Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.06.2003, Síða 7
Klifur
Eins og áður sagði sjá
fagráðuneyti og frjáls félaga-
samtðk um að standa fyrir
atburðum og uppákomum á ári fat-
laðra.
Sjálfsbjargarfélögin munu standa
fyrir svokölluðum Sjálfsbjargardög-
um, en nánar er fjallað um Sjálfs-
bjargardaga hér neðar á síðunni.
Félagsmálaráðuneytið tekur þátt í
viðkomandi samstarfi Evrópuþjóða
fyrir Islands hönd og eru einkunnar-
orð ársins „Samfélag fyrir alla.“ Á
heimasíðu félagsmálaráðuneytisins
segir að markmiðið með sam-
starfinu sé að fólk með fötlun geti
orðið virkir þátttakendur í því sam-
félagi sem það lifir. Gott aðgengi að
menntun og öflugur stuðningur við
fatlaða á almennum vinnumarkaði
séu forsendur þess að þeir fái notið
sömu tækifæra og aðrir í samfélag-
inu.
Á heimasíðu félagsmálaráðu-
neytisins segir einnig að þema árs-
ins verði lífsgæði þeirra sem búa við
fötlun í víðasta skilningi. Reynt
verði að líta til þess hvar megi bæta
þjónustuna á sviði búsetu,- atvinnu,-
skóla- og frístundamála. Boðið
verður upp á fræðslu og listviðburði
svo eitthvað sé nefnt. Ráðuneytið
vilji eiga gott samstarf við alla þá
sem að árinu koma þannig að sem
best takist til.
Félagsmálaráðuneytið stóð fyrir
opnum morgunverðarfundi í apríl
síðastliðinn. Þar greindi Páll Pét-
ursson, fyrrverandi félagsmálaráð-
herra, frá áhersluatriðum í aðgerða-
áætlun sem félagsmálaráðuneytið
hefur markað. Um er að ræða 11
atriði sem Páll tiltók í ræðu sinni og
fara hér á eftir.
Fyrst er að telja hækkun örorku-
bóta sem ákveðin var með tjárlög-
um fyrir jólin.
í öðru lagi breytingu og hækkun á
örorkubótum.
I þriðja lagi verður sett á stofn
samstarfsnefnd ráðuneyta ásamt
fulltrúum frá Öryrkjabandalagi Is-
lands og Landssamtökunum Þroska-
hjálp sem munu vinna með ráðu-
neytinu á ári fatlaðra.
I fjórða lagi mun félagsmálaráðu-
neytið beita sér fyrir öflugu sam-
starfi ráðuneytanna þar sem skoðað
verður hvernig þau og undirstofnan-
ir þeirra geta betur með almennum
hætti tekist á við fjölbreyttar þarfir
fatlaðra. Farið verður af stað með
viðkomandi verkefni í maí og að-
gerðaráætlun kynnt í lok nóember.
I fimmta lagi mun félagsmála-
ráðuneytið í samstarfi við sam-
starfsnefndina veita styrki til verk-
efna á sviði rannsókna og tilrauna
við framkvæmd þjónustu við fatl-
aða. Gert er ráð fyrir að fyrstu
styrkjum verði úthlutað í júní 2003.
I sjötta lagi mun félagsmálaráðu-
neytið í samstarfi við samstarfs-
nefndina veita styrki til einstaklinga
og stofnana sem eru að veita þjón-
ustu sem þykir framúrskarandi og til
eftirbreytni fyrir aðra.
I sjöunda lagi mun félagsmála-
ráðuneytið í lok ársins í framhaldi af
málþingi um búsetu fatlaðra leggja
fram skýra framtíðarsýn um þróun
og fyrirkomulag á sérhæfðri búsetu
fatlaðra og tengdri þjónustu við þá.
I áttunda lagi mun félagsmála-
ráðuneytið í samráði við hagsmuna-
samtök fatlaðra standa að kynninga-
fundum meðal almennings sem hafa
það að markmiði að auka þekkingu
og skilning á fötlun og áhrifum fötl-
unar.
í níunda lagi mun félagsmálaráðu-
neytið standa fyrir ráðstefnu í sam-
vinnu við Greiningar- og ráðgjafar-
stöð ríkisins og hagsmunaaðila um
fötluð böm og fjölskyldur þeirra.
Ráðstefnan verður haldin eigi síðar
en í október næstkomandi.
I tíunda lagi mun félagsmálaráðu-
neytið leggja fram skýra framtíðar-
sýn um þróun og fyrirkomulag þjón-
ustu við fatlaða á almennum vinnu-
markaði.
I ellefta lagi mun félagsmálaráðu-
neytið í samvinnu við menntamála-
ráðuneytið og fleiri hlutaðeigandi
aðila vinna að aðgerðaráætlun sem
miðar að því að fatlaðir séu að fullu
þátttakendur í þróun og uppbygg-
ingu upplýsingasamfélagsins, hvort
sem um verði að ræða þróun al-
mennra lausna eða sértækra stuðn-
ingslausna fyrir fatlaða.
Þá sagði Páll ennfremur að félags-
málaráðuneytið muni á árinu hefja
endurskoðun á almennu skipulagi
og þjónustu við fatlaða á íslandi.
Markmiðið sé að leggja mat á það
sem vel hefur gengið og það sem
styrkja mætti enn frekar. Slíkt mat
verði síðan grunnur að endurskoð-
aðri áætlun til framtíðar.
Sjálfsbjargardagar í
tilefni af ári fatlabra
/
tilefni Evrópuárs fatlaðra er
ætlunin að halda svokallaða
Sjálfsbjargardaga. Markmið-
ið með Sjálfsbjargardögum er að
kynna starfsemi Sjálfsbjargar um
allt land auk þess að kynna og
vinna að markmiðum Evrópuárs-
ins.
Þann 15. mars s.l. var haldinn
fundur með formönnum aðildar-
félaga Sjálfsbjargar lsf. Tilefni
fundarins var að ræða og koma
skriði á framkvæmd væntanlegra
Sjálfsbjargardaga. Aðildarfélög
á hverjum stað hafa frjálsar hend-
ur með framkvæmd og hvaða dag
eða daga á þessu tímabili þau
velja til hátíðahaldanna. Fjöl-
margar góðar hugmyndir hafa
komið fram um hvað félögin ætla
sér að gera í tilefni Sjálfsbjargar-
daganna og verður gaman að sjá
hvað úr verður. Við munum að
sjálfsögðu fjalla ítarlega um
Sjálfsbjargardaga í næsta tölu-
blaði Klifurs, sem kemur út á
haustdögum.
7