Morgunblaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 1
Grunnskólabörn í Hveragerði nutu veðursins á
fullveldisdeginum í gær. Röð myndaðist við
Bungubrekku þar sem þyngdaraflið nýttist þeim
til að renna sér niður frosna jörðina. Líða fer að
jólum og um leið byrja börnin mörg hver að
hlakka til hátíðarinnar. Þá er ekki úr vegi að
skella jólasveinahúfu á kollinn, þótt sveinarnir
sjálfir séu ekki enn komnir til byggða.
Hætt er við að fönn taki að bráðna í dag, en bú-
ist er við skúrum eða éljum eftir hádegi, á sama
tíma og stytta mun upp á Norðausturlandi. Hiti
mun vera um og yfir frostmarki.
Morgunblaðið/Eggert
Kátir krakkar renndu sér niður Bungubrekku
F I M M T U D A G U R 2. D E S E M B E R 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 283. tölublað . 109. árgangur .
UPPSKRIFTIR
GERÐAR FYRIR
GRÆNKERA HOLLENSK TYRKJARÁN
SÖNGLEIKJA-
SKÁLDSINS
MINNST
GJÖRBREYTT MYND AF ATBURÐUNUM 28 STEPHEN SONDHEIM 64HÁTÍÐARMATUR 8 SÍÐUR
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Starfsfólki hjá hinu opinbera hefur
fjölgað um níu þúsund frá september
2017 en starfsmönnum á einkamark-
aði fækkað um átta þúsund. Hefur
hið opinbera því staðið undir fjölgun
starfa síðustu ár en störfum í einka-
geiranum fækkaði sem kunnugt er í
kórónuveirukreppunni.
Samtök atvinnulífsins vekja at-
hygli á þessari þróun en niðurstaðan
grundvallast á úrvinnslu Hagstof-
unnar á skattskrám. Með ríkisstarfs-
mönnum er átt við starfsfólk í opin-
berri stjórnsýslu, fræðslustarfsemi
og í heilbrigðis- og félagsþjónustu.
„Þessi öfugþróun þarfnast skýr-
inga frá hinu opinbera,“ segir Hall-
dór Benjamín Þorbergsson, fram-
kvæmdastjóri SA.
Kostnaðurinn mun meiri
Fjallað var um launaþróun hjá
ríkisstarfsmönnum í Viðskipta-
Mogganum í gær. Þar kom fram að
heildarlaun ríkisstarfsmanna nálgist
að vera að meðaltali milljón. Jafn-
framt að hver ráðning kosti að jafn-
aði á aðra milljón, að meðtöldum
launatengdum gjöldum.
Halldór Benjamín segir þetta van-
mat. Að teknu tilliti til launatengdra
gjalda og annars kostnaðar megi
reikna 55-60% ofan á laun fyrir
virkan vinnutíma.
Samkvæmt því kostar hver ráðn-
ing ríkið hálfa aðra milljón króna.
„Mælingar Hagstofunnar hafa
staðfest að útfærsla Lífskjarasamn-
ingsins hjá hinu opinbera hafi leitt til
meiri launahækkana en sem nemur
launabreytingum á almennum
vinnumarkaði,“ segir Halldór en
þróunin sé uppskrift að launaskriði.
Fjölgað um níu þúsund
MHækkanir uppskrift … »38
- Opinberum starfsmönnum hefur fjölgað frá árinu 2017
- SA telur kostnað við hverja ráðningu vel á aðra milljón
Landnáma er
öðrum þræði
hagsaga og felur í
sér mikilvægar
heimildir um
fólkið, sem settist
að á Íslandi í upp-
hafi. Það er mikil
og merk fjöl-
skyldusaga, ekki
síst Ingólfs Arn-
arsonar; enda var
hér ekkert ríkisvald og völd og áhrif
urðu til í kringum fjölskyldurnar,
sem hér helguðu sér land.
Þetta er meðal þess, sem fram
kemur í viðtali við dr. Ásgeir Jóns-
son seðlabankastjóra í Dagmálum í
dag, netstreymi Morgunblaðsins,
sem opið er öllum áskrifendum. Eft-
ir hann er nýútkomin bókin Eyjan
hans Ingólfs, þar sem sú saga er
rakin, en auk Landnámu Ara fróða
Þorgilssonar er stuðst við sæg ann-
ara heimilda, sem dr. Ásgeir hefur
viðað að sér. Hann segir heimilda-
gildi Landnámu mikið, þótt sumt sé
fært í stílinn. Útdráttur úr viðtalinu
er í Morgunblaðinu í dag. »10
Ingólfur
skapaði
Ísland
- Ásgeir Jónsson
í viðtali Dagmála
Ásgeir Jónsson
Bæonne-skinka
979KR/KG
ÁÐUR: 1.999 KR/KG
Grísapurusteik
1.499KR/KG
ÁÐUR: 2.499 KR/KG
Lúxushryggur
Rauð epli
284KR/KG
ÁÐUR: 379 KR/KG
VERÐ-
SPRENGJA!
VERÐ-
SPRENGJA!
51%
AFSLÁTTUR
40%
AFSLÁTTUR
25%
AFSLÁTTUR
'+)&($ !+)%- #,*", DESEMBER
FRÁBÆR TILBOÐ
Í NÆSTU NETTÓ
22
dagar til jóla
Búðu til jólakort á
jolamjolk.is
_ Grunur leikur á um að fyrsta til-
felli nýs afbrigðis kórónuveirunnar,
Ómíkron, sé komið upp hér á landi.
Það hefur þó ekki fengist staðfest
með óyggjandi hætti.
Upplýsingafulltrúi almanna-
varna tjáði Morgunblaðinu í gær-
kvöldi að unnið væri að því að rað-
greina sýnið sem um er að ræða.
Ekki fengust upplýsingar um hvar
sýnið hefði verið tekið eða þá af
hvaða tilefni.
Hversu vel bóluefni duga gegn
Ómíkron-afbrigðinu er enn á huldu.
Búast má við niðurstöðum rann-
sókna um það á næstu dögum.
Afbrigðið var fyrst uppgötvað í
Suður-Afríku en þarf þó ekki endi-
lega að hafa orðið til þar. Suðurafr-
ískir læknar hafa sagt að svo virðist
sem veikindi af völdum afbrigðisins
séu vægari en af öðrum afbrigðum.
Grunur um Ómíkron-
tilfelli á Íslandi