Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.06.2003, Side 8
Klifur
G ott abgengi nýtist öllum
- segir Ragnar Frank Kristjánsson, þjóðgarðsvörður í Skaftafelli.
Ragnar Frank, þjóðgarðsvörður í Skaftafelli, ásamt tíkinni Trítlu. Ragnar segist
hafa mikinn áhuga á að bæta aðgengi fyrir fatlaða enn frekar í Skaftafelli.
s
undanförnum árum
hefur verið unnið að
því að bæta aðgengi
að vinsælum ferðamanna-
stöðum hér á landi. Þrátt
fyrir að víða sé aðgengi nú
orðið nokkuð gott er ljóst að
enn er mikið verk fyrir hönd-
um, sérstaklega hvað varðar
aðgengi fyrir fatlaða. í júlí í
fyrra var opnaður sérhann-
aður göngustígur fyrir fatl-
aða í Skaftafelli. Sá sem á
mestan heiðurinn af því
verki er Ragnar Frank Krist-
jánsson, þjóðgarðsvörður í
Skaftafelli. Ragnar er mennt-
aður landslagsarkitekt frá
Kaupmannahöfn og í námi
sínu þar kynntist hann því
hvernig huga skuli að hönn-
un á umhverfi fyrir fatlaða.
Þá eru í hans fjölskyldu tveir
fatlaðir einstaklingar, þannig
að honum hefur ávallt verið
kunnugt um mikilvægi góðs
aðgengis fyrir fatlaða.
„Opnun göngustígsins í fyrra fékk
góð viðbrögð og margir úr röðum
fatlaðra lýstu yfir ánægju sinni með
framtakið,“ segir Ragnar Frank.
„Stígurinn, sem er um 1600 metra
langur og með bundnu slitlagi, ligg-
ur frá þjónustumiðstöðinni að
Skaftafellsjökli. Hann er um 250 cm
breiður og þar sem hann endar er lít-
ill útsýnispallur. Þar er skilti með
fróðleik um Skaftafellsjökul og
Svínafellsjökul.“
Ragnar Frank segist hafa mikinn
áhuga á að bæta aðgengi fyrir fatl-
aða enn frekar í Skaftafelli, svo fólk
geti t.d. komist auðveldar inn í
Morsárdal. „En það á eftir að ganga
frá því, þannig að aðalmálið núna er
að halda þessari leið fyrir fatlaða að
Skaftafellsjökli og einnig meðfram
brekkunum. Landslagið í Skaftafelli
er hins vegar þannig að það er hæg-
ara sagt en gert að gera það aðgengi-
legt fólki í hjólastólum. Hallinn á
landinu er víða svo mikill að það
gengur einfaldlega ekki upp, þó að
margir fegnir vildu. Akvegir eru að
jökli á nokkrum stöðum, þar sem
hægt er að komast nokkuð nálægt
Skeiðarárjökli.“
Það er yfirlýst stefna yfir-
valda að bœta aðgengi á
ferðamannastöðum. Stöð ugt
fleiri ferðamenn koma hing-
að til lands sem kallar auð-
vitað á gott aðgengi. I
Skaftafell koma t.d. um 150
þúsund gestir yfir árið,
þannig að oft og tíðum er
mikill erill.
Fleiri ferðamenn kalla á gott að-
gengi
Að sögn Ragnars Franks hefur á s.l.
fimm árum verið sett meira fjár-
magn í að bæta aðgengi á vinsælum
8