Morgunblaðið - 02.12.2021, Side 58
58 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2021
WWW.S IGN . I S
Fornubúðum 12 · Hafnar f i rð i · s ign@s ign . i s · S : 555 0800
G
U
L
L
O
G
D
E
M
A
N
TA
R
50 ÁRA Sigurður Stefán fæddist á Akureyri, ólst
upp á æskuheimilinu í Byggðavegi 101 á Brekkunni
og varð stúdent frá náttúrufræðibraut MA árið
1991. Um haustið fór hann í viðskiptafræði í Há-
skóla Íslands, en fann sig ekki í því námi og fór aftur
til Akureyrar og vann þar í Bókabúð Jónasar í mið-
bænum næstu tvö árin. „Svo dreif ég mig í ensk-
unám í HÍ 1994, lauk BA-prófinu árið 1997 og síðan
kennslufræði til kennsluréttinda árið eftir. Það eru
margir kennarar í kringum mig í fjölskyldunni,
systur mínar tvær, tvær móðursystur, pabbi kenndi
ensku í hlutastarfi í nokkur ár við Gagnfræðaskól-
ann og afi minn, Sigurður Haraldsson, var farandkennari á Austurlandi fyrir
um 100 árum, þó sá árafjöldi hljómi furðulega.“ Eftir námið fór Sigurður í
hálft ár til Hollands að kenna ensku þar sem hann kynntist konu sinni,
Thamar Melanie Heijstra, sem er prófessor í félagsfræði við HÍ. Árið 1999
hóf Sigurður störf við enskudeild Garðaskóla í Garðabæ þar sem hann kennir
enn.
Sigurður er áhugamaður um enska boltann og gallharður Liverpool-
maður frá unglingsárum. „Svo hef ég verið á kafi í golfinu í nærri 40 ár. Golf-
ið er tæknileg íþrótt en líka félagsleg, og hefur í heild gefið mér mikið. Við
förum samhliða golfinu í ræktina, og potturinn er alltaf góður á eftir öllu
sprikli. Á veturna eru það svo skíðin og við höfum líka ferðast heilmikið.“
Sigurður Stefán Haraldsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Gerðu enga samninga, hvorki
stóra né smáa, án þess að kynna þér
vandlega innihald þeirra. Haltu þig fyrir
utan rifrildi í vinahópnum.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú hefur unnið vel og skipulega og
hefur nú lokið verkefni þínu í tæka tíð.
Leitaðu uppi gleði því hún bætir og kæt-
ir.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Daginn ættir þú að nota í til-
raunastarfsemi í eldhúsinu. Ekki efast
um þig og þína getu, þú ert miklu klárari
en þú heldur.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Ekki hafa samviskubit, þú gerðir
þitt besta í aðstæðum sem þú dast inn í.
Farðu í göngutúr í náttúrunni og hreins-
aðu hugann.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Takist þér ekki að koma málstað
þínum til skila tekst engum það. Láttu
engan bilbug á þér finna.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú getur þurft á góðum ráðum að
halda til þess að koma ákveðnu verkefni
í höfn. Líf þitt breytist til batnaðar
snemma á komandi ári.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Ný ástarsambönd eru í uppsiglingu.
Mundu að láta ekki segja þér fyrir verk-
um. Þú ert verkstjórinn í þínu lífi.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Láttu það nú eftir þér að
hrinda draumum þínum í framkvæmd
þótt það kosti einhverjar fórnir. Góð-
mennska þín á sér engin takmörk.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Smámunasemin er alveg að
fara með þig þessa dagana. Vertu viðbú-
in/n því að aðrir komi þér á óvart næstu
daga. Þú kannt að hressa fólk við.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú munt sjá að samvinna skil-
ar betri árangri en að hver sé í sínu
horni. Reyndu að taka skynsamlegar
ákvarðanir fyrir þína framtíð.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Láttu það sem aðrir segja um
fyrirætlanir þínar sem vind um eyru
þjóta (ef það er eitthvað neikvætt). Maki
þinn kemur þér rækilega á óvart.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Gleymdu ekki að vera til staðar
og aðstoða vini þína sem á því þurfa að
halda. Eitt góðverk á dag er stefna þín
þessa dagana.
1982 og stofnaði eitt af fyrstu verð-
bréfafyrirtækjum landsins, Ávöxtun.
„Þá var íslenskt viðskiptaumhverfi
áratugum á eftir því sem þekktist
t.d. í Bandaríkjunum og Bretlandi,
og ég kom með margar nýjungar og
var viðriðinn fjölmörg önnur fyrir-
tæki. En ég fékk aldrei frið frá yf-
irvöldum. Á þessum tíma rýrðu
bankarnir sparifé landsmanna en
þeir sem tóku lán græddu. Þetta var
alveg absúrd staða og mjög staðnað
kerfi. Að lokum tókst kerfinu að
sprengja Ávöxtun í loft upp 1988 og
ég stóð bara á sviðinni jörð og þurfti
að byrja upp á nýtt eins og Þjóð-
verjar eftir seinni heimsstyrjöldina.
