Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.06.2003, Blaðsíða 3
Klifur
Oflug stoðþjónusta,
lykill að lifandi lífi
Það er árið 2003, Evrópuár
fatlaðra. Á þessu ári eru 25 ár
liðin frá jafnréttisgöngunni
miklu sem Sjálfsbjörg stóð að og
áætlað er að 7 - 10 þúsund manns
hafi tekið þátt í. Þá var krafan jafn-
rétti, full þátttaka. Margt hefur
breyst síðan þá, flest sem betur fer
til bóta en á sumum sviðum miðar
alltof hægt. Aðgengi er almennt
betra fyrir hreyfihamlaða en var fyr-
ir 25 árum. Það er auðveldara að
sækja skóla, atvinnu, félags- og
menningarlíf. Hjálpartæki eru full-
komnari og kjaramálin - ja þau eru
allavega í umræðunni sem er gott.
Ég dreg hér upp býsna fallega
mynd en það er enn langt í land að
fullu jafnrétti sé náð. Þröskuldar eru
enn alltof víða.
Stór hópur hreyfihamlaðra þarf
mikla aðstoð við athafnir daglegs
lífs. Fólk sem þarf aðstoð heima-
hjúkrunar við að fara á fætur og
hátta, böðun, fara á klósett o.s.frv.
Heimilishjálpin aðstoðar svo m.a.
við þrif og þvotta svo eitthvað sé
nefnt.
Ferðaþjónusta fatlaðra aðstoðar
fólk við að komast á milli staða.
Víða á landsbyggðinni í dreifðum
byggðum getur verið erfitt að
byggja upp góða þjónustu á þessu
sviði, sem sniðin er að þörfum ein-
staklingsins og er það skiljanlegt.
Þegar stóra þéttbýlið á suðvestur-
horninu er hinsvegar skoðað kemur
ýmislegt miður gott í ljós.
Hugsum okkur einstakling sem
þarf heimahjúkrun, heimilishjálp og
ferðaþjónustu. Hann ætlar í skóla
eða vinnu og byrjar klukkan 8 eða
hálf-níu. Það þykir ósköp eðlilegur
tími en OBB BOBB BOBB...BÍÖ-
um nú við! Morgunvakt heima-
Sigurður Björnsson, skrifar.
Hugsum okkur einstakling
sem þarf heimahjúkrun,
heimilishjálp og ferðaþjón-
ustu. Hann œtlar í skóla eða
vinnu og byrjar klukkan 8
eða hálf-níu. Það þykir
ósköp eðlilegur tími en OBB
BOBB BOBB...Bíðum nú
við! Morgunvakt heima-
hjúkrunar byrjar ekki fyrr
en kl. 8.00. Þarfór í verra.
hjúkrunar byrjar ekki fyrr en kl.
8.00. Þar fór í verra. Fyrst ekki er
hægt að fara „snemma" á fætur þá er
best að fara seint að sofa gera eitt-
hvað skemmtilegt unr kvöldið en
OBB BOBB BOBB.... Bíðum nú
við! Kvöldvaktin getur helst ekki
komið seinna en kl: 21-21.30 öll
kvöld ársins, helgar sem virka daga!
Þá versnar nú í því. Hvað með bío,
leikhús, vinaheimsóknir, fjölskyldu-
heimsóknir, videógláp, íþróttir, allra
handa félagslíf, kosningakvöld og
svona mætti endalaust telja. Þama er
það vaktakerfi heimahjúkrunar sem
bregst. Á næturvakt heimahjúkrunar
eru tveir starfsmenn á einum bíl á
svæði sem nær frá Seltjarnarnesi að
Kjalarnesi. Þetta er kristaltært dæmi
um vaktakerfi sem EKKI er sniðið
til að þjóna þörfum fólks sem vill
taka þátt í lífinu. Skert mannrétt-
indi? Það finnst mér. Skert lífs-
gæði? Hiklaust!
Heimilishjálpin er þjónusta sem
margir hreyfihamlaðir geta ekki ver-
ið án. Þessa aðstoð má ekki skera
við nögl. Hún þarf að fullnægja
sanngjömum, einstaklingsbundnum
þörfum og aðbúnaður starfsfólks
verður að vera góður. Nægur mann-
afli þarf að vera til staðar svo hvert
heimili fái þá þjónustu sem sæm-
andi er. Það þarf lipurt, liðlegt,
sveigjanlegt kerfi sem tryggir góða
umhirðu, hreinlæti, innkaup og mat-
seld svo eitthvað sé nefnt. Nauðsyn-
lega aðstoð við að skapa vistlegt
heimili má ekki vanmeta í tíma og
peningum.
Sértu á vinnumarkaði þá þarftu að
borga fyrir þessa þjónustu, þ.e. þú
borgar fyrir að spara ríkinu peninga.
Hvers vegna eiga fatlaðir að borga
fyrir heimilisverk sem þeir verða að
„kaupa“ en ófatlaðir geta sjálfir innt
af hendi. Ef hinn ófatlaði nennir því
ekki þá getur hann keypt heimilis-
Hvað með bíó, leikhús, vina-
heimsóknir, fjölskylduheim-
sóknir, videógláp, iþróttir,
allra handa félagslíf, kosn-
ingakvöld og svona mœtti
endalaust telja. Þarna er það
vaktakerfi heimahjúkrunar
sem bregst.
3