Morgunblaðið - 02.12.2021, Qupperneq 38
38 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulif
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2021
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
Kíktu til okkar í góðan mat
og notalegt andrúmsloft
Opnunartími
Mán.–Fös. 11:30–14:30
Öll kvöld 17:00–23:00
Borðapantanir á matarkjallarinn.is
UPPLIFÐU JÓLIN
Hægeldaður Þorskur
noisette hollandaise, hangikjöt
Hreindýra Carpaccio
trönuber, pekan hnetur,
gruyére ostur, klettasalat
Gljáð Lambafillet
seljurótarfroða, rauðkál,
laufabrauð
Jólasnjór
mjólkur- og hvítsúkkulaði,
piparkökur, yuzu
9.490 kr.
VEGAN JÓ
Vatnsmelónutartar
fivespice ponzu,
lárpera, won ton
Rauðrófu Carpaccio
heslihnetur, piparrót,
klettasalat
Yuzugljáð Grasker
greni, rauðbeður,
kóngasveppir
Risalamande
kirsuber, karamella
7.99
JÓLALEYNDARMÁL
MATARKJALLARANS
6 réttir
að hætti kokksins
leyfðu okkur að koma þér á óvart
Eldhúsið færir þér upplifun þar sem
fjölbreytni er í fyrirrúmi
10.990 kr. 0 kr.
LJÓLIN ERU BYRJUÐ Á
MATARKJALLARANUM
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Íslensku hugbúnaðarfyrirtækin
Lucinity og Fractal 5 munu í dag
kynna starfsemi sína á nýsköpunar-
ráðstefnunni Slush í Helsinki í Finn-
landi. Slush er ein stærsta ráðstefna
af þessu tagi í Evrópu ár hvert.
Von er á tæplega níu þúsund gest-
um en fjöldinn er minni í ár vegna
faraldursins. Alla jafna sækja Slush
um tuttugu og fimm þúsund manns.
Hluti af Nordic Showcase
Kynning fyrirtækjanna tveggja er
hluti af „Nordic Showcase“, eða
Norrænum vettvangi, í lauslegri
þýðingu. Tíu fyrirtæki, tvö frá
hverju Norðurlandanna, eru valin
inn í þann flokk á hverju ári. „Þetta
eru þau fyrirtæki í löndunum fimm
sem eru talin líklegust til að verða
einhyrningar,“ segir Guðmundur
Hafsteinsson framkvæmdastjóri
Fractal 5 í samtali við Morgunblað-
ið.
Hugtakið einhyrningur er notað
um ung fyrirtæki sem eru meira en
einn milljarður Bandaríkjadala að
markaðsvirði, jafnvirði 130 ma. kr.
Breiðþotur leigðar undir gesti
Meðal fyrirtækja sem áður hafa
komið fram á Nordic Showcase eru
kennslufyrirtækið Kahoot og
danska leigubílafyrirtækið Bolt.
Bæði félögin eru í dag orðin stórfyr-
irtæki.
„Slush er samkomustaður þar sem
lítil sprotafyrirtæki, stærri tæknifyr-
irtæki, fjárfestar og annað áhugafólk
hittist til að sjá það allra nýjasta í
heimi nýsköpunar,“ útskýrir Guð-
mundur Hafsteinsson. „Oft hafa heilu
breiðþoturnar verið leigðar undir
gesti sem fljúga inn víðs vegar að úr
heiminum, úr öllum heimsálfum.“
Guðmundur Kristjánsson segir að
hann og nafni hans muni kynna fyrir-
tæki sín, vörur og framtíðarsýn á
Norræna vettvangnum. „Yfirskriftin
í ár er fyrirtæki sem safnað hafa
minna en tíu milljónum dala í fjár-
mögnun, sem á við fyrirtæki okkar
beggja.“
Þeir nafnarnir eru sammála um að
það sé talsverð upphefð í því fólgin að
vera valdir til að tala á ráðstefnunni.
Spurður nánar um þýðinguna segir
Guðmundur Hafsteinsson að það sé
mikilvægt að ná augum og eyrum
fjárfesta og annarra. „Við erum lítið
sjö manna fyrirtækið að þróa sam-
skiptalausnina Break. Ég mun bæði
ræða þróun vörunnar, hvernig Break
auðveldar fólki að eiga raunveruleg
samskipti við stærri hóp af fólki en
áður, en einnig hvernig ég sé fyrir
mér að samkeppnisumhverfið sé að
breytast. Í leiðinni ætlum við að setja
í loftið nýja útgáfu af appinu okkar,
sem hægt er að sækja í snjallsímann
á break.is frá og með deginum í dag.
