Morgunblaðið - 02.12.2021, Side 50

Morgunblaðið - 02.12.2021, Side 50
50 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2021 ✝ Kristín Carol Chadwick fæddist 5. janúar 1943 í Horsforth, Leeds á Englandi. Hún lést 15. nóv- ember 2021 á Heil- brigðisstofnun Suð- urlands. Foreldrar henn- ar voru James Hoggart Chadwick, f. 1919, d. 1971, prentari, og Auður Jónsdóttir, f. 1919, d. 2006. Börn þeirra og systkini Kristínar Carol voru: tvíburabróðirinn Ralph Hinrik Chadwick, d. 2010, hálfsystkinin Jóhanna Kristín Hlöðversdóttir ur). Börn hans eru: Magdalena Sandra Dögg, f. 1986, og Isa- bella Cristín Chadwick, f. 2007. Seinni eiginmaður Kristínar var Gunnar Jóhannesson, f. 1932, d. 2013. Þau giftust í júlí 1968. Gunnar var bóndi á Hömr- um í Grímsnesi. Börn þeirra eru: 1) Gunnar Kristinn, f. 1969. Sambýliskona hans er Agnes Heiður Magnúsdóttir. Börn hennar eru: Sólmundur Magnús, f. 2001, Snæfríður Rós, f. 2004, og Jóhann Hilmir, f. 2008. 2) Auður, f. 1977. Auður er í sam- búð með Ingólfi Jónssyni. Börn hennar eru: Gunnar Birkir, f. 2005, og Hrafnhildur, f. 2009. Útförin fer fram frá Selfoss- kirkju 2. desember 2021, klukk- an 14. Vegna samkomutak- markana verður streymt frá athöfninni á slóðinni: https://tinyurl.com/4hby57bm Hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat (Dadý), f. 1935, d. 2010, Ruth Chad- wick Lee, f. 1957, d. 1999, Michael Chadwick, f. 1962, og fósturbróðir er Oliver Hinrik Oli- versson, f. 1958. Kristín Carol giftist Guðmundi Frey Halldórssyni í mars 1963. Börn þeirra eru: 1) Hlyn- ur Chadwick, f. 1962. Eiginkona hans er Hafdís Óskarsdóttir. Börn þeirra eru: Helga Ósk, f. 1985, Henrik Chadwick, f. 1990, og Heiðdís Chadwick, f. 1993. 2) Hilmir Chadwick, f. 1966 (ógift- Elsku mamma, Kristín Carol Chadwick, fæddist í Leeds í Eng- landi og ólst þar upp með tvíbura- bróður sínum fram til níu ára ald- urs. Framan af lífsleiðinni má segja að líf hennar hafi einkennst af togstreitu milli tveggja landa, Englands og Íslands. Foreldrar hennar skildu og tvíburarnir voru aðskildir hvor í sínu landinu. Eftir að mamma flutti til Íslands ólst hún upp í Reykjavík með móður sinni. Ung að aldri kynntist hún sínum fyrri eiginmanni, Guð- mundi Frey Halldórssyni, og bjuggu þau í Keflavík. Þar eign- uðust þau tvo drengi, Hlyn og Hilmi, en að lokum skildi leiðir þeirra. Síðar byrjaði mamma að vinna á Sólheimum í Grímsnesi og hafði Hlyn og Hilmi með sér. Þar kynntist hún sínum framtíðar- manni, Gunnari á Hömrum. Eftir að þau giftust gekk Gunnar drengjunum í föðurstað og fyrir þeim er hann alltaf pabbi. Mamma var kjarnakona, það fundu allir sem umgengust hana sem félagar eða samstarfsfólk. Mamma var mikil húsmóðir og hélt verndarhjúpi yfir okkur börn- unum. Þegar við komum inn úr bústörfum var matarborðið hlaðið af mat og drykk sem var unnið úr þeirra eigin afurðum á Hömrum, frá bóndabýlinu á Hömrum. Mamma kenndi okkur nægjusemi og skipulag en pabbi (Gunnar Jó- hannesson, d. 2013) kenndi okkur útsjónarsemi í vinnu og að vera mikil náttúrubörn. Mamma og pabbi héldu gott bú í fallegu um- hverfi á Hömrum. Til tilbreyting- ar fór mamma stundum með okk- ur í sund á Sólheimum og kenndi okkur þar fyrstu sundtökin. Aldrei átti móðir okkar von á því að enda sem bóndakona í Grímsnesinu þar sem hún hafði fæðst í Leeds á Englandi. Hún var vel virk í sveitinni og var til dæmis með í starfi kirkjukóra og í kven- félaginu. Hún átti góðan vinkon- uhóp sem stóð þétt saman og fann upp á ýmsu sprelli. Eftir að mamma og pabbi hættu að búa og fluttu á Selfoss starfaði hún mikið með Rauðakrossdeildinni þar. Ensk menning var stór hluti af mömmu og það kom víða