Morgunblaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 54
54 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2021
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Sektarkennd þín á ekki rétt á sér.
Þú þarft að hugsa ýmislegt upp á nýtt.
Farðu varlega í umferðinni og mundu að
þér liggur ekki lífið á.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú mátt ekki láta skapið bitna á þín-
um nánustu. Þau hafa ekkert til saka unnið.
Haltu þínu striki í baráttunni við niðurrifs-
öflin innra með þér.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Nú er rétti tíminn til að ræða til-
finningamálin, opnaðu þig upp á gátt og
finndu hvað það er frelsandi. Gefðu þig
alla/n í allt sem þú gerir.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þér líður eins og þú getir sigrað
heiminn og átt að njóta þess meðbyrs sem
þú hefur. Fólk heldur oft að það viti hvað
öðrum er fyrir bestu, þú ert í þeim flokki.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú færð hverja hugmyndina á fætur
annarri svo þú átt erfitt með að henda
reiður á þeim og þarft að biðja einhvern að
stoppa þig af þegar þú ferð á flug.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Það er um að gera að láta félagsmál
til sín taka ef áhugi og tími eru fyrir hendi.
Þótt hlutirnir heppnist ekki í fyrstu tilraun
er engin ástæða til að gefast upp.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Samstarfsfélagar þínir eru óvenju vin-
samlegir í dag. Þú kemst að því seinni part
dags af hverju. Maður þarf stundum að
gera fleira en gott þykir.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Sjálfsgagnrýni er af hinu góða
í hófi en getur þó gengið of langt. Dæmdu
þig mildilega. Vinur er viðriðinn hneykslis-
mál, bjóddu honum öxl þína.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú tekur lífið of alvarlega. Það
kemur alltaf nýr dagur á morgun. Einhver
sem hefur verið stoð þín og stytta verður
það ekki mikið lengur.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú færð að reyna sitthvað nýtt
sem hefur varanleg áhrif á líf þitt. Gerðu
þér far um að umgangast aðeins þá sem
eru á jákvæðu nótunum.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þetta er góður dagur til að setja
fram langtímaáætlun. Það eru einhver
straumhvörf fram undan í þínu lífi.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Skoðaðu nú vel hvað þú gefur mik-
inn tíma í vinnu þína og hvort þú uppskerð
sem skyldi. Ástin sigrar allt.
Rannsóknastofnunar landbúnaðar-
ins 1974-1983. Enn lá leiðin til Vín-
arborgar þegar Björn tók við for-
stjórastöðu í sinni gömlu stofnun hjá
Sameinuðu þjóðunum sem hann
gegndi til 1995 er hann varð ráðu-
neytisstjóri í landbúnaðarráðuneyt-
inu til 2000.
„Á vegum Sameinuðu þjóðanna
tók ég þátt í grænu byltingunni svo-
kölluðu sem snerist um að hjálpa fá-
tækustu þjóðum heims til þess að
verða sjálfbjarga með matvælafram-
leiðslu. Með jurtakynbótum á hrís-
grjónum tókst okkur að skeyta A-
Helgu konu sinni og Unni Steinu
dóttur þeirra til Vínarborgar, þar
sem hann var ráðinn til Alþjóða-
kjarnorkumálastofnunar Sameinuðu
þjóðanna, IAEA, sem var að hefja
hagnýtingu á friðsamlegri notkun
kjarnorku og geislavirkra efna, m.a.
í jurtakynbótum. Þegar stofnuð var
sameiginleg deild Matvæla- og land-
búnaðarstofnunarinnar (FAO) og
Kjarnorkumálastofnunarinnar varð
Björn deildarstjóri í jurtakynbóta-
deildinni og stjórnaði verkefnum
víða um heim. Fjölskyldan fluttist
heim þegar hann varð forstjóri
B
jörn Sigurbjörnsson
fæddist í Reykjavík 18.
nóvember 1931, á
Fjölnisvegi 2 og þar bjó
hann fram á fullorð-
insár. „Ég er yngstur ellefu systkina
og eru þau öll tíu látin. Það má segja
að líf mitt hafi verið meira og minna
dans á rósum. Foreldrar mínir um-
vöfðu mig ást og kærleika og systk-
inin sýndu mér mikla væntumþykju
og umburðarlyndi því strax í frum-
bernsku var ég mjög fróðleiksfús.
