Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.06.2003, Blaðsíða 6
Klifur
Fyrir um tveimur áratugum ákváðu Evrópuþjóðirnar að tileinka árið í ár
hagsmuna- og baráttumálum fatlaðra. Stjórnvöld og hagsmunasamtök
fatlaðra skyldu beina sjónum að kjörum og þörfum fatlaðra til að geta
lifað sem bestu lífi í Evrópu. Þau skyldu leitast við að sameinast um að finna
leiðir til að bæta kjör fatlaðra á öllum sviðum.
Evrópuár fatlaðra er skipulagt af Evrópuráðinu í samvinnu við EDF
(European Disability Forum), samtök sem hafa innan sinna vébanda 37
milljónir fatlaðra í Evrópu. í hverju landi fyrir sig sjá bæði fagráðuneyti og
frjáls félagasamtök um að standa fyrir atburðum og uppákomum á árinu.
Markmið Evrópuársins
Að auka skilning á réttindum fatlaðra til að koma í veg fyrir
mismunun, þannig að fatlaðir geti að fullu nýtt sér réttindi
sín til jafns við aðra.
Að hvetja til umræðu um stöðu fatlaðra í hinum ýmsu þjóð-
félögum og um þau skref sem eru nauðsynleg til að auka
réttindi fatlaðra í Evrópu.
Að auka samskipti og deila reynslu af því sem betur má fara
á sveitarstjórnarstigi, á landsvísu eða á evrópska vísu.
Að styrkja samvinnu milli allra aðila sem koma að málefn-
um fatlaðra þ.e.a.s. ríkisstjóma, aðila vinnumarkaðarins, fé-
lagasamtaka, stofnunum í þjóðfélaginu, einkamarkaðnum,
hinna fötluðu sjálfra og fjölskyldna þeirra.
Að gera hina fötluðu sýnilegri og sýna jákvæða hlið á fötl-
uðum.
Að auka meðvitund um mismunandi fatlanir og fjölbreyti-
leika þess fólks sem býr við fötlun.
Að auka meðvitund um um hina ýmsu fordóma sem fatlaðir
þurfa að búa við.
Að leggja sérstaka áherslu á rétt fatlaðra barna og ungmenna
til menntunar til jafns við aðra og styðja og hvetja til fullrar
aðlögunar þeirra í samfélaginu.
WWW.ARFATLADRA.IS
6