Morgunblaðið - 02.12.2021, Side 20

Morgunblaðið - 02.12.2021, Side 20
SVIÐSLJÓS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Þau tíðindi bárust landsmönnum í gær að veitingastaðnum Eldsmiðj- unni yrði lokað eftir áramót. Eld- smiðjan hefur verið starfrækt í 35 ár, frá 1986, og olli straumhvörfum í skyndibitamenningu Reykjavíkur á sínum tíma. Ekki eru nema um fjórir áratugir síðan Íslendingar kynntust pítsu- menningu af einhverju viti. Frosnar pítsur fengust í búðum um miðjan áttunda áratuginn og í kjölfarið setti veitingastaðurinn Halti haninn píts- ur á matseðilinn. Það var þó ekki fyrr en veitingastaðurinn Hornið var opnaður árið 1979 sem alvöru- línur voru lagðar í þessum fræðum hér á landi. Árið eftir var svo Pizza- húsið opnað á Grensásvegi en það mun hafa verið fyrsti skyndibita- staðurinn sem sérhæfði sig í pítsum. Alger sprengja varð svo með til- komu Eldsmiðjunnar árið 1986 og í kjölfarið var fjöldi pítsustaða opn- aður. Mikið var fjallað um þennan nýja veitingastað við Bragagötu í fjölmiðlum og þar kom fram að píts- urnar væru bakaðar við opinn eld í ítölskum pítsuofni „og afgreiddar í handhægum umbúðum sem auð- velda viðskiptavinum að taka þær með sér heim“. Þá þótti vissara að taka það fram að á Eldsmiðjunni væru eingöngu seldar pítsur sem búnar væru til á staðnum og að allt hráefni væri ferskt, ekki væri not- aður dósamatur í álegg. Uppgangur og hrun „Hægt er að fá 10 tegundir af pítsum í Eldsmiðjunni og síðan er einnig boðið upp á tíu tegundir af áleggi. Svokölluð grunnpítsa kostar 235 kr. og síðan er hægt að bæta áleggi á hana sem kostar frá 15-58 krónur. Ódýrast er spælegg en ekki mun vera algengt að fólk panti sér pítsu með spæleggi. Það er einnig boðið upp á þistilhjörtu og capers ofan á pítsurnar sem mun ekki vera algengt,“ sagði í umfjöllun DV í september 1986. Þar var þess jafn- framt getið að þjónusta Eldsmiðj- unnar miðaðist að mestu við að fólk tæki pítsurnar með sér heim og því hefðu sérstakar umbúðir verið hannaðar sem gerðu það að verkum að pítsurnar „gætu andað“. Eins og áður sagði ýttu vinsældir Eldsmiðjunnar af stað flóðbylgju og nýir pítsustaðir spruttu víða upp. Í umfjöllun í Morgunblaðinu í júlí árið 1988 var talað um að svo virtist sem pítsufaraldur geisaði á Íslandi. „Veitingastaðir sem hafa yfir pizzu- ofnum að ráða eru nú orðnir nærri tuttugu í Reykjavík og fjölgar enn,“ sagði í umfjöllun blaðsins. Meðal pítsustaða sem tóku þátt í „faraldr- inum“ voru Biggabar í Tryggva- götu, Duus-hús í Fischersundi, El Sombrero við Laugaveg, Marinós pizza á Njálsgötu, Nes-pizza við Austurströnd á Seltjarnarnesi, Sel- bitinn á Eiðistorgi og Videomeist- arinn við Seljabraut. Af þeim stöð- um sem þarna voru upp taldir eru aðeins þrír enn í rekstri auk Eld- smiðjunnar sem brátt kveður. Það eru Hornið, Ítalía og Pizza Hut. Ekki leist öllum á blikuna við þessar markaðsaðstæður árið 1988. „Mér líst ekki vel á það sem ég sé gerast á markaðnum hér í dag, það minnir mig um of á