Morgunblaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 22
Atvinna 22 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2021 ALVÖRU VERKFÆRI 190 EITTRAFHLÖÐUKERFI YFIR VERKFÆRI VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • TRYGGVABRAUT 24, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is vfs.is LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Í söngleiknum um Bubba, Níu líf, sem sýndur er á Stóra sviði Borgar- leikhússins, hefur innkoma trúba- dors á miðja sýningu vakið athygli og menn velt fyrir sér hvort um leik- ara væri að ræða eða raunverulega íslenska trúbadora. Þegar blaða- maður fór að kanna málið kom í ljós að Borgarleikhúsið hafði auglýst eft- ir fólki á öllum aldri til þess að taka þátt í sýningunni. Eina skilyrðið var að kunna að syngja lagið Stál og hnífur við eigin gítarundirleik. Haldnar voru prufur og þangað mættu um hundrað manns. Að lok- um urðu tíu manns fyrir valinu sem skiptast á um að stíga á svið. Áhorf- endur vita því aldrei hvað bíður þeirra; hvort á svið kemur ellefu ára stúlka að stíga sín fyrstu skref eða fimmtugur reynslubolti. Í vor fjölgar að öllum líkindum í hópi trúbadora og ef til vill gæti einhverjum þekkt- um andlitum brugðið fyrir en leik- húsið vill ekki gefa of mikið upp um það. Það verður að fá að koma áhorf- endum á óvart. Barnið í herbergi baksviðs Þórdís Imsland er ein þeirra sem urðu fyrir valinu. Hún eignaðist sitt fyrsta barn fyrir fjórum vikum og hefur því bæði stigið á svið langt gengin með barnið og örfáum vikum eftir barnsburð. Barnið fær að halda til í herbergi baksviðs ásamt föður sínum á meðan móðirin tekur lagið. Þórdís segir að sér þyki Bubbi frábær tónlistarmaður og textasmið- ur. „Það er líka heiður að fá að vera hluti af svona flottu teymi.“ Allir eru kynntir sem trúbadorar og Þórdís segist kannski ekki vera mikill trúbador í raun og veru heldur sé hún söngkona. Það sama á við um Sylvíu Rún Guðnýjardóttur frá Grundarfirði sem einnig stígur á svið. Þær lærðu báðar að spila Stál og hnífur fyrir prufurnar. Sylvía hef- ur þó talsverða reynslu af því að syngja lög Bubba, sérstaklega ást- arlögin. „Ég hefði ekki flokkað mig sem Bubba-aðdáanda fyrir þetta en eftir að hafa tekið þátt í sýningunni, kynnst lögunum og sögunni hans er ég orðin aðdáandi. Að fá þetta tæki- færi er draumi líkast.“ Bubbi hafði mikil áhrif Ólíkt söngkonunum tveimur hefur Bjarni Ómar Haraldsson mikla reynslu af því að starfa sem trúba- dor og af því að flytja lög Bubba. Hann fylgdist með Utangarðs- mönnum frá byrjun, enda frá Rauf- arhöfn eins og tveir liðsmenn hljóm- sveitarinnar, og fór að tileinka sér tónlist Bubba í kjölfarið. „Við getum sagt að hann sé áhrifavaldur, hann hafði mikil áhrif á mína tónlist.“ Hann kynntist Bubba ofurlítið persónulega þegar hann var að stíga sín fyrstu skref 13 eða 14 ára og minnist þess hvað Bubbi tók honum opnum örmum. Amma Bjarna var mikill aðdáandi Bubba og var keyrð með sjúkrabíl á tónleika hjá honum þegar það var eina leiðin til þess að flytja hana milli staða. Þegar hún hætti að geta gert það lagði Bubbi leið sína til hennar og spilaði fyrir hana nokkur lög. „Það er þessi hlið á Bubba sem hefur haft hvað mest áhrif á mig, hann er miklu mýkri maður en sum- ir halda.“ Tækifæri sem er draumi líkast - Fjölbreyttur hópur söngvara skiptir með sér hlutverki trúbadors í Níu lífum Með gítarinn Þórdís Imsland í hljóðprufu á Stóra sviði Borgarleikhússins fyrir sýningu á söngleiknum Níu líf. Söngkona Sylvía Rún er ein þeirra sem stíga á svið. Trúbador Bjarni Ómar þekkir lög Bubba vel.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.