Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.06.2003, Side 5
Klifur
Hittumst á
Skógardegi
Sjálfsbjargar
í Haukadalsskógi
Aðalfundur Sjálfsbjargar á
Suðurlandi var haldinn 24.
maí s.l. í Tíbrá á Selfossi.
Gestur fundarins var Hreinn Osk-
arsson skógarvörður á Suðurlandi.
Hann átti frumkvæði að því að hafist
var handa um gerð aðgengilegra
skógarstíga í Haukadalsskógi á s.l.
sumri. Þá sótti Sjálfsbjörg á Suður-
landi um styrk í Pokasjóð til verk-
efnisins og fékk úthlutað einni millj-
ón króna. Verkið sóttist vel, en betur
má ef duga skal.
í ár var aftur sótt um styrk í Poka-
sjóð og fékkst þá önnur milljón. Auk
þess veitti Ferðamálaráð 350 þúsund
krónur til verkefnisins. Aðalfund-
urinn samþykkti að veita krónur 300
þúsund til verksins. Fundarmenn
lýstu ánægju sinni með þetta
skemmtilega og þarfa framtak og
vænta þess að víðar verði tekið til
hendi svo að hreyfihamlaðir geti,
eins og aðrir, notið íslenskrar nátt-
úru.
í blaðinu Við ræktum 2. tbl. 2002
fengu þeir sem stóðu að verkefninu í
Haukadalsskógi „Rós í hnappagat-
ið.“ í blaðinu segir: „Að þessu sinni
veitir Við ræktum fyrrgreindum að-
ilum rósina í hnappagatið fyrir fram-
takið. Fram að þessu hafa þeir sem
bundnir eru hjólastóli ekki átt kost á
að fara urn skóginn nema með mikl-
um tilfæringum." Við þökkum fyrir
okkar part af rósinni.
Stjórnin og skógarvörðurinn í skógarlundi. Myndir/Margrét Isaksdóttir.
A aðalfundum er alltaf eitthvað gott
í gogginn.
í tilefni af Ári fatlaðra 2003 mun
Sjálfsbjörg á Suðurlandi í samvinnu
við Hrein skógarvörð, efna til Skóg-
ardags Sjálfsbjargar í Haukadals-
skógi. Verður hann auglýstur ræki-
lega, svo fólk geti fjölmennt, hvort
sem það er gangandi, í hjólastólum,
eða með börn í vagni eða kerru.
Á Alþjóðadegi fatlaðra 3. des. s.l.
veitti landssambandið átta fyrir-
tækjum og stofnunum í landinu við-
urkenningar fyrir gott aðgengi. Af
þessum átta viðurkenningum fóru
sex á Suðurland. Mikil vakning er
hér á Suðurlandi í aðgengismálum
Svanur afhendir Hreini skógarverði
framlag Sjálfsbjargar á Suðurlandi til
skógarstígagerðar í Haukadalsskógi.
fatlaðra.
Félögum í Sjálfsbjörg á Suður-
landi fjölgaði um átta milli aðal-
funda. Eru það ánægjuleg tíðindi.
Það munar um hvern einn til að
vinna að málefnum fatlaðra. Stjórn
félagsins verður óbreytt næsta árið
og er Svanur Ingvarsson formaður.
Pálína Snorradóttir,
ritari.
5