uppganginn og hrunið á myndbandaleigumark- aðnum fyrir nokkrum árum,“ sagði Elías Snorrason, eigandi Eldsmiðj- unnar, við Morgunblaðið af þessu tilefni. Hann var þó sáttur við við- tökurnar sem Eldsmiðjan hafði fengið og sagði að salan hefði fljót- lega sprengt allar hans fjárhags- áætlanir eftir að staðurinn var opn- aður. Svo góðar voru viðtökurnar að þegar Kringlan var opnuð í ágúst 1987 var Eldsmiðjan einn fimm mat- sölustaða á veitingatorgi hennar. Þá var heimsendingarþjónusta opnuð hinum megin við Bragagötuna. Kaup á pítsum voru orðin hluti af breyttum lífsstíl Íslendinga. „Eitt af því sem er „in“ núna er að kaupa tilbúinn kvöldmat, einkum um helg- ar. Þá er ekki sama hvar verslað er. Allir sem fylgjast eitthvað með bæj- arlífinu kaupa að sjálfsögðu pizzu í Eldsmiðjunni. Og vita hvar Eld- smiðjan er,“ sagði til að mynda í Helgarpóstinum í september 1987. Ætluðu að opna tíu staði Tímamót urðu í rekstri Eldsmiðj- unnar árið 2007 þegar veitingarisinn FoodCo keypti þennan litla en vin- sæla veitingastað sem vart annaði eftirspurn í litla húsnæðinu við Bragagötu. FoodCo boðaði stórsókn og tilkynnti að allt að tíu nýir Eld- smiðjustaðir yrðu opnaðir á höfuð- borgarsvæðinu. Þau markmið náð- ust aldrei en þegar mest lét voru fjórir stórir staðir í rekstri auk lítils staðar á bensínstöð N1 við Ártúns- höfða. Því útibúi var lokað vorið 2019 eftir þriggja ára rekstur. Árið 2020 var Eldsmiðjunni á Dalvegi í Kópavogi lokað og fljótlega í kjöl- farið var Eldsmiðjunni á Laugavegi lokað. Þá tilkynntu Gleðipinnar, sem urðu til með sameiningu Food- Co og veitingastaða í eigu Jóhann- esar Ásbjörnssonar og fleiri, að staðnum á Bragagötu yrði lokað tímabundið og því borið við að fækk- un ferðamanna hefði sett strik í reikninginn við reksturinn. Upprunalegi staðurinn við Braga- götu var aldrei opnaður aftur og því stóð Eldsmiðjan við Suðurlands- braut ein eftir. Stefnt er að því að baka þar ofan í áhugasama fram á næsta ár þegar annar pítsustaður verður opnaður í húsnæðinu. Hrinti af stað faraldri fyrir 35 árum - Eldsmiðjunni verður brátt lokað eftir 35 ára starfsemi - Brautryðjandi í kaupum Íslendinga á til- búnum kvöldmat - Enginn dósamatur í álegg og pítsurnar „gátu andað“ - Aukin umsvif misráðin Morgunblaðið/Unnur Karen Búið spil Eldsmiðjan við Suðurlandsbraut verður opin fram á nýtt ár. Nýr staður tekur þar við næsta vor. Frumkvöðull Morgunblaðið fjallaði um opnun Eldsmiðjunnar í ágúst 1986.Heimsent Alvörubíll til verksins.Upphaf Eldsmiðjan við Bragagötu. 20 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2021 malbikstodin.is | 864 1220 | Flugumýri 26 | Mosfellsbær VIÐ ERUMSÉRFRÆÐINGAR Í MALBIKUN Malbikunarframkvæmdir eru okkar sérsvið. Við tökum að okkur malbikun á bílastæðum, stígum, götum, vegum og hvar sem þarf að malbika. Við tryggjum fyrirtaks þjónustu sem svarar ýtrustu gæða- og öryggiskröfum. Hafðu samband. withMemory Foam KRINGLAN - SKÓR.IS - SKECHERS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.