Bændablaðið - 26.08.2021, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 26.08.2021, Blaðsíða 1
16. tölublað 2021 ▯ Fimmtudagur 26. ágúst ▯ Blað nr. 593 ▯ 27. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is Um milljón fjár væntanlegt af fjalli í haust – Ásett fé hefur ekki verið færra í 160 ár og enn er búist við fækkun – um 60% fjár úr haustsmölun fer til slátrunar Sauðfjárbændur búa sig nú undir smölun, en fyrstu leitir og réttir haustsins verða þann 28. ágúst í Brunnavallarétt og Kálfafellsrétt í Suðursveit. Fyrstu stóðréttir verða svo í Miðfjarðarrétt 4. september. (Sjá réttalista á bls. 32–34). Búast má við að með fullorðnu fé og lömbum, sem borin voru á síðast­ liðnu vori, komi yfir milljón fjár af fjöllum í haust. Af þessum hóp fer líklega um eða yfir 60% til slátrunar. Samkvæmt opinberum tölum hefur sauðfé ekki verið færra á Íslandi í 160 ár, eða síðan 1861 þegar talsverð fækkun varð vegna fjárkláða og stofninn fór niður í 327.000. Um síðustu áramót var sauðfé á gjöf samtals 401.420 samkvæmt nýjustu tölum úr mælaborði landbúnaðarins. Sauðfé var 415.847 á árinu 2019 og nam fækkunin á síðasta ári því um 15.123 fjár á milli ára, eða um 3,63%. Meiri frjósemi nú en fyrir 160 árum Unnsteinn Snorri Snorrason, sauðfjár­ bóndi á Syðri­Fossum í Borgarfirði og ábyrgða maður sauðfjárræktar hjá Bænda sam tökum Íslands, bendir á að hafa beri í huga að með bættum búskaparháttum og betri ræktun er frjósemi fjár í dag mun meiri en var fyrir 160 árum. Algengara er því að ær verði tvílembdar eða þrílembdar en áður þekktist og afurðir hafa því aukist töluvert eftir hverja kind. Samdráttur í ásetningu þýðir heildarfækkun fjár á afrétti Samdráttur í ásetningu fjár að hausti veldur því samt að heildarfjöldi fjár á á fjalli hefur verið að dragast saman þrátt fyrir aukna frjósemi. Þá hefur gróðri verið að fara mjög fram á landinu samfara hlýnun og stóraukinni uppgræðslu þannig að verulega ætti því að hafa dregið úr beitarálagi á afréttum. Meðalþyngd hefur aukist Meðalþyngd dilka hefur stöðugt verið að aukast. Sem dæmi var fallþungi á hverju lambi að meðaltali 16,31 kg árið 2014, en var komin í 16,89 kg árið 2020, sem er eitt af bestu árum hvað varðar fallþunga. Líklegt er að fallþungi verði nokkuð minni í haust sem mun þá draga eitthvað úr framleiðslu. Ef meðalfallþungi breytist um 100 g þá þýðir það um 50 tonna breytingu á heildar framleiðslu á dilkakjöti. Þrátt fyrri ágætan árangur í ræktunarstarfinu hafa sauðfjár­ bændur átt undir högg að sækja og hafa gagnrýnt lágt afurðaverð á undanförnum árum. Líkur benda því til að sauðfé muni áfram fækka á næstu árum. Samdráttur í framleiðslu kindakjöts Kindakjötsframleiðslan hefur verið að dragast saman og nam framleiðslan 9.476.691 kg á síðasta ári og hafði þá dregist saman um 4,3% milli ára. Þarna er bæði um að ræða framleiðslu á dilkakjöti og af fullorðnu fé. Er því spáð að framleiðslan í haust verði heldur minni en á síðasta ári ef ekki kemur til frekari fækkunar fjárstofnsins í landinu. Sömuleiðis er reiknað með einhverjum samdrætti í sölu á innanlandsmarkaði. Vægi kindakjöts dregst saman á innanlandsmarkaði Kindakjöt er ekki lengur helsta kjötfæða Íslendinga þar sem alifuglakjöt er orðið mun vin sælla. Þannig voru seld frá afurðastöðvum á síðasta ári rúm 6.204 tonn af kindakjöti sem var 12,6% samdráttur frá árinu 2019. Hins vegar voru seld tæp 9.039 tonn af alifuglakjöti sem var þó 7,7% samdráttur á milli ára. Salan á kindakjötinu var því ekki nema um 65% af framleiðslunni og var salan á þessari kjöttegund 2.834 tonnum minni en af alifuglakjöti. Það þýðir að kinda kjötssalan nam tæplega 69% af alifuglakjötssölunni. Að einhverju leyti stafaði neyslu­ samdrátturinn 2020 af fækkun ferðamanna vegna Covid­19. Útflutningur hefur dregist saman Sveiflum í framleiðslu hefur gjarn an verið mætt með útflutningi. Hann nam mest um 4.000 tonnum árið 2017 samkvæmt hagtölum sauðfjárræktarinnar, en hefur síðan dregist verulega saman. Á síðasta ári nam hann um 2.300 tonnum. Í lok maí 2021 var hann orðinn um 1.165 kg og hlutfallslega mest var selt til Noregs, eða 39%. Meðalverðið á útfluttu kindakjöti (fob) janúar–maí 2021 var um 800 krónur á kílóið, en það var innan við 700 krónur á síðasta ári. Mest hefur salan verið í bitum sem seljast illa hérlendis eins og frampörtum. /HKr. Blái herinn hefur á undanförnum árum farið eins og hvítur stormsveipur um fjörur landsins undir dyggri stjórn Tómasar Knútssonar. Nýverið fór hann ásamt vöskum hópi 22 sjálfboðaliða sem tóku sig til við að hreinsa strandlengjuna í Langanesbyggð. Afrakstur þessa mikilvæga hreinsunarstarfs skilaði um fjórum tonnum af rusli af ýmsum toga. Töluvert bar á veiðarfærum og plasti eins og brúsum, flöskum og forhlöðum, en inn á milli mátti finna fatnað ásamt glundri í glerflöskum. Hér eru liðsmenn Bláa hersins með hluta af trolli sem farið hefur í hafið af einhverju aflaskipinu. Þó svo að 4 tonn liggi í valnum eftir hreinsunina er enn ógrynni eftir af drasli í fjörum við Langanes að sögn Tómasar. – Sjá nánar á bls. 10. Mynd /Tómas Knútsson Unnsteinn Snorri Snorrason. Sauðfé hefur töluvert fækkað á liðnum árum og búist er við að enn fækki í ásetningu fjár í haust. Mynd / Úr safni Sala á íslenskum blómum hefur aukist mjög í farsóttarástandinu Aukin verðmætasköpun í sauðfjárrækt til skoðunar 28–29 Segist vera sveitatútta en er fædd í borginni 14 30–31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.