fram, bæði í hefðum, tónlistarsmekk og myndlist. Einnig má nefna að hún fylgdist mjög vel með bresku kon- ungsfjölskyldunni og var afar stolt af stígvélunum sínum sem voru í bresku fánalitunum. Fyrir einu og hálfu ári fékk mamma heilablóðfall og lamaðist að hluta á vinstri hlið en náði með þolinmæði og æðruleysi að vinna sig til baka og var í haust farin að spá í að kaupa sér nýjan bíl og fara að keyra aftur. En fljótt skipast veður í lofti og ekki veit maður ævi sína fyrr en öll er. Eftir stutt veikindi heima við var hún lögð inn á HSU og fljótlega kom í ljós að krabbamein sem hún hafði áður fengið með- höndlun við hafði dreift sér um líkamann og aðrir fylgikvillar létu á sér kræla. Mamma tók þessum fréttum af æðruleysi og kvaddi sátt aðeins þremur vikum seinna. Við systkinin gáfum mömmu loforð um að koma saman með fjölskyldum okkar og halda henni til heiðurs annan í jólum jólaboðið sem hún var alltaf með. Mamma var afar kát með þetta og þótt veikburða væri þá svaraði hún að bragði með bros á vör: „Jááá! …“ um leið og hún kreppti hnefann til leggja áherslu á orð sín. Takk mamma, minning þín lif- ir. Hlynur Chadwick Guð- mundsson, Hilmir Chadwick Guðmundsson, Gunnar Kristinn Gunnarsson, Auður Gunnarsdóttir. Ég kynntist strák úr Gríms- nesinu haustið 1982. Hann ætlaði heim í sveitina um jólin og bauð mér að koma í heimsókn milli jóla og nýárs til að kynna mig fyrir fjölskyldunni sinni. Það var erfitt fyrir mig, borgarbarnið, að taka rútu í snjóþyngslum og ófærð að Borg í Grímsnesi. Ég kveið þess- um hittingi. Það var bara trak- torsfært frá Borg til Hamra. Mér fannst ég föst á hjara veraldar, langaði helst að taka rútuna til baka. Kvíðinn reyndist óþarfur. Það var tekið vel á móti mér. Kristín, mamma Hlyns, var bæði ræðin og skemmtileg og feimnin hvarf. Með Kristínu eignaðist ég bæði tengdamömmu og mjög góða vinkonu. Þó við værum ekki alltaf sammála um hlutina, þá vor- um við ætíð bestu vinkonur. Við spjölluðum mikið símleiðis gegn- um tíðina. Oft var sagt: Ertu enn að tala við hana mömmu/ömmu?! Við Kristín áttum margar skemmtilegar stundir saman hin síðari ár, þá var farið að róast hjá okkur báðum. Við fórum í allskon- ar ferðir og alltaf glens og gaman hjá okkur. Við elskuðum að þræða búðir erlendis og menningin var skammt undan, leikhús í London, aðventutónleikar í Vín, dekurferð til Barcelona eða bara orlofsferð til Akureyrar. Þetta voru allt gæðastundir. Við vorum báðar þakklátar fyrir þessa tíma okkar saman. Kristín upplifði ýmiskon- ar áföll og erfiðleika í lífinu en hún var hress og jákvæð að eðlisfari og það hjálpaði henni að vinna úr sínum erfiðleikum. Hún ólst upp fyrstu árin í Englandi en flutti síð- an til Íslands með móður sinni og Ralph tvíburabróður sínum. Henni auðnaðist þó ekki að alast upp með Ralph þar sem hann fluttist aftur til Englands, barn að aldri, til að dvelja hjá James föður þeirra. Tregafullur aðskilnaður frá föður og bróður var skuggi á líf hennar. Hún varð ung að árum einstæð móðir með tvo syni og sagði sitt mesta gæfuspor í lífinu hafa verið að kynnast jafn traust- um og góðum manni og Gunnar bóndi að Hömrum var. Kristín hafði alltaf gaman af að segja manni sögur af sér og litríkri ævi sinni í Englandi og Íslandi, sorg- um og sigrum. Hún var heims- kona í bland við bóndakonuna en alltaf svo sjálfstæð. Fyrir mörg- um árum sagði ég við hana: Það væri hægt að skrifa bók um þig, Kristín! Það endaði með að hún skrifaði endurminningarnar sín- ar. Bókina nefndi hún: „Tveggja landa kona“. Fyrir nokkru hélt Kristín að hún væri að fá alzheim- er. Mér fannst það ekki passa. Hún mundi bæði fortíð og nútíð. Svo ég tók