Morgunblaðið - 18.11.2021, Page 55
DÆGRADVÖL 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2021
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
2012
2021
HJÁ OKKUR FÁST
VARAHLUTIR
Í AMERÍSKA BÍLA
st’ al og
Stál og stansar
„EF MÉR FIPAST EITTHVAÐ SKAL ÉG
SPLÆSA TUNGULOKKI Á ÞIG.“
„OG ÉG VIL EKKI FRÉTTA ÞAÐ AÐ ÞÚ SÉRT
AÐ NJÓTA FERÐARINNAR.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar hún sendir þér
reglulega skilaboð.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
PÚKI ER ÞESSI STERKA,
ÞÖGLA TÝPA
RAUNAR ER HANN ÞESSI
MJÚKA, ÞÖGLA TÝPA
HELGA, TRÚIR ÞÚ ÞVÍ AÐ ÞAÐ GERISTÓÚTSKÝRÐIR
HLUTIR Í ÞESSUM HEIMI?
ÉG GERI
ÞAÐ …
EN ÞAÐ AÐ ÞÚ KOMIR HEIM KLUKKAN ÞRJÚ
UM NÓTT VERÐUR EKKI EITT AF ÞVÍ!
ÉG ELSKA ÞIG
ÉG E
LSK
A ÞI
G
ÉG ELSKA
ÞIG
tengdason og börn þeirra auk dætra
Önnu og fjölskyldna þeirra. Ég hef
átt viðburðaríka ævi og leyfi mér að
taka í munn orð föður míns: „Himn-
eskt er að lifa.“
Fjölskylda
Fyrri eiginkona Björns var Helga
Ingibjörg Pálsdóttir, f. 20.5. 1930, d.
3.8. 2004, bókavörður. Dóttir Björns
og Helgu er Unnur Steina, f. 6.1.
1959, læknir. Hún er gift Kristni
Hauki Skarphéðinssyni dýravist-
fræðingi. Börn þeirra eru Björn, f.
1994, saxófónleikari, og Kristín
Helga, f. 1995, BS í þroskaþjálfunar-
fræðum.
Seinni eiginkona Björns er Anna
Pálsdóttir, f. 20.5. 1947, lífeinda-
fræðingur. „Sá frægi draugur Móri
hefur fylgt fjölskyldum okkar Önnu
en hann var sendur til Korts Þor-
varðarsonar, ættföður Kortsættar-
innar. Sagan segir að vonbiðill Ingi-
bjargar konu Korts hafi sent hann
þegar hann varð að láta í minni
pokann fyrir Kort.“ Dætur Önnu
eru: 1) Ólöf Bolladóttir, f. 15.7. 1964,
sérkennari, gift Guðmundi L. Páls-
syni tannlækni. Þau eiga fjögur börn
og sex barnabörn; 2) Ingibjörg
Hanna Pétursdóttir f. 26.4. 1970,
hönnuður, gift Bas Mijnen stærð-
fræðingi. Þau eiga tvær dætur; 3)
Hrafnhildur Pétursdóttir, f. 1.4.
1977, sálfræðingur, gift Thijs Jacobs
BMus-gítarleikara. Þeirra dætur
eru líka tvær.
Alsystkin Björns voru Friðrik,
Ástríður og Áslaug. Hálfsystkin
hans voru Kristín (Ninna), Sólveig
(Lóló), Þorkell (Bóbó), Birna
(Binna), Hanna, Hjalti og Helga.
Móðir þeirra var fyrri eiginkona
Sigurbjörns, Gróa Bjarnadóttir.
Hún lést í spænsku veikinni 1918.
Foreldrar Björns voru hjónin Sig-
urbjörn Þorkelsson, f. 25.8. 1885, d.
4.10. 1981, kaupmaður í Vísi, síðar
forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkur,
og Unnur Haraldsdóttir, f. 29.10.
1904, d. 14.7. 1991, húsfreyja.
Björn
Sigurbjörnsson
Ingibjörg Magnúsdóttir
húsmóðir á Húsum, frá Snjallsteinshöfða í Holtum
Hróbjartur Ólafsson
bóndi og smiður á Húsum í Holtum
Ástríður Hróbjartsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Haraldur Sigurðsson
trésmiður í Vestmannaeyjum
Unnur Haraldsdóttir
húsmóðir á Fjölnisvegi 2
Guðbjörg Sigurðardóttir
ljósmóðir og húsfreyja í Butru,
frá Barkarstöðum í Fljótshlíð
Sigurður Ólafsson
smiður, útskurðarmeistari
og bóndi í Butru í Fljótshlíð
Sesselja Kortsdóttir
húsmóðir í Eyjum, frá Eyrarkoti í Kjós
Gísli Guðmundsson
hreppstjóri í Eyjum í Kjós
Kristín Gísladóttir
húsmóðir á Kiðafelli, síðar í Reykjavík
Þorkell Halldórsson
bóndi á Kiðafelli í Kjós, síðar verkamaður í Reykjavík
Sigríður Sigurðardóttir
húsmóðir í Hjarðarnesi,
frá Klömbrum í Víðidal
Halldór Þorláksson
bóndi í Hjarðarnesi á Kjalarnesi
Ætt Björns Sigurbjörnssonar
Sigurbjörn Þorkelsson
kaupmaður í Vísi, síðar forstjóri
Kirkjugarða Reykjavíkur
Helgi R. Einarsson sendi mér
„smá hugdettur“:
Prinsipp
Svandís er hrifin af sveinum,
en sefur þó aldrei hjá neinum,
því prinsippið er
með piltana hér
að halda þeim öllum hreinum.
Þessi er úr annarri átt.
Uppgjör
Eftir að Birna barði
Varða frá Vinaskarði
brosti’ ún til Barða,
sem það bros lét sig varða,
enda vildi’ ana fyrr en (V) varði.
Magnús Geir Guðmundsson sagði
á þriðjudag: „Nú rauk’ann upp líka
nyrðra!“ og orti:
Nú hraustlega rífur í runnann
og riðar mín öskutunnan.
Líkt og oft áður,
er ófriður bráður.
Andskotans sending að sunnan!
Ég fékk góðan póst: Bessi Vé-
steinsson og Ýtu-Bjarni unnu á dög-
unum við að brjóta ný tún í Skaga-
firði. Gunnar Rögnvaldsson orti:
Spái ég að spilda þessi
spretti vel er hækkar sól.
Þar sem Ýtu-Bjarni og Bessi
báðir unnu með sín tól.
Þórarinn Eldjárn yrkir á Degi ís-
lenskrar tungu, afmælisdegi Jón-
asar Hallgrímssonar:
Örkum nú þrátt fyrir ágjöf og fjúk
áfram þennan veg.
Tungan er auðlind sem eflist við brúk
endurnýjanleg.
Gunnar Hólm Hjálmarsson orti á
Boðnarmiði „í tilefni dagsins“:
Dugar jafnt í dagsins önn
sem draumi skáldsins spuna.
Sjaldan vefst þeim tunga um tönn
sem tala íslenskuna.
Og Magnús Halldórsson yrkir
„Bullvísa í tilefni dagsins“:
Lafhræddur Sæfinnur sigldi,
samstundis henni frá.
Þegar að ögldin sig ygldi,
öldujónum hjá.
Magnús Geir Guðmundsson kveð-
ur og kallar „Dag íslenskrar tungu
2021“:
Meðan áfram dreg loft í lungu,
á lífsskeiði ennþá svo ungu.
Vil ég andlega efnast
og auðmjúkur nefnast.
Ástmögur íslenskrar tungu!
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Varði eða Barði
og fleira gott