Morgunblaðið - 18.11.2021, Síða 59
MENNING 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2021
E
rfitt er að ímynda sér að
hin ljóshærða og pena
Tove Jansson hafi haft
áhrif á samfélagslega
stöðu ungra hjóna í Vesturbænum.
„Hversu marga múmínbolla eigið
þið?“ Ég tek óneitanlega þátt í þessu
enda ligg ég að svo stöddu í sófanum
heima og sötra mitt volga te úr uppá-
haldsmúmínbollanum mínum sem
allt í einu hefur hlotið nýja merkingu.
Bollinn er ekki lengur einungis óper-
sónuleg og dýr jólagjöf frá ættingja
heldur sönnun þess að Tove Jansson
var til og merki þess hversu frægar
hennar litlu fígúrur eru.
Kvikmyndin Tove fjallar um líf
Tove Jansson (1914-2001), höfundar
sagnanna um hina ástsælu múmín-
álfa. Leikstjórinn leggur sérstaklega
áherslu á tvíkynhneigð sambönd
Tove (Alma Pöysti) og ferðalag
hennar sem listamaður en lengi vel
leit hún einungis á múmínálfana sem
hliðarverkefni sem truflaði hana við
að skapa „alvöru“ list líkt og faðir
hennar gerði.
Myndin er tekin upp á filmu og er
þannig ætlað að vekja upp tilfinningu
fyrir hinu gamla. Áferðin er aftur á
móti sérstök, myndin er mjög gróf,
það er nánast hægt að telja frekn-
urnar á elskhuga hennar Vivica
Bandler (Krista Kosonen) og litirnir
verða þar af leiðandi mjög ýktir.
Myndin er aðallega tekin upp með
handheldri tökuvél og þeim senum
þar sem notast er við þrífót er ein-
ungis ætlað að sýna rýmið. Atriðin
verða því huglæg og áhorfendur eiga
auðveldara með að samsama sig við
aðalpersónuna, Tove, sem Alma
Pöysti leikur listilega.
Litirnir spila stórt hlutverk í
myndinni. Heitir litir umkringja
Tove þegar henni líður vel, eins og
heima hjá sér eða með vinum sínum,
en kaldir litir umkringja hana þegar
hún er í umhverfi þar sem hún er
óörugg eins og t.d. á listasýningu
með föður hennar sem er mjög gagn-
rýninn á list hennar. Mikilvægi og
merking litanna er hvað skýrast í
ástarsambandi hennar við Vivicu.
Einkennislitur Tove er rauður en
Vivicu grænn og er þessu stillt upp
mjög skýrt í myndinni. Heimili Tove
er rautt og hlýtt en Vivicu grænt og
kalt. Sængurfötin og klæðnaður
þeirra skarta einnig þessum tveimur
litum. Grænn og rauður eru and-
stæðir litir og ekki skrýtið að þeir
voru valdir fyrir þessar tvær mjög
ólíku persónur. Tove er lágvaxin,
ljóshærð og krúttleg kona á meðan
Vivica er dökkhærð, hávaxin og mjög
ráðandi í samskiptum. Það er aug-
ljóst að hér er ekki einungis um til-
viljun að ræða. Rauður litur táknar
einnig oft kærleika og er ætlað að ýta
undir sterkar tilfinningar eins og ást.
Rauður er þar af leiðandi viðeigandi
litur fyrir Tove sem er full af kærleik
og drifin af ást. Tove skrifar til dæm-
is leikrit og í kjölfarið bók af því ást-
kona hennar Vivica þrýstir á hana að
gera það. Hún byrjar einnig að
teikna dálka í blöðin af því fyrrum
ástmaður hennar hvetur hana til
þess. Hér er ekki átt við að Tove geti
ekki tekið eigin ákvarðanir heldur að
ástin geri hana óhrædda og er það
einmitt þannig sem hún lýsir einni af
fígúrum sínum. Vivica er vel ættuð
og mjög efnuð og grænn því viðeig-
andi litur fyrir hana en grænn hefur
gjarnan verið í miklum metum hjá
efri stéttum í gegnum tíðina og minn-
ir á auð. Litunum fylgir þó einnig
neikvæð merking en grænn getur
þýtt svik, öfund eða græðgi og rauð-
um litum oft ætlað að vara við ein-
hverju slæmu sem er ekki síður við-
eigandi í sambandi þeirra Tove og
Vivicu, sem byggist ekki á endur-
goldinni ást heldur svikum. Vivica er
gráðug þegar kemur að ást, hún leit-
ar að henni alls staðar og ber ekki
sömu tilfinningar til Tove. Tove líkir
henni við dreka sem réðst á hana og
tók hana en segir svo að drekar fest-
ist ekki við manneskjur. Þessi græni
dreki sést síðan í sögum Tove líkt og
margar persónur í hennar lífi.
