og nú segir þjóðsag- an að ekki hafi þótt taka því að halda böll á Sléttu nema þátttaka systranna væri tryggð. Kom sér vel að böllin voru oft haldin í stof- unni heima á Harðbaki. Lillý bar uppruna sínum og æskukjörum fagurt vitni. Þótt Harðbakur væri ekki búsældarlegasta jörð á Íslandi né auðveldust til lífsviðurværis þá nægði dugnaður og útsjónarsemi ábúendanna, Guðmundar og Mar- grétar, til þess að þar skorti aldrei neitt. Eldhúsið og búrið voru nægtabrunnar, ekki síst vegna þess að náttúrukostir jarðarinnar voru gjöfulir ef þeir voru nýttir af atorku og skilningi á náttúru lands- ins. Margrét hafði á sínum yngri árum lært kjólasaum í Reykjavík og ýmsa aðra kröfuharða hand- mennt. Því var ekkert slegið af tískukröfum á Harðbaksheimilinu þótt það stæði við ysta haf. Ofan á þessar veraldlegu aðstæður bætt- ust samhent mannrækt, örlæti og glaðværð. Þessi umgjörð uppeldis stuðlaði að heilbrigðu sjálfstrausti, jákvæðu lífsviðhorfi og umburðar- lyndi, allt eiginleikar sem prýddu Lillý og hún veitti öðrum af í ríkum mæli. Hún var heilsteyptur smekk- vís fagurkeri en einnig hófstilltur húmoristi. Heima á Harðbaki vann hún að fjölbreyttum bústörfum og tók þátt í síldarævintýrinu á Rauf- arhöfn en eftir námslok í Héraðs- skólanum á Laugarvatni vann hún við verslunarstörf í Reykjavík þar til heimilishald og barnauppeldi varð miðpunkturinn í hennar lífi. Seinna réðst hún til gæslu- og leið- beiningarstarfa á Listasafni Ís- lands sem hún naut í ríkum mæli og gáfu henni tækifæri til að dýpka þekkingu sína og rækta smekkvísi hins fágaða fagurkera. Björn Guðmundsson, eiginmað- ur hennar, fór aldrei í launkofa með skoðanir sínar og viðhorf. Enginn sem til þekkti efaðist um að í hans ríki sat Lillý í drottningarsæti. Þau voru hamingjufólk og samhent í að rækta sinn hamingjugarð, fjöl- skylduna, börn og barnabörn. Í minni æsku ólst ég upp við þá frá- sögn að innan hins samhenta systrahóps hafi Ása móðir mín og Lillý verið sérstakir samherjar og bandamenn þótt sú staðreynd hafi að sjálfsögðu ekki skyggt á kærleika og samstöðu innan systrahópsins. Mér fannst því ekkert tiltökumál þegar ég kom úr sveitinni til menntaskólanáms í Reykjavík 16 ára gamall að Björn og Lillý tækju mig inn á heimili sitt fullt af börnum, og nafni minn Björnsson nýfæddur. Ég var þó ekki skyni skroppnari en svo að fljótlega varð mér mér ljóst hvílíkt örlæti og tryggð fólst í þeim gjörningi og hvílíkur lukk- unnar pamfíll ég væri. Þakkar- skuld mín er stór og ævilöng. Á hinstu kveðjustund Lillýjar sendum við Bryndís innilegar samúðarkveðjur til Þóreyjar og Gumma og allra afkomenda og fylgihnatta heimilisins sem á sín- um tíma stóð í Karfavogi 20, og hugsum líka með söknuði til Björns og Möggu. Blessuð sé minning þeirra allra. Guðmundur Þorgeirsson. MINNINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2021 Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐBJARTUR BJÖRNSSON, Baddi í Stapafelli, Vatnsnesvegi 29, Keflavík, lést laugardaginn 6. nóvember. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 23. nóvember klukkan 13. Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt á https://www.facebook.com/groups/gudbjartur Ragnhildur Antonsdóttir Ragnar Guðbjartsson Guðmunda Róbertsdóttir Viðar Þórhallsson Svanhildur Ólöf Harðardóttir Frímann Þór Þórhallsson Guðbjörg S. Pálmarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Hægt er að panta ljósin á vefsíðunni jolaljosin.is eða í síma 5717255 frá 13 til 18 alla daga. Gleðileg jól Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNÍNA S. BERGMANN, Eiðistorgi 9, Seltjarnarnesi, verður jarðsungin frá Seltjarnarneskirkju mánudaginn 22. nóvember klukkan 11. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Flateyjarkirkju, 0309-26-012652, kt. 550169-5179. Vegna sóttvarna eru kirkjugestir beðnir um að sýna neikvætt Covid-hraðpróf við inngöngu, ekki eldra en 48 klst. Heimapróf eru ekki tekin gild. Sigfús Jónsson Kristbjörg Antonsdóttir Jóhannes Gísli Jónsson Þorsteinn Jónsson Jón Gunnar Jónsson Tómas G. Guðmundsson Eva Bliksted Jensen barnabörn og barnabarnabörn Kær frænka okkar, GEIRLAUG INGVARSDÓTTIR, Gilla frá Balaskarði, lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi fimmtudaginn 11. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Hólaneskirkju laugardaginn 20. nóvember klukkan 13. Jarðsett verður í Höskuldsstaðakirkjugarði. Vefstreymi á slóðinni: https://www.mbl.is/andlat/minningar/utfarastreymi/ Þeim sem vilja minnast Gillu er bent á Hollvinasamtök HSN á Blönduósi (rnr. 0307-26-270, kt. 490505-0400). Systkinabörn Okkar kæra og ljúfa PETRA JÓNSDÓTTIR frá Siglufirði lést á hjúkrunarheimilinu Höfða á Akranesi sunnudaginn 7. nóvember. Útförin fer fram frá Akraneskirkju mánudaginn 22. nóvember klukkan 13. Viljum við þakka starfsfólki Höfða fyrir alúð og góða umönnun. Vegna samkomutakmarkana verður aðeins nánasta fjölskylda við útförina. Streymt verður frá athöfninni á slóðinni: www.akraneskirkja.is og mbl.is/andlat. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Vilborg Jónsdóttir og systkinabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, HELGI VALTÝR SVERRESSON, Hörðukór 1, lést á hjúkrunarheimillinu Sléttuvegi 8. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Digraneskirkju í Kópavogi mánudaginn 22. nóvember klukkan 13. Fólk er beðið um að fara í hraðpróf og framvísa neikvæðu prófi við inngang. Vilborg Teitsdóttir Elsí Rós Helgadóttir Dagbjartur Kr. Brynjarsson Sverre Valtýr Helgason María Björg Magnúsdóttir og barnabörn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.