Morgunblaðið - 02.12.2021, Side 24

Morgunblaðið - 02.12.2021, Side 24
24 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2021 Bílamerkingar Vel merktur bíll er besta auglýsingin. Tökum að okkur allt frá litlum merkingum að heilpökkuðum bílum. Xprentehf. | Sundaborg3 |104Reykjavík |7772700|xprent@xprent.is www.xprent.is Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is – Erum við símann kl. 12-17 virka daga Silfurmunir og skartgripir síðan 1924 ERNA GULL- OG SILFURSMIÐJA Hönnuður Ragnhildur Sif Reynisdóttir Verð kr. 22.500 Hönnuður Ösp Ásgeirsdóttir Verð kr. 8.500 Jólaskeiðin & jól bj lla a an 2021 Frí heim- sending VIÐTAL Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Ég byrjaði að safna upplýsingum um sjúklinga sem voru skornir upp við nýrnakrabbameini hér á Haukeland, við tókum blóðprufur úr þessum sjúklingum áður en þeir voru skornir upp. Þegar ég var bú- in að skrá í nokkur ár ákváðum við að greina þessar blóðprufur og reyna að finna út hvort það væru einhver efni í blóðinu, sem gæfu til kynna hvaða sjúklingar ættu á hættu að deyja og hverjir ættu á hættu að fá meinvörp,“ segir Gígja Guðbrandsdóttir, þvagfæra- skurðlæknir við Háskólann í Berg- en í Noregi og auk þess kunnur jú- dómeistari á árum áður, í samtali við Morgunblaðið, en Gígja hefur nýlokið við að verja doktorsritgerð sína um cytókín í nýrnafrumu- krabbameini, Cytokines in Renal Cell Carcinoma eins og ritgerðin heitir þar sem henni hlotnaðist ekki ómerkari aðalandmælandi en dr. Tómas Guðbjartsson, prófessor og yfirskurðlæknir á skurðdeild Landspítalans. Flutti til Noregs 2009 Gígja lauk prófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands, skyldu- bundnu kandídatsári auk þess að starfa í tvö ár á skurðdeild Land- spítalans. „Ég ætlaði mér að verða skurðlæknir og þá verður maður að fara í nám til útlanda. Noregur varð fyrir valinu og ég sótti bæði um stöður í Ósló og hér í Bergen og fékk stöðuna í Bergen. Ég flutti þá hingað út árið 2009 með dóttur minni og þáverandi kærastanum mínum og barnsföður og hélt áfram í skurðlæknanáminu. Svo tók ég þessa doktorsgráðu með- fram því, svo á þessum tíma sem ég hef verið hér hef ég lokið al- mennum skurðlækningum, þvag- færaskurðlækningum og dokt- orsgráðu,“ segir Gígja með svo afslappaðri mælsku að allar þessar gráður hljóma eins og bréfaskóla- próf í fluguhnýtingum, þótt hún sé sérfræðingur í skurðfræðum við eitt virtasta háskólasjúkrahús Noregs og með aðra gráðu af svörtu belti í júdó, 2. dan. Talið berst að téðum Tómasi, andmælanda Gígju við dokt- orsvörnina og einum annálaðasta lækni Íslands þessa dagana. Ör- lögin spunnu vef sinn svo að faðir Tómasar, Guðbjartur Krist- ófersson, kenndi hvorum tveggju, Gígju og blaðamanninum, er hér rekur úr henni garnirnar, efna- fræði við Menntaskólann í Reykjavík á öldinni sem leið. Hvernig kom þessi doktorsvörn þá til? „Ég kynntist Tómasi þegar hann var nýkominn heim úr námi og ég var í skurðlæknanáminu á Íslandi. Okkar leiðir lágu saman á vöktum á Landspítalanum og við fengum tilfelli sem okkur langaði að skrifa um, grein sem var birt í skandinavíska þvagfæra- skurðlæknablaðinu árið 2008 eða 2009,“ segir Gígja frá og nær með sínum rómaða sannfæringarkrafti að hljóma eins og velflestir les- endur Morgunblaðsins sofi með málgagn skandinavískra þvag- færaskurðlækna á náttborðinu, enda sönn fræðikona. „Hann stóð sig rosalega vel“ „Tómas er svo rannsóknasinn- aður að við ákváðum að skrifa þessa grein saman,“ segir Gígja af samstarfi þeirra. „Svo skrifaði hann meðmælabréf með mér þeg- ar ég var að sækja um stöðu hérna úti, hann er með doktorsgráðu sem snýr að nýrnakrabbameini og er prófessor með reynslu af að vera andmælandi svo ég hugsaði með mér að gaman væri að loka hringnum hjá okkur með því að hann væri andmælandi minn þeg- ar ég kláraði.