Morgunblaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2021
577-1515 • Ve
veVe
Traust og fa
100% Merino
ullarnærföt
fyrir dömur og herra
Stærðir: S–XXL
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | run@run.is | www.runehf.is
OLYMPIA
Sölustaðir:
Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar • Verslunin Bjarg, Akranesi
Herrahúsið, Ármúla 27 • JMJ, Akureyri • Lífland, Hvolsvelli og Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði • Efnalaug Vopnafjarðar
Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki • Verslun Grétars Þórarinssonar, Vestmannaeyjum • Borgarsport, Borgarnesi
Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga • Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Þernan, Dalvík • Siglósport, Siglufirði
Bókaverslun Breiðarfjarðar, Stykkishólmi • Vaskur, Egilsstöðum • Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi • run.is
Tilvalin og
nytsöm jólagjöf
Þinn dagur, þín áskorun
Tillaga um að fella niður gjöld fyr-
ir svonefnd aukaverk presta var ekki
afgreidd á kirkjuþingi í síðustu viku
eins og búist hafði verið við, en verð-
ur tekin til umfjöllunar á kirkjuþingi
í mars á næsta ári. Pétur Markan
biskupsritari segist ekki vita annað
en að flutningsmenn tillögunnar,
fjórir kirkjuþingsmenn, séu sáttir
við málsmeðferðina.
Prestar eru á föstum launum hjá
þjóðkirkjunni en innheimta þóknun
samkvæmt sérstakri gjaldskrá
kirkjuþings fyrir aukaverkin sem
einkum eru skírn, ferming, hjóna-
vígsla og jarðarför. Lára V. Júlíus-
dóttir hæstaréttarlögmaður hefur í
álitsgerð fyrir Prestafélagið látið í
ljós þá skoðun að gjaldskráin kunni
að teljast samkeppnishamlandi í
skilningi samkeppnislaga vegna
breyttrar stöðu presta sem ekki eru
lengur opinberir starfsmenn,
Flutningsmenn tillögunnar vildu
að gjaldtaka fyrir aukaverk yrði með
öllu felld niður frá ársbyrjun 2024.
Skyldi starfskostnaðarnefnd kirkju-
þings koma með tillögur í málinu áð-
ur og kanna m.a. hvort afnema
mætti gjaldtökuna í áföngum þannig
að prestsþjónusta fyrir skírnir og
fermingarfræðslu yrði gjaldfrjáls
sem fyrst.
gudmundur@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kirkjuþing Ekki tókst að ljúka umræðum um aukaverk presta.
Afgreiddi ekki til-
lögu um aukaverk
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Tekin hefur verið fyrsta skóflu-
stunga að þjónustumiðstöð við
Hengifoss í Fljótsdal. Húsið mun
rísa á næsta ári. Jafnframt er verið
að undirbúa gerð tveggja brúa og
göngustígs við utanvert gilið sem
mun gefa færi á hringleið.
Hengifoss er vinsæll viðkomu-
staður ferðafólks enda fossinn fal-
legur sem og gljúfrið sem hann fell-
ur í. Um 90 þúsund gestir lögðu leið
sína þangað áður en kórónuveiruf-
araldurinn dró úr aðsókn.
Göngustígur liggur upp með
innanverðu gljúfrinu og upp að foss-
inum. Fljótsdalshreppur efndi til
hönnunarkeppni fyrir nokkrum ár-
um um aðstöðubyggingu ásamt
lausnum á hvíldar- og útsýnisstöð-
um, hliðum og merkingum. Arkitek-
arnir Erik Rönnig Andersen og Sig-
ríður Anna Eggertsdóttir sigruðu.
Unnið hefur verið eftir vinnings-
tillögunni við uppbyggingu göngu-
leiðarinnar. Nú hefur verið gengið
frá lóðarsamningi við landeigendur
á Melum vegna uppbyggingar þjón-
ustumiðstöðvar og bílastæða. Jarð-
vegsframkvæmdir hófust nýlega.
Helgi Gíslason sveitarstjóri segir
að smíði hússins verði boðin út í des-
ember og væntanlega verði ekki
hægt að hefja framkvæmdir fyrr en
í byrjun nýs árs. Vonast sé til þess
að það taki ekki nema eitt ár að
byggja húsið en nákæmari tíma-
setningar ráðist af niðurstöðu út-
boðs.
Aðstaða fyrir landvörð
Í þjónustumiðstöðinni verða
snyrtingar og aðstaða fyrir land-
vörð. Reiknað er með fræðslu í sal-
arkynnum þjónustumiðstöðvarinnar
en einnig ferðum upp að fossinum.
Þá er gert ráð fyrir aðstöðu fyrir
minjagripasölu og hugsanlega ein-
hverjum veitingum. Annars segir
Helgi að þjónustumiðstöðin verði
inngangurinn að sveitarfélaginu og
vonast hann til að þar verði hægt að
veita ferðafólki upplýsingar um
þjónustu í dalnum.
Fljótsdalshreppur fékk 55 millj-
ónir króna úr framkvæmdasjóði
ferðamannastaða og kemur sjálfur
með mótframlag. Sjóðurinn veitti
einnig í ár átta milljónir króna í
byggingu göngubrúa til að tengja
saman gönguleiðirnar meðfram
gilinu og að auki tvær milljónir í við-
hald göngustíga.
Þjónustumiðstöð byggð við Hengifoss
Tölvumynd/ZIS AS
Þjónusta Byggt verður eftir verðlaunatillögu Eriks Rönnings Andersen og Sigríðar Önnu Eggertsdóttir arkitekta.
- Gert ráð fyrir að byggingarframkvæmdir hefjist í upphafi nýs árs - Verður hlið að sveitarfélaginu
- Jafnframt er unnið að stækkun útivistarsvæðisins með nýrri gönguleið við utanvert Hengifossárgil