Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.06.2003, Blaðsíða 11
Klifur
Sumarvinna unglinga
-SAMSTARFSVERKEFNI ReYKJAVÍKURBORGAR, HAFNARFJARÐARBÆJAR OG SjÁLFSBJARGAR, LSF.
Tíu manna hópurinn sem mun starfa á skrifstofu Sjálfshjargar, landssambandsins í
sumar, m.a. við útgáfu Kifurs, símavörslu og undirbúning Evrópusamstarfs.
s
sumar munu tíu ungmenni starfa
á skrifstofu Landssambandsins
við ýmis störf, m.a. við útgáfu
Klifurs, símavörslu og undirbúning
Evrópusamstarfs.
Hópurinn hefur óskað eftir og
fengið samþykkt að vinna að útgáfu
sérstaks aukablaðs með 3. tbl. Klif-
urs þar með talið efnisöflun, greina-
skrif og kynningu á blaðinu. Jafn-
framt blaðaútgáfunni er áætlað að
koma á samskiptum við önnur
hreyfihömluð ungmenni í Evrópu.
Draumur þeirra er að vinna áfram
að því verkefni með það að mark-
miði að koma á ungmennaskiptum
við erlenda jafningja að ári.
Verkefnið er samstarfsverkefni
Iþrótta- og tómstundaráðs Reykja-
víkur, Hins Hússins, Tómstunda-
skrifstofu Hafnarfjarðarbæjar,
Vinnuskóla Hafnarfjarðarbæjar og
Sjálfsbjargar, lsf. Sveitarfélögin
greiða ungmennunum laun fyrir
fulla vinnu í 8 vikur en Sjálfsbjörg
leggur til húsnæði, kostnað við út-
gáfu blaðsins, verkefnisstjórn o.fl.
Að auki hefur verkefninu borist
styrkur frá Ungu fólki í Evrópu
(UFE).
Því má búast við að umræddur
hluti 3. tölublaðs Klifurs verði frek-
ar óhefðbundinn því þar ætlar ungt
fólk að skrifa fyrir annað ungt fólk.
Að sögn hópsins á blaðið þó einnig
að vera læsilegt öðrum. I blaðinu er
ætlunin að hafa ýmiskonar greinar
og dálka, t.d. tónlistargagnrýni og
umfjöllun, myndasögur, viðtöl ofl.
Helsti ávinningur af sumarvinnunni
ætti að verða þessi: Hópurinn fær
tækifæri til að takast á við ögrandi
verkefni, við hæfi og með jafningj-
um. Eflir samstöðu þeirra og legg-
ur þannig grunn að öflugra starfi
innan Ný-Ungar. Stuðlar að kynn-
ingu á ungu, hreyfihömluðu fólki
bæði til annars hreyfihamlaðs ungs
fólks og til almennings. Eykur víð-
sýni hópsins og skapar möguleika á
samskiptum við erlend hreyfihöml-
uð ungmenni.
Sjálfsbjörg, lsf, býður hópinn vel-
kominn til starfa.
Hópurínn hefur óskað eft-
ir og fengið samþykkt að
vinna að útgáfu sérstaks
aukablaðs með 3. tbl. Klif-
urs þar með talið efnisöfl-
un, greinaskrif og kynn-
ingu á blaðinu. Jafnframt
blaðaútgáfunni er áœtlað
að koma á samskiptum við
önnur hreyfihömluð ung-
menni í Evrópu.
NÝ VEFSÍÐA SjÁLFSBJARGAR, LSF.
www.sjalfsbjorg.is
11