“ „Og hvernig gekk það?“ spyr blaðamaður. „Hann stóð sig rosa- lega vel,“ svarar Gígja án þess að hugsa sig um í sekúndu. „Ég var nú aðallega að spyrja hvernig þú hefðir staðið þig,“ játar blaðamað- ur og brestur á með hlátrasköllum á báðum endum símtalsins. „Ég held að ég hafi staðið mig ágæt- lega líka,“ segir Gígja, „ég fæ að vita þemað tveimur vikum áður og held svo 45 mínútna framsögu um það. Þá eru 15 mínútur af spurn- ingum, svo klukkutíma pása og svo fékk ég hálftíma til að kynna þessar fjórar rannsóknir sem ég hef gert og svo svaraði ég spurn- ingum í tvo tíma og kortér minnir mig,“ segir Gígja af doktorsvörn sem óvíst er að venjulegt fólk hefði lifað af miðað við lýsinguna. Alltaf með vindinn í fangið Þrátt fyrir að blaðamaður sitji uppi í rúmi með kaffibolla sundlar hann við lýsinguna af vörn þessari og reynir að breyta um umræðu- efni. Finnst Gígju ekki rigna full- mikið í Bergen, hinu forna vígi Hansakaupmanna? „Jú, hérna rignir oft marga daga í röð en sjaldnast allan daginn, en hér blæs ekki eins mikið og á Ís- landi svo rigningin kemur beint niður. Ég man þegar maður var að hjóla í og úr skóla, fyrst Hagaskóla og svo MR, þá var maður alltaf með vindinn í fangið, sama hvort þú varst að fara í skólann eða heim,“ segir læknirinn og hlær dátt, en Gígja sleit barnsskónum á Seilugranda. Nú býr hún hins vegar í úthverf- inu Åsane í Bergen, maður er svona kortér að keyra niður í bæ. Ég bý í alveg yndislegu hverfi, þetta er svona raðhúsahverfi, ósköp notalegt,“ segir Gígja, en sambýlismaður hennar er dr. Bjørn Nedrebø, yfirlæknir meltingar- færaskurðdeildar Haukeland- sjúkrahússins. „Við kynntumst í vinnunni,“ segir Gígja og hlær dill- andi hlátri. Gígja fann sig ekki í júdóinu í Noregi enda halda nágrannar okk- ar og frændur lítið upp á íþróttina. „Ég hleyp og hjóla hérna, stunda gönguskíði og fer upp á fjöll með vinkonum og svo er ég þjálfari fyr- ir bæði börnin mín í handbolta. Ég á vinkonur hér bæði gegnum hverf- ið og börnin mín og svo er líka ís- lenskur hópur hér sem flutti út á sama tíma svo ég er ansi vinamörg hér,“ segir læknirinn hressilega og lætur vel af Íslendingasamfélaginu í Bergen. „Maður er samt alltaf flinkari að umgangast Íslend- ingana í byrjun þegar maður hefur ekki eignast eins mikið net og eins marga vini,“ játar skurðlæknirinn. Sjaldnast fyrirgefa íslenskir les- endur að fá ekki sína ættfræði svo við nálgumst endalok spjallsins á þeim vettvangi, faðir Gígju er Guð- brandur Gíslason, bókmenntafræð- ingur og reyndar fyrrverandi skrif- ari á Morgunblaðinu, og móðir hennar Steinunn Bjarnadóttir, starfsmaður Íslandsbanka. „Ég er skilnaðarbarn svo ég á hálfbróður og fjórar stjúpsystur,“ útskýrir doktor Gígja Guðbrandsdóttir að lokum í líflegu spalli við Morg- unblaðið, nýbakaður doktor í nýrnakrabbameinsfræðum, júdó- meistari og hinn skemmtnasti við- mælandi. Með svarta beltið í læknisfræði - Varði doktorsritgerð sína við Haukeland í Bergen - Kunnur júdómeistari á árum áður - Rign- ingin í Bergen skárri en í Reykjavík - Duglegri að umgangast Íslendinga í byrjun dvalar erlendis Norrænir doktorar Gígja Guðbrandsdóttir þvagfæraskurðlæknir ásamt sambýlismanni sínum, dr. Bjørn Nedrebø, yfirlækni meltingarfæraskurð- deildar Haukeland-sjúkrahússins. Þau kynntust að sjálfsögðu í vinnunni. Harai-goshi Gígja skellir Hjördísi Ólafsdóttur með sínu eftirlætisjúdó- bragði, harai-goshi, á æfingu árið 2001, en Gígja ber gráðuna 2. dan. Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.