Síðar í sögunni og lífi Tove hittast
þær óvænt í París og þá hafa þær
skipt um lit. Tove er græn frá hvirfli
til ilja enda hefur hún hlotið mikla
velgengni sem listamaður og fjár-
hagslegan auð. Þessari Parísarnótt
eyða þær saman og í þetta skiptið er
það Tove sem yfirgefur Vivicu sem
biður hana að skilja sig ekki eftir.
Leikstjórinn, Zaida Bergroth, nýt-
ir sér kvikmyndaformið til fullnustu
til þess að segja sögu þessarar
merku konu og notar ýmsar leiðir til
þess að miðla skilaboðum óbeint til
áhorfenda. Í einu atriðinu t.a.m. opn-
ast glugginn heima hjá Tove og blæs
öllu til en Tove tekur vindinum með
hlýjum örmum og ró. Þetta atriði
stendur upp úr af því það er ekki í
takt við myndina sem er að mestu
leyti mjög raunveruleg en þetta er
gert viljandi. Á þessum tímapunkti
samþykkir Tove sig sjálfa loksins
sem listamann og að múmínálfarnir
séu hluti af henni eins og hún hafði
alltaf sagt áður um málverkin sín,
„þetta er ég“. Vindurinn blæs bæði
teikningunum hennar burt og ein-
hverju innra með henni, hún fyllist
innblæstri.
Lokaatriðið er einnig opið til túlk-
unar en þar tekur hún á móti Tuu-
likki (Joanna Haartti), sem átti eftir
að verða lífsförunautur hennar. Tove
stendur við hliðina á málverki sem
hún er enn að vinna í en það málverk
nefnir hún „Byrjandann“ og getur
átt að þýða að áhorfendur hafi ein-
ungis fengið að skyggnast inn í brot
af lífi hennar eða að kvikmyndin segi
ekki alla söguna. Tove er rétt að
byrja!
Græn í París
Merk „Leikstjórinn, Zaida Bergroth, nýtir sér kvikmyndaformið til fullnustu til þess að segja sögu þessarar merku
konu og notar ýmsar leiðir til þess miðla skilaboðum óbeint til áhorfenda,“ segir rýnir meðal annars um Tove.
Bíó Paradís
Tove bbbbm
Leikstjórn: Zaida Bergroth.
Handrit: Eeva Putro. Aðalleikarar: Alma
Pöysti, Krista Kosonen, Shanti Roney.
Finnland, Svíþjóð, 2020. 115 mín.
JÓNA GRÉTA
HILMARSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Glæpasaga
Ragnars Jón-
assonar, Hvíti-
dauði, er í þriðja
sæti þýska bók-
sölulistans yfir
mest seldu kilj-
urnar í landinu
síðastliðna viku.
Bókin heitir
Frost í þýskri
þýðingu og er gefin þar út af for-
laginu Penguin Random House,
undirforlagi þess þar í landi. Þetta
er níunda bók Ragnars sem gefin er
út á þýsku og hefur höfundurinn
notið mikilla vinsælda í Þýskalandi
í fyrra og í ár.
Bækur Ragnars, þrjár talsins,
seldust í um hálfri milljón eintaka í
Þýskalandi í fyrra sem þykir einkar
góður árangur. Ragnar segist í
samtali við Morgunblaðið hafa farið
um landið þvert og endilangt í síð-
ustu viku og bæði lesið upp úr bók-
inni, Frost, og setið fyrir svörum.
Þessir viðburðir voru mjög vel sótt-
ir, fullt út úr dyrum, að hans sögn.
Ragnar Jónasson
Frost í þriðja sæti
í Þýskalandi
Ein af síðustu
sjálfmyndunum
sem mexíkóski
listamaðurinn
Frida Kahlo
(1907-1954) mál-
aði var slegin
hæstbjóðanda á
uppboði Sothe-
by’s fyrir lang-
hæsta verð sem
greitt hefur ver-
ið fyrir myndverk eftir listamann
frá Rómönsku-Ameríku. Argen-
tínskur safnari, sem hefur opnað
safn utan um verk í sinni eigu,
greiddi um 34,9 milljónir dala fyrir
málverkið, 4,8 milljarða króna.
Hæsta verð sem áður hafði verið
greitt fyrir myndverk frá Róm-
önsku-Ameríku var 9,7 milljónir
dala, um 1,3 milljarðar kr., en það
var fyrir verk eftir Diego Rivera
sem um áratuga skeið var sambýlis-
maður Kahlo. Hið dýra málverk
hennar, „Diego og ég“, sýnir hana
með mynd af Diego á enninu.
Málverkið dýra eftir
Fridu Kahlo.
Metverð fyrir verk
eftir Fridu Kahlo
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
NÝJASTA MARVEL STÓRMYNDIN
ER KOMIN Í BÍÓ
GEMMA
CHAN
RICHARD
MADDEN
KUMAIL
NANJIANI
LIA
McHUGH
BRIAN TYREE
HENRY
LAUREN
RIDLOFF
BARRY
KEOGHAN
DON
LEE
WITH KIT
HARINGTON
WITH SALMA
HAYEK
AND ANGELINA
JOLIE
O B S E R V E R E N T E R TA I N M E N T