Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.06.2003, Blaðsíða 15
Klifur
fólki af annarri menningu eða þá
sem glíma við einhvers konar fötlun
sbr. Down's Syndrome einstaklinga.
Um 5% allra grunnskólanemenda
þurfa á Tákni með tali að halda á
einhverjum ákveðnum tímapunkti,
hvort sem það er á leikskólaaldri
eða á fyrstu árum í grunnskóla.
Hins vegar er lítil áhersla lögð á
Tákn með tali eða fingratáknmál
þegar leikskóla lýkur, þannig að við
erum að vonast til að þetta veki fólk
til umhugsunar og að þeir kennarar
sem eru með börn sem þurfa að nýta
sér þetta geti þá farið með bekkinn
inn á heimsíðu Tákns með tali, sem
er tmt.is, og skoðað tákn sem tengj-
ast þessu námsefni. Við erum einnig
með fleira eins og t.d. morsið, sem
er alþjóðlegt stafróf.“
Að fækka slysum á börnum
Að sögn Unnar Maríu er helsta
markmiðið með námsefninu að
fækka slysum á börnum.„Við reyn-
um að gera börnin sjálf meira vak-
andi um hætturnar sem eru allt í
kringum þau. En við reynum ekki
einungis að ná til barnanna heldur
líka foreldranna, vegna þess að þeir
eru auðvitað miklir áhrifavaldar í
lífi bama sinna. Við skulum ekki
gleyma því að flest slys á börnum
verða í heimahúsum og þess vegna
er mikilvægt að ná til foreldranna
líka. Við sendunr börnin heim með
verkefni sem þau eiga að vinna í
samvinnu við foreldrana, eins og t.d.
rafmagnspróf og heimilisáætlun,
þ.e. hvernig ætlar fjölskyldan að
bregðast við ef það kviknaði í o.fl.
Þá eru krakkarnir einnig látnir
kanna stöðuna í sínum eigin skóla,
þ.e. hvort rýmingaráætlun sé til ef
það kviknaði í.
Þess má einnig geta að geimálfur-
inn er með sitt eigið netfang þar sem
krakkamir geta skrifað honum bréf
ef þau hafa einhverjar spurningar
eða vilja senda honum myndir.
Krakkarnir eru mjög hrifnir af
geimálfinum og hann er þegar búinn
að fá nokkur bréf, segir Unnur Mar-
ía að lokum.“
Texti: Kristrún M. Heiðberg.
Ab brosa framan í
heiminn á rafskutlu!
Notendum rafskutla hefur
fjölgað undanfarið og nú
stendur til að stofna
áhugahóp fyrir þá sem eru notend-
ur og aðra sem vilja kynna sér eða
hafa spurningar er varðar rafskutl-
ur.
Valerie Harris iðjuþjálfi hjá
Sjálfsbjargarheimilinu og Kolbrún
Dögg Kristjánsdóttir félagsliði og
rafskutlunotandi standa fyrir því
að kalla þennan hóp saman. Þeir
sem hafa áhuga geta haft samband
við skiptiborð Sjálfsbjargar lsf. í
síma: 5529-133 eða amdis@sbh.is
og gefa upp nafn, síma eða net-
fang. Síðan verður haft samband
um fyrirhugaðan fund.
Notkun rafskutla hefur aukist
undanfarið og nú stendur til að
stofna áhugahóp fyrir notendur og
aðra áhugamenn.
„Buslað" frá Akranesi
til Reykjavíkur
Unglingastarf Sjálfsbjarg-
ar, BUSL, hefur ákveðið
að safna fyrir ferð til út-
landa næsta sumar, nánar tiltekið
til Svíþjóðar. Hugmyndin er að
safna fyrir ferðinni með því að
fara á rafmagnshjólastólum frá
Akranesi til Reykjavíkur 14. -15.
júní næstkomandi (fara fyrir
Hvalfjörð, ekki göngin) og feta
þannig nokkurn veginn í „hjól-
för“ Jóhanns Péturs og félaga,
sem fóru frá Akureyri til Reykja-
víkur hér áður fyrr. Búið er að
spjalla við Bifhjólasamtök lýð-
veldisins, Sniglana, og eru þeir
meira en lítið reiðubúnir að end-
urtaka leikinn og vera með í för.
Ætlunin er að bjóða fjölmiðlum
að vera með hluta af leiðinni til
Reykjavíkur og fá þannig já-
kvæða umfjöllun um BUSL og
þá um leið Sjálfsbjörg og ýta
undir happdrættið sem verður í
gangi á svipuðunr tíma.
Hjólastólarallýið er framlag
okkar í BUSLi, með ykkar hjálp,
til kynningar á ári fatlaðra. Við
hvetjum alla til að hringja í söfn-
unarnúmerið 908-2003 á rneðan
á rallýinu stendur og leggja okk-
ur lið.
Virðingarfyllst,
BUSLarar.
15