Markmiðið er að koma okkur á kortið
og halda svo áfram til sóknar.“
Finna framtíðarstarfsfólk
Guðmundur Kristjánsson segir að
markmið hans sé að ná athygli nýrra
fjártæknifyrirtækja. „Það er mikið að
gerast í fjártækniheiminum og
hundruðir nýrra fyrirtækja að verða
til á hverju ári. Á ráðstefnunni verða
margir fulltrúar slíkra fyrirtækja og
við viljum ná í gegn hjá þeim.“
Einnig vonast Guðmundur til þess
að ná athygli fjárfesta og framtíð-
arstarfsfólks. „Við erum alþjóðlegt
fyrirtæki sem þurfum gott starfsfólk
víða um heim. Slush er mjög góður
vettvangur til að ná til þess.“
Blaðamaður biður nafnana að út-
skýra hvaða vörur og þjónustu Luc-
inity og Fractal 5 bjóða upp á. Guð-
mundur Hafsteinsson verður fyrri til
svars. „Fyrirtækið er stofnað í upp-
hafi faraldursins. Ég og meðstofn-
andi minn, Björgvin Guðmundsson,
fórum að velta fyrir okkur hvernig
við tölum við annað fólk og höldum
sambandi við það í miðjum sam-
komutakmörkunum, þegar félagslíf-
inu hefur verið kippt frá okkur. Við
veltum fyrir okkur hvernig vinir,
samstarfsfólk eða fjölskylda ættu að
geta hist án mikillar fyrirhafnar, eiga
óformleg samskipti og hvernig mað-
ur gæti rekist á fólk sem maður
þekkti án þess að það þyrfti mikla
skipulagningu, mörg textaskilaboð,
símtöl eða senda eitthvað sem líktist
formlegu fundarboði. Þó að það séu
til ýmsir samfélagsmiðlar þá fannst
okkur vanta miðil mitt á milli þess að
senda beint skilaboð á fólk eða á alla
vini á samfélagsmiðlum. Við viljum
kalla okkur „Social life“ en ekki
„Social media“, því þar er þitt raun-
verulega félagslíf eins og þú upplifir á
kaffihúsinu.“
Guðmundur segir að til dæmis geti
maður gefið menntaskólavinum,
vinnufélögum og fleiri hópum merki
um að vilja hitta þá. „Einhver réttir
þá upp hönd ef hann er til í spjall.
Break bætir félagslíf fólks og þú get-
ur auðveldlega fylgst með hvað er að
gerast í þínum vinahópum og meldað
þig með ef þú hefur tíma og áhuga.“
Á blússandi siglingu
Lucinity á sér lítið eitt lengri sögu
en Fractal 5 eins og Guðmundur
Kristjánsson útskýrir. Fyrirtækið
framleiðir gervigreindarhugbúnað
sem hjálpar fyrirtækjum að berjast
gegn peningaþvætti. „Við erum á
blússandi siglingu. Ég var einn árið
2019 en nú eru starfsmenn orðnir 48.
Við erum komin með fjölda þekktra
viðskiptavina og erum að fara að til-
kynna um enn fleiri á næstunni. Einn
af stóru viðskiptavinunum sem bætt-
ust við nýverið er Currencycloud sem
greiðslumiðlunarfyrirtækið Visa
keypti á dögunum á einn milljarð
Bandaríkjadala.“
Líklegustu einhyrningarnir
Tækni Guðmundur Hafsteinsson og Guðmundur Kristjánsson á Slush.
- Lucinity og Fractal 5 kynna fyrirtæki sín, vörur og framtíðarsýn á Norrænum vettvangi á Slush ný-
sköpunarráðstefnunni í Finnlandi - Vilja ná athygli fjárfesta, starfsfólks og fjártæknifyrirtækja m.a.
launahækkana en sem nemur launa-
breytingum á almennum vinnumark-
aði,“ segir Halldór. En frá mars 2019
til ágúst 2021 hafi launavísitala á al-
mennum markaði hækkað um 16%,
18% hjá ríkinu og 24% hjá sveit-
arfélögunum.
Skýrist ekki af lægri launum
„Því hefur verið haldið fram að
umframhækkun sveitarfélaganna
skýrist af því að laun þar séu lægri
en á almennum vinnumarkaði. Það
stenst ekki skoðun. Lægri meðallaun
geta skýrt um 1% viðbótarhækkun
en raunhækkun er nær 7% umfram
almenna markaðinn. Meðallaun hjá
ríki eru hins veg-
ar hærri en á al-
mennum markaði
og því hefðu
krónutöluhækk-
anirnar átt að
hækka meðallaun
ríkisstarfsmanna
minna en á al-
mennum mark-
aði, eða sem nem-
ur 1%. Almenni
vinnumarkaðurinn verður að vera
leiðandi við gerð kjarasamninga. Sú
þróun sem birtist okkur í tölum
kjaratölfræðinefndar gengur ekki
upp til lengdar og er uppskrift að
launaskriði á almenna markaðnum,“
segir Halldór Benjamín og víkur að
þeirri ályktun í ViðskiptaMogganum
að það kosti á aðra milljón að meðal-
tali að ráða hvern ríkisstarfsmann, ef
launin nálgast milljón. Hann segir
þetta vanmat. Launatengd gjöld, líf-
eyrissjóður, tryggingagjald og ýmis
sjóðagjöld bæti yfir 20% ofan á
greidd laun og laun fyrir óunninn
tíma, orlof, rauðir dagar og veikindi
starfsmanna og barna þeirra, bæti
öðrum 20% við. Að teknu tilliti til
annars kostnaðar, s.s. launa í neyslu-
hléum, sé kostnaðurinn 55-60% ofan
á laun fyrir virkan vinnutíma. Við
þetta bætist ýmis annar kostnaður.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri SA, segir það
ekki geta gengið upp að hið opinbera
leiði launaþróun á Íslandi.
Fram kom í ViðskiptaMogganum í
gær að heildarlaun ríkisstarfsmanna
nálgast að vera að meðaltali milljón
eftir hækkanir síðustu ára.
„Samanburður á launaþróun opin-
berra starfsmanna samanborið við
almennan vinnumarkað er sláandi.
Mælingar Hagstofunnar hafa stað-
fest að útfærsla lífskjarasamningsins
hjá hinu opinbera hafi leitt til meiri
Hækkanir uppskrift að launaskriði
- Framkvæmdastjóri SA segir ekki ganga upp að hið opinbera leiði launaþróun
- Kostnaður við hvern ríkisstarfsmann sé langt umfram meðaltal heildarlauna
Halldór Benjamín
Þorbergsson
2. desember 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 129.37
Sterlingspund 172.59
Kanadadalur 101.25
Dönsk króna 19.767
Norsk króna 14.3
Sænsk króna 14.291
Svissn. franki 140.94
Japanskt jen 1.1466
SDR 181.34
Evra 147.0
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 184.5105