Ég átti engan rétt á bótum eða
stuðningi frá ríki og borg sem sjálf-
stæður atvinnurekandi, svo ég varð
bara að bjarga mér sjálfur. Það má
segja að það tóku við ákaflega erfið
ár en ég beit á jaxlinn og sagði við
sjálfan mig: „Ármann, þú hefur lifað
Almenna bókafélagið. Ég skynja
best íslenskar rætur á vel settum ís-
lenskum bóndabæjum, og þessi fróð-
leikur kom allur aftur til mín þegar
ég fór að skrifa.“
Ármann hóf nám í lagadeild Há-
skóla Íslands en fór til London og
lauk viðskiptagráðu frá London
School of Foreign Trade. „Síðan lauk
ég námi í viðskiptum frá London
School of Economics, en ég bjó á
hinu fræga Baker Street í hjarta
Lundúna, þar sem sögupersónan
Sherlock Holmes var látinn búa. Það
er á árunum í London sem ég upp-
götva sjálfan mig og ég náði að
þroska minn persónuleika. Fyrir ut-
an námið hellti ég mér í listalíf borg-
arinnar og það nám hefur ekki síður
nýst mér vel á lífsleiðinni. Ég var í
viðskiptum öll sumur þegar ég var að
selja og lærði þar allan grunninn í
viðskiptum og sölumennsku.“
Ármann kom heim frá Lundúnum
Á
rmann Reynisson fædd-
ist 2. desember í
Reykjavík. „Ég átti að
fæðast 1. desember en
seinkaði um tvo klukku-
tíma og korter, sem hefur komið sér
vel þegar halda á veislu.“ Fyrstu sjö
árin ólst Ármann upp í Laugarnes-
hverfinu og síðar í Heimahverfinu og
gekk í Langholts- og Vogaskóla. „Ég
ólst upp við mikið ástríki foreldra
minna, sem ég hef búið að allar götur
síðan og undirbúið mig fyrir áföll síð-
ar í lífinu. Við erum fjögur systkinin
og ég var alinn upp heima, því móðir
mín var húsmóðir. Hún lagði alltaf
mikla áherslu á að við systkinin vær-
um snyrtilega til fara og ég hef hald-
ið þeim sið alla tíð.“
Ármann var í sunnudagaskóla og
KFUM og var ylfingur í skátafélag-
inu Birkibeinum. „Ég var sendur í
sveit árið 1960 á Grund á Langanesi
og hef aldrei fengið betri mysing á
ævinni, en húsmóðirin útbjó hann
sjálf. Ég var á alþjóðlega skáta-
mótinu á Þingvöllum sumarið 1962
og þar kom Lady Baden Powells og
ég hef skrifað vinjettu um þennan
viðburð.“ Sumarið 1963 fór Ármann í
sveit að Arnarnúpi í Dýrafirði. „Þá
var ennþá strokkað á Vestfjörðum
og ég hef aldrei fengið betra smjör á
ævinni.“
Eftir grunnskólann fór Ármann í
Kennaraskóla Íslands og lauk bæði
kennaraprófi og stúdentsprófi það-
an. „Ég hef samt aldrei fengist við
kennslu, en námið kom sér mjög vel
þegar ég var knúinn að skrifborðinu
síðar á lífsleiðinni, því þar var snilld-
ar íslenskukennsla. Ég hugsa að það
hafi verið síðasta ósk mín að verða
rithöfundur, en maður ræður stund-
um ekki sinni vegferð þegar kippt er
í þráðinn.“
Ármann vann öll sumur sem ung-
lingur og hann bar út póst vítt og
breitt um borgina í fimm sumur og
kynntist henni því mjög vel. Síðan á
námsárunum fór hann í söluferðir út
um allt land átta sumur og kynntist
bæði landi og þjóð inn að innstu rót-
um. Hann seldi bæði vélar og tæki,
slökkvitæki og allt mögulegt. „Síðari
árin seldi ég ritsöfn í metravís fyrir
svo góða daga og nú skaltu sýna
þjóðinni að þú getir unnið úr þessu
áfalli.““ Eftir langdregna baráttu í
réttarkerfinu var Ármann dæmdur í
eitt ár í fangelsi á Kvíabryggju. „Þar
var ég nú bara eins og karlinn í
tunglinu, uppáklæddur með þver-
slaufu upp á hvern dag. Ég notaði
tímann til að næra anda og sál með
lestri heimsbókmennta og hlustun á
klassíska tónlist og reyndi að gera
sem best úr þessum tíma. Ég segi oft
að kerfið gerði mig að rithöfundi og
öll þessi reynsla hefur nýst mér vel.
Einn daginn sat ég á álfhól og horfði
yfir Breiðafjörðinn þegar ég heyrði
karlmannlega rödd segja: „Ármann,
þú verður að skrifa sögur til að leið-
rétta mál þín.“ Svo liðu sjö ár, en
sumarið 2000 var ég bara knúinn af
innri krafti og vissi ekkert hvað ég
var að fara að skrifa, en þessi sagna-
aðferð vinjettunnar fæddist full-
sköpuð frá mér.“
Ármann Reynisson vinjettuskáld og lífskúnstner – 70 ára
Morgunblaðið /Hari
Fagurkerinn Ármann er fæddur á aðventunni og setur upp handsmíðað, antikmálað jólatré úr Stykkishólmi frá
árinu 2000. Skrautið á trénu eru dýrindis listmunir víða að úr heiminum, en hann er mikill listunnandi og safnari.
Lít glaður um öxl og fram á veg
Til hamingju með daginn
Patreksfjörður Ingibjörg Lilja Arn-
ars Pétursdóttir fæddist 27. ágúst
2020 kl. 22.01. Hún vó 3.380 g og
var 50 cm löng. Foreldrar hennar
eru Pétur Ingi Haraldsson og Kittý
Arnars Árnadóttir.
Nýr borgari