Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.06.2003, Page 23
Klifur
Fiölmennt:
Nýr möguleiki til menntunar
og starfsendurhæfingar
fyrir fatlaöa
Neyttu þeirrar gáfu,
sem þú átt.
Það yrði heldur
hljótt í skóginum
ef engir fuglar
mættu syngja þar
nema þeir, sem
syngja best.
Fjölmennt „menntun og
starfsendurhæfing“ er nýr
möguleiki til menntunar og
starfsenduhæfingar fyrir fatlaða.
Verkefnisstjóri er Helgi Jósepsson
en hann hefur áður komið á fót sam-
bærilegu námi á Akureyri. Skóla-
starfið fer fram að Túngötu 7 í
Reykjavík og er samstarfsverkefni
Fjölmenntar, Geðhjálpar og Fjöl-
brautaskólans við Armúla.
Markmið skólastarfsins er fyrst og
fremst að auka lífsgæði þátttakenda
en einnig að viðkomandi geti farið í
verndaða vinnu, út á almennan
vinnumarkað eða haldið áfram í
námi (Hringsjá, Janus, í framhalds-
skóla eða í háskóla).
Kenndar eru allar helstu bóknáms-
greinar. Að auki er boðið upp á nám
í tölvufræði, myndlist, hljóðfæra-
leik, einsöng, samsöng (kór) o.fl.
Ennfremur er hægt að sækja um all-
ar námsgreinar sem kenndar eru í
tjarnámi við Fjölbrautaskólann við
Armúla. Nokkrir hægferðaráfangar
verða í boði. Þeir nemendur sem
sækja um fjarnám stunda nám sitt í
skólanum að Túngötu 7 undir leið-
sögn kennara Fjölmenntar og iðju-
þjálfa. Þeim verður búin aðstaða til
að stunda nám sitt þar og aðgengi að
tölvum skólans.
Þar sem nemendur eru misjafn-
lega á vegi staddir er reynt að sinna
hverjum og einum eins og kostur er.
Frekari upplýsinga er hægt að
leita á skrifstofu Fjölmenntar eða
hjá Björgu Arnadóttur, félagsmála-
fulltrúa Sjálfsbjargar, lsf. Þar sem
fjöldi nemenda er takmarkaður eru
áhugasamir hvattir til að sækja um
sem fyrst á skrifstofu Fjölmenntar
Borgartúni 22, 105 Reykjavík.
„Mæli hiklaust með Fjölmennt"
- segir Ása Hildur Guðjónsdóttir.
unnið við það sem ég menntaði
mig í, þ.e. prentsmíði. Vegna
minnistruflana og einbeitingar-
skorts hef ég ekki treyst mér í al-
mennan skóla. I Fjölmennt hef ég
fengið afbragðs einstaklingsmið-
aða kennslu sem hefur nýst mér
mjög vel. Nú stefni ég á fjarnám
næstu önn við Fjölbraut í Ármúla
í íslensku 403 og stærðfræði, með
stuðningi frá Fjölmennt auk þess
að vera áfram í tölvunámi þar og
taka stöðupróf í þeirri kunnáttu
sem ég hef, en hef ekki prófskír-
teini uppá þar sem ég er sjálf-
menntuð á tölvu. Sjálfstraust mitt
hefur aukist til muna. Eg hef náð
að setja mér markmið til að stef-
na að með frekara námi. Svo er
þetta ferlega skemmtilegt líka. Ég
mæli hiklaust með Fjölmennt.“
Asa Hildur Guðjónsdóttir,
sem er mörgum Sjálfs-
bjargarfélögum að góðu
kunn, hefur stundað nám hjá Fjöl-
mennt og hefur eftirfarandi um
námið að segja: „Ég fór í Fjöl-
mennt í haust í íslensku og heima-
síðugerð. Mig langaði að læra
heimasíðugerð og fannst ég þurfa
að skerpa á íslenskunni. Eftir að ég
lenti í slysi 1991 hefégekki getað
23