Það var oft fjörugt á Fjölnisveginum
en ekki síður á Kiðafelli í Kjós, sem
má segja að séu átthagar mínir.“
Björn settist fyrst á skólabekk í
Grænuborg, sem var undanfari
Ísaksskóla. Síðan lá leiðin í Austur-
bæjarskóla og Menntaskólann í
Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi
frá máladeild 1951 og búfræðiprófi
frá Hvanneyri árið eftir. „Auk náms-
ins lék ég fyrir dansi í hljómsveitinni
Brak og brestir í félagsheimilum í
Borgarfirði. Þá var ýmist leikið á
gítar, harmóniku eða píanó.“ Björn
hélt námsferlinum áfram erlendis,
lauk BS-prófi og síðar meistaraprófi
í búvísindum frá Manitoba-háskóla í
Kanada 1957 og doktorsprófi í
plöntuerfðafræði frá Cornell-
háskóla í Bandaríkjunum 1960.
„Námið sóttist mér vel og fékk ég
ýmsar viðurkenningar. Það er ekki
síst elsku Helgu eiginkonu minni til
52 ára að þakka, en hún studdi mig
alltaf með ráðum og dáð.“
Sem unglingur vann Björn ýmis
störf, þar á meðal stjórnaði hann
stórri gröfu við skurðgröft á Mýrum
15 ára gamall. Eftir nám var Björn
sérfræðingur í jurtakynbótum við
atvinnudeild Háskóla Íslands til
1963. „Um tíma vann ég við gróður-
rannsóknir í Gunnarsholti undir
dyggri stjórn Páls Sveinssonar
sandgræðslustjóra. Ýmsar tegundir
voru reyndar til uppgræðslu svo sem
melgresi sem ég tók fyrir í doktors-
verkefni mínu í jurtakynbótum. Enn
er verið að leita leiða til að græða
landið okkar. Lúpínan hefur gert
mikið gagn en hefur verið ansi
ágeng að ýmissa mati, en falleg er
hún í blóma.“
Árið 1963 fluttist Björn með
vítamíni í hrísgrjón og draga úr tíðni
blindu hjá börnum. Eins var með
erfðabreytingum á skordýrum hægt
að útrýma tse-tse-flugu, sem bar
mjög alvarlega svefnsýki.“ Björn
hlaut margvíslegar viðurkenningar
fyrir þessi störf og var m.a. gerður
að heiðursprófessor við kínversku
landbúnaðarakademíuna.
„Skíðaferðir voru mikið stundaðar
í Austurríki og fórum við Helga og
Unnur mjög oft í slíkar ferðir með
vinum okkar til Tauplitz, Kitzbühel
og víðar. Á Íslandi voru skíðaferðir
tíðar í Kerlingarfjöll. Ég hef lifað
góðu lífi við leik og störf alla ævi og
eignast fjölda vina. Skólasystkin frá
MR 1951 eru mér sérstaklega hjart-
fólgin.
Eftir að ég hætti að vinna hef ég
haft nóg að gera. Ég hef haft gaman
af því að ferðast, hitta vini og fjöl-
skyldu, að spila á píanó og að teikna
og mála,“ en Björn hélt bæði mál-
verkasýningu í Eyrarkoti í Kjós fyr-
ir nokkrum árum og tók þátt í sýn-
ingu á vegum Norræna vatnslita-
félagsins í Norræna húsinu 2017.
„Nú er mitt heimili á Droplaugar-
stöðum og þar bý ég við gott atlæti.
Anna eiginkona mín og Unnur
Steina einkadóttir mín koma dag-
lega. Barnabörnin mín, vinir mínir
og fjölskylda líta einnig inn, mér til
mikillar ánægju. Ég hef notið sann-
kallaðrar hamingju og nýt þess að
umgangast konu mína, dóttur,
Björn Sigurbjörnsson, fyrrverandi forstjóri og ráðuneytisstjóri – 90 ára
Í brúðkaupi Hjónin Björn og Helga ásamt Unni dóttur sinni í brúðkaupi
Unnar og Kristins Hauks Skarphéðinssonar árið 1987.
Forstjóri hjá Sameinuðu þjóðunum
80 ára Björn ásamt eiginkonu sinni, Önnu, á 80 ára afmæli sínu árið 2011.
Vísindamaðurinn Björn ásamt vini
sínum, Mac Fried, hjá IAEA.
Reykjavík Yeshi Dolma Namgyal
fæddist 18. nóvember 2020 kl. 19.43
og á því eins árs afmæli í dag. Hún vó
3.238 g og var 48 cm löng. Foreldrar
hennar eru Lobsang Namgyal og
Kethose Kannaou.
Nýir borgarar
Til hamingju með daginn
Kópasker Snædís Ómarsdóttir fædd-
ist 18. nóvember 2020 kl. 22.07 á
Akureyri. Hún á því eins árs afmæli í
dag. Hún vó 3.522 g og var 53 cm löng.
Foreldrar hennar eru Halldís Gríma
Halldórsdóttir og Ómar Gunnarsson.
www.gilbert.is
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi fólks,svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is