Morgunblaðið - 23.12.2021, Page 10

Morgunblaðið - 23.12.2021, Page 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2021 OPIÐ TIL 22 Í KVÖLD Verslun | Snorrabraut 56, 105 Reykjavík | 588 0488 | Vefverslun á Feldur.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Hvað varðar slys á fólki hefur árið verið án stóráfalla í íslenska fiskiskipaflotanum. Til þessa hefur ekkert banaslys orðið á sjó, en nokkrir dagar eru eftir af árinu. Ævinlega róa einhverjir bátar í kringum hátíðar og slysin gera ekki boð á undan sér. Árið 2008 varð ekkert banaslys á sjó við landið og hefur verið haft á orði að það hafi verið fyrsta árið síðan um landnám að slíkt slys hafi ekki orðið. Mörg ár síðustu aldar fórust tugir og jafnvel hundruð sjó- manna. Árin 2011 og 2014 voru einnig án banaslysa og sömuleiðis fjögur ár í röð 2017 til 2020, sam- kvæmt ársyfirliti siglingasviðs rannsóknanefndar samgönguslysa. Skuggar hvíla yfir Sá skuggi hvílir þó yfir að 2018 lést maður í Sundahöfn sem hafði unnið að viðgerðum um borð í báti og er talið að hann hafa fallið út- byrðis í prufusiglingu og banda- rískur ferðamaður fórst við köfun við Hjalteyri í september 2019. Í maí 2020 var gerð umfangsmikil leit í Vopnafirði að 18 ára sjó- manni, en hann féll útbyrðis af fiskiskipinu Erlingi KE-140. Leitin bar ekki árangur, en líkamsleifar hans fundust í Vopnafirði 1. apríl í ár. Það mál kom ekki til kasta RNSA. Margir samverkandi þættir eru að baki þeim árangri að fækka al- varlegum slysum í íslenska flot- anum. Nefna má vaktstöð siglinga, Slysavarnaskóla sjómanna, hærri starfsaldur til sjós, nákvæmari veð- urspár en áður var og stærri og betur útbúin skip með fullkomnara öryggisstjórnunarkerfi. Rann- sóknarnefnd samgönguslysa hefur verið óspör á að koma með tillögur í öryggisátt vegna mála sem ratað hafa á borð þess. Jón Árelíus Ingólfsson, rann- sóknastjóri RNSA, nefndi einnig kvótakerfið fyrir tveimur árum þegar hann var beðinn að telja upp nokkra þætti, sem hefðu leitt til aukins öryggis á sjó: „Það á örugglega sinn þátt í að meiri skynsemi er í sókninni held- ur en áður. Nú vita útgerðir og skipstjórar hver þeirra hlutur er og menn þurfa ekki að sperra sig til að ná í fiskinn og vinnslan stýrir oft sókninni,“ sagði Jón Árelíus fyrir tveimur árum, en hann lætur af störfum sem rannsóknastjóri um áramót. Atvik sem læra má af Á árinu hafa 82 mál verið skráð til rannsóknar hjá RNSA, en í fyrra voru þau 93 og 106 árið 2019. Nefndin hefur afgreitt 95 loka- skýrslur í ár og var 46 þeirra lokið með sérstöku nefndaráliti. Ekki eru öll atvik á sjó skráð í sérstaka rannsókn hjá nefndinni, heldur er áhersla lögð á atvik sem draga má lærdóm af. Stærsti einstaki flokkurinn í ár varðar slys á fólki um borð í skip- um, en 41 slíkt mál hefur komið á borð nefndarinnar og eru fallslys áberandi í þeim flokki. Átta mál eru skráð vegna strands eða að skip hefur tekið niðri. Skráð hafa verið 23 atvik þar sem skip voru dregin til hafnar. Þrívegis varð eld- ur um borð, m.a. í Vestmannaey í lok október þar alsvert tjón varð. Meðal annarra mála má nefna leka og efnaslys og þegar Dala Rafn sigldi á Elliðaey í janúar. Ekkert banaslys á sjó það sem af er ári - Fyrsta árið án banaslysa meðal sjómanna var 2008 - Oft fórust tugir og jafnvel hundruð sjómanna á hverju ári - Margt verið gert til að auka öryggi sjómanna - 82 mál til rannsóknar hjá RNSA í ár Ljósmynd/RNSA/Hilmar Snorrason Tjón Skemmdir urðu á stefni Dala-Rafns VE eftir að skipið sigldi utan í Elliðaey í janúar. Við ásiglinguna kom mikið högg á skipið og einn skipverji handleggsbrotnaði. Skipið strandaði ekki og var því siglt til hafnar í Eyjum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.