Morgunblaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2021
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Sigrún Elíasdóttir er handritshöfundur og annar
stjórnandi hlaðvarpsþáttanna Myrka Ísland. Þar fara
hún og Anna Dröfn Sigurjónsdóttir yfir hinar ýmsu
hörmungar Íslandssögunnar og
það er af nægu að taka.
„Við spjöllum um eldgos, pest-
ir, drauga, útilegumenn, aftökur
og skipsströnd á léttan og
skemmtilegan hátt. Hljómar sér-
lega óviðeigandi, en það er jú
bara þannig sem við Anna erum
sem persónur almennt. Það er fátt sem ekki er þess
virði að hlæja að. Mig langaði til að hafa þættina
fræðandi en um leið aðgengilega og með
skemmtanagildi. Handritsgerðin er samt
sem áður grafalvarleg og heilmikil, alltaf tíu
blaðsíðna heimildavinna að baki hvers þátt-
ar. Það er ástæðan fyrir því að ég hef bara
nennt að gera þetta verkefni í 10 þátta
skorpum, því ég myndi aldrei ráða við þessa
pressu allar vikur ársins!“ segir Sigrún en
hún er sagnfræðingur að mennt en hefur líka skrifað
barna- og kennslubækur.
Hún deildi þeim hlaðvörpum sem hún
hlustar helst á þessa dagana en þau eru
eftirfarandi:
Morðcastið „Þær morðcast-systur komu
mér á sporið með að hlusta á glæpa-
hlaðvörp, bæði er ég jú frekar mikið ógeðs-
megin í lífinu og svo finnst mér þær bara
svo skemmtilegar. Þær voru mér talsverðar fyr-
irmyndir í því að vilja hafa eigin þátt í svona spjall-
formi.“
Lore „Þetta er eiginlega fyrsti hlaðvarps-
þátturinn sem ég fór að hlusta á eftir
ábendingu frá aðila sem sagði mér að það
vantaði svona þátt um íslensk efni og varð í
rauninni kveikjan að mínum eigin þáttum.
Aaron Mahnke kafar ofan í hryllilegt eða
yfirnáttúruleg efni frá öllum hornum
heimsins. Hann getur verið smá drama-
tískur í frásögn en ég hef gaman af honum.“
Myrkur „Já, ég er svona myrk týpa, það var vitað.
Nína segir líka frá morðum og misþyrm-
ingum á skemmtilegan og hressan hátt. Hún
er góður orðasmiður og lýsir hræðilegum
hlutum svo frábærlega.
Háski „Hér segir Unnur Regína frá
venjulegu fólki sem lendir í ótrúleg-
um lífsháska og hremmingum og
nær oftar en ekki að lifa af á magn-
aðan hátt. Spennandi og óhugnan-
legt en oftar en ekki með meiri
möguleika á eftirlifendum heldur en
í glæpahlaðvörpunum!“
Supernatural „Supernatural með Ashley
Flowers er þáttur þar sem farið er yfir
mannshvörf, geimverur, samsæriskenningar,
draugagang og annað óþekkt og
dularfullt í heiminum. Málin eru
rannsökuð frá mörgum hliðum og
stundum koma fram rökréttar skýr-
ingar á málunum en stundum er
ekkert slíkt að finna og málin halda
áfram að vera óupplýst án nokk-
urrar skýringar.“
Önnur hlaðvörp sem eru í uppáhaldi hjá
Sigrúnu eru Crime Junkie og International
Infamy sem eru þættir með Ashley Flowers,
Villains, Serial Killers.
„Svo má ekki gleyma Kaupfélaginu með Jóni
frænda en hann er reyndar í pásu,“ sagði Sigrún að
lokum.
Er ógeðsmegin í lífinu
Sigrún Elíasdóttir er annar stjórnandi söguhlaðvarpsins Myrka Ísland
þar sem fjallað er um hörmungar Íslandssögunnar. K100 fékk hana til
að deila sínum uppáhaldshlaðvörpum en hún segist vera „frekar mikið
ógeðsmegin í lífinu“ og hlustar sjálf sérstaklega á glæpahlaðvörp og
hlaðvörp um ýmsar hörmungar og yfirnáttúrulega hluti.
Hörmungar Sigrún stjórnar hlaðvarpinu Myrka Ís-
land sem fjallar um hörmungar Íslandssögunnar.
