Morgunblaðið - 02.12.2021, Síða 54

Morgunblaðið - 02.12.2021, Síða 54
Áður en hafist er handa ítrekar María að mikilvægt sé að fylgja uppskrift- inni mjög nákvæmlega og búa allt til kvöldið áður en baksturinn fer fram. Bæði piparköku- og snúðadeigið er geymt í kæli en fyllingin á volgum stað. Snúðadeig 750 g hveiti (best ef þið getið nálgast Brauð og Co-hveitið í græna pakkanum Typo 00, fæst í Brauði & Co og Krón- unni) 10 g fínt borðsalt 112 g lífrænt ræktaður hrásykur 112 g íslenskt smjör mjúkt 22 g pressuger (fæst alltaf í kælinum í Fjarðarkaup og Hagkaup). Ef þið getið ekki nálgast pressuger notið þá 8 g þurrger í staðinn, en ef þið getið nálg- ast pressuger notið það þá frekar. 1 lítið egg við stofuhita 325 g vatn við stofuhita Aukalega 2 egg og 1 msk. mjólk (til að pensla snúða með á eftir, ath. ekki sett í deigið) Fylling 250 g lífrænt ræktaður hrásykur 250 g íslenskt smjör mjúkt 250 g Odense Original-marsípan (fæst í Bónus og Hagkaup) 50 g kanill 30 g negull 20 g engifer 7,5 g hvítur pipar Piparkaka Hægt er að kaupa tilbúið pip- arkökudeig í Brauði og Co ef þið viljið sleppa við að henda í það sjálf en það er gert úr sömu uppskrift. 500 g hveiti 500 g púðursykur 160 g íslenskt smjör 2 egg við stofuhita 42 g lyftiduft 6 g matarsódi 8 g engifer 3 g kanill 3 g negull 2 g hvítur pipar Snúðadeig Setjið öll þurrefni saman í hræri- vélarskál og hrærið létt saman með króknum. Hrærið saman vatni við stofuhita og pressugeri og leggið til hliðar eins og í fimm mínútur. Takið þá eggið að þeim tíma liðnum og bætið út í gerblönduna og hrærið vel saman þar til vel blandað saman. Kveikið nú á hrærivélinni á hægum hraða og bætið gerblöndunni varlega saman við. Skerið svo mjúkt smjörið í teninga og bætið saman við deigið meðan vél- in er í gangi, smátt og smátt. Hnoðið nú á hægum hraða í fimm mínútur og takið tímann. Aukið svo hraðann upp í hratt og hnoðið áfram í 10 mínútur og takið tímann. Sáldrið þá smá hveiti í góða stóra skál og gerið kúlu úr deiginu. Setjið kúluna ofan í skálina og plastfilmu yf- ir og geymið í kæli yfir nóttina, jafn- vel alveg upp í sólarhring ef þið viljið. Fylling Setjið saman sykur og marsípan í hrærivél eða blandara þess vegna og hrærið vel saman. Blandið svo hægt og rólega saman við mjúku smjörinu, smá tening í einu. Setjið næst allt kryddið út í og hrærið vel saman þar til silkimjúkt og fíngert. Setið svo í skál og breiðið plast- filmu yfir og geymið á volgum stað yf- ir nótt eða þar til þið ætlið að nota hana. Piparkaka Blandið öllum þurrefnum saman í hrærivél með hnoðarann á og hrærið létt saman. Bætið svo eggjum út í en bara einu í einu. Bræðið næst smjörið og blandið saman við deigið og hnoðið saman þar til úr er orðið silkislétt og glansandi fallegt piparkökudeig. Setjið í skál og breiðið plastfilmu yfir og geymið í kæli yfir nótt. Takið svo út eins og klst áður en á að móta fígúrur úr því svo það sé auð- velt að fletja það út en gott er að sáldra smá hveiti undir deigið áður en það er flatt út. Snúðasamsetning Hitið ofninn á 50°C hita með blæstri og takið til tvær bökunar- plötur undir snúðana með bök- unarpappír á. Takið nú deigið úr skálinni og sáldrið ögn af hveiti á borðið áður en þið