hana í smá próf og spurði hana varðandi nýliðna daga, svo að lítið bæri á. Hún gat rakið tímann sinn í smáatriðum, frá morgni til kvölds. Kristín var ekki með elliglöp og ég fullvissaði hana um að greining hennar stæðist ekki og við hlógum dátt. Ég sakna Kristínar tengdó, sam- talanna, húmorsins, galsans og gleðinnar. Um leið er ég svo þakk- lát fyrir að hafa haft þessa traustu gæðakonu í lífi mínu síðastliðin 39 ár, þakklát fyrir hvað hún var stolt af okkur og börnunum okk- ar, Helgu Ósk, Henriki og Heið- dísi, og hversu vel hún fylgdist ætíð með þeim, heima og að heim- an í þeirra mörgu ævintýrum. - Takk, kæra Kristín, fyrir samfylgdina. Þín Hafdís. Minning um ömmu í sveitinni. Elsku amma Stína. Alltaf þeg- ar ég hugsa um hvar mér líður best, þá hugsa ég um Hamra. Ég hugsa um að ég sé í gúmmístígvél- unum mínum að labba í læknum með prik í hendinni sem ég nota til að pota í steinana. Svo fer ég út á tún þar sem ég leggst niður í sól- inni og hlusta á kindurnar jarma og goluna blása. Allt í einu heyr- ast óp og köll í fjarlægðinni, þetta ert þú að kalla á okkur systkinin að koma inn í kaffi. Við erum orð- in ótrúlega svöng eftir að hafa djöflast úti allan daginn og hlaup- um upp að Hömrum með skítuga putta sem lykta af ull og hesta- slefi, bestu lykt í öllum heiminum. Það kemur ekki til greina að við séum að fara að borða með þessa skítugu putta svo þú biður okkur um að þvo okkur vel um hendurn- ar. Ég man svo skýrt eftir því að vera á neðri hæðinni að þvo mér um hendurnar með hvítu sápu- stykki. Lyktin af sápunni minnir mig alltaf á þig. Ég var alltaf mikil afastelpa, fannst gaman að keyra um á trak- tor með afa Gunnari eða horfa á hann rýja ærnar, en eftir því sem ég varð eldri urðum við tvær nán- ari. Við urðum sérstaklega nánar eftir að ég flutti til Köben til að læra leiklist, þá áttum við til að hringjast á og hlæja saman. Þú hefur alltaf verið með góðan, ós- lípaðan breskan húmor sem mér þótti vænt um því mér fannst ég aldrei þurfa að sykurhúða neitt þegar ég sagði brandara til að láta þig hlæja. Ætli þú hafir ekki feng- ið húmorinn frá pabba þínum, langafa James Hoggart. Ég spurði þig fyrir stuttu hvort þú tryðir á drauga eða engla og þú svaraðir því játandi og sagðir að stundum fyndir þú reykingalykt þegar þú værir ein heima sem þýddi að pabbi þinn væri kominn til að fylgjast með þér. Ég veit hvað þú varst ánægð þegar ég og Böðvar náðum aftur saman, þú varst alltaf svo heilluð af honum. Ég vil meina að ef þú værir á okk- ar aldri værirðu búin að stela hon- um af mér. Ég vil þakka þér fyrir að hafa verið amma mín, fyrir all- an hláturinn, fyrir gjafirnar og fyr- ir að gera þitt besta. Þitt barnabarn, Heiðdís. Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Það er alltaf erfitt að kveðja vini sína og skrítin tilfinning að geta ekki tekið upp símann og hringt eða bankað upp á og of seint að stinga upp á einhverju skemmti- legu að gera saman. Ungar að árum kynntumst við Kristín Carol í gegnum vini okkar sem voru félagar. Það var happa- fengur að kynnast og verða vin- kona jafn flottrar og litríkrar konu og hún Kristín mín var, saga henn- ar var stórbrotin, hún var tvíburi og voru þau systkinin alin upp til þriggja eða fjögurra ára aldurs á Englandi þar til foreldrarnir skilja og þau eru aðskilin þar sem Ralf tvíburabróðir hennar varð eftir og alinn upp hjá föðurnum í Englandi en hún af móður sinni hér heima á gamla Fróni. Ung giftist hún æskuvininum og eignaðist með honum tvo syni áður en leiðir þeirra skildi og hún fluttist á Suðurland þar sem hún kynntist seinni manninum sínum, honum Gunnari á Hömrum, og eignaðist með honum tvö