Fimm hlaðvörp frá Sigrúnu í Myrka Íslandi
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Anna Þóra Ísfold og barnsfaðir hennar
skildu árið 2017 og segist hún hafa fengið
hálfgert áfall við að vera án barnanna
sinna fyrstu jólin það ár en hún og barns-
faðir hennar ákváðu að skiptast á að hafa
börnin á hátíðunum. Hún uppgötvaði þó í
kjölfarið hversu mikið tækifæri væri í því
fólgið að leita inn á við á þessum tíma og
ákvað að deila reynslu sinni með öðrum
konum og býður nú upp á valdeflandi
jólaslökunarferð fyrir konur yfir hátíð-
arnar.
„Ég var búin að vera mikið í hefð-
unum. Alltaf með stórfjölskyldunni um
jólin. Og þá runnu upp jól þetta skiln-
aðarár þar sem ég var bara ein. Um þessi
jól fór ég í skíðafrí til Akureyrar en á
Þorláksmessu, þegar ég var komin til
Akureyrar, fyrstu jólin án barnanna,
fékk ég bara hita og spennufall af álagi
við að vera án þeirra,“ sagði Anna í Ís-
land vaknar í gærmorgun.
„Þetta var bara örmagnandi tilfinning.
Auðvitað er fyrsti tíminn eftir skilnað
rosalega erfiður hjá öllum,“ sagði Anna.
„En það sem gerist síðan í kjölfar skiln-
aðarins er að það hefst uppbyggingar-
tímabil hjá fólki,“ bætti hún.
„Þegar ég fór að fara inn á við fór ég
að átta mig á tækifærinu sem þessi tími
er fyrir mig. Nú eru fram undan yndisleg
jól og börnin mín munu eiga yndisleg jól
hjá pabba sínum. Þá ætlaði ég að finna
leið til að fara inn á við og gefa af mér,“
sagði Anna en jólaferðin verður í Birki-
hof á Suðurlandi og verður frá Þorláks-
messu og þar til annan í jólum. Mun fag-
fólk í jóga og jógadáleiðslu og hugleiðslu
taka þátt í dagskránni.
Fjórtán konur verða samankomnar yf-
ir jólin og segir Anna að þær séu allar í
afar ólíkum aðstæðum. Sumar eiga upp-
komin börn eða eru með jafna umgengni
eins og Anna sjálf. Aðrar hafa ákveðið að
vera með út af álagi og kjósa að nýta
þennan tíma til uppbyggingar. Skráning
er farin vel af stað en enn eru laus pláss í
boði.
„Þetta hefur lengi tikkað í mér, að
finna tilgang í því sem ég er að gera. Ég
er menntaður viðskiptafræðingur og svo
einhvers staðar á ævinni snerist við-
skiptafræðingurinn í jógastelpu og
D-vítamíngúrú,“ sagði Anna.
Konurnar sem taka þátt í ferðinni
verða leiddar inn í innri heim sinn, læra
að heyra í innsæinu og setja sér markmið
fyrir nýja árið, og er markmiðið að allar
konurnar komi endurnærðar og vald-
efldar út úr jólahátíðinni.
Fá má upplýsingar og skrá sig í ferð-
ina á isfold.is.
Öðruvísi jól Anna býður 14 konum að
koma um jólin í slökunardvöl í Birkihofi.
Tækifæri í að
vera ein um jól
Anna Ísfold áttaði sig á tækifærinu við að verja tíma ein
um jólin eftir að hún og barnsfaðir hennar skildu árið
2017 en hún átti afar erfitt með að eyða fyrstu jólunum
án barna sinna það ár. Hún býður nú konum upp á vald-
eflandi upplifunardvöl í Birkihofi á Suðurlandi yfir jólin.
Ljósmynd/ Ísfold.is
Ella Frank
7.995.- / St. 41-45
ep er ugo
13.995.- / St. 41-45
Tommy Hilfiger inniskór
8.995.- / St. 41-45
Ella Jill
6.995.- / St. 36-40
Shepherd Tessan
14.995.- / St. 36-41
Calvin Klein inniskór
8.995.- / St. 36-40
Bisgaard inniskór
7.995.- / St. 25-30
ep er or s
7.995.- / St. 16-22
Viking Njord
6.995.- / St. 19-26
Gefðu hl a ólagjöf
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
STEINAR WAAGE