fletjið það út og einnig ofan á deigið. Ekki hnoða það neitt, byrjið bara að fletja út jafnan ferning sem er þunnur eða eins og 0,5 cm þykkur. Ferningurinn á að vera 60 cm breiður og 75 cm langur (mikilvægt að fara eftir) eða eins þunnur og hægt er án þess að deigið verði gegnsætt. Smyrjið öllu kanil-remosinu jafnt yfir ferninginn en sleppið eins og 5 cm á endanum sem er næstur ykkur, þ.e. ekki smyrja á þá 5 cm. Rúllið svo deiginu varlega upp í pylsu en byrjið á endanum sem er fjær ykkur, ekki rúlla alveg að end- anum nær ykkur heldur skiljið eftir þessa 5 cm sem remosið er ekki á. Skerið svo í snúða en hér er mik- ilvægt að hver snúður sé alveg 9 cm þykkur og já það er mjög þykkt og þannig á það að vera. Takið svo 5 cm endann sem þið rúlluðuð ekki upp og brettið undir snúðinn. Leggið svo 4-5 snúða á hverja plötu og ýtið létt á hvern snúð með flötum lófa svo hann fletjist ögn út. Breiðið svo viskastykki yfir snúð- ana og setjið í 50°C heitan ofninn til hefingar í 60 mínútur, ekki lengur. Takið piparkökudeigið á meðan snúðar hefast, fletjið það út og skerið úr því fígúrur og geymið til hliðar. Takið snúðana svo úr ofninum og hitið ofninn strax upp í 210°C á blæstri (220°C-225°C ef þú ert ekki með blástursofn). Blandið næst saman 2 eggjum og 1 msk af mjólk og penslið snúðana með blöndunni. Sáldrið vel af flórsykri yfir snúðana með sigti og ekkert vera að spara hann, gott að slá eins og tvisvar í sigt- ið á þessu stigi (athugið þetta er gert áður en snúðarnir fara í ofninn að bakast, ekki á eftir). Leggið nú eina piparkökufígúru stóra eða þrjár minni á miðjan snúð- inn og sáldrið örlítið meira af flór- sykri yfir (slá eins og einu sinni í sigt- ið). Stingið svo strax í 210°C heitan ofninn en gott er að setja nokkra ís- mola í ofnskúffu á botninn í ofninum. Bakið í sléttar 10 mínútur en fylgist vel með snúðunum því ofnar geta ver- ið mismunandi heitir. Leyfið snúðunum svo að standa á heitri plötunni í 10 mínútur uppi á borði og borðið þá heita. Ef þið eigið afgang er gott að frysta og hita þá upp í örbylgju í 30 sekúndur, þá verða þeir sem nýir. Ljósmyndir/María Gomez Snúðarnir sem allir elska Snúðana er lítið mál að gera heima en það er best að henda í deigið kvöldinu áður og láta það hefast í kæli yfir nótt. Hinn eini og sanni Brauð & Co-piparkökusnúður María Gomez á Paz.is setti netheima nærri á hliðina þegar henni tókst að end- urgera hina frægu snúðauppskrift Brauð & co. Brauð & co tók sig til og bætti um betur þegar María fékk afhenta uppskriftina að hinum stórbrotna pipar- kökusnúð sem er að gera allt vitlaust. María var að sjálfsögðu ekki lengi að baka hann og deilir hér uppskriftinni með lesendum Morgunblaðsins. Leyndarmál Brauð & Co Ekki nóg með að Brauð & Co hafi gefið Maríu upp- skriftina af snúðunum sínum, heldur gáfu þeir henni einnig uppskriftina að piparkökunum sínum sem er afar óvanalegt af bakaríi að gera. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2021 www.danco.is Heildsöludreifing Fyrirtæki og verslanir Heildarlausnir í umbúðum Pakkaskraut Pappír Skreytingarefni Pokar Borðar Teyjur Bönd Kort Sellófan Kynntu þér úrval á vefverslun www.danco.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.