börn. Hún var trygglynd og góður félagi og alltaf sama góða vinkonan þótt daglegt amstur hamlaði oft okkar sambandi. Kristín var drífandi í hverju sem hún tók sér fyrir hend- ur og þrátt fyrir að vera bónda- kona í sveit sinnti hún ýmsum vel- gerðarfélögum eins og Rauða krossinum og öðrum félagsstörf- um af alúð. Elsku Kristín mín, þínu ævi- starfi er lokið, ég er þakklát fyrir allar okkar góðu samverustundir, þú varst lífsglöð kona og gleðigjafi, deildir og gafst af þér til annarra. Hafðu þökk fyrir allt og allt og góða ferð heim vinan. Enginn veit og enginn sér hvar endirinn er né hvenær að ber og enginn vill víst vita það hvenær tími er til að leggja af stað. (S. Pétursson) Þín vinkona, Sigríður J. Guðmunds- dóttir (Sirrý Guðmunds). Í dag kveðjum við mikla öðlingskonu, Kristínu Chadwick. Við kynntumst Kristínu fyrir um hálfum öðrum áratug þegar við byrjuðum að vinna hjá Rauða krossinum. Kristín hafði þá verið sjálfboðaliði Árnesingadeildar í nokkur ár og öðlast víðtæka reynslu í ýmsum verkefnum. Það var gott að vinna með Kristínu, hún hafði sérlega þægilega nær- veru, var alltaf jákvæð og tilbúin að aðstoða þar sem þess var þörf. Sérstaklega viljum við minnast á þátttöku hennar í neyðarvörnum í Suðurlandsskjálftanum 2008, en þar kom vel í ljós hvað hún var í raun mikilvægur hlekkur í starf- inu. Dag eftir dag stóð hún vaktina í þjónustumiðstöð í Tryggvaskála á Selfossi, tók á móti fólki með sínu hlýja viðmóti og veitti stuðning þeim sem á þurftu að halda. Hún var einnig mikilvæg í starfi deild- arinnar þegar fólk leitaði þangað eftir stuðningi fyrir jólin. Alltaf tók hún vel á móti fólki með hlýju við- móti og fólki leið betur eftir að hafa spjallað við hana. Það var ómetanlegt að hafa sjálfboðaliða eins og Kristínu við hlið sér í störf- um fyrir Rauða krossinn. Við kveðjum Kristínu Chadwick með þakklæti í huga, það var gott að eiga hana að í starfinu en ekki síður að vini um langt árabil. Ætt- ingjum og vinum sendum við sam- úðarkveðjur. Ragnheiður Ágústsdóttir, Jóhanna Róbertsdóttir. Kristín Carol Chadwick - Fleiri minningargreinar um Kristínu Carol Chadwick bíða birtingar og munu birt- ast í blaðinu næstu daga. Minningarkort fæst á nyra.is eða í síma 561 9244 Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KATRÍNAR MARTEINSDÓTTUR verslunarkonu. Lilja Jónsdóttir Ragnar Daníel Stefánsson Marteinn Jónsson Þórunn Björg Ásmundardóttir Kristján Jónsson Kristín Ólöf Jansen ömmubörn og langömmubörn Elsku mamma, tengdamamma, amma og langamma, ÞORBJÖRG STEINÓLFSDÓTTIR, lést fimmtudaginn 11. nóvember. Útför fór fram í kyrrþey. Þakkir til þeirra sem sýndu okkur hlýju og kærleika við andlát hennar og aðdraganda þess. Vigdís Valsdóttir Bjarni Ásgeirsson Ragnhildur Valsdóttir Tino Nardini Lilja Valsdóttir Örn E. Gíslason Steinar Benedikt Valsson Kristín Jóhannsdóttir ömmubörn og langömmubörn Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts móður minnar, tengdamóður, systur og mágkonu, GUÐRÚNAR GUÐLAUGSDÓTTUR, Grandavegi 47, Reykjavík. Gubjörg Magnúsdóttir Árni Jakob Larsson Haukur Guðlaugsson Grímhildur Bragadóttir Páll Guðlaugsson Brittlis Guðlaugsson Steinunn Guðlaugsdóttir Magni R. Magnússon Guðleif Guðlaugsdóttir Leifur H. Magnússon Elskulegur maðurinn minn, GUNNBJÖRN ÓLAFSSON frá Sellátrum í Tálknafirði, lést á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn 25. nóvember. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fjölskyldan vill þakka starfsfólki Borgarsels og deildar N-2 á hjúkrunarheimilinu Eir fyrir kærleiksríka umönnun. Fyrir hönd aðstandenda, Björg Þórhallsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.