Morgunblaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 33
FRÉTTIR 33Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2021 Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 Opið alla daga til jóla Frábært úrval af fallegum sloppum í Jólapakkann Vefverslun selena.is Frí heimsending um land allt inn. Þessir minni hópar eru líka duglegir í snafsinum,“ segir Jakob og hlær við. Framleiða eigin snafsa Þeim sem vilja koma sér í góðan jólagír er ekki í kot vísað hjá Jak- obi og Guðmundi. Á aðventuseðli Matkrárinnar má finna jólasmá- rétti, smurbrauð og heita rétti auk eftirrétta. Vinsælast er þó að panta sér jóladiskinn svokallaða. „Á hon- um er „allt upp á einn disk“ eins og segir í jólakvæðinu, fimm réttir og eftirréttur,“ segir Jakob sem byrj- aði að reiða fram svokallaðan jóla- platta á Jómfrúnni árið 1996. „Þetta er þekkt hugtak í veitinga- mennskunni í dag en það kemur frá stríðsárunum í Danmörku. Þar var reynt að sporna við því að yfirstétt- in gæti verið í allsnægtum meðan lýðurinn þjáðist. Það átti að gæta hófs og því mátti bara vera einn skammtur á mann. Þá bjuggu þeir einfaldlega til platta með nokkrum réttum á.“ Rétt eins og á Jómfrúnni mæla veitingamennirnir með því að fólk fái sér öl og snafs með matnum. Álaborgar jólasnafsinn nýtur vin- sælda að sögn Jakobs en vertarnir bjóða einnig upp á eigin fram- leiðslu. „Við gerum okkar eigin snafsa og notum til þess krydd- jurtir úr stórum garði sem við er- um með. Við erum með mjög góðan jólasnafs.“ Athvarf fyrir borgarbúa Jakob segir að heimamenn í Hveragerði og fólk af Suðurlandi öllu sæki staðinn. Stór hluti gest- anna er þó fólk af höfuðborg- arsvæðinu sem kemur þangað til að gera sér glaðan dag. „Hveragerði er orðið eins konar athvarf fyrir Reykvíkinga og við njótum góðs af því. Þeir koma gjarnan í stuttar heimsóknir og gista á hótelunum hér. Það er svo margt í boði hérna; göngustígar, Reykjadalur og sund- laugin fræga.“ Dönsk jóla- stemning í Hveragerði - Reykvíkingar sækja Matkrána heim Morgunblaðið/Eggert Skál Veitingamennirnir Guðmundur Guðjónsson og Jakob Jakobsson skála í eigin framleiðslu, jólasnafsinum góða. Vinsælt Jóladiskur Matkrárinnar er vinsæll, fimm réttir auk eftirréttar. Þar er meðal annars að finna síld, reykta önd, jólapaté hússins og purusteik. VIÐTAL Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Matkráin er dekurverkefni okkar hér. Við höfum lagt ástríðu í stað- inn og það er gaman að taka á móti fólki í jólastemningu,“ segir Jakob Jakobsson, veitingamaður á Mat- kránni í Hveragerði. Jakob og maður hans, Guð- mundur Guðjónsson, ráku sem kunnugt er Jómfrúna í Reykjavík um langt árabil. Eftir að þeir seldu staðinn fyrir nokkrum árum tóku þeir sér frí frá störfum en sneru svo endurnærðir aftur og opnuðu Matkrána árið 2019. Staðurinn hef- ur notið mikilla vinsælda en sam- komutakmarkanir hafa vitaskuld sett strik í reikninginn eins og hjá öðrum stöðum. Margir vilja gera vel við sig í aðdraganda jóla og kíkja því við á Matkránni. „Það hrúgast inn pantanir frá hjónum og minni hópum en stærri hópar og fjölskyldur hafa á móti af- pantað. Jólamánuðurinn markast því eitthvað af þessu ástandi en okkur hefur gengið